Skessuhorn - 29.06.2000, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000
^kCSSVIIUKl,
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 49 Sími: (Borgomes og Akranes) 430 2200
Akranesi: Suðurgötu 65,2. hæð Fax: (Borgarnes) 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: íslensk Upplýsingatækni ehf. 430 2200
Framkv.stjóri: Magnús Magnússon 852 8598
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 852 4098
Internetþjónusta: Bjarki Mór Karlsson 899 2298
Blaðamenn: Sigrún Kristjónsd., Akranesi 862 1310
Egill Egilsson, Snæfellsnesi 894 5038
Iþróttafrétlaritari: Jónas Freysson (James Fryer)
Auglýsingar: Hjörtur Hjartarson 864 3228
Fjórmól: Sigurbjörg B. Ólafsdóttir 431 4222
Prófarkalestur: Ásthildur Magnúsdóttir og Magnús Magnússon
Umbrot: Skessuhorn / TölVert
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 12:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskrlftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuðl. Verð í lausasölu er 200 kr.
430 2200
Gísli Einarsson,
Eg er ekki áhyggjufullur maður að upp- ritstjóri.
lagi enda er það yfirleitt svo að sé ég full-
tu- þá er það af einhverju öðru en áhyggjum og kemur þessu máli
ekki við.
Samt sem áður er það eitt sem valdið hefur mér hugarangri
síðustu ellefu árin eða allt ffá því að byrjað var að skipuleggja
Krismitökupartíið á Þingvöllum um næstu helgi. Það er að segja
hver á að svara í símann fyrir mig á meðan á hátíðinni stendur.
Fram til þessa hefur Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður, leik-
kona, umhverfiselskandi, grasæta og símamær annast þetta verk.
Hún hefur tilkynnt það hverjum sem heyra vill að ég hafi slökkt
á símanum, sé utan þjónustusvæðis eða allar mínar rásir þræl-
uppteknar. Ég tek það reyndar ffam að ég treysti svosem ýms-
um betur til að ganga í mín störf, ef ég gæti valið, en sit uppi
með Kolbrúnu án þess að hafa nokkuð til málanna að leggja.
Um helgina verður hún hinsvegar upptekin á Þingvöllum að
stýra Guðsdýrðarkarnivali og hvað á ég þá til bragðs að taka?
Síðan kemur það á daginn eftir að ég er búinn að velta mér
upp úr þessu vandamáli í ellefu ár að mínar hörmungar eru hjóm
eitt hjá því sem aðrir verða að þola. Núna kemur það sumsé upp
úr dúrnum að það á að svipta tæpan helming þjóðarinnar ferða-
ffelsi. Það hefur nefhilega verið ákveðið að setja höfuðborgar-
svæðið í einangrun næstkomandi sunnudagskvöld. Hvalfjarðar-
göngum verður lokað með lögregluvaldi og girt fyrir alla um-
ferð um Kjalarnes. Einmitt á þeim tíma þegar flestir Reykvík-
ingar væru að öllu eðlilegu á leiðinni heim til sín úr sumarbú-
stöðum eða af tjaldsvæðum á Vesturlandi. Reykvíkingar og
þeirra nágrannar hafa því um þrennt að velja; sitja heima, aka
skjálfandi um Suðurland eða fara með Kolbrúnu á Þingvelli.
Hvílíkt val!
Sjálfur ætlaði ég ekki til Þingvalla um helgina þó óviðjafhan-
leg salernisaðstaða sé í boði og þrátt fyrir ítrekuð tilmæli upp á
hundrað síður frá Kristnihátíðarnefnd þá ætla ég mér að sitja
heima á mínum Gústafsberg án Kolbrúnar og án Júlíusar Haf-
stein.
Ég tek það hinsvegar fram að það er ekki sökum trúleysis sem
ég ætla að halda mig heima við.
Ég tel mig eiga að jafnaði vinsamleg samskipti við Guð al-
máttugan þótt við séum ekki endilega saman í veislum um
hverja helgi. Eg vil líka alveg eins hitta hann í einrúmi þegar
hann er ekki upptekinn á útihátíðum.
Auðvitað má segja sem svo að mér sé ekki vorkunn þar sem ég
geti þá allteins farið eitthvert annað. En hverju á maður svosem
að treysta? Nú bíð ég bara eftir tilkynningu ffá aðstandendum
Færeyskra daga í Olafsvík þess efnis að Norðurlandsvegi verði
lokað við Olafsvíkurvegamót meðan hátíðarhöldin standa yfir.
