Skessuhorn - 07.12.2000, Page 5
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000
5
g2ESSIiH©ERI
Fjórtán konur útskrifuðust úr Menntasmiójunni síðastliðinn fimmtudag. Hér eru þær ásamt skólastjru sinni, Birnu Gunnlaugsdóttur
sem er lengst til hægri á myndinni. Mynd: SÓK
Fyrsti árgangurinn úr Mennta-
smiðju kvenna útskrifaður
Síðastliðinn fimmtudag voru
skólaslit í Menntasmiðju kvenna á
Akranesi. Þar voru brautskráðar 14
konur en upphaflega hófu sextán
þar nám í haust. Ekki er enn ljóst
hvort framhald verður á starfsemi
menntasmiðjunnar þar sem fjár-
hagsáætlun bæjarins fyrir árið 2001
er enn ekki fullmótuð. Konurnar
þórtán hafa lagt sig allar fram í vet-
ur og ljóst er að það hefur verið
mikil breyting fyrir margar þeirra
að setjast á skólabekk. Það var því
stoltur hópur kvenna sem gekk í
hinsta sinn um dyr gamla stúku-
hússins þennan fimmtudag. Fréttir
herma að sumar þeirra ætli sér að
hefja nám í Fjölbrautaskóla Vestur-
lands en allar hafa þær öðlast
reynslu sem þær koma til með að
búa að lengi. SÓK
Endurbætur á veginum út á Öndverðames
Vegagerð á
Ondverðamesi
Það eru margir sem leggja leið
sína út á Ondverðarnes enda gam-
an að koma þangað. Nú að und-
anförnu hefur verið unnið að end-
urbótum að veginum þangað,
enda var hann víða orðinn grófur.
Þessi vegur er annars ágætt dæmi
um vegslóða eins og þeir voru og
vegur eins og þessi á einmitt að
vera tiltölulega greiður og hlykkj-
ast um landið eins og því hentar.
Flestum sem fara um þennan veg
þykir skemmtilegt að læðast um
þetta fallega svæði. Vegslóði hef-
ur svo legið frá þessum vegi út að
Skálasnagavita. Sá vegur hefur
aðeins verið fær torfærutækjum.
Nú er hins vegar unnið að upp-
byggingu slóðans svo hann verði
öllum fær. Þó ekki sé langt að
ganga fram á Skálasnaga munu
margir fagna því að þarna verði
akfær vegur.
IH
Jólaverslun fer
vel af stað
Mikið var um að vera í rniðbæ
Akraness síðastliðna helgi og að
sögn Sævars Haukdal, talsmanns
verslunareigenda og eiganda
Hljómsýnar, fór jófavcrslunin vel
af stað. “Hún fer bara þokkalega af
stað og hjá mér fer jólavertíðin
öllu betur af stað en í fyrra. En
mesta verslunin er þó yfirleitt síð-
ustu tíu dagana fyrir jól.” Sævar
segir helgina hafa verið mjög
skemmtilega en öllum brottflutt-
um Akurnesingum var sent
boðskort um að vera viðstaddir
hátíðahöldin í miðbænum. “Það
var svona áhugahópur meðal
kaupmanna sem stóð fyrir því og
þessu var rosalega vel tekið. Fólk
var meðal annars að tala um það
hvað hefði verið hlýlegt að fá
handskrifað persónulegt
boðskort” segir Sævar en kortin
voru á þriðja þúsund. “Eg var nú
ekki niðri í bæ sjálfur en ég heyrði
að þar hefði verið mikil gleði þar
sem margir voru að hittast eftir
langan tíma. Þetta var vel auglýst
alla helgina og fólk kom víða að,
meðal annars frá Keflavík bara til
þess að láta taka mynd af sér með
jólasveininum og svona.” Það voru
Sævar Haukdal
einnig kaupmenn sem stóðu fyrir
myndatökunni og raunar flestu því
sem um var að vera. Þeir eru þó
ekki hættir enn því um næstu helgi
koma jólasveinarnir aftur í bæinn
þar sem þeir nmnti m.a. síga niður
af Landsbankanum og gefa börn-
unuin gjafir. Auk þess kemur
Laddi í bæinn og mun Skúli raf-
virki t.d. aðstoða Sævar við að selja
raftæki í Hljómsýn.
