Skessuhorn


Skessuhorn - 16.11.2000, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 16.11.2000, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 16. NOVMEMBER 2000 ^aiasunui. Rekstrarfræðingur í ruslið Rætt við Friðrik Tryggvason í Grundarfirði Almenna umhverfisþjónustan í Grundarfirði hefur sótt um 3 lóðir í nýja iðnaðarsvæðinu á “vesturbakk- anum”, eins og nýja iðnaðarsvæðið á vesturbakka Kvernár er stundum kallað. Það vekur nokkra athygli að AJmenna umhverfisþjónustan ætlar sér að byggja upp fullkomna aðstöðu fyrir gámastöð og endurvinnslu á úr- gangi og sorpi. Svo virðist sem sveit- arfélögin séu ekki alveg tilbúin í það sem gera þarf því þó það hafi endan- lega verið bannað að brenna sorp um síðustu áramót má en sjá rjúka frá eldum á sorphaugum víða á Snæfells- nesi. Nú er fyrirliggjandi að þeim sorphaugum sem sveitarfélögin hafa verið að nota verður lokað um ára- mótin. Friðrik Tryggvason rekstrar- fræðingur er ffamkvæmdastjóri og einn eigenda Almennu umhverfis- þjónustunnar. Grunnendurvinnsla virðist það augljóst að það sé hag- kvæmara að einn aðili sé að bjóða upp á heildarlausn heldur en að sveitarfélagið sé að basla við þetta sjálft. Þau eru mörg dæmin um hve mikilli hagkvæmni er hægt að ná með svona skipulagi, það má nefna að fólk setur til dæmis gras í sorp- poka og halda menn að það borgi sig fýrir sveitarfélagið að keyra því í Fífl- holt og borga fyrir það 10 krónur á kílóið. Menn hafa jafnvel reynslu af því að teppaströngum hefur verið troðið í blaðagáma og þarf nokkra fyrirhöfn til. Það er aragrúi af svona dæmum sem gera það að þessi sorp- mál eru erfið úrlausnar. Þess vegna er mönnum nú orðið það alveg ljóst að þetta er ekkert rekið öðruvísi en með eftirliti”, segir Friðrik. Nýr hugsunarháttur En er ekki hugsunarháttur fólks að breytast hvað þetta varðar? “Jú, fólk er tilbúnara nú í dag til að líta á þau verðmæti sem í þessu liggja. Eg geri ráð fyrir því að á mínu athafnasvæði muni til dæmis verða kurlað timbur, rifnir bílar og rifrildið síðan flokkað niður í jám, gler o.fl. Nú, síðan er það bara mitt að reyna að gera mér úr þessu verðmæti. Það virðist ein- sætt að best muni að brenna timbur- kurlið og kynda með því húsnæði fyritækisins og kannski fleiri á svæð- inu. Síðan kemur auðvitað jarðgerð og margt fleira. Allar þessar hug- myndir lúta að því sama; að eyða sorpi á þann hátt sem er ódýrast og best”. Bara spámaður “I mínu fyrirtæki er meiningin að samnýta alla þessa möguleika. Það er í raun megin spurningin um að ná fram hagkvæmninni og gera þetta vel. Það má kannski segja að vanda- málið sé að maður er bara spámaður. Og það em ofsalega margir spámenn í þessum bransa. Þessi litlu sveitarfé- lög sem við búum í em mjög hentug- ar einingar. Það er til þess að gera auðvelt að koma upplýsingum til fólks og fólk er móttækilegra. Eg sem rekstrarfræðingur sé í því ákveð- in spennandi tækifæri að byggja upp fyrirtæki með metnaðarfullri stefiiu í þessum málum og láta það standa sig þannig að þessi þjónusta sé ekki sá böggull sem hún vissulega er í sam- félaginu í dag”. IH Þó bannað hafi verið að brenna sorpi um stðustu áramót loguðu eldar á þessum haugum á mánudaginn s.I. Friðrik Trygguason með tcihnngu af athafttasvæði Almennu umhverfisþjónustunnar. MyndlH Er venjulegt að einstaklingar standi að svona rekstri? “Nei algengast er að sveitarfélögin geri þetta sjálf. Nú stöndum við ffammi fyrir því að þurfa að fara að aka með sorp til urð- unar í Fíflholtum, þar hafa sveitarfé- lögin á Vesturlandi hafa komið sér saman um urðunarstað. Eg sé ekld annað en sveitarstjórinn í Grundar- firði vilji gera þetta vel og standa að þessu með sóma. Það þýðir einfald- lega að menn keyra ekki þangað því sorpi sem menn geta fargað með öðr- um hætti. Hugmyndin hjá mér er að geta tekið við sorpi eins og það kem- ur frá fyrirtækjum og vera með grunnendurvinnslu á svæðinu. Hug- myndin snýst raunverulega um það að í náinni framtíð verði komið skila- gjald á allt sorp sem þýðir það að þeir sem koma með sorp inn á stöðina fara þaðan með peninga”. Hagkvæmni “Ég hef boðið sveitarfélaginu upp á það að nýta þessa þjónustu, mér Hæfileikakeppnin á Akranesi Hátónsbarki í hæfileika- keppni grunnskólanna á Akra- nesi var valin Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir úr Brekkubæjar- skóla sem að mati dómnefndar söng betur en aðrir hæfileika- ríkir söngvarar sem stigu á svið í keppninni. Besta hljómsveitin var valin Nafnleysa sem kemur úr Brekkubæjarskóla en hana skipa Axel Freyr Gíslason, O- lafur Pétur Pétursson, Arnar Freyr Jónsson og Vésteinn Sveinsson. Vegna mistaka féllu ofanskráðar upplýsingar niður í frétt Skessuhorns um hæfileika- keppnina frá fyrri viku en eins og áður hefur komið fram í blaðinu var besta atriðið valið flutningur hljómsveitarinnar Zakralist og frumlegastir þóttu “Feitu perrarnir, ekki horfa” úr Grundaskóla. K.K. Til vinstri: Hátónsbarki hæfileikakeppninnar: Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir. Að neðan: Amar Freyr Jónsson í Napileysu blés blús í sax af mikilli innlifim við þétt undirspil hljómsveitamieðlima. Myndir: K.K. Fræðslufundur ✓ IE á Akranesi Síðastliðið mánudagskvöld var haldinn fræðslufundur á vegum íslenskrar erfðagreiningar og Sí- menntunarmiðstöðvarinnnar í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Fyr- irlesarar voru þau Kristleifur Kristjánsson, einn af stoínendum fyrirtækisins og Sólveig Olafs- dóttir, sagnfræðinjrur, sem starfar við ættfræðideild Islenskrar erfða- greiningar. Aðgangur var ókeypis og var fundurinn ágætlega sóttur af bæjarbúum. Eins og fram hefur komið í fréttum undanfarið er raðgreiningu alls erfðaefnis mannsins nýlega lokið og Krist- leifur gerði fundargestum m.a. grein fyrir því hvaða þýðingu það hefði. Einnig fjallaði hann um helstu viðfangsefni IE og niður- stöður einstakra rannsókna sem ÍE hefur staðið fyrir. Sólveig fjall- aði aðallega um helsta verkefni ættfræðideildarinnar sem er að skrá nýja íslendingabók en stefn- an er að hún verði komin á ver- aldarvefinn fyrir áramót. SÓK

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.