Skessuhorn - 29.06.2000, Síða 5
t ■ r
oallSJUllu... J
FIMMTUDAGUR 29. JUM 2000
>
:
Helstu ástæður fyrir því að einhver velur
sér iðngrein að ævistarfi eru þær að viðkom-
andi er í æsku haldinn svokallaðri Skífu-
blindu sem er náskyld lesblindu, en lýsir sér
þannig að tölustafir á klukku leggjast í flakk,
þannig að 8 hefur sætaskipti við 12,3 við 5, 2
við 9 o.s.frv. Þetta plagar iðnarmanninn
kannski ekki svo ýkja mikið, en þann sem
hugsanlega hefur ætlað að kaupa af honum
þjónustuna þess mun meira.
Annar ágalli iðnaðarmanna, sínu verri
Skífublindunni, er Almanakstregða. Renna
þá saman í einn hrærigraut ár, mánuðir, vik-
ur og dagar svo úr verður eitt allsheijar kaos.
Hafa færustu vísindamenn sálarfræðinnar
reynt að að skilgreina Almanakstregðuna en
allir hlaupið frá hálfkláruðu verki, ýmist
lagst í drykkjuskap eða verið vistaðir albijál-
aðir á stoftiun. Hver kannast ekki við að hafa
beðið eftír iðnaðarmanni, stjáklandi innan
við glugga eins og jómfrú í miðaldaævintýri
sem væntir komu riddarans á hvíta hestin-
um. Munurinn er sá að í ævintýrinu skilar
riddarinn sér fyrir rest en í núinu er eins víst
að iðnaðarmaðurinn birtíst alls ekki. Eru þó
heimreiðar nútímans drekafríar með öllu, í
versta falli rafgirtar. Rambi nú iðnaðarmenn
á staðinn þar sem þeirra var vænst þarf það
ekki að þýða að áhyggjur séu allar fyrir bí,
eins og ég mun koma að hér litlu síðar.
Þannig var að á síðasta ári ákváðum við hjón-
in að byggja nýtt fjós, annarsvegar tíl að létta
okkur puðið, hinsvegar til að losa héraðs-
dýralækni við mæðusvipinn sem hann setur
upp við árlega ijósaskoðun. Svo er líka hálf
þjóðin á fjárfestingarfylleríi, því ekki að
detta í það líka? Arkitekt setti nokkur strik á
blöð og kallaði teikningar, þokkalega var sá
haldinn með kaup á meðan. Verktaki tók
grunn, sá hafði að vísu kosið Samfylkinguna
í síðustu kosningum, það hafði arkitekinn
líka gert. Spurning hvort skepnur þrífast í
þvílíku fjósi. Til allrar Guðs lukku fannst
byggingameistari sem ekki var krati. Sá boð-
aði komu sína og sinna manna í júní, það
væri viss fyrirhyggja fólgin í því að hafa sum-
arið fyrir sér. Mætir meistari svo í endaðan
ágúst með tvo smiði og segir að nú þurfi að
hafa hraðann á, það sé að koma vetur. Þetta
voru svo sem engin ný sannindi fyrir mér,
það haustar alltaf um þetta leyti. Skildi hann
svo smiðina eftir ásamt nokkrum spýtum og
naglapakka. Hurfu þeir nú ofaní grunninn
með spýtumar og naglana. Um hádegisbil
komu þeir upp aftur, annarsvegar til að mat-
ast, hinsvegar til að fá með sér handlangara
niður í grunninn. Sýndu þeir sérstakan á-
huga á danskri kaupakonu okkar hjóna. Nú
vom góð ráð dýr. Sú danska hafði verið ráð-
inn í gegnum ráðningarstofu fyrir austan
§all, og hafði ráðningarstofan sent okkur
heljarmikinn doðrant um samskipti ffum-
byggja við erlent vinnuafl. Mundi ég nú allt í
einu eftir klásúlu einhversstaðar í smáa letr-
inu, þar sem harðbannað er að sýna útlend-
um vinnukrafti kynferðislegt áreiti. Rauk nú
verðlag á góðum ráðum upp úr öllu valdi.
Annar smiðurinn (sem hér eftir verður
nefndur Bósi) er nefnilega héraðsfrægur
kvennamaður sem hefur margoft hoggið stór
skörð í meydóma erlendra vinnukvenna
gegnum tíðina. Svo rammt kvað að kappan-
um á tímabili að Norðurlandaráð og samtök-
in “Skandinavisk samfund imod konslig u-
forskamhed” gáfu út sérstaka viðvörun útaf
honum. Sá ég nú að sakleysi kaupakonunnar
væri stefnt í hreinan voða í nálægð Bósa.
Kallaði ég því hinn smiðinn (sem hér eftir
verður nefndur Herrauður) á eintal og bað
hann að gerast siðgæðisvörður í grunninum.
Skyldi hann aldrei sleppa Bósa úr augsýn og
beita hamri og hjólsög ef Bósi sýndi minnsta
dónaskap. Lofaði Herrauður öllu fögru. Dag-
inn eftir kom ég oní grunn, þar var Bósi einn
að vinnu. “Hvar eru Herrauður og sú
danska?,” spurði ég. “ Inní hlöðu,” svaraði
Bósi og glottí, “vissirðu ekki að Herrauður er
hálfur Skagfirðingur?” Ég hafði ekki minnsta
grun um það, hálfur Skagfirðingur er helm-
ingi kvensamari en Borgfirðingur í besta
stuði. Þegar ég þeytti upp hlöðudyrunum
kom ég auðvitað alltof seint til að afstýra ó-
sköpunum. Þarna voru Herrauður og sú
danska í rýgresisrúllunni, búin að stórspilla
fóðrinu. Af tillitssemi við gamlar konur og
börn sem kynnu að lesa þennan pistil ætla ég
ekki að fara út í nánari lýsingar á aðkom-
unni. En mikið varð mér rórra eftír að Bósi,
sem hafði komið á eftir mér mér inní hlöðuna
sagði: “Það er enginn skaðabótaskyldur þeg-
ar áreitið er svona rosalega gagnkvæmt.”
Bjartmar Hannesson
framköjlu!
Ilmu í
ctu um leið
legum leik
I; illiiill;;
Komið á Fœreyska daga í Olafsvík um
■ "., - i i
Mikið verður um að vera m.a:
s '
A fostudag:
• Málverkasýning Daða GuðBjörnsso
• Erindi um Færéyjár og mynclasýnin;.
_ Bensínstöðin, Stykkishólmi
Bókaskemman, Akranesi
1 1 ■ * 1
| FRAMKÖLLUNARPJÓNUSTAH EHF.
* BHÚ/VRTORGI, 310 BORGARNESI - S. 437-1055 _ _
Kf. Steingr.fj., Drangsnesi
Auglýsing
Um deiliskipulag í Leirár- og Meiahreppi
Borgarfj arðarsýslu
Samkvæmt ákvæðum 18. og 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr.73/1997 er hér með lýst eftir
athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi fyrir
frístundabyggð í landi Hafnar í Leirár- og Melahreppi
Borgarfjarðarsýslu.
Tillagan nær til 13 hektara lands. í tillögunni er gert
ráð fyrir 34 ffístundahúsum.
Tillagan ásamt byggingar- og skipulagsskilmálum
liggur ffamrni hjá oddvita Leirár- og Melahrepps
Neðra-Skarði frá 06.07.2000 til 03.08.2000 á
venjulegum skrifstofutíma.
Athugasemdum skal skila fyrir 17.08.2000 og skulu
þær vera skriflegar.
Skipulags og byggingarfulltrúi