Skessuhorn


Skessuhorn - 16.11.2000, Síða 5

Skessuhorn - 16.11.2000, Síða 5
jatsaunui.. FIíVIMTUDAGUR 16. NOVEMBER 2000 5 Nýr piparsveinn á Skaganum í liðinni viku var Jakob Þór Har- aldsson ráðinn markaðsfulltrúi Akraneskaupstaðar úr hópi fjórtán umsækjenda. Jakob er ferðamála- fræðingur að mennt auk þess sem hann er með masterspróf í mark- aðsmálum frá Englandi. Undanfar- in ár hefur hann verið búsettur á Seltjarnarnesi og starfað við ferða- málaráðgjöf og unnið fyrir félags- þjónustu Reykjavíkurborgar en áður var hann meðal annars fram- kvæmdastjóri í Noregi. Blaðamað- ur Skessuhorns sló á þráðinn til Jakobs og spurði hvernig honum litist á nýja starfið. “Mér líst alveg svakalega vel á þetta. Eg var áður með ferðamála- ráðgjöf fyrir Vopnaþarðarhrepp og á einum mánuði náði maður að hitta alla sem maður þurfti að hitta og ræða við flestalla sem skiptu máli. Eg þekkti meira og minna alla á svæðinu eftir mánuðinn og var á- nægður með hvernig ég náði utan um þetta allt saman. Svo kemur maður hérna og þá biðu mín tólf möppur sem ég þarf að lesa og kynna mér og hér er fullt af fólki sem ég þarf að kynnast en þetta er mjög spennandi verkefni. Mig vantar enn húsnæði en ég er að vona að bætt verði úr því fljótlega því það er miklu betra að komast inn í bæjarfélagið sem allra fyrst. Ég keyri á milli eins og er.” Jakob segir að samstarf við Fjölbrauta- skóla Vestur- lands veki á- huga sinn. “Eg ætla að reyna að hafa uppi á f o r m a n n i n emendafé- lagsins því mér finnst heill- andi við svona stað að vinnan mín felst í því að skapa b I ó m 1 e g t menningarlíf og skemmti- legt líf í bæn- um. Þar hlýtur FVA að vera mjög skemmtilegur samstarfsaðili því það er svo ofsa- lega margt spennandi að gerast þar sem ég vil gjarnan fylgjast með og athuga hvernig er sem best hægt að stilla strengina saman.” Áhugamál Jakobs eru margvísleg og hann er staðráðinn í því að láta Jakob Haraldsson Sagnafólk Troðfitllt var á sagnakvöldi í Naifeyrarstofii í Stykkishóhni. Mynd: IH Námskeið um söfnun þjóðlegs fróðleiks í Stykkishólmi var hald- ið í Grunnskólanum í Stykkis- hólmi laugardaginn 11. nóvember síðastliðinn. Þar voru kynntar að- ferðir við söfnun, varðveislu og útgáfu þjóðfræðaefhis, jafnt sagna og kvæða sem þjóðsiða. Þar var fjallað um skipulag söfnunar, sið- ferðisleg álitamál og aðferðir við söfnun, einkum með tilliti til þeirra mistaka sem fólk þarf að forðast. Þá var fjallað um þá vinnu sem á eftir kemur, svo sem við skráningu og frágang til varð- veislu og útgáfu. Tuttugu og tveir sagnaáhuga- menn víða af Vesturlandi sátu námskeiðið. Um kvöldið var síðan haldið sagnakvöld í Narfeyrar- stofu sem er kaffihús í Stykkis- hólmi. Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra setti sagnakvöld í troðfullu húsi og á eftir honum komu sagnamenn í bland við söngatriði. Mikil fjölbreytni var í sagnavali og skemmtu gestir sér hið besta. Á námskeiðinu kom fram að söfnunarverkefnin bíða allt í kringum okkur, innan fjöl- skyldna jafnt sem meðal vina og kunningja. Sem dæmi var nefnt að hægt er að fylgjast með matargerð á hausti í kringum sláturtíð og skrá þær fjölskylduhefðir og sögur sem henni tengjast. Göngur og réttir bjóða upp á endalausa söfh- unarmöguleika, sömuleiðis jóla- undirbúningur, barnaleikir og unglingamenning af ýmsu tagi. Sögur af veiðiferðum til sjós og lands eru einnig mjög lifandi á vörum fólks. Minningar um horfna atvinnu- og útgerðarhætti á Breiðafirði eru gullnáma til söfhunar s.s. leiðalýsingar um eyj- arnar í bland við slysa- og ó- happasögur. Þá var nefnd Hval- stöðin í Hvalfirði sem nú er orðin að fortíð sem lifir helst í frásögn- um og minningum manna. Nýbúar hafa orðið tilefhi fjöl- margra sagna, minningar um skólavist, stríðið, hippatímann og hvaðeina sem er fólki nógu ofar- lega í huga til að það segi frá því. Verkefhi safnarans er að skapa að- stæður sem laða fram þær sögur sem fólk segir í eðlilegu umhverfi og skrá þær um leið. Bæði námskeiðið og sagna- kvöldið tengjast verkefninu “End- urreisn sagnahefðar” sem er sam- starfsverkefni innan Leónar- dóáætlunar EES. Kennari á nám- skeiðinu var Gísli Sigurðsson, fræðimaður á Stofnun Árna Magnússonar. IH \ \ \ \ \ \ W FUNDARLAUN! Stolið var á athafnasvæði Nesvikurs, Breiðinni á Rifi: 2 daelum af gerðinni GRINDEX Matador NYD New line og 1 rafeindavog Þeim sem veitt geta upplýsingar sem leiða til þess að málið upplýsist er hér með heitið fundarlaunum að fjárhæð kr. 300.000.