Skessuhorn


Skessuhorn - 16.11.2000, Qupperneq 7

Skessuhorn - 16.11.2000, Qupperneq 7
L>n£S9ltlUi.. FIMMTUDAGUR 16. NOVEMBER 2000 7 Ósköp væri nú tilveran tilbreyt- ingarlaus ef menn hefðu ekki eitt- hvað til að rífast yfir og sem betur fer finnst alltaf eitthvað nýtt þá annað sjatlast. Undanfarin misseri hefur umræða um innflutning á norskum kúm valdið pirringi og skjálfta víða í þjóð- félaginu. Málið er farið að valda verulegum hita þar sem fólk skipar sér í tvær andstæðar fylkingar, með eða á móti. Aldavinir eru farnir að slást í vondu hvar sem þeir hittast og heyrst hefur úr fjarlægri sveit þar sem áður mjög samlynd hjón lentu sitt hvoru megin víglínunnar, þar hafi konan alfarið neitað bóndanum um blíðu sína frá því málið bar fyrst á góma. Gaf hún þó örlítið eftir þeg- ar bóndi benti á réttindi, skyldur og áunnar hefðir, en þó ekki meira en svo að á bóndann var settur afar naumur kynlífskvóti, þar sem ástalíf þeirra hjóna, mun hér eftir verða bundið við annan hvern hlaupárs- dag, að því tilskyldu að fullt tungl fylgi með. Hræðilegt fordæmi þetta. Aumingja landbúnaðarráðherra hefur ekki átt sjö dagana sæla und- anfarið. Ýmist hefur honum verið skipað að koma strax undan feldin- um eða liggja sem lengst með breitt yfir haus. Ráðherra ákvað að koma undan feldinum. Þá dundu ósköpin yfir, ráðherranum varð það á í vitna viðurvist að kyssa belju, og síðan hef- ur ráðherrann verið kallaður Júdas, allt vegna þess að einhver æsifrétta- maðurinn fullyrti að hann hefði heyrt beljuna muldra að kossinum loknum “hví svíkur þú afkomanda Huppu frá Kluftum með kossi?”. Annars finnst mörgum alltof mikið gert úr þessum atburði, eins og það sé ekki prívat mál ráðherrans hvern hann kyssir og hvar. Nú fer, í þessu innflutnings- deilumáli eins og svo oft áður þegar rumpa á einhverju af í hvelli, ekki saman hugur og hönd. Áhugafólk um endurheimtingu votlendis heimtar að fyllt sé upp í skurði, gljúfur, gil og læki og á sér þann draum æðstan að innan fárra ára verði landið samfellt fúafen milli fjalls og fjöru. Eftir því sem mér skilst eru norsku kýrnar svo klettþungar að þær sökkva í allt nema stál og steypu. Ekki er það fagnaðarefni kúasmölum framtíðar- innar að ösla keldurnar í klof, auk þess að rogast með níðþungan drullutjakk til að losa um þær norsku, svo þeim verði komið heim til mjalta. Ýmsir hafa af því áhyggjur að norsku kýrnar útrými þeim ís- lensku á tiltölulega stuttum tíma. En er þá ekki fleira í útrýmingarhættu en íslenskar kýr? Það hefur færst í vöxt á undan- förnum árum að íslenskir karlar kvongist konum frá Austurlöndum. Þetta ferli fer ekki í gegnum fóstur- vísa sem græddir eru í íslenskar konur sem geymdar eru árum saman í Hrísey. Nei, ó nei, þær eru fluttar inn beint. Ef þessar ágætu konur, austurlenskar, reynast betur en þær íslensku, er þá ekki íslenska konan í útrýmingarhættu. Hér þarf að hefja samanburðarrannsóknir sem fyrst. Eru þær útlensku með betur upp borin júgur en þær íslensku, er hægt að fóðra þær á lambakjöti og ýsu eða þarf að flytja inn umtalsvert magn af hrísgrjónum fyrir verðmætan gjald- eyri? Hér mætti lengi telja. En síðast og ekki síst, er hætta á að þær setji kvóta á eiginmenn sína þegar koma upp deilumál? Og menn líti ekki glaðan dag nema hlaupársdagur renni saman við fullt tungl. Það er spurning. Bjartmar Hannesson Hinn árlegi CLÉBf UrAUR UMFR verður haldinn í Logalandi næstkomandi tACCARlÐAC 18. bóV. Á dagskrá verður DÆGURLAGAKEPPNI ásamt fleiri óvæntum uppákomum, meðal annars hinvt geysivÍHScdf Bjartmar Hannesson. Húsið opnar kl 21:00 og við byrjum á DÆGURLAGAKEPPNINNI kl 21:30 stundvíslega. Stuðbandalagið leikur svo fyrir dansi fram á nótt. Miðapantanir hjá Jónu í síma .435-1513 og 435- 1177 M/tTUM ÖiLL Nefndin f Iþróttamiðstöðin Borgarnesi Starfsmenn óskast! íþróttamiðstöðin í Borgarnesi óskar eftir tveim starfsmönnum ( karli og konu ) í fullt starf. Starfið er vaktavimia sem felst m.a. í baðvörslu, gæslu við sundlaugarmaimvirki úti og inni, í íþróttahúsi, auk þrifa, afgreiðslu o.fl. Starfsmaðurinn þarf að hafa ríka þjónustulund að upplagi, gott lag á bömum og unghngum auk áhuga og skilning á íþrótta- og æskulýðsstarfi. Lami samkv. launatöflu SFB. Skilyrði fyrir ráðningu er að starfsmaðurinn standist hæfnipróf sundstaða. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Vinnustaðurinn er reyklaus. • Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofunni Borgarbraut 11. • Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 28. nóv. 2000. • Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofuna. Nánari upplýsingar gefur: Iþrótta- og œskulýðsfulltrúi í síma: 437-1224. Borgarbraut 61 310 Borgarnes Sími: 437-1700 Fax: 437-1017 INGI TRYGG VASON hdl. lögg. fasteigna- og skipasali Böðvarsgata 2, Borgarnesi. | Neðri hæð 113,2 ferm. í tvíbýlishúsi og bflskúr 36 ferm. Stofa, gangur og I borðstofa teppalagt, 2 herb. parketlögð og 1 dúklagt. Eldhús dúklagt, eldri viðarinnr. Baðherb. flísalagt, kerlaug. Forstofa dúklögð. Geymsla og þvottahús. j Verð: kr. 10.500.000. * Skallagrímsgata 1, Borgarnesi. íbúð á efstu hæð 120 ferm. Stofa og hol teppalagt. Gangur dúklagður. 4herb., 3 dúklögð og 1 parketlagt. Eldhús dúklagt, hvít viðarinnr. Baðherb. dúklagt, kerlaug. Forstofa og stigagangur teppal. Geymsla og þvottahús. Nýtt gler í hluta hússins. Sér inngangur. Verð: kr. 8.500.000. Nýtt á söluskrá BORGARBYGGÐ

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.