Skessuhorn - 29.06.2000, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 26. JUNI 2000
^saúiíoBRI
Foreldrafélag Grundaskóla:
Umferðaröryggi við
skólann verði auldð
Vesturland hf. kaupir hlut
í Islenskri upplýsingatækni
Fyrsta fjárfesting eignarhaldsfélagsins en fleiri eru í bígerð
Stefán Sveinbjömsson og Magmts Magmísson undirrita kaup eignarhaldsfélagsins Vest-
urlands hf. á þi-iðjungs hlut í Islenskri upplýsingatækni. Hjá þeim sitja Gylfi Gíslasm
stjómarformaður IU ög Bjarki Már Karlsson yfvrmaður vefdeildar.
Foreldrafélag Grundaskóla
hefur sent bæjaryfírvöldum á
Akranesi bréf, þar sem farið er
fram á að umferðaröryggi bama
í nágrenni skólans verið tekið til
skoðunar og úrbætur gerðar.
Að sögn Jóns Pálma Pálssonar,
bæjarritara, bendir foreldrafélagið
m.a. á stóraukna umferð í nágrenni
skólans, t.d. um Innnesveg vegna
tilkomu Hvalfjarðarganga og
einnig um Garðagmnd vegna
aukins íbúafjölda í Jörundarholti og
Nýverið ákvað bæjarráð Stykk-
ishólms að leggja hálfa milljón
króna í verkefhið “Nýting heita
vatnsins til heilsutengdrar
þjónustu”. Verkefinið snýst um
nýtingu heita vatnsins á sviði
heilsutengdrar ferðaþjónustu.
“Verkefninu hefur miðað vel
áfram og fram hafa komið ýmsar
hugmyndir um hvemig eigi að nýta
vatnið,” sagði Ásthildur Sturludóttir
starfsmaður verkefnisins. “Fjár-
veitingin verður nýtt til að þróa
tilkomu Leynisbrautar. “Einnig
benda þau á ferðir skólabarna á
milli Grundaskóla og Iþrótta-
miðstöðvar á Jaðarsbökkum,“ segir
bæjarritari.
Umferðarmál heyra undir
byggingarnefnd og hefur bæjarráð
óskað eftir því við nefndina að hún
skoði þessar ábendingar og geri
tillögur til bæjarráðs um úrbætur,
þar sem fram komi kostnaðar-
áætlanir fyrir hugsanlegar fram-
kvæmdir. SSv
framkomnar hugmyndir og að gera
kostnaðaráætlun. Ráðgert er að
ljúka undirbúningsvinnu í septem-
ber og þá verður væntanlega lögð
fram tilbúin viðskiptáætlun. Til-
gangurinn með þessu verkefhi er að
markaðssetja Stykkishólm sem
heilsulind. Talið er að efnasam-
setningin í vatninu, sem er ríkt af
söltum og uppleysanlegum efnum,
sé svipuð og í lindunum í Baden
Baden og Dauðahafinu.”
EE
Eignarhaldsfélagið Vesturland hf.
sem stofhað var í lok síðasta árs
keypti í liðinni viku um þriðjungs
hlut í Islenskri upplýsingatækni
ehf. í Borgamesi. Um leið vom
kaupin fýrsta fjárfesting eignar-
haldsfélagsins ffá stofhun þess.
Að sögn forráðamanna Vestur-
lands hf fór vel á að fyrsta fjárfest-
ing félagsins væri í Islenskri upp-
lýsingatækni þar sem um hrein-
ræktað vestlenskt fyrirtæki er að
ræða sem starfar í geira sem mik-
ill vöxtur er, þ.e. í upplýsinga-
tækni.
Stjórn eignarhaldsfélagsins Vest-
urlands hf. hefur nú mótað sér fjár-
festingastefnu til að vinna eftir.
Hlutverk félagsins er einkum að taka
þátt í stofnun og starfsemi annarra
félaga sem rekin eru á grundvelli
arðsemissjónarmiða, fela í sér ný-
mæli í atvinnulífi og eru mikilvægur
þáttur í uppbyggingu atvinnulífs á
Vesturlandi.
Stofnhlutafé sjóðsins er 71,3
milljónir króna og stendur til að
auka það, að sögn Stefáns Svein-
björnssonar stjórnarmanns í sjóðn-
um. Núverandi eigendur Vestur-
lands hf. eru Kaupþing, sparisjóð-
imir á Vesturlandi, Byggðastofnun
auk flestra sveitarfélaga á Vestur-
landi. Tengiliður sjóðsins við um-
sækjendur er Stefán Sveinbjömsson
hjá Sparisjóði Mýrasýslu. Aðrir í
stjórn hans em Stefán Kalmansson,
formaður, Kristján Hreinsson, Olaf-
ur Kristjánsson og Vilhjálmur Vil-
hjálmsson. Að sögn Stefáns Svein-
bjömssonar hefur stjóm sjóðsins,
auk kaupa á hlut í Islenskri upplýs-
ingatækni ehf., nú til skoðunar tvær
viðskiptahugmyndir á Vesturlandi.