Sigurgeir Erlendsson bakari og Gísli Sumarliðason framkvæmdastjóri Geirabakarís í
einni hinna nýju íbiíða. Mynd: GE
Skagaleikflokkurinn
friimsýnir um helgina
Anton Ottesen og Guðbjörg Amadóttir í hlutverkum sínum.
Á laugardagskvöld-
ið verður leikritið
Rommí frumsýnt í
Rein á Akranesi.
Leikritið er eftir
bandarískan höfund,
D.L. Coburn, en það
er Skagaleikflokkur-
inn sem stendur fyrir
þessari sýningu. Per-
sónur verksins eru
tvær, maður og kona,
sem leikin eru af þeim
Guðbjörgu Árnadótt-
ur og Antoni
Ottesen. Hermann
Guðmundsson, félagi
í Skagaleikflokknum,
leikstýrir.
“Leikritið fjallar í
stuttu máli um karl
og konu sem bæði eru
á vistheimili. Karlinn
er mikill spilamaður
og hann fær hana til
að spila við sig og
kennir henni rommí” segir Guð-
björg Arnadóttir, formaður Skaga-
leikflokksins og aðalleikari. “Þetta
fjallar svona um þeirra samskipti og
við fáum aðeins að kynnast þeirra
aðstæðum á milli þess sem hún er
að mala hann í rommíinu.”
Þegar er búið að negla niður
þrjár sýningar í Rein en Guðbjörg
segir að framhaldið verði að ráðast
af aðsókn. “Sviðsmyndin er lítil svo
það er eiginlega hægt að fara með
þetta verk hvert sem er. Það getur
vel verið að við leggjumst í flakk en
við ætlum að sjá til hvernig undir-
tektirnar verða.”
Það ætti nú að vera flestum ljóst
að það er Skagaleikflokkurinn sem
á sök á þeim fjölmörgu dularfullu
smáauglýsingum sem birtar hafa
verið í Póstinum undanfarnar vik-
ur. “Það er leikstjórinn okkar hann
Hermann sem er upphafsmaðurinn
að þessu. Furðumargir lesa þessar
smáauglýsingar og hafa verið að
velta fyrir sér hvað sé eiginlega í
gangi. Þetta virkaði vel og ég vona
að þetta verði til þess að fólk hugsi:
“Já, ég verð að fara að sjá sýning-
una!” Þetta verður svona kaffileik-
hús þannig að hægt verður að fá
veitingar og leiksýningu svona í
jólastressinu. Fólk getur svo setið
áfram eftir leiksýninguna og spjall-
Bakaríi breytt í íbúðarhúsnæði
Undanfarna mánuði hafa staðið
yfir miklar framkvæmdir í gamla
bakaríinu við Egilsgötu í Borgar-
nesi og hefur nú verið lokið við að
breyta því í íbúðarhúsnæði. Húsið
hefur tekið algjörum stakka-
skiptum og ekki hægt að sjá að því
hafi upphaflega verið ætlað annað
hlutverk. I húsinu eru fjórar íbúð-
ir frá 60 - 114 m2, allar til sölu til-
búnar undir tréverk.
Að sögn Sigurgeirs Erlendsson-
ar bakara hefur nú þegar verið
mikið spurt um íbúðirnar en þær
voru til sýnis fyrir almenning síð-
astliðinn sunnudag. Kvaðst hann
búast við að ekki liði á löngu þar til
þær væru allar seldar enda mikill
skortur á íbúðarhúsnæði í Borgar-
nesi.
GE