Skessuhorn - 24.02.2000, Blaðsíða 5
S51SSUHÖ2RI
FIMMTUDAGUR 24. FEBRUAR 2000
5
Viö liggur aö á íslandi sé orðin venja aö
játast undir hvers konar nýja siði. Siðvenja
þessi kemur til af því að á íslandi býr þjóð við
allt aðrar aðstæður en þegar flestir eigin sið-
ir hennar urðu til. Gömlu siðirnir mótuðust af
lífsháttum í stöðnuðu bændasamfélagi með
ívafi af útgerð innan 3 mílna. Uppruni og for-
sendur siða voru þekktar og siðirnir héldust
vegna þess að umhverfið sem þeir höfðu
sprottið úr breyttist svo fjarskalega lítið.
í öllum samfélögum sem hafa, eins og
hið íslenska, lifað tímana tvenna fer ekki hjá
því að gömlu síðirnir gleymist og verði an-
kannalegir þegar þróun umhverfisins fer
fram úr þeim. Eins fer um málshætti og orð-
tök sem verða ógagnsæ þegar atvinnuhætt-
ir breytast.
Þeir sem stunda verslun og viðskipti gera
sitt til að ýta undir nýja siði. Fræg íslensk
viðskiptahugmynd og sú sem sennilega hef-
ur lukkast hvað best er þorrablótshugmynd
séra Halldórs Gröndals. Ætli hún sé ekki 25-
30 ára gömul. Miðað við rammíslenskt inn-
tak og heiti þorrablótssiðarins eru innfluttir
siðir, svo sem Lúsíuhátíð og Valentínusar-
dagur, hálf innantómir. Þeir eru eins og rifnir
upp með rótum úr sínu umhverfi. Skörin
færðist upp í bekkinn fyrir nokkrum árum
þegar undirrituðum var í teiti einu inn undir
jól boðið upp á steik með brúnuðum kartöfl-
um, rauðkáli og brúnni sósu. Tilkynnt var að
í rauðkálinu væri falin mandla og að finnandi
hlyti fundarlaun. Sú mandla naut aldrei þeirr-
ar sælu að liggja þar sem möndlur eiga að
vera á þeim árstíma, í möndlugrautnum.
Ætli megi ekki, þrátt fyrir þennan hrylling,
halda því fram með nokkrum sanni að flestir
þeirra árstíðarbundnu siða sem innleiddir
hafa verið á undanförnum áratugum hafi
myndast og viðhaldist vegna löngunar kaup-
manna til að selja varning sem tengist siðun-
um.
Þá er nú hugtakið siður farið að fá nýja
merkingu og nýtt inntak. Þá er siðurinn far-
inn að tengjast því órjúfanlegum böndum að
kaupa eitthvað til að tákna siðinn og ef við-
komandi hlutur er ekki keyptur er siðurinn
ekki til. Hann er ekki til nema eitthvað sé
keypt. Þetta nefnist víst á útlensku material-
ismi og á íslensku efnishyggja.
Ófáir eru þeir íslendingar sem skreyta
glugga sína með sjö arma kertastjökum á
aðventunni, svonefndum aðventuljósum.
Einhvers staðar heyrði ég, gott ef ekki í út-
varpi allra landsmanna, að upphaf þessa
siðar ætti rætur að rekja til ferðar Gunnars
Ásgeirssonar, stórkaupmanns, til Svíþjóðar
fyrr á árum þar sem hann rakst á nokkurt
magn af slíkum kertastjökum hjá heildsala.
Hann lét slag standa og keypti alla stjakana
og viti menn, áður en varði var það orðið al-
siða á íslandi að láta loga á sjö arma gyð-
ingastjökum í gluggakistum 4 síðustu vikur
almanaksársins og eina á nýja árinu.
Við áhugamenn um siði verðum senni-
lega að venjast þeirri tilhugsun að nokkrir
nýir siðir komi til á ári hverju þar til almanak-
ið er orðið uppfullt af dögum sem útheimta
viðskipti til að viðhalda siðunum. Auk þess
verður drjúgur fjöldi bóka saminn með skýr-
ingum á öllum þessum nýju siðum sem eru
eins og afskorin blóm á heimskauti, skorin af
rót sinni annars staðar og flutt í framandi
umhverfi.
Eins gott að svona margir hafa gaman að
þurrblómaskreytingum.
Lars H. Andersen
EPSON deildin í körfubolta
Skallagrímur • KR
fimmtud
2. mars kl. 0.00
í íþróttamiðstöðinn Borgarnesi
Nú er þa
úrslftak
unnnn -
mundan
Áfram Skallagrímur
Matr eiá slumaáur
Matreiðslumann vantar á
sumarkótelið á Hvanneyri við
sumarafleysingar í ágúst.
Nánari upplýsingar í síma
437 0000.
Hótelstjóri.
SpMHÍH0a%eppHÍH í Jlöst
1999-2000
Spurningakeppninni sem átti að vera
síðastliðinn laugardag var frestað
vegna óveðurs og verður í staðin haldin
næstkomandi
laugardagj 26. febrúar.
Bingó - Bingó - Bingó
i Hótel Borgarnesi
Miðvikudagskvöldið 1. mars kl. 20.00 verður kaldið BINGO
Fjöldi stórglæsilegra vimiinga í boði m.a.:
Gjafabréf frá Plúsferðum,
Gisting íyrir t\ro á Lykilhóteli,
Útsýioisílug f. 2, Helgardvöl í Húsafelli,
Gjafabréf frá versl. Nínu, Akranesi og íl. og íl.
Óvænt skemmtiatrlði I
1
KafQveitingar og fl. g
Allur ágóði rennur til unglingastarfs
Köriuknattleiksd. Skallagrínis.
Hvað heitir kallinn?
Svörum skilað
við innganginn Fj ö|mennum á BI NGÓ
________________________:_______________________________________a agnms J