Skessuhorn - 07.12.2000, Qupperneq 1
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI - 49. tbl. 3. árg. 7. desember 2000 Kr. 250 í lausasölu
Alltaf von á góöu!
/
Islensk eríðagreining semur við SHA
Samþykktur hefur verið samn-
ingur milli Sjúkrahúss Akraness og
Islenskrar erfðagreiningar um
vinnslu upplýsinga fyrir miðlægan
gagnagrunn á heilbrigðissviði. Að
sögn Guðna Tryggvasonar for-
Atvinnugarðar
í Borgarbyggð?
Atvinnuráðgjöf Vesturlands er
þessa dagana að kanna grund-
völl fyrir starfrækslu atvinnu-
garða og/eða þróunarseturs í
Borgarbyggð. Ef af verður eru
líkur á að atvinnugörðunum
verður fundinn staður í gamla
kaupfélagshúsinu að Egils-
götu 11.
Hugmyndafræðin sem atvinnu-
garðarnir byggja á er þekkt víða
um heirn og hefur gefist vel. Hún
bytggir á að fyrirtæki og einstak-
lingar sem starfa á svipuðu sviði
sameinist um að vinna á einum
stað, þó hver um sig með afmark-
aða vinnuaðstöðu en með sam-
vinnu um hluta aðstöðu og
rekstrar. Hugsanlegt er einnig að
viðkomandi aðilar starfi saman að
markaðsmálum eða einstökum
þróunarverkefnum.
Að sögn Vífils Karlssonar hjá
Atvinnuráðgjöf Vesturlands er
verkefnið enn á hugmyndastigi
en nú þegar hefur það vakið um-
talsverðan áhuga fyrirtækja og
einstaklinga. GE
manns stjórnar Sjúkrahúss Akra-
ness er einnig gert ráð fyrir að
sjúkrahúsið geti unnið að ákveðn-
um þróunarverkefnum fyrir Is-
lenska erfðagreiningu. “Það er
ljóst að þarna verða til mörg
spennandi verkefni og miklir
möguleikar. Það er ekki ljóst á
þessari stundu hversu umfangs-
mikið starf sjúkrahússins fyrir Is-
lenska erfðagreiningu verður en
við stefnum að því að þessi samn-
ingur muni fjölga störfum hér hjá
okkur,” segir Guðni.
Sjúkrahús Akraness mun vera
fyrsta heilbrigðisstofnunin sem
samþykkir samning við Islenska
erfðagreiningu en nokkrar aðrar
munu vera undir það búnar að
undirrita samninga innan tíðar.
GE
Tæpum helmingi
sagt upp
Síðastliðinn miðvikudag var 12
starfsmönnum í Islenskt franskt eld-
hús hf. sagt upp störfum en hjá fyrir-
tækinu störfuðu 26 manns. Að sögn
Sturlaugs Sturlaugssonar, fram-
kvæmdastjóra Haraldar Böðvarssonar
hf., er ástæðan fyrir uppsögnunum
fyrst og ffemst hagræðing í sér-
vinnsludeild fyrirtækisins. “Við ædum
okkur að reyna að tengja betur hefð-
bundna vinnslu og þessa sérvinnslu.
Auðvitað er markmið okkar það að
reyna að finna farveg fyrir þá einstak-
linga sem var sagt upp en við getum
eklá lofað neinu ennþá.” Sturlaugur
segir að ekki megi búast við fleiri upp-
sögnum innan fyrirtækisins á næst-
unni. “Það er auðvitað alltaf erfitt
stund að þurfa að gera svona lagað en
þetta er samt sem áður staðreyndin í
dag. Svo verður bara að koma í ljós
hver framtíðin verður í þessu. Við höf-
um verið með fólláð nokkuð vel upp-
lýst í þessari deild og sögðum á fundi
fyrir skömmu, þar sem við kynntum á-
kveðna stöðu sem við stóðum ffammi
Siffí
*. Hi
fyrir þá, að á þeirri stundu gætum við
ekki lofað fólki vinnu eftir áramót.
Þannig að við höfum verið með starfs-
fólk okkar nokkuð vel upplýst og að
sjálfsögðu einnig fulltrúa verkalýðsfé-
lagsins og aðra þá aðila sem tengjast
þessum uppsögnum.” SOK
Snæfellsbær “Hástökkvari ársins”
í nýjasta hefti Vísbendingar sem
kom út í lok nóvember er fjallað um
fjárhag og rekstur sveitarfélaga.
Draumasveitarfélagið Vísbending
hefur undanfarin ár vegið og metið
nokkra þætti í rekstri sveitarfélag-
anna til þess að komast að raun um
í hvaða sveitarfélagi er fysilegast að
búa. Oft hafa deilur orðið út af nið-
urstöðum þessara úttekta og sýnist
þá sitt hverjum. Sá staðall sem kall-
aður er draumasveitarfélagið er á-
kveðinn mælikvarði sent byggður er
á forsendum úr opinberum tölum. I
nóvemberheffi Vísbendingar segir.
“Á mælikvarða draumasveitarfé-
lagsins hafa sveitarfélög verið að fá
verri einkunn á milli ára bæði í ár og
á síðasta ári. Arið 1997 var meðal-
einkunnin 4,75 í fyrra var hún 4,53
en í ár er hún 4,26. Astæðan er auk-
in skuldasöfhun, meiri skattpíning
og miklir fólksflutningar. Eins og
undanfarin ár kemur Seltjarnames-
kaupstaður langbest út úr þessum
samanburði, fær 7,5 í einkunn sem
er hærra en á síðasta ári Sveitarfé-
lagið Olfus kemur einnig sterkt út
úr þessari einkunnagjöf enda með
lægstu skuldabyrði á hvern íbúa
allra sveitarfélaga. Sérstaklega má
veita því athygli að Reykjavík fellur
úr öðm sæti listans í það þrettánda
og lækkar um næstum tvo heila á
milli ára.
Hástökkvari listans er án nokkurs
vafa Snæfellsbær sem undanfarin tvö
ár hefur vermt neðsta sæti listans en
er nú í því fjórða með 5,2 í einkunn
sem er ve! yfir meðaltalinu. Það sem
veldur er fyrst og fremst stöðugleiki
í fólksfjölda en einnig þá hefur bæði
hlutfall reksturs málaflokka og fjár-
festinga af skatttekjum verið nær
mörkum draumasveitarfélagsins en
nokkru sinni áður”.
Þessi niðurstaða blaðsins hlýtur að
vera fagnaðarefrú fyrir íbúa Snæfells-
bæjar. En gaman er að enda hér á
skemmtilegu upphafi þeirra Vís-
beningamanna. “Svo virðist sem
hvert einasta sveitarfélag hér á landi,
eða svo til, hafi sinn djöful að draga.
Ef það er ekki fólksfækkun þá er það
fólksfjölgun”.
IH
't&0>
Pokémon pizzaiillioð
16"m.einni
áleggstegund
ehtíi
:co
-<o
veitingar
4305555
!lo
-CD
jin
'hZ
Lb-
CD