Skessuhorn - 29.03.2001, Qupperneq 16
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001
16
^ssuhuij
Blómabömin bíöa
Frd vinstri: Litl/i spekingamir ígrænu: Birgir Þór, Axel, Heiðar og Andrés
Rúmbi risaeðla og Blóma-
bömin í Andakðsskóla
Andakílsskóli á Hvanneyri hélt
sína árlegu árshátíð síðastliðinn
fimmtudag. Vegna fjölgunar
nemenda var hún að þessu sinni
haldin í sal Landbúnaðarháskól-
ans.
I Andakílsskóla eru 39 nemend-
ur í 1. - 7. bekk og eins og venju-
lega tóku þau öll með tölu virkan
þátt í uppfærslum hátíðarhald-
anna. Nemendur 1.-4. bekkjar
settu upp söngleikinn Rúmba risa-
eðlu, þar sem fléttað var saman
gömlum tíma og nýlegum í sam-
skiptum hellisbúa við risaeðluna
Rúmba. Hinsvegar settu 5.-7.
bekkur upp söngleikinn Blóma-
börnin, þar sem hippatímabilið
var í öndvegi og tónlist og söngur
frá blómatíma herstöðvaandstæð-
inga hljómaði. Var aðdáunarvert
að sjá hve öruggir krakkarnir voru
með sig.
GE/SHJ
Hellisbúar mæta Rúmba affesfíi
ÍÞRÓTTIR - ÍÞRQTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - IÞROTTIR - IÞROTTIR - IÞROTTIR - IÞROTTIR - IÞROTTIR
Vetrarleikar Faxa á Vatnshamravatni
Góður árangur eldri knapa
Sigurvegarar í unglingaflokki. Talið frá vinstri: Elísabet og Mjöll, Pétur og Vilj-
ar, Birta og Jörp, Sigrún og Litli-Ljótur og Kolbrún og Gáski
Aðrir vetrarleikar hestamannafé-
lagsins Faxa fóru fram á Vatnshamra-
vatni í Borgarfirði síðastliðinn sunnu-
dag. Mótið var annað í röðinni af þriggja
móta stigamóti.
Þátttaka á mótinu var góð í öllum
flokkum og hestakostur góður að mati
mótshaldara. Sértaka athygli vakti
góður árangur eldri hestamanna en
þau Ingimar Sveinsson og Sigurþorg
Jónsdóttir gáfu hinum yngri ekkert eft-
ir nema síður væri.
Karlaflokkur
1. Pílatus frá Eyjólfsstöðum,
15. v, Brúntvístjörnóttur
Eig./Knapi: Ingimar Sveinsson
2. Ró Nýja-Bæ, 5.v, Jörp
Knapi: Róbert L. Jóhannesson
Knapi: Ólöf K. Guðbrandsdóttir
3. Bliki frá Skáney, 8.v,
Rauðblesóttur
Eig./Knapi: Haukur Bjarnason
4. Góða-Nótt frá Ytra-Vallholti,
6.v, Brún
Eig./Knapi: Þon/aldur Kristjánsson
5. Hekla frá Hesti, 8.v, Mósótt
Eig./Knapi: Sigvaldi Jónsson
Kvennaflokkur
1. Sleipnir frá Arnarstapa,
8.v, Mósóttur
Eig./Knapi: Monika Kimpfler
2. Örn frá Báreksstöðum,
14.v, Brúnn
Eig/Knapi: Sigurborg Á.
