Skessuhorn - 07.12.2000, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000
aiki:s3imu>~
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 49
Akranesi: Kirkjubraut 3
Sími: (Borgarnes og Akranes) 430 2200
Fax: (Borgomcs) 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
íslensk@islensk.ís
ritstjori@skessuhorn.i
internet@islensk.
sigrun@skessuhorn.
ingihans@skessuhorn.
hjortur@skessuhorn.i
bokhold@skessuhorn.is
Útgeiondi: Islensk upplýsingotækni 430 2200
Fromkv.stjóri: Mognús Mognússon 894 8998
Ritstjúri og úbm: Gisli Einorsson 892 4098
Internetþjúnusto: Bjorki Mór Karlsson 899 2298
Bloðomenn: Sigrún Kristjúnsd., Akronesi 862 1310
Ingi Hons Jónss., Snæfellsn. 895 6811
Auglýsingor: Hjörtur J. Hjortorson 864 3228
Fjúrmól: Sigurbjörg B. Ólafsdóttir 430 2200
Prúforknlestur: Ásthildur Magnúsdúttir og fleiri
Umbrot: Tölvert
Prentun: isofoldarprentsmiðja hf
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
430 2200
A
sjúkra-
beði
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Kæri lesandi.
Ég kveð þig með söknuði og tár á hvörmum. Svona til ör-
yggis. Því það er afar hæpið, þér að segja, að þú eigir eftir að
heyra mig né sjá efdr þetta.
Ég er nefnilega haldinn afar sjaldgæfum sjúkdómi sem
reyndar hefur ekki enn fengist viðurkenndur af læknum en
samkvæmt mínum eigin rannsóknum er hann án efa bráðdrep-
andi. Ég lifi þó í veikri von um að ég tóri þar sem ég er annál-
að hraustmenni en ég tel þó engar líkur á að ég nái aftur fullri
heilsu og ef að líkum lætur verð ég að minnsta kosti 100% ör-
yrki hér eftir.
Ég er með öðrum orðum haldinn heiftarlegu jólaofnæmi!
Það fór að bera á þessu seinni part sumars þegar byrjað var
að auglýsa jólavarning í gríð og erg. Upp ffá því var farið að
ofsækja mig af fólki sem er að selja jólakort, jólapappír og jóla
guðmávitahvað, að vísu allt í þágu góðs málefnis og hreinu
hjarta. Síðan hefur þetta stigmagnast og náði hámarki þegar ég
var nærri hálsbrotnaður við að flækja hægri fótinn í jólaseríu
heimilisins sem búið var að draga ffam á gólf. Fyrr um morg-
uninn hafði ég fundið jólaköngul í haffagrautnum mínum og
uppáhalds hálsbindið mitt var komið í strimla og endurunnið
í músastiga.
Ofan á allt annað vakna ég og sofna með jólalög og bjöllu-
hljóm suðandi fyrir eyrunum. Ég er fyrir löngu kominn með í
magann af því að bragðprófa misvellukkaðar tilraunajóla-
smákökur konunnar og fyrir löngu er búið að troða öllu
skótaui heimilisins upp í glugga, þar með talið gömlu fjósastíg-
vélunum mínum.
Það er samt ekki nóg með það að ég þurfi að þola þessar
raunir á mínu eigin heimili. Sjálf þjóðkirkjan hefur snúist gegn
mér. Ég hefði getað skilið það þótt ffamhaldsskólakennarar
landsins hefðu veist að mér með þessum hætti og á skipulegan
hátt veifað framan í mig jólaskrauti. Ég hefði hugsanlega átt
það skilið ffá þeim, en kirkjunni, Guð almáttugur hjálpi mér.
Ég sem puðaði árum saman við að slá kirkjugarðinn í minni
sókn, mér til syndaaflausnar.
Samt sem áður tók kirkjan upp á þeim óskunda að heita
verðlaunum þeim sem mest gæti farið í taugarnar á mér með
því að hengja upp allskonar dinglumdangl þréttán mánuðum
fyrir jól. Kirkjan er með öðrum orðum að hvetja kaupmenn og
víxlara til að ala gullkálfinn sem best á sjálffi föstunni.
