Skessuhorn - 07.12.2000, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000
olUi33UMO.w
Fékk góða hugmynd yfir morgunverðinum
Jóhannes Eyberg þróar rúllubaggamerkingar
Jóhannes Eyberg Ragnarsson er
ungur og framtakssamur bóndi á
Hraunhálsi í Helgafellssveit.
Jóhannes er nýkominn heim frá
London þar sem hann heilsaði
upp á vélaframleiðendur og
kynnti þeim hugmynd sem vakn-
aði hjá honum eitt sinn er hann
sat við morgunverðarborðið
heima hjá sér. Mönnum dettur
sjálfsagt ýmislegt í hug við eld-
húsborðið en þarna kviknaði frá-
bær hugmynd. Jóhannes var
með Cheerios pakka á borðinu
ásamt öðru. An þess að vera
nokkuð sérstakt að hugsa tók
hann eftir því hvernig fram-
leiðsludagurinn var stimplaður á
pakkann. Já einmitt. - Þetta þarf
ég á heyrúllumar mínar.
“Hugmyndin er um merkingar á
heyrúllubagga. Eftir heyskap sum-
arsins eigum við kannski 800 rúllur
í hvítu plasti og vitum ekkert hvað
er í þeim. Margir eru að merkja
þetta með tússpennum á eftir og
það er aukavinna. Þessa vinnu
vann dóttir mín en þegar hún fór að
heiman til að vinna fýrir sér og sinni
Eins og greint var frá í síðasta
tölublaði Skessuhoms lét Versl-
unarmannafélag Akraness gera
könnun á framtíð verslunar á
Akranesi dagana 22.-25. nóvem-
ber síðastliðinn. Urtakið var 250
manns og var það unnið upp úr
símaskránni. Af fyrrgreindum
fjölda svömðu 165 einstaklingar
könnuninni og allir útreikningar
vom miðaðir við svarhlutfall.
Niðurstöður könnunarinnar
voru nokkuð athyglisverðar en
fram kom að 87% Skagamanna
versla meira á Akranesi en í Reykja-
vík og 61% sögðust kanna vöruúr-
val á Akranesi fyrst. Astæðan fyrir
því að fólk verslar frekar í Reykja-
vík reyndist vera sú að það telur að
þar sé meira vöraúrval og ódýrari
vörur.
Lengri opnunartími verslana í
skólagöngu varð bara að finna eitt-
hvað annað. Þannig að ég fékk
þessa hugmynd af Cheerios pakkan-
um og hef verið að nota hana í tvö
ár og hefur reynst mér vel”.
Uppfinningin er sú að Jóhannes
Eyberg smíðaði sér prentara sem
prentar upplýsinga á baggann.
Þannig getur hann prentað bæjar-
nafnið, dagsetningu, númerið á
spildunni eða þurrefnisinnihald eða
hvaða typlýsingar sem hann kýs að
nota. I framhaldi af þessu setti Jó-
hannes Eyberg sig í samband við
Bjarna Guðmundsson á Hvanneyri
sem er prófessor í heyverkun.
Bjarna leist mjög vel á þessa hug-
mynd og þá lá beint við að setja sig
í samband við Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins og þeir urðu mjög
hrifnir. Jóhannes fékk síðan pen-
ingastyrk úr Framleiðnisjóði land-
búnaðarins til að framkvæma þessa
hugmynd.
“Síðastliðið vor komst ég svo í
samband við Iðntæknistofnun og
þeim leist svo vel á þessa hugmynd
að þeir hafa verið síðan að hjálpa
mér að gera meira úr henni og
Reykjavík hafði engin áhrif á hvar
85,5% aðspurðra verslaði og aðeins
3 5 % sögðust gera sér sérstaka ferð
til Reykjavíkur til að versla. Meiri-
hlutinn var ekki hlynntur opnun
verslana á Akranesi á sunnudögum
í desember en flestir vildu hafa
opið til fjögur á laugardögum. I
könnuninni kemur fram skipting á
milli sérverslana og aldursdreifing
þeirra sem könnuninni svöraðu.
Könnunin var unnin af útskrift-
arnemum í Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á Akranesi og þakkar VA
þeim gott samstarf. Einnig má taka
fram að þeir sem hafa áhuga á að
kynna sér frekar niðurstöður könn-
unarinnar era velkomnir á skrif-
stofu félagsins að Kirkjubraut 40 á
Akranesi en hún er opin á milli
klukkan 11 og 13:30 alla virka daga.
SÓK
koma henni á framfæri. Það leiddi
svo til þess að við fóram út til
London í endaðan nóvember ég og
Hörður Baldvinsson hjá Iðntækni-
stofnun. Þar skoðuðum við stóra
landbúnaðarsýningu og komumst í
samband við tvö fyrirtæki sem
sýndu þessu mikinn áhuga og vora
mjög jákvæð. Við erum síðan í á-
framhaldandi viðræðum við þá um
áframhaldandi þróun og fram-
leiðslu á þessum búnaði. Einn
bóndi uppi á Islandi getur náttúru-
lega ekki þróað svona búnað í það
horf sem þyrftí. Þar koma að mörg
tæknileg atriði eins og það að koma
þessu inn í tölvuforrit þannig að
stjórna megi merkingunni úr
dráttarvélinni. Sá búnaður sem ég
hef þróað og notað kallar á það að
ég þarf að fara út og skipta um
merkingu. Það er ákaflega mikil-
vægt að koma þessari hugmynd inn
hjá framleiðendum vélanna þannig
að gert verði ráð fyrir honum í tölv-
unni sem til staðar er í pökkunar-
vélunum.”
