Skessuhorn


Skessuhorn - 16.03.2000, Side 1

Skessuhorn - 16.03.2000, Side 1
VIKUBLAÐÁ VESTURLANDI - 11. tbl. 3. árg. 16. mars 2000 Kr. 200 í lausasölu Leikskólum verður lokað Á fundi skólanefndar Akraness þann 7. mars s.l. var fjallað um mótmæli foreldra leikskólabarna vegna fyrirhugaðrar lokunar leikskóla bæjarins í sumar. Skólanefnd lagði fram bókun þar sem fram kemur að nefndin telur að sú leið sem mælt var með við bæjarsjórn, að loka hverjum leikskóla á víxl í tvær vikur, sé eins konar málamiðlun ólíkra sjónar- miða. Nefndin segir að viðbrögð foreldra komi ekki á óvart en heldur fast við þá ákvörðun sína að lokað verði með þeim hætri sem áður hefur verið ákveð- ið. Hins vegar leggur skólanefhd áherslu á að þeir foreldrar sem ekki hafa tök á að fara í sumarleyfi á sama tíma og leikskólinn lokar hafi heimild til að færa barn sitt á annan leikskóla. Með því að þessi leið verði farin þá munu allir foreldrar sitja við sama borð hvað varðar niðurfellingu leikskólagjalds í einn mánuð. PO Loðnan í Breiðafjörð Vart hefur orðið við loðnu í umtalsverðum mæli á Breiðafirði að undanförnu og hefur það að vonum vakið kátínu hjá sjómönnum þar um slóðir. Ragnar Konráðsson skipstjóri á Orvari sagði í samtali við Skessuhom í vikunni að þessi loðnuganga gæfi góð fyrirheit um fiskirí næstu mánuði. “Við tökum vel á móti loðnunni enda hefur hún gríðarlega mikla þýðingu upp á að fiskurinn stoppi hérna við. Loðn- an sást ekki hér í fyrra og afar lítið í hitteðfyrra en nú lítur þetta vel út og menn em bjartsýnir hér undir jökli,” sagði Ragnar. Ragnar sem er á netaveiðum lét þokkalega af fiskiríi þrátt fyrir tíðarfarið. “Það er búið að vera misvitlaust veður hér í allan vemr en við höfum þó verið á sjó flesta daga. Það er búið að vera ágætt fiskirí héma síðustu daga og við vonum að andsk.... veðrið fari að lagast.” GE ©Forsetínn / a fimm- synmgu Eiríkur rauði kominn heim ú fi CSCD allt að 45% afsláttur nýtt kortatímabil 16. mars DmQMæsH

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.