- Upplýsingar veita: Hetfji KrLitjáihi.ion aími: 4361561 Helga Hilniaradóttir Ami: 585 5000 / 694 4499 Nedvikur ehf. \ \ \ \ \ \ \ sér ekki leiðast á Akranesi. “Ég hef mjög gaman af golfi og hlakka mik- ið til að prófa golfvöllinn. Éótbolti er einnig stórt áhugamál og eitt af þeim símtölum sem ég þarf að hringja á morgun er einmitt til knattspyrnudeildar IA. Ég ætla að athuga hvernig staðan er í “Old boys” liðinu hjá þeim en ef ég stend mig vel þar hef ég heyrt að Siggi Jóns sé hugsanlega á förum. Ég gæti þá leyst hann af en það er spurning hvort menn yrðu jafn á- nægðir með mig eins og hann. Ég er líka mikill áhugamaður um bridge og ég mun leita mér að bridgefélaga og auðvitað að lífs- förunaut,” segir Jakob og hlær, “þess vegna vil ég líka ná að flytja hingað upp eftir og komast inn í samfélagið.” Jakob segist alveg geta hugsað sér að setjast að á Akranesi. “Ég held að þetta sé mjög skemmti- legur staður til þess að byggja upp sitt líf og vinna og reyna að láta gott af sér leiða. Þetta er þriggja ára samningur sem ég gerði en að vísu eru þrír reynslumánuðir. Þetta er mjög krefjandi starf en spennandi á sama tíma og eftir því sem ég best veit er það enn í mótun. Ef þetta gengur allt saman upp hentar það mér mjög vel og ég sé mikið af skemmtilegum tækifærum hér.” Jakob hefur þegar fengið þónokkr- ar hugmyndir sem hann langar að koma í framkvæmd. Hann segir þær þó vera of skammt á veg komnar til þess að hægt sé að segja frá þeim. “Fyrstd fundurinn sem ég fór á var út af Byggðasafninu þar sem á að vera í- þróttasafh, steinasafn og safh ffá Landmælingum Islands. Ég nefhdi það við Þorstein sem er með steinana að ég vil endilega tengja hann við fyrirtækið Álfastein og einnig langar mig að reyna að fá styrk ffá Lands- steinum sem er tölvufyrirtæki þannig að þeir myndu styrkja safnið og vinna með okkur að markaðsmálum og kynningu. Maður er strax farinn að fá ýmsar hugmyndir sem mér sýnist að falli í góðan jarðveg og það er von- andi að maður geti haldið því áfram. Mér finnst alls ekki vera aðalatriði að hugmyndin komi ffá mér heldur finnst mér mjög mikilvægt að fá hug- myndir ffá heimafólki líka og hvet það til að kíkja á mig og segja mér ffá þeim,” segir Jakob að lokum. Harm er með aðsetur að Kirkjubraut 3 og með síma 431 3327 og 862 7127. SÓK Akraneskaupstaöur Somkeppni um nafn á götur í Flatahverfi Bæjarráö hefur samþykkt tillögu byggingarnefndar um aö efna til samkeppni um nöfn á götur í Flatahverfi. Um er að ræða 18 götur í 14 klösum, þar af eru 3 götur sem mynda hringakstur í hverfinu. Veitt verður 25000 kr. verðlaun fyrir bestu hugmyndina. Tillögur skulu vera merktar dulnefni og skal rétt nafn fylgja með í lokuðu umslagi. Tillögur skulu hafa borist til bygginga- og skipulagsfulltrúa oð Dalbraut 8, fyrir kl. 12:00 þann 20. nóvember 2000. Bygginga- og skipulagsfulltrúi Verkalýðsfélagjíkraness Sjúkraíbúð Sjúkrasjóðs Verkalýðsfélags Akraness í Reykjavík Sjúkrasjóður VLFA hefur til leigu íbúð í Reykjavík. íbúðin er fyrst og fremst ætluð félagsmönnum VLFA sem þurfa að dveljast í Reykjavík vegna veikinda Nánari upplýsingar fást á skrifstofu félagasins Kirkjubraut 40 eða síma 431-3122. \ \ \ \ \ w \ FUNDARLAUN! Stolið var í október á athafnasvæði Nesvikurs, Breiðinni á Rifi: Sjónvarpjtœki af gerðinni UNITED UTV707028” og TENSAITVR500 vídeó Þeim sem veitt geta upplýsingar sem leiða til þess að málið upplýsist er hér með heitið fundarlaunum að fjárhæð kr. 50.000.- Upplýsingar veita: Helgi Krurtjátudon .iími: 4361561 Helga Hilniaradóttir dínii: 585 5000 / 694 4499 Neovikur ebf. \ \ \ \ \ \ \

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.