Þá geri ég ráð fyrir að Gilsfjarðarbrúin verði víggirt vegna
hestamóts Glaðs í Dölum. Borgarfjarðarbraut verður væntan-
lega grafin í sundur vegna Handverkssýningar í Borgarnesi og
ég slæ því föstu að ferðum Breiðafjarðarferjunnar Baldurs verði
aflýst útaf golffnóti í Stykkishólmi. Þá má einnig búast við að
settir verði upp vegartálmar í Kolgrafarfirðinum vegna göngu-
ferðar í Grundarfirði.
Gísli Einarsson, innilokaður.
Ferða
frelsi
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
vefsmidja@skessuhorn.is
sigrun@skessuhorn.is
egill@skessuhorn.is
augl@skessuhorn.is
bokhald@skessuhorn.is
Metsala á sementi
Sala á sementi frá Sementsverk-
smiðjunni í maí var 15.407 tonn og
var heilum 28,4% yfir áætlun.
Þetta er jafnffamt mesta sala á sem-
entd í maímánuði allt frá því verk-
smiðjan hóf rekstur sinn fyrir rúm-
lega 40 árum. Eldra met í maí var
14.351 tonn árið 1974.
Sementssala það sem af er árinu
er nú orðin rúmlega 44.000 tonn
eða 10,3% yfir áætlun. Sala yfir-
standandi mánaðar er áætluð
13.500 tonn en stefnir í að verða
10% meiri. -SSv.
Góð aðsókn að FVA
Mjög góð aðsókn er að FVA
þetta árið og hafa heldur fleiri
nemendur sótt um skólavist en á
sama tíma í fyrra. Alls hafa borist
691 umsókn, þar af eru 180 frá
nemendum sem luku grunnskóla
nú í vor. Aðsókn að deildum skól-
ans á Snæfellsnesi er einnig mjög
góð, 30 nemendur sóttu um nám í
Stykkishólmi og 25 í Snæfellsbæ.
Færri komast að en vilja í verk-
námsdeildir skólans, en einungis er
hægt að vera með 12 nemendur
saman í hóp. 24 nemendur verða í
grunndeild rafiðna, 24 á fyrstu önn
í málmiðngreinum og 12 nemend-
ur verða í grunndeild tréiðna, auk
þess eru nemendur í framhalds-
námi í öllum þessum deildum.
Enn og aftur skapast þó vanda-
mál með heimavistarpláss. Tæp-
lega helmingur þeirra sem sóttu
um koma ekki til með að fá pláss
þar sem heimavistin tekur aðeins
64 nemendur, en 120 sóttu um.
Þetta sýrúr enn og aftur nauðsyn
þess að fjölga heimavistarplássum
og vonast stjórnendur skólans til að
árangur af baráttu þeirra fyrir því
verði sýnilegur áður en næsta
skólaár er liðið.
SÓK
Gjaldskýli Hvaljjarðarganganna
Eldfim efiii í athugun
Bæjarstjórn Akraness sendi frá sér
erindi fyrir nokkru síðan, þar sem
hún lýsti yfir áhyggjum sínum af því
að flutningur á eldfimum efhum
væri leyfður í gegnum Hvalfjarðar-
göngin. A bæjarstjómarfundi þann
9.maí tók Sigríður Gróa Kristjáns-
dóttir, bæjarfulltrúi málið upp og
spurði hvar það væri statt. Nú er
verið að skoða málið frá öllum hlið-
um. Það er svo lögreglustjórinn í
Reykjavík sem gefur endanlegt svar
í málinu.”Að bílar fari með eldfim
effd í gegnum göngin er að sjálf-
sögðu áhyggjuefni og vonumst við
til að það leysist farsællega sem allra
fyrst.” Sigríður Gróa segist þó ekki
vita með hvaða hætti málið verði
leyst. Segir bæði mögulegt að flutn-
ingarnir yrðu bannaðir á ákveðnum
tíma sólarhrings þegar umferðin er
hvað minnst og að þessum bílum
yrði einfaldlega ekki leyft að keyra í
gegn. SÓK
-------—a-B~s----
Þjóðlendumálin
í undirbúningi
Að sögn Kristins Torfasonar for-
manns óbyggðanefiidar kemur til
greina að neíhdin taki Snæfells-
og Hnappadalssýslu fljódega til
meðferðar. Þetta yrði þó aldrei
fyrr en á næsta ári að sögn Krist-
ins.
