Skessuhorn - 17.08.2000, Blaðsíða 12
12
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000
SS£áSí?liC}£Ki
:
jóðfegt (jom
Sagan endurtekur sig
Heilir og sælir lesendur góðir til sjávar og sveita
Sigurför Múhameðstrúarmanna um Evrópu hefur verið mikil og
hröð. Nú er svo komið að Islam hefur verið lögtekið sem ríkistrú í
flestum löndum. Ekki hafa menn almennt tekið hinum nýja sið af fús-
um og frjálsum vilja en boðberar hans eru búnir afar hættulegum efna-
og kjarnavopnum sem bakhjarlar þeirra í arabalöndunum hafa látið
þeim í té. Hefur vopnunum verið beitt þar sem þurfa þykir þótt oftar
hafi ógnin ein dugað. Aðrir hafa bent á hina siðferðislegu yfirburði
Islams yfir kristninni og skýrt sigra hans með því hve sönn og heil þessi
trú er í alla staði.
Er nú svo komið að múslimar hafa sest að í sjálfu Vatíkaninu í Róm
og aðeins afskekktustu staðir álfunnar, þar á meðal Island hafa enn ekki
snúist. Suðrænir menn hafa lítt hugað að þessu fámenna, fjarlæga
landi, en nýju klerkastjóminni í Noregi er mjög umhugað að snúa ís-
lendingum til islamsks siðar.
I því skyni sendi hún hingað trúboða tvo, ayatolla einn suðrænan og
íslenskan bónda. Boðskap þeirra var illa tekið af landsmönnum, grín
gert að tilbeiðslu þeirra og þeim brigslað um ergi. Flaug um landið
kviðlingur:
Æpir til Mekku, æjatolli
gýlfrar bóndi að glenntum þjó.
Flugu trúboðar út aftur við lítinn orðstír. Noregsklerkur varð ösku-
reiður. Það er þá til einhvers að brjóta undir sig Noreg með
augnstungum, tunguskurði og fjöldaaftökum þegar skrælingjar vestur í
hafi hlæja að manni. Því lét hann þegar taka höndum alla íslenska
námsmenn, íþróttamenn og ferðamenn í landinu. Boð voru send til ís-
lands um að allt þetta unga fólk yrði skilyrðislaust tekið af lífi, að und-
angengum hræðilegum pyntingum, yrði Islam ekki lögtekið á Islandi
samsumars. Þá fóru Norðmenn fram á að sett yrði alþjóðlegt við-
skiptabann á Island svo lengi sem þar ríki heiðnir villimenn. Reyndist
það auðsótt erindi.
Nú var úr vöndu að ráða. Alþingi var kallað saman til neyðarfund-
ar. Skiptist það þegar í tvær fylkingar þar sem allar hefðbundnar
flokkalínur sköruðust. Til ófriðar horfði þegar einn úr islamska
. -
flokknum varpaði ffam hendingu:
Villutríí víki úr landi
- haltur er heilagur andi -
Þetta guðlast féll í grýtta jörð meðal kristinna og kröfðust þeir afsök-
unarbeiðni, bóta og refsingar. Þegar í óefhi stefndi varð úr að leiðtoga
kistinna á þingi, fyrsta þingmanni þriðja kjördæmis, var falið úrskurð-
arvald í málinu. Sóru þáðir aðilar að fylgja úrskurði hans.
Þingmaðurinn gerði þetta en það lagðist þungt á hann. Hann lagð-
ist í rúmið og lá undir Lystadúns sæng í þrjá daga og þrjár nætur.
Hann hugsaði mikið. Hann hugsaði um stundirnar þegar Jesús Krist-
ur hafði veitt honum styrk í gleði og sorg og allt það ljós sem frelsar-
inn hafði sent inn í líf hans. Hann hugsaði um menningu þjóðarinn-
ar, aldagamlar hefðir og þjóðlega siði sem myndu hverfa eða að minnsta
kosti aldrei verða eins. Hann hugsaði til málffelsis, ritfrelsis og trúffels-
is sem hann mat svo mikils en yrði nú aflagt. Hann hugsaði til dætra
sinna sem framvegis yrðu að hylja andlit sitt með slæðu og yrðu að
leggja á hilluna drauminn um háskólamenntun og starfsframa.
En hann hugsaði líka til allra ungu Islendinganna sem voru í gíslingu
erlendis. Hann þekki marga þeirra. Nánir vinir hans áttu börn í þess-
um hópi og þarna var m.a. bróðursonur hans. Sá hafði ákallað Krist í
varðhaldinu. Þeir skáru úr honum tunguna. Þingmaðurinn hugsaði
líka um viðskiptabannið. Hvernig ætti þjóðin að komast af án inn-
fluttra vara? Nauðsynjar eins og lyf, raftæki, bílar, kaffi og tóbak yrðu
ófáanlegar. Ferðaþjónusta og sjávarútvegur myndu leggjast niður með
öllu. Fólk yrði atvinnulaust og færi á vergang.
