Skessuhorn


Skessuhorn - 16.03.2000, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 16.03.2000, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 Konur á kökuskreyt- inganámskeiði Kökugerðarmeistarinn Halldór Kr. Sigurðsson var með námskeið í kökuskreytingum síðastliðið mánu- dagskvöld. Námskeiðið var haldið í grunnskólanum og var það þölsótt. A milli 20 og 30 konur fylgdust með meistaranum. Ekki var að finna neina karlmenn á námskeið- inu, annan en leiðbeinandann, en þeir bíða þess þá væntanlega karl- arnir að fá að njóta ávaxtanna af lærdómnum. Það var kvenfélagið Gleym-mér-ei sem stóð fyrir nám- skeiðinu. Hjá kvenfélaginu er mikil uppsveifla um þessar mundir, ung- ar og hressar konur bætast stöðugt í hópinn. Búið er að stofha kvenfé- lagskór sem æfir reglulega undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmunds- dóttur og haldin verður Góugleði n.k. föstudagskvöld í Krákunni. GK Skammhlaup Pníðbiíimi keppandi í Skammhlaupi. Á öskudag fór fram í FVA “Skammhlaup 2000”. Þetta er í ann- að sinn sem slík uppákoma er haldin í skólanum. Nemendum skólans er skipt í 8 lið sem keppa m.a. í reip- togi, þýsku, logsuðu, sundi, h'fffæði söng o.fl. Keppnin er einskonar boð- hlaup og sigrar það Hð sem leysir þrautirnar best og á skemmstum tíma. Keppnin hefst í íþróttahúsinu við Vesturgötu að morgni, eftir að keppendur hafa marserað frá Fjöl- brautaskólanum, henni lýkur svo á sal skólans með hópatriðum. PO Menning og listir á Akranesi árið 2000 Áxið 2000 verður nýtt til hátíðar- halda af ýmsum toga um allt land. Reykjavíkurborg -menningarborg Evrópu árið 2000 hefur riðið á vað- ið með margháttaðri menningar- starfsemi frá fyrsta degi ársins. Höfuðborgin bauð öðrum sveitar- félögum að taka þátt í menningar- árinu og er gaman að sjá hve mörg slógust í hópinn. Akranes er eitt þeirra og nú á laugardaginn 18. mars hefst dagskrá ársins með fjöl- breyttri dagskrá í Bíóhöllinni á Akranesi. Dagskráin er þannig upp- byggð að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Tónlist skipar vegleg- an sess en einnig verður leikfélagið með upplestur og ljóð verða flutt svo eitthvað sé nefnt. Þá verða sýndar teikningar af 7 umhverfis- listaverkum en í lok maí verða þessi listaverk orðin raunveruleg og munu prýða strandlengju Akraness. Öll tengjast verkin sjávarlist með einhverjum hætti. Það verður því forvitnilegt að skoða teikningarnar í Bíóhöllinni og fara síðan í sumar og sjá hvernig þau taka sig út meðfram ströndinni. Hver listviðburðurinn rekur ann- an ffam á haust og geta lesendur Skessuhorns fylgst með auglýsing- um en einnig hefur verið gefinn út bæklingur þar sem helstu viðburðir eru tíundaðir. Mörg bæjarfélög hafa tekið upp þann hátt að minna á sérstöðu sína með einhvers konar hátíðarhöld- um. Sem dæmi má nefna “Danska daga” í Stykkishólmi og “Humar- hátíð á Höfn.” Tilgangurinn er margháttaður, ekki síst að þjappa bæjarbúum saman og styrkja ímynd bæjarins en einnig að þeir sem ætt- færa sig sem t.d. Hólmara geti gengið að ákveðnum dögum vísum þar sem brottfluttir koma á fornar slóðir. Síðast en ekki síst er tilgang- urinn að fá í heimsókn þá sem alltaf hafa ætlað að heimsækja viðkom- andi stað en aldrei komið því í verk! Skagamenn hafa ekki enn markað sér daga í þessu skyni en ef til vill verða Irskir dagar okkar dagar í framtíðinni. Akranes er framarlega í staffófinu og því eru Irskir dagar snemma árs miðað við aðrar byggðahátíðir. Dagana 24. - 28. maí verður írskri menningu gert hátt undir höfði á Akranesi og mun það auglýst betur þegar nær dregur. Við viljum bjóða alla lesendur Skessuhorns velkomna að njóta þess sem verður á boðstólum á Akranesi árið 2000. Sjáumst í Bíó- höllinni 18. mars. Helga Gunnarsdáttir, menningar- og skólafulltrúi Akraness Arleg Góugleði fór fram í Brúarási um síðustu helgi. Þar var semfyir ?nargt til gamans gert. M.a. voru tveir síungir piparsveinar kallaðir á svið, bundiðfyrir augu og þeir látnir blása upp þessar forláta plastkonur. Halldóri gekk áberandi betur en Helga á Haukagili að koma plastkmunni í nothæft ástand. Með á myndinni er Kristrún Snorradóttir (til hœgri). Mynd MM Fegurðarsamkeppni Vesturlands Skessuhorn kynnir 5 síðustu keppendurna í Fegurðarsamkeppni Vesturlands sem fram fer 25. mars Rut Garðarsdóttár Akranesi Aldur: 18 Foreldrar: Guðrún Pétursdóttir og Garðar Raffisson Starf: Nemi í Versló Ahugamál: Iþróttir, bflar og tón- list Steinunn M Gunnlaugsdóttir Grundarfirði Aldur: 17 Foreldrar: Gunnlaugur Þorláks- son og Þórdís Jeremíasdóttir Starf: Nemi í Iðnskólanum Rvk. Áhugamál: Utivist og ferðalög Helga Björk Jósefsdóttir Svarfhóli II Aldur: 18 Foreldrar: Líney Traustadóttir og Jósef Jóhann Rafinsson Starf: Nemi í FVA Ahugamál: Hestamennska, útivist og bækur Kristj ánsdóttir Akranesi Aldur: 19 Foreldrar: Ingibjörg Óskarsdóttir og Kristján Þ. Sigurðsson Starf: Nemi í FVA Ahugamál: Tungumál, kvik- myndir og gitarinn Jóna Kolbrún Nikulásdóttir Akranesi Aldur: 19 Foreldrar: Margrét Brandsdóttir og Nikulás Helgi Starf: Vinnur í Laugafiski Áhugamál: Vnirnir og unnustinn

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.