Skessuhorn - 07.12.2000, Side 7
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000
7
aa£SIUÍÍu>w
Skessuhorn er stærsta blað á ís-
landi.
Skessuhorn er útbreiddasta blað á
íslandi.
Skessuhorn er víðlesnasta blað á
íslandi.
Og þótt víðar væri leitað. Raunar
er mála sannast að Skessuhorn er
ekki aðeins stærsta, útbreiddasta og
víðlesnasta blað á íslandi heldur í
heimi.
Heyri ég einhvern hvá?
Hvaða vantrú er nú það - allt þetta
kemur svo greinilega fram í skoðana-
könnun Gallúps um fjölmiðlanotkun
landsmanna. Undanfarna daga hafa
smáblöð eins og Mogginn og DV
reynt að tína til einhver smáatriði
könnunarinnar til þess að renna stoð-
um undir þær fullyrðingar að einhver
líti við þessum blaðsneplum, en þar
er bersýnilega um einhvern tölfræði-
legan loddaraskap að ræða. Stað-
reyndin er sú að Skessuhorn hefur al-
gjöra yfirburði yfir önnur blöð.
Að teknu tilliti til meðalhæðar ís-
lendinga árið 1953, margfaldað með
samanlögðum eintakafjölda Skessu-
horns og kvaðratrótinni af hæð
Baulu, þá er Skessuhorn augljóslega
miklu stærra en bæði Mogginn og
DV, jafnvel til samans.
Og þegar faðmur Gísla ritstjóra er
borinn saman við samanlagða breidd
Matthíasar Johannessens og Jónasar
Kristjánssonar, þá liggur í augum
uppi að Skessuhorn er mun útbreidd-
ara blað en margumtöluð smáblöð.
Og þegar eintakafjöldi blaðsins er
margfaldaður með fjölda áa sinna í
fjórtánda lið og bókstafafjöldi staf-
rófsins lagður við, þá kemur greini-
lega í ljós að Skessuhorn er mun víð-
lesnara blað.
Og ekki nóg með það. Skessuhorn
er líka miklu betra blað en Mogginn
og DV. Þetta kemur skýrt fram þegar
bornir eru saman gæðastuðlar í skoð-
anakönnun Gallúps og borinn saman
mjólkurkvótinn á útbreiðslusvæði
Skessuhorns annars vegar og Mogg-
ans og DV hins vegar. Það þarf ekki
frekari vitnanna við.
Það sem meira er, Skessuhorn er
líka miklu betri sjónvarpsstöð en
Sjónvarpið og Stöð tvö til samans og
sem útvarpsstöð slær Skessuhorn
Rás eitt, Rás tvö og öllum öðrum út-
varpsstöðvum gjörsamlega við. Þetta
má auðveldlega lesa út úr þeim nið-
urstöðum skoðanakönnunarinnar að
ef Skessuhorn væri útvarps- eða
sjónvarpsstöð, þá myndi einn þriðji
helmings sextugra lesenda , plus
minus ekkjur fimmtíu og fimm ára
lesenda, frekar kjósa að horfa út um
gluggann en á Sjónvarpið eða Stöð tvö
og þá með hliðsjón af því að nær á-
reiðanlegt má telja að Skessuhorn
myndi einmitt feykjast þar hjá glugg-
anum á þeirri stundu - en tölfræði-
legar líkur á því eru yfirgnæfandi.
Og Skessuhorn er þar að auki aug-
ljóslega það blað sem lesendur vilja
hafa við höndina þegar mest á reynir.
Það er sama hvar borið er niður.
Skessuhorn er að dómi lesenda
besta blaðið til að auka sér þor í sjáv-
arháska, skemmta sér á árshátíðum
og snýta sér í þegar ekkert tissjú er
til. Þá hafa 95,23% litblindra lesenda
sem eiga mann sem heitir Sigurður að
föðurafa greinilega gefið til kynna að
ef þeir hefðu tekið þátt í skoðana-
könnuninni þá myndu þeir hafa sagt
að þeir myndu taka erlendar fréttir
Skessuhorns fram yfir erlendar frétt-
ir í Vestfirska fréttablaðinu ef erlend-
ar fréttir væru yfirhöfuð birtar í Vík-
urblaðinu.
Af þessu má sjá að auglýsendur
eiga aðeins að auglýsa í Skessuhorni.
Þeir sem láta sér detta í hug að ís-
lenskir blaðamenn hafi sett nokkuð
ofan með misvísandi og villandi
“fréttum” af skoðanakönnun Gallúps
- þar sem hver les það sem honum
sjálfum, það er að segja eigendum
blaðanna, kemur best - þeir fara
augljóslega með fleipur eitt. Þetta er
allt saman hárnákvæm íslensk blaða-
mennska í hæsta gæðaflokki og mætti
Washington Post vissulega margt af
þessum vinnubrögðum læra.
Illugi Jökulsson
Gallerí Hönd svf. auglýsir
eftir aöilum til að taka
að sér rekstur
handverksverslunarimar
„Gallerí - Hönd, íBorgamesi.
Nánari upplýsingar veitir Arna
Einarsdóttir í síma 437-2155.
zm
nin/ý
Sr. Geir Waage sóknarprestur í
Reykholti verður fimmtugur
sunnudaginn 10. des. nk. Af því
tilefni tekur hann á móti vinum
og vandamönnum á Hótel
Reykholti kl. 18:00 þann dag.
Loksins
„Rommí”
Skagaleikflokkurinn
frumsýnir í
kaffileikhúsinu
Rein v/Suðurgötu
laugardaginn 9. des.
kl. 20:30
"\
v
Næstu sýningar eru
sunnudaginn 10. des. og
miðvikudaginn 13. des. kl. 20:30
Veitingasala hefst kl. 20:00
Ath. ekki verður hægt að hleypa inn í
salinn eftir að sýning hefst
Miðaverð 1.500,- kr.
Miðapantanir í síma 431 3360
Miðasala í Rein klukkustund fyrir sýningu
SkagaleikfLokkurinn
j