Tveir voru kostirnir, báðir slæmir. Fyrsti þingmaður stóð upp und-
an sænginni. Hann tók þann kostinn sem illskárri var: „Ef sundur er
slitið lögunum þá er sundur slitið ffiðnum. Allir skulu Islendingar
islamskir vera. Vér skulum krjúpa í átt til Mekka og vegsama Allah.
Ákalla má þó Krist, en aðeins í laumi“.
Gekk hann við svo búið af þingi, flaug heim í kjördæmi, tók biblíu
sína, krossa og Jesúmyndir og fleygði sorpi þessu öllu, í bæjarfossinn
sem síðan hefur heitið Krossafoss.
Þessi frásögn er tómur hugarburður. Sem betur fer. En sé eitthvað til
í því sem sagt er, að sagan endurtaki sig, þá er aldrei að vita nema eitt-
hvað í þessum dúr gæti gerst. En örvæntið ekki. Hversu mikla aft-
urför og eymd sem slík siðaskipti hefðu í för með sér þá verður henni
örugglega fagnað eftir þúsund ár sem mesta gæfuspori þjóðarinnar.
Verð kært kvödd á sautjánda degi Jumaada awal,1421 ári eftir að Mú-
hameð yfirgaf Melcka.
Bjarki Már Karlsson
jálfskipaður þjóðbáttafrœðingur
Góð
Rannsóknarstofa Landbúnaðar-
háskólans á Hvanneyri fékk góðar
gjafir nú fyrr í sumar. Það var Is-
lenska Járnblendifélagið hf. á
Gnmdartanga sem færði rannsókn-
arstofunni tvö tæki. Hér er annars
vegar um að ræða Kolefnisgreini
(LECO EC 12 Carbon Determ-
inator) og hins vegar logamæli
(Pekin Elmer 372 Atomic Absorp-
Sfoí
tion Spectrophotometer). Tækin
eru bæði nokkurra ára og höfu ver-
ið í notkun á rannsóknarstofu Járn-
blendifélagsins. Þar var þeim í vor
skipt út fyrir nýjan búnað og þar
sem tækin eru góðu lagi voru þau
færð Landbúnaðarháskólanum að
gjöf. Að sögn Lindu Gjörlighagen
verkstjóra á Rannsóknarstofu
Landbúnaðarháskólans kemur gjöf-
Vika símenntunar
framundan
Menntamálaráðuneytið stendur
að viku símenntunar 4. - 10. sept-
ember nk. Markmið vikunnar er
að hvetja fólk til að auka við þekk-
ingu sína og færni. Slagorð átaks-
ins er “Menntun er skemmtun” og
vísar til ánægjunnar við að læra og
ná tökum á nýjum viðfangsefhum.
Það er Símenntunarmiðstöð Vest-
urlands sem annast skipulagningu
vikunnar á Vesturlandi og verður
um næstu mánaðamót dreift ár-
legu lcynningarriti miðstöðvarinn-
ar inn á öll heimili á Vesturlandi.
Símenntunarmiðstöðin stóð fyrir
kynningarfundi um Viku símennt-
unar á Hótel Borgamesi þann 2. á-
gúst sl. Fundinn sóttu fulltrúar frá
stofnunum, fyrirtækjum og stéttar-
félögum víðs vegar af Vesturlandi.
Edda Agnarsdóttir verkefnisstjóri
kynnti á fundinum hugmyndir um
framkvæmd vikunnar hér á Vestur-
landi. Hugmyndir eru enn í mótun
og auglýst er eftir samvinnu við
sem flesta aðila. Símenntunarmið-
stöðin mtm auglýsa dagskrá Viku
símeitntunar og þeir sem tengjast
verkefninu geta auk þess notað
lógó Vikunnar á kynningarefni sitt
og auglýsingar þessa viku.
Símenntunarmiðstöðin hyggst
þessa viku bjóða fyrirtækjum end-
urgjaldslaust fyrirlestra um sam-
skipti á vinnustað og fleira sem
tengist mannlegum samskiptum.
Það eru sálfræðingarnir Ásþór
Ragnarsson, Birgir Þór Guð-
mundsson, Inga Stefánsdóttir,
Klara Bragadóttir og Sigurður
Ragnarsson, öll búsett á Vestur-
landi, sem munu flytja fyrir-
lestrana. Einnig býður Símennt-
unarmiðstöðin fyrirlestra urn gildi
símenntunar.
I máli Eddu á fundinum kom
fram að fyrirtæki, félög og stofh-
anir gætu notað tækifærið og verið
með lifandi uppákomur og kynn-
ingar á starfsemi sinni, t.d. net-
bankakynningar, kynningar á mat-
reiðslunámskeiðum, dansnám-
skeiðum eða hverju sem er.