Nú er það alls ekki svö að ég sé í eðli mínu mótfallinn jólun-
um og ædi að fara að vinna í að þau verði afnumin. Síður en
svo. Ég er í raun afskaplega hlynntur jólunum, það er að segja
ef ég fæ einhverntíma frið fyrir öllu þessu jólaveseni til að
komast í jólaskap. Hóflega notuð jól gleðja mannsins hjarta,
hefði Salomon heitinn sagt og ég tek undir það.
Gísli Einarsson ofiiæmissjiíklingur
Jámblendiverksmiðjan á Grundartanga
Rafmagnsleysi
Rafinagnslaust varð á stóriðju-
svæðinu á Grundartanga síðast-
liðinn miðvikudag í nokkrar
klukkustundir. Orsökin var bil-
un í spennistöðinni á Brennimel
sem stafaði af því að einn spenn-
irinn í stöðinni sprakk.
Fljódega náðist að koma raf-
magni á álverið en Járnblendiverk-
smiðjan var rafmagnslaus í nokkrar
Á mánudaginn s.l. fögnuðu
Hólmarar nýjum golfskála sem
Golfklúbburirm Mostri keypti frá
Akranesi. Golfskálinn gegndi
áður hlutverki kennslustofu sem
sett var upp til bráðabirgða við
Fjölbrautaskólann á Akranesi.
Ofluga krana þurfti til að hífa hús-
ið á og af bíl og voru fengnir til
þessa kranar frá Skóflunni á Akra-
nesi. Eftir að hafa sett Golfskálan
niður í Stykkishólmi var tækifærið
notað til að flytja lögreglustöðina í
Gallar hafa komið frarn á því efini
sem valið var til þess að klæða ný-
byggingu Grundaskóla sem byggð
var fyrir fjórum árum síðan. Málið
hefur ítrekað verið tekið fyrir í
bæjarráði og nýverið var Skúla
Lýðssyni, bygginga- og skipulags-
fulltrúa falið að ræða við efhis-
framleiðanda um þátttöku í við-
gerð á múmum. Áður hafði bæjar-
ráð fengið skýrslu Rannsóknar-
stofnunar byggingariðnaðarins,
greinargerð efhisframleiðanda
kerfisins og hönnuðar auk bréfc
þess iðnmeistara sem sá um verk-
lega framkvæmd múrklæðningar-
innar.
Að sögn Guðbjarts Hannessonar,
skolastjóra Grundaskóla, eru
skemmdimar á múmum einna mest
áberandi á þeirri hlið hússins sem að-
alinngangurinn er. “I ljós koma
sprungur í múmum og litaútfelling
auk þess sem sprungur em á köntum
í kringum hurðir. Ásetning ímúrsins,
sem var upphaflega frá Sérsteypunni
en er núna ffamleiddur af fyrirtæki í
klukkustundir. Ekki varð þó tjón á
búnaði verksmiðjunnar eins og ótt-
ast var um tíma.
Síðastliðinn mánudag fór síðan
rafmagnið af Akraneskaupstað. Or-
sökin var sú að öryggi í spenni í að-
veitustöðinni brann. Ekki tók nema
rúma klukkustunda að koma raf-
magni á staðinn að nýju.
Stykkishólmi til Grundarfjarðar
þar sem hún mun enn um sinn
gegna sama hlutverki og hún
gegndi áður í Hólminum. Þetta
einkennilega hús sem byggt var
sem bráðabirgðahús í Stykkishólmi
er 6 metra breitt og 17 metra langt.
Það er flumingafyrirtækið Ragnar
og Ásgeir sem annast flutning húss-
ins. Þetta er talsverð yfirferð hjá
kranabílunum á Akranesi síðastlið-
inn sólarhring. Svo er lestin auð-
vitað í lögreglufylgd. IH
Reykjavík sem hefur einkaleyfi á
þessu, virðist ekki hafa tekist al-
mennilega. Það sem verið er að gera
núna er að það er verið að rannsaka
hvar mistökin liggja. Verið er að
kanna hvort þetta sé efnið sjálft,
hönnunin, ásetningin og þar ffam
eftir götunum. Bygginga- og skipu-
lagsfulltrúinn hefur verið að safiia
þessum upplýsingum saman og leita
til viðkomandi aðila. Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins er
einnig búin að rannsaka málið og sér
hún á þessu ýmsa galla.” Guðbjartur
segir ljós að fara þurfi út í viðgerð á
múmum. “Það verður væntanlega
gert næsta sumar. Auk þess er þetta
það ljótt að við viljum fá byggingima
málaða líka. Það liggur ekki fyrir hvað
viðgerðin kemur til með að kosta.
