Skessuhorn


Skessuhorn - 17.08.2000, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 17.08.2000, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 17. AGUST 2000 ^aiðsuntn. Horfiir á vænu fé * »>•**£ Grundarfjörður er orðinn vinsæll áningastaður skemmtiferðaskipa. Þetta glæsilega skip, Hanseatic, heimsótti staðinn á hátíðinni “A góðri stundu í Grundarfirði” Mynd: Sigriður Finsen. Framkvæmdum miðar vel við Akursblokkina en hún erfyrsta blokkin sem rís á Skaga um árabil. Mynd: K.K. 8 íbúðir seldar í Akursblokkinni Nú þegar hafa 8 íbúðir í nýja fjölbýlishúsinu á Jaðarsbraut á Akranesi selst, eða rúmur þriðjung- ur íbúðanna. I blokkinni eru tólf 3ja herbergja íbúðir og tíu 4ra her- bergja íbúðir. Að sögn Halldórs Stefánssonar framkvæmdastjóra Akurs hf verða íbúðimar tilbúnar til afhendingar um svipað leyti næsta sumar. “Ibúðirnar á efstu hæðunum seldust íyrst en það er al- vanalegt í húsum af þessari gerð. Það er fyrirsjáanleg mikil eftir- spurn efdr húsnæði hér á Skagan- um enda höfðum við m.a. í huga uppbygginguna á Grundartanga þegar við réðumst í að byggja,” sagði Halldór. Húsið er staðsett skammt frá miðbæ Akraness og er stutt í alla al- menna þjónustu. Frábært útsýni þykir einkenna staðsetningu húss- ins, en útsýni er til allra átta, austur að Akraíjalli og Esjunni, til vesturs að Snæfellsjökli og suður yfir Faxa- flóann til Reykjavíkur. Aðspurður sagði Halldór söluna hafa verið í samræmi við væntingar. “Þetta er tiltölulega langur bygg- ingartími og fólk fer sér hægt í að selja eða skipta um húsnæði þegar svo góður tími er til stefnu. Fram- kvæmdum miðar vel, verkefnin era næg og okkur vantar meira að segja fólk til vinnu. Við erum bjartsýnir á framhaldið,” sagði Halldór Stef- ánsson. K.K. Hversu velþekkja íbúar Reykjavíkur til á Akranesi? Skaginn kynntur á nýstárlegan háttjýrir höfuSborgarbúum. Mynd: K.K. Talandi súlur Á sýningunni Strandlengjan 2000 á norðurströnd Reykjavíkur sem opnuð var í júní í sumar er að finna verkið Reykjavík/Akranes project eftir Agnieszka Wotodszko ffá Krakow. Verkið, sem samanstendur af fimm “talandi” súlum, byggir á þeirri ágiskun að íbúar Akraness þekki Reykjavík betur en íbúar höfuð- borgarinnar þekki Akranes. Lista- maðurinn tók viðtöl við nokkra íbúa á Akranesi og voru þeir beðnir að kynna sig og samband sitt við heimabyggðina. Viðtöl þessi má heyra í súlunum fimm sem eru á ströndinni þar sem sést til Akraness. I súlunum eru einnig líkön af landslagi, gerð eftir minni. K.K. Á ferð með Leifi heppna Stolt af þessu verkefhi - segir höfandurinn Jóhanna Karlsdóttir kennari á Akranesi Fyrir skemmsrn kom út á græn- lensku, íslensku og dönsku bókin Leifúr Eiríksson - á ferð með Leifi heppna. Hér er á ferðinni heimilda- skáldsaga byggð á ff ásögnum í Eiríks sögu rauða og Grænlendinga sögu og gefur hún innsýn í daglegt líf vík- inganna jafhffamt því að kynna ein- hverjar ffægustu persónur í sögu landafundanna. Höfundar eru Jó- hanna Karlsdóttir kennari á Akra- nesi og Leif Aidt, danskur maður sem lengi hefúr starfað á Grænlandi. Blaðamaður Skessuhorns hitti Jó- hönnu að máli í vikunni og ffæddist aðeins um bókina. Fyrstu cintökin með víkingaskipinu Islendingi “Þessi bók er nú þannig komin til að Davíð Oddsson, forsætis- ráðherra Islands, og Jonathan Motzfeldt, formaður græn- lensku heimastjórnarinnar, á- kváðu fyrir tveimur árum að gefa út námsefni fyrir grunn- skólanemendur um víkinga- tímann og landafundina. Var það einn liðurinn í því að minnast landafundanna en það eru Námsgagnastofnun á Islandi og Grænlandi sem gefa bókina út,” sagði Jó- hanna. Ritstjórar bókarinnar eru Birna Sigurjónsdóttir og Inger H. Mortensen og segir Jóhanna samvinnu þeirra sem komu að bókinni hafa verið prýðilega í alla staði. Fyrstu eintökin voru flutt með víkingaskipinu Islendingi til Græn- lands á dögunum og afhentu Björn Bjamason menntamálaráðherra Is- lands og Lise Lennert menntamála- ráðherra Grænlands Margréti Danadrottningu, Olafi Ragnari Grímssyni forseta Islands, og Jon- athan Motzfeldt eintök af bókinni. “I næsta mánuði kemur síðan út vefefni sem ég vann ásamt Fríðu Haraldsdóttur og Margréti Sól- mundsdóttur og í ffamhaldinu verð- ur gefin út vinnubók sem ég samdi. Bókin er einkum ætluð 10 - 12 ára nemendum og verður hún á úthlut- unarkvóta skólanna hér á landi,” sagði Jóhanna. Bókin er myndskreytt af danskri listakonu Jette Jörgensen og segir Jóhanna myndimar vera einstaklega vel heppnaðar. “Jette sýndi einmitt vatoslitamyndimar úr bókinni á há- tíðinni í Brattahlíð núna í júlí,” segir hún. Að gera fomsögumar aðlaðandi fyrir böm Bókin og námsefnið sem tengist henni er hluti af mastersverkefni Jó- hönnu sem hún lýkur næsta vor “Að mínu mati er það megintil- gangurinn með útgáfunni að gera fomsögur aðlaðandi fyrir börn. Eg er mjög stolt af þessu verkefni og ekki síst því að námsefnið komi út á þremur tungumálum. Mér ftnnst þetta vera gott dæmi um árangurs- ríka vest-norræna samvinnu,” sagði Jóhanna. Ein spuming að lokum: Fórstu á Leijshátíðina? “Að sjálfsögðu. Hún var meiri- háttar og virkilega vel heppnuð í alla staði. Ég var alveg sérstaklega hrifin af tilgátuhúsinu og öllu sem því fylgdi. Dalamenn eiga hrós skilið fyrir þetta ffamtak sitt,“ sagði Jó- hanna Karlsdóttir. KK Jóhanna Karlsdóttir meó Leif heppna á þremur tungumálum. Mynd: K.K. Um síðustu helgí var þess minnst á Hvanneyri að sextíu ár eru liðin ffá því fyrsti vísirinn að Búvélasafninu á Hvanneyri varð til. í tdlefxii afinælisins héldu félag- ar úr Fombílaklúbbi Islands lands- mót sitt á Hvanneyri að þessu sinni. Þá var þangað stefnt eigend- um fomra bíla og tækja í Borgar- firði og nágrenni. Fjöldi gesta sótti Búvélasafnið heim á þessum tíma- mótum. GE

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.