Algjör nýjung
Búnaður eins og sá sem Jóhannes
Eyberg hefur hannað er algjörlega
óþekktur erlendis og er hann þar
með algjör brautryðjandi á þessu
sviði. Það gerir þetta spennandi eins
og hann orðaði það. En er nauðsyn-
legt að merkja þessar heyrúllur svo
nákvæmlega? “Það er orðið svo mik-
ið atriði núna að vita nákvæmlega
um heyið sem maður er að gefa.
Núna er komin gæðastýring í sauð-
fjárrækt sem leggur á mann meiri
kröfur, þannig að maður verður að
standa sig ef maður ætlar á ná al-
mennilegum árangri. Það sama á
Gyða L Jómdóttir
Litirog
leir
Næstkomandi laugardag opn-
ar Gyða L. Jónsdóttír sýningu í
listasetrinu Kirkjuhvoli á Akra-
nesi. Þar sýnir hún vatnslita-
myndir og höggmyndir.
Gyða er fædd árið 1943 og
ólst hún upp á Akranesi. Hún
nam við Myndlista- og handíða-
skóla íslands og höggmyndalist
við School of Art í London auk
sem sem hún stundaði nám við
Konunglegu listaakademíuna í
Kaupmannahöíh.
Þetta er fyrsta einkasýning
Gyðu en hún hefur tekið þátt í
nokkrum samsýningum. Sýning-
unni lýkur 17. desember og er
Listasetrið opið alla daga nema
mánudaga, ffá kl. 15.00 til 18.00.
GE
Jóhannes Eyberg bóndi, þúsundþjalasmiður og uppfinningamaíur. Mynd IH
87% Skagamanna
versla meira á
Akranesi
auðvitað við í kúabúskapnum maður túnum. Lélegra heyið getur maður
verður að vita alveg upp á hár hvaða notað í geldneytið en nýbornar kýr
hey maður er að gefa þeim. Hey á verða að fá besta heyið og þá verður
Islandi er svo misjafnt, sumt er af maður að vita hvar það hey er”.
góðum túnum og annað af lélegum IH
Skólameistari
boðaði til fimdar
Þórir Ólafsson, skólameistari
Fjölbrautaskóla Vesturlands, boð-
aði nemendur og foreldra þeirra
til fundar síðastliðinn fimmtudag.
Tilgangur hans var sá að fjalla um
þá stöðu sem upp er komin vegna
verkfalls fram-
haldsskólakennara
sem hófst þann 7,
nóvember. Síðasti
kennsludagur átti
að vera síðastliðinn
föstudag og próf
áttu að hefjast
þann 4. desember.
A fundinum
hvatti Þórir nem-
endur til að reyna
að halda sínu striki
og nota tímann í
verkfallinu vel til
verkefnavinnu og
lesturs. Hann sagði
jafnframt að skól-
inn myndi gera allt
sem í hans valdi
stæði til þess að
koma í veg fyrir að
þær rúmlega tíu vikur sem búnar
voru af skólanum ónýtist. Það
verður hins vegar að öllum líkind-
um til þess að aukið álag verður á
nemendum þegar skóli hefst á ný
og því er mikilvægt fyrir nemend-
ur að vera við öllu búnir. Þórir
sagði að það væra nemendur sem
væru raunveruleg fórnarlömb
verkfallsins og ef til vill yrði hægt
að meta einhverja áfanga út ffá
þeirri vinnu sem þegar hefði verið
unnin á önninni. Nemendur í
verklegu námi eru þó einna verst
staddir því það er erfiðleikum
bundið að skerða kennslutíma
þeirra.
Fundurinn var ágætlega sóttur
og að honum loknum gafet fund-
argestum tækifæri til þess að
spyrja spurninga og nýttu margir
sér það enda ríkir mikil óvissa um
allt sem viðkemur verkfallinu.
SÓK
Þórir Olafsson boðaSi nemendur og foreldra/forráðamenn
þeitra áfitnd í liðinni viku
Starfshópur
um einsetningu
Á síðasta bæjarráðsfundi í Borg-
arbyggð var samþykkt að skipa
starfshóp til að halda utan um
breytingar vegna einsetningar
Grunnskólans í Borgarbyggð.
Hlutverk hans verður að hafa yfir-
sýn yfir alla þætti einsetningarinn-
ar, samþætta breytingar og tryggja
upplýsingaflæði milli aðila. Starfs-
hópurinn verður skipaður skóla-
stjóra grunnskólans, skólastjóra
Tónlistarskólans, bæjarstjóra, í-
þrótta- og æskulýðsfulltrúa, full-
trúa kennara, fulltrúa Umf. Skalla-
gríms, fulltrúa foreldrafélags og
fulltrúum fræðslu- og menningar-
málanefhdar og tómstundanefndar.
GE
5. desember kl 02:05-Meybam-
Þyngd:3095-Lengd:52 cm. Foreldrar:
Hulda Bima Baldursdóttir og Einar
Jónsson, Reykjavík. Ljósmóðir: Lóa
Kristinsdóttir.
Nýfeddir Vesdendingar era
boðnir velkomnir í heiminn um
leið og nýbökuðum foreldrum
era ferðar hamingjuóskir.
_
5. desember kl 03:59-Meybam-
Þyngd:4395-Lengd:54 cm. Foreldrar:
Bima Björk Níelsdóttir og Sveinbjöni
Olafiir Sigurðarson, Grundatfirði.
Ljósmóðir: Lóa Kristimdóttir.