Það stendur nú ekki til að skipta um
múrklæðningu á allri byggingunni en
það gæti þurff að gera við ákveðna
bletti og svo að mála. Þannig að enn
hefur ekki verið gerð nein áætlun um
hvað kemur til með að kosta að bæta
úr þessu.” SÓK
*
Olína gefur út
Geisladiskur Olínu Gunn-
laugsdóttur á Okrum í Snæfells-
bæ, sem heitir einfaldlega O-
LINA, kemur út á næstu dögum.
Hann hefur að geyna 19 f'rum-
samin lög og texta Olínu, og var
tekinn upp í Stúdíói Staðarsveit-
ar, staðsettu á Hellnum, síðast-
liðinn vetur.
Utgáfutónleikar af þessu til-
efni verða í Kaffileikhúsinu í
Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3b,
laugardaginn 9.des. kl. 22.00.
Auk þess verða kynningartón-
leikar í veitingahúsinu Álafoss
Föt Bezt, í Mosfellsbæ.
Ingunn væntan-
leg á Akranes
Sturlaugur Sturlaugsson,
framkvæmdastjóri Haraldar
Böðvarssonar hf., segist bjart-
sýnn á að skip fyrirtækisins, Ing-
unn, sem hefur verið í smfðum í
Chile undanfarna mánuði verði
afhent í vikunni. “Áhöfnin er
þegar komin til Chile og ég á
von á því að þeir sigli skipinu
heim núna á næsm dögum. Að
þeirra sögn er skipið glæsilegt”
segir Sturlaugur. Upphaflega
stóð til að afhenda skipið mun
fyrr en í ljós kom að nauðsynlegt
var að lengja það og seinkaði því
afhendingardeginum talsvert.
SÓK
Smygl
Pólskur maður á finuntugs-
aldri, Andrzej Prajs að naffiii, var
handtekinn síðastlíðinn laugar-
dag fyrir að smygla til landsins
tæpum 100 lítrum af sterku á-
fengi. Áfengið fannst urn borð í
skipinu ms Dellach þegar það
kom til Akraneshafnar en
Andrezj var í áhöfn skipsins.
Málið var tekið fyrir í Héraðs-
dómi Vesturlands síðastliðinn
þriðjudag og þar var Andrezj
sakfelldur og dæmdur til að
greiða 400 þúsund krónur í ríkis-
sjóð auk málskostnaðar. Þá var
smyglvamingurinn gerður upp-
tækur.
GE
Salt á götum
Talsvert hefur verið kvartað
undan saltaustri á götur í einstök-
um þéttbýlisstöðum á VTestur-
landi. Meðal annars sagði maður
nokkur sem Skessuhom ræddi
við í Borgarnesi að þetta væri í
raun ófremdarástand þar sem
salti væri ausið daglega á göturn-
ar og síðan settist það á bílana en
aðstæða til þvotta væri ekki til
staðar eftir að færi að frysta.
GE
*
Alyktun
samþykkt
Eftirfarandi ályktun var
samþykkt í Grundaskóla á
kennarafundi 1. des. 2000:
“Kennarar og skólastjórar
Grundaskóla lýsa yfir fullum
stuðningj við kjarakröfur fram-
haídsskólakennara í kjaradeilu
við ríkisvaldið.
Við teljum jafnfraint rnikil-
vægt að ríkisstjórn Islands fylgi
eftir góðum áformum og fögrum
orðum um eflingu menntunar
m.a. með stórbættum launum
kennara.”
GE
GE
j
LögreglustöSin setn flutt varfrá Stykkishólmi til Grundarflaríar
Húsaflakk
Gallar á
Grundaskóla