MM
in sér vel. „Kolefhisgreinirinn býð- sóknavinnu nemenda í búvísinda-
ur upp á mikilvæga greiningu á deild í tengslum við vinnslu loka-
jarðvegi og einnig á lífsýnum og verkefna nú í haust og vetur,” sagði
mun tækið t.d. nýtast við rann- Linda. EA
Frá afhendingu. tækjanna. I aftari röð standa starfsstúlkur rannsóknarstofu Landbúnað-
arháskólans, f.v. Jófríður Leifsdóttir, Oddný Sólveig Jónsdóttir, Alfheiður Marinósdóttir,
Emma Heiðnín Birgisdóttir og Linda Gjörlighagen. I neðri röð ei~u aðilarfrá Jám-
blendifélagniu, f.v. Ami Sigurðsson rannsóknarmaður, Þorsteinn Hannesson yfirmaður
rannsóknastofu Jámblendifélagsins og Hlynur Sigurbjömsson rannsóknarmaður.
Læknir með tónleika
Undan farin ár hefur Jósep Ó.
Blöndal sjúkrahúslæknir við St.
Franciskusspítalann í Stykkis-
hólmi hóað saman vinum og
vandamönnum og haldið tónleika.
Þetta eru svokallaðir “Jóseps-tón-
leikar” Tónleikamir núna era í
tengslum við læknaráðstefnu sem
haldin verður hér í Stykkishólmi.
Tónleikarnir verða næsta
fimmtudag 17. ágúst kl. 17:00 í
Stykkishólmskirkju. Ókeypis er á
tónleikana en tekið er á móti
framlögum sem síðan renna í
hljóðfærasjóð Tónlistarskóla
Stykkishólms. Áður hefur Jósep
safnað verulegu fé í þennan sjóð,
með tónleikahaldi. Margir lista-
menn taka þátt í tónleikunum í ár
og eru þeir úr Hólminum eða
tengdir honum. Efhisskráin er
mjög fjölbreytt og skiptist þannig
að fyrir hlé er klassík en efrir hlé
verður jazz.
Á tónleikunum í ár koma fram
þessir listamenn:
Jósep 0. Blöndal, píanó
Jón Svanur Pétursson, vtbrafónn
Ldrus Pétursson, gítar
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, píanó
Hólmgeir Sturla Þórsteinsson, ptanó
Anna Harðardóttir, píanó
Hrefna Döjgg Gunnaradóttir, píanó
Jóhanna Omarsdóttir, píanó
Lára Marta Harðardóttir, píanó
Elísa Vilbergsdóttir, sópran
Guðbergur Auðunsson, söngvari
Bjöm Ingimar Jósepsson Blöndal,
kontrabassi
Smári Jósepsson, trommur
(Fréttatilkynning)
Fljótir
að gleyma
Um síðustu helgi héldu Dala-
menn veglega hátíð til heiðurs
Leifi Heppna og föður hans, Ei-
ríki rauða. Þar var sem kunnugt
er opnaður tilgátubær Eiríks
rauða sem byggir á þeirri tilgám
að Eiríkur hafi byggt hús. Há-
tíðin fór hið besta fram og
skemmtu menn sér konunglega.
Eitthvað fóru herlegheitin þó
fyrir brjóstið á öldruðum Dala-
manni sem þótti nóg um og
sagði. “Það er merkilegt hvað
Dalamenn eru fljótir að gleyma.
Það eru ekki nema þúsund ár síð-
an við rákum þennan dela í burtu
héðan með skít og skömm fyrir
rustahátt og leiðindi en núna er
eytt milljónum í að mylja undir
þennan ribbalda.”
Vidaus
með víni
Guðjón kemur útúrdrukkinn
inn á bar og segir (drafandi) við
barþjóninn „Heyrðu, barþjónn,
gefðu öllum á baraum þínum í
glas, fáðu þér líka sjálfur og látm
mig svo S reikninginn!“
Barþjónninn gerir það og læt-
ur Guðjón fá reikning upp á
27.800 krónur.
Guðjón segir „Eg á ekki svona
mikinn pening."
Barþjónninn varð nú ansi illur,
gaf Guðjóni nokkra á lúðurinn
og hnoðaði honum út um dymar.
Daginn eftir kemur Guðjón
aftur drukkinn inn á barinn og
segir drafandi
„Barþjónn, elsku vinur, nú
skalm gefa öllum viðskiptavinun-
um í glas, fá þér einn sjálfur og
láta MIG! fá reikninginn."
Barþjónninn horfir á Guðjón
og hugsar með sér að hann geti
ekki verið nógu heimskur að
reyna sömu vitleysuna aftur, svo
hann gefur öllum í glas, fær sér
líka og læmr Guðjón hafa reikn-
ing uppá 32.900 krónur. Guðjón
horfir á reikninginn og segir
„Nei, þetta get ég ekki borgað!“
Barþjónninn verður alveg
óður, tekur Guðjón upp á háls-
málinu og lemur hann sundur og
saman í góðan tíma áður en hann
kastar honum langt út á götu.
Daginn eftir kemur Guðjón
enn á ný inn á barinn og segir
(ennþá meira drafandi en áður)
„Kæri herra barþjónn. Nú skaltu
gefa öllu þessu fallega fólld í glas
og láta mig....“
Barþjónninn rýkur upp og
öskrar ,JHvað? Má ég ekki fá líka,
ha?“
Guðjón horfir á hann og segir
„Þú !!?? Kemur ekki til mála,
kallinn minn.Þú verður alltaf svo
brjálaður þegar þú detmr í það!“