*
Mikil vöxtur IU
Að sögn eigenda Islenskrar upp-
lýsingatækni em kaup Vesturlands
hf. á þriðjungs hlut í fyrirtækinu
mikil viðurkenning á því starfi sem
þar fer ffam. IU er nú tveggja og
hálfs árs gamalt og hófst starfsemi
fyrirtækisins með útgáfu Skessu-
homs sem um mitt síðasta ár sam-
einaðist Vefsmiðju Vesturlands. Frá
því hefur vöxtur fyrirtækisins verið
hraður og starfa nú í allt 15 manns
hjá fyrirtækinu. Nafhi þess var ný-
lega breytt úr Skessuhomi til að laga
það að breyttri og aukinni starfsemi.
Efrir umfangi er nú hægt að tví-
skipta rekstri fyrirtækisins. Annars
vegar er það almenn Internetþjón-
usta og veflausnir fyrir fyrirtæki,
stofhanir og sveitarfélög og hins
vegar frétta- og útgáfuþjónustu.
Fyrirtækið annast rekstur og viðhald
Vesturlandsvefjarins sem fengið hef-
ur góðar undirtektir og dóma not-
enda. Auk þess að gefa út héraðs-
fréttablað Vestlendinga, Skessu-
hom, annast fréttadeild fyrirtækisins
frá því í vetur þjónustu fyrir útvarp
og sjónvarp. Að sögn Magnúsar
Magnússonar ffamkvæmdastjóra ís-
lenskrar upplýsingatækni fer þessi
tvíþætti rekstur vel saman. “Sem
dæmi um hagræði af samrekstrinum
má nefna að miðlun ffétta á Netinu
er stöðugt samstarfsverkefni ffétta-
deildar sem annast útvegun ffétta og
vefdeildar sem sér um tæknihliðina”.
Fyrirtækið er í dag í stakk búið til
að bjóða fyrirtækjum heildarlausnir í
markaðssetningu, eða allt ffá útgáfu
og prentun á bæklingum og öðm
kynningarefni til gagna-
grunnstengdra vefsíðna og kynning-
ar á Intemetinu. “Við höfum nú
ráðið markaðsffæðing til að annast
sölumál og ráðgjöf til viðskiptavina
hvað snertir vefmál og tengda þjón-
ustu. Meðal verkefna hans er mark-
aðssetning á þjónustu sem snertir
vistun og keyrslu léna og vefsíðna og
ffamleiðslu heimasíðna. Fyrirtækið
er því í dag bæði tækni- og faglega
samkeppnishæft við keppinauta hvar
sem er á landinu á því sviði. Meðal
nýjunga í veflausnum má nefna að
við getum nú boðið viðskiptavinum
okkar upp á fullkomna verslunarvefi
auk svokallaðra virkra síðna þar sem
starfsmenn fyrirtækja geta sjálfir
uppfært efhi sinna vefsvæða án sér-
stakrar kunnáttu í forritun. Þetta
hafa bæði fyrirtæki og sveitarfélög
nýtt sér í auknum mæli. I dag er fyr-
irtækið því eitt af stærri fyrirtækjum
á landsbyggðinni í margmiðlun og
útgáfuþjónustu”, sagði Magnús að
lokum.
GE
Heilsutengd fer-
ðaþjónusta
Ibúðarhúsið og allt innbú gjöreyðilagðist í eldinum.
Mynd: GE
Nýtt íbúðarhús varð
eldi að bráð
Nýtt íbúðarhús brann til kaldra
kola á bænum Sælingdalstungu í
Dölum aðfararnótt sunnudags.
Enginn var í húsinu þegar eldurinn
kom upp en eigendur hússins, ung
hjón, misstu allt sitt í brunanum.
Húsið er nýbyggt og höfðu hjónin
aðeins búið þar í einn og hálfan
mánuð þegar eldsvoðinn varð.
Gestir á tjaldsvæðinu á Laugum í
Sælingsdal urðu varir við eldinn um
fjögurleytið um nóttina. Þegar
slökkvilið Dalasýslu kom á staðinn
stuttu efrir að það var kallað út hafði
eldurinn náð að breiðast um allt
húsið. Varð því við lítið ráðið og
brann nánast allt sem brunnið gat.
Að sögn lögreglunnar í Búðardal
eru eldsupptök enn ókunn en málið
er í rannsókn.
GE
Verðum að lifa
með rígningiinni
- segir verkstjóri á Vatnaheiði
Hafnar eru framkævmdir við
lagningu vegarstæðisins yfir
Vatnaheiði en gert er ráð fyrir að
verkinu verði lokið 15. nóvember
2001, “Við erum búnir að vera
hérna í 10 daga og höfum verið í
undirfyllingum, enda mikið um
mýrar á svæðinu,” segir Eysteinn
Dofrason staðarverkstjóri hjá
Suðurverk sem sér um vegagerði-
na. “I verklýsingunni er gert ráð
fyrir að mikið verði um sig í
mýrunum og þær þurfa sinn tíma
til að síga áður en hægt verður að
fylla alveg í þær. Þetta hefur
gengið ágætlega, enda búið að
vera blíðviðri. Veðurspáin næstu
daga lofar að vísu ekki góðu en við
reynum bara að lifa með veðrinu,
jafht góðviðri sem rigningu.”
EE
Frá framkvœmdum á Vatnaheiði.
Mynd: EE