Skessuhorn - 17.08.2000, Blaðsíða 8
8
§5SESíÍUSiOEM
FIMMTÚDAGÚRrí7. ÁGÚST 2000
Þessi víkingaböm undu sér vel á svefnloftinu í skála Eiríks rauða.
Vel heppnuð Leifshátíð
Myndir: GE
Fjöldi áskorana um
að endurtaka leikinn
- segir Einar Mathiesen sveitarstjóri
“Við getum ekki annað en verið
ánægð með vel heppnaða hátíð,”
segir Einar Mathiesen sveitarstjóri
Dalabyggðar að afstaðinni Leifshá-
tíð á Eiríksstöðum.
Dalamenn minntust Dalamanns-
ins og landkönnuðarins Leifs
Heppna á veglegan hátt um síðustu
helgi og opnuðu um leið formlega
tilgátubæinn á Eiríksstöðum. Um
3500 gestir voru á hátíðinni sem
þótti takast vel í alla staði.
Leifshátíð hófst á föstudag þegar
víkingabúðirnar voru opnaðar en
þær voru opnar alla helgina. Þar
gátu gestir og gangandi séð “al-
vöru” víkinga í starfi og leik. Meðal
annars gat þar að líta hverskonar
handverk að hætti fommanna, svo
sem trésmíði, járnsmíði, vefnað,
Eiríkur rauði fylgist med eldamennskunni í bœ sínum.
myntslátt og einnig fengu gestir
innsýn í matargerð víkinganna og
fengu að bragða á herlegheitunum.
A föstudagskvöldið sáu harmon-
ikkuklúbburinn Nikkólína og
hljómsveitin ábrestir um fjörið á
hátíðarsvæðinu í Haukadal.
A laugardag var
sérstök hátíðardag-
skrá þar sem Halldór
Asgrímsson utanrík-
isráðherra opnaði
formlega tilgátubæ-
inn að Eiríksstöðum
og Olafur Ragnar
Grímsson forseti íslands afhjúpaði
styttu af Leifi heppna.
Alla dagana var boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá fyrir böm og full-
orðna og segir Einar að nú þegar
hafi komið fjöldi áskorana um að
endurtaka hátíðina að ári. Hann
Að ofan:
Þessi víkingakona saumaði
glœsilegan dúk sem Eiríkur og
Þjóðhildur færðu Eiríksstaðanefnd
að gjöf.
Til hliðar:
Fallinn í valinn.
Sigríður Hrimn Theodórsdóttir ferðamálafrœðingur
vann að undirbúningi hátíðarinnar.
B orgarfj arðars veit
Málþing í Reykholti, Borgarfjarðarsveit
laugardaginn 19. ágúst 2000 kl. 13-17
Staður: Hátíðarsalurinn í Reykholti
(sundlaugarbygging gamla héraðsskólans)
Dagskrá:
Setning:
Þórunn Gestsdóttir sveitarstjóri
Umræðustjóri, málþingsins:
Fyrirlesarar/fyrirlestrar:
Gestur Guðmundsson félagsfræðingur:
-Staða Bjarkar á vettvangi íslenskrar menningar-
Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur:
, Myndanir og myndbreytinaar
-ímyndir og sjálfsmyndir i myndböndum Bjarkar-
Hlé
Morten Michelsen lektor í tónlistarfræðum við
Kaupmannahafnarháskóla:
The Voice in the Musical Space:
-Sound Production, Genre Confusions and
Vocal Identity in some Björk Songs-
Andrea Jónsdóttir dagskráraerðarmaður:
Vangaveltur um texta Bjarkar
-Aukaatriði er ekkert aukaatriði-
Allir velkomnir í Veröld Bjarkar
á meðan húsrúm leytír.
Enginn aSgangseyrir.
HBVNiAVÍK
Borgarfjarðarsveit
f