I samtali blaðamanns við Valgarð
Halldórsson ffamkæmdastjóra Hér-
aðsnefhdar Snæfellinga kom ffam
að Héraðsnefndin telur ástæðu til að
fara að huga að því hvemig þjóð-
lendumálin lúta að svæðinu. Af því
tilefni mrm Óskar Sigurðsson lög-
fræðingur Bændasamtaka Islands
mæta til skrafs og ráðagerða á fund
Héraðsneftidar í þessari viku. Eins
og ljóst er af þeirri umfjöllun sem
málefni þjóðlendna hafa fengið í
fjölmiðlum undanfama mánuði er
hér um vandmeðfarið málefni að
ræða. Að sögn Valgarðs hefur því
Héraðsnefndin ákveðið að stíga
fyrstu skrefin í að kynna sér hvemig
slík mál horfa við þessu svæði.
EA
Umferðarslys
við Bekanstaði
Umferðarslys varð á móts
við bæinn Bekanstaði á sunnu-
dag. Fólksbíl var ekið aftan á
sendiferðabíl með þeim afleið-
ingum að sá síðarnefndi fór út
af veginum og endaði ofan í
skurði. Ökumaður hans rif-
beinsbrotnaði en ökumaður
fólksbílsins og farþegi í sendí-
ferðabílnum hlutu minniháttar
meiðsl og fengu að fara heim að
lokinni skoðun á Sjúkrahúsi
Akraness. SÓK
Mikil umferð
um Vesturland
Miðað við síðustu helgi í júní
var óvenju mikil umferð ferða-
fólks um Vesturland um liðna
helgi. Hjá Speli fengust ekki
gefnar upp umferðartölur í
Hvalfjarðargöng en 13 þúsund
bílar fóru um Kjalarnes um
helgina sem gefur skýra mynd
af umferðarþunganum um
göngin og Hvalfjörð. I umdæmi
Borgarneslögreglu urðu þrátt
fyrír þessa miklu umferð fá ó-
höpp. Þó þurfti að flytja öku-
mann bifreiðar með þyrlu á
sjúkrahús í Reykjavík eftir bíl-
veltu við Álftá á Mýrum á laug-
ardag. Sarna dag varð aftaná-
keyrsla á Akranesvegi við bæinn
Ós og þurfti að flytja einn á
sjúkrahus eftir slysið. Við Bek-
anstaði varð aftanákeyrsla á
sunnudag og þurfti að flytja 3 á
Sjúkrahús Akraness eftir það ó-
happ.
Að sögn lögreglu gekk um-
ferðin í heild sína vel miðað við
þann mikla fjölda fólks sem var
á ferðinni og dvaldi á tjaldstæð-
um og sumarhúsahverfum á
svæðínu. MM
Milljón í arð
Akraneskaupstaður fékk ríf-
lega 1,1 milljón króna í arð á
síðasta ári af fjárfestingu sinni í
Speli hf., hlutafélagi um gerð
og rekstur Hvalfjarðarganga.
Arðgreiðslan nemurum 14% af
heildarhlutafé bæjaríns sem er
rétt tæpar 8,5 milljónir að nafn-
verði.
SSv.
Sláttur hafinn
I síðustu viku hófu nokkrir
bændur í Borgarfirði og á Snæ-
fellsnesi slátt. Spretta hefur þó
verið lítil undanfarnar vikur
sökum þurrka og eftirtekja því
verið lítil. Vætan síðustu daga
er því bændum kærkomin og
gera má ráð fyrir að margir hefji
heyskap af krafti í næsta þurrki.
MM
Vilja bús í búðir
“A að leyfa sölu bjórs og létt-
vína í matvöraversíunum” var
spurning vikunnar á Skessu-
hornsvefnum í síðustu viku. 284
lesendur tóku þátt í kosning-
unni og var niðurstaðan afger-
andi; 190 kjósendur (67%) eru
fylgjandi málinu. Helmingi
færri kjósendur; 94 (33%) eru á
móti.
Það er því ljóst að lesendur
Skessuhomsvefjarins vilja geta
nálgast bjór og léttvín eins og
aðrar neysluvömr í næstu búð,
fremur en að gera sér ferð í rík-
isrekna sérverslun.
Ný netkostnig hefur þegar
hafið göngu sína og stendur
hún yfir í viku. Spurt er um
sígilt hitamál sem hefur verið
ofarlega á baugi undanfarið;
hvort Island eigi að sækja um
aðild að Evrópusambandinu.
Öllum er frjálst að taka þátt í
netkosningunni og getur hver
Jesandi kosið einu sinni. Kosn-
ingin fer fram á forsíðu Skessu-
hornsvefjarins og er slóðin
wwvtskessuhorn.is