Jónsdóttir
3. Seifurfrá Skáney, 6.v, Brúnn
Eigandi: Birna Hauksdóttir
Knapi: Vilborg Bjarnadóttir
4. Þorri frá Sauðárkróki,
13.v, Grár
Eig/Knapi: Elísabet Jensen
5. Rauðhetta frá
Hrafnkelsstöðum, 7.v, Rauðskjótt
Eig/Knapi: Christiane Mainka
Unglingaflokkur
1. Elísabet Fjeldsted, Ferjukoti
Mjöllfrá Skáney, 7.v, Leirljós
Eigandi: Heiða Dís Fjeldsted
og Bjarni Marínósson
2. Pétur Jónsson,
Kleppjárnsreykjum
Viljar frá Signýjarstöðum,
8.v, Jarpur
Eigandi: Jón Eyjólfsson
3. Birta Berg Sigurðardóttir,
Gullberastöðum
Jörp frá Lundi II, 10.v, Jörp
Eigandi: Brynjólfur Einarsson
4. Sigrún Sveinbjörnsdóttir,
Hvannatúni
Litli-Ljótur Víðidalstungu II,
8.v, Bleikálóttur
Eigandi: Vilborg Bjarnadóttir
5. Kolbrún Helga Jóhannesdóttir,
Hvítárbakka
Gáski 7.v, Móskjóttur
Eigandi: Sigurður Ragnarsson
Barnaflokkur
1. Sigurborg Hanna Sigurðardóttir,
Oddsstöðum
Odda frá Oddsstöðum, 8. v, Grá
Eigandi: Sigurður Oddur
Ragnarsson
2. Helga Jónsdóttir, Kópareykjum
Korgur frá Kópareykjum,
6. v, Leirljós
Eigandi: Jón Eyjólfsson
3. Kolbrún Rós Hermannsdóttir,
Hvanneyri
Strákur frá Grjóteyri, 10.v,
Rauðblesóttur
Eigandi: Margrét Jósefsdóttir
4. Hekla Flókadóttir.: Staðarhól
Skytta frá Skálholti, 17.v,
Rauðglófext
Eigandi: Sami
5. Anna Heiða Baldursdóttir,
Múlakoti
Glitrún frá Fjalli, 7.v, Bleikálótt
Eigandi: Baldur Björnsson
150 metra skeiö
1. Reynir frá Skáney,
12.v, Mósóttur
Knapi: Haukur Bjarnason
Eigandi: Bjarni Marínósson
2. Tenór frá Skáney, 6. v. Rauður
Eig/Knapi: Bjarni Marínósson
Sigurvegarar í kvennaflokki. Talið frá hægri: Monika og Sleipnir, Sigurborg og
Örn, Vilborg og Seifur, Elísabet og Þorri og Christiane og Rauðhetta.
Landsbankamót HSH
Lansdsbankamót HSH í knatt-
spyrnu var haldið í nýju íþróttahúsi
Snæfellsbæjar í Ólafsvík um síð-
ustu helgi. Á laugardag kepptu 3.
og 4.flökkur og urðu úrslit eftirfar-
andi.
4.flokkur kk
Snæfell B 1 .sæti
Víkingur/Reynir A 2.sæti
Snæfell A 3.sæti
UMFG 4.sæti
Víkingur/Reynir B 5.sæti
Víkingur/Reynir C 6.sæti
4.flokkur kvk
UMFG 1 .sæti
Víkingur/Reynir B 2.sæti
Víkingur/Reynir A 3.sæti
Vfkingur/Reynir C 4sæti
3.f!okkur
UMFG KK 1 .sæti
Snæfell 2.sæti
Víkingur/Reynir 3.sæti
UMFG kvk 4.sæti
Á sunnudag kepptu 5., 6. og 7.
flokkur og í þeim flokkum eru að-
eins veitt þátttökuverðlaun.
Landsbankin gaf verlaunapen-
inga fyrir mótið
Frá keppni yngri flokkanna. Snæfell og Víkingur eigast við. Mynd: GE
Fyrsta tapið
Það voru lærisveinar Loga Ólafs-
sonar í FH sem stöðvuðu sigur-
göngu Skagamanna í deildarbik-
arnum. Liðin mættust síðastliðið
mánudagskvöld í Reykjaneshöll-
inni og höfðu FH-ingar sigur með
þremur mörkum gegn tveimur.
Skagamenn voru heldur seinir í
gang og lentu marki undir
snemma leiks. Eftir það fóru hlut-
irnir að ganga betur fyrir sig og
tókst leikmönnum ÍA að jafna fyrir
hlé, þar var að verki Blönduósing-
urinn knái Guðjón Sveinsson.
í upphafi seinni hálfleiks kom
Ellert Björnsson svo Skagamönn-
um yfir þegar hann fylgdi á eftir
skoti Hálfdáns Gíslasonar. Þannig
var staðan allt þar til fimmtán mín-
útur lifði leiks og fátt benti til þess að
FH tækist að jafna þar sem Skaga-
menn stjórnuðu leiknum. Þágerðu
Skagamenn tvö hræðileg varnar-
mistök á tíu mínútna kafla sem
kostaði tvö mörk. FH lét ekki foryst-
una af hendi í þetta skiptið og fóru
með öll þrjú stigin í Hafnarfjörðinn.
HH