Skessuhorn - 05.04.2001, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGUR 5. APRIL 2001
Jstissunub.
^&tssunui.
FIMMTUDAGUR 5. APRIL 2001
9
Lára sýnirfótfrá Ozone
Stúlkvmar komu allarfram á bikiníi. Hér má sjá Belindu og Rut. Þærfara báðar í keppnina um
ungfrú Island 2001
Frt'áur bópur keppevda í
irngní Vesturland 2001
Hafdís Bergsdóttii; ungfrú Vesturland 2001
Hafdís Bergsdóttir, imgfrít Vesturlavd 2001
Opnunaratriái fegurrfarsamkeppninnar var að vanda glæsilegt, Hér má sjá
þær Hrefiiu, Ólöf lngu og Rut
Hafdís faUegust
Fegurðarsamkeppni Vesturlands
fór fram fyrir fullu húsi í Félags-
heimilinu á Klifi í Olafsvík urn
liðna helgi. Tíu stúlkur sem komu
víðsvegar að úr fjórðungnum
kepptu þar um hinn eftirsótta titil
Ungfrú Vesturiand. Það var Hafdís
Bergsdóttir, 18 ára stúlka frá
Grundarfirði, sem sigraði í keppn-
inni að þessu sinni eftir harða bar-
áttu. Silja Allansdóttir var sem fyrr
framkvæmdastjóri keppninnar, en
þetta er í níunda skipti sem hún sér
um skipulag og framkvæmd hennar
auk þess að þjálfa stúlkurnar. Heið-
ursgestirnir voru fjórir, þau Elín
Málmfríður Magnúsdóttir, Ungfrú
Vesturland og Island árið 2000, Al-
dís Róbertsdóttir sem varð í öðru
sæti í keppninni á síðasta ári, Stein-
unn Marta Gunnlaugsdóttir sem
varð í því þriðja og Leifur Jónsson,
Herra Vesturland.
Stúlkurnar komu fjórum sinnum
fram um kvöldið. Upphafsatriðið
var ekki af lakara taginu en þar
stigu þær allar saman trylltan dans í
strigapokum með úfið hár. A eftir
fylgdi glæsileg tískusýning frá
versluninni Ozone á Akranesi, bað-
fataatriðið var á sínum stað og loks
komu þær fram í glæsilegum síð-
kjólum. Það var mál manna að
erfitt yrði að gera upp á milli
stúlknanna tíu enda hver annarri
fallegri. Þess ber að geta að
skemmtiatriði á keppninni voru
hvert öðru betra en það var Sveinn
Elinbergsson sem sá um að kynna
herlegheitin og fórst honum það
vel úr hendi.
Dómnefndin var skipuð þeim El-
ínu Gestsdóttur, framkvæmdastjóra
Fegurðarsamkeppni Islands, Birni
Blöndal, ljósmyndara, Einari Karli
Birgissyni, verslunarstjóra, Jónasi
Geirssyni, tannlækni og Katrínu
Rós Baldursdóttur, Ungfrú Vestur-
land og ísland árið 1999. Hún
þurfti þó aðeins skamma stund til
að gera upp hug sinn og spennan
var mikil þegar komið var að úr-
slitastundinni. Eins og áður segir
var það Hafdís Bergsdóttir, yngis-
mær frá Grundarfirði sem hreppti
fyrsta sætið og sá Elín Málmfríður
um að krýna arftaka sinn. Rut Þór-
arinsdóttir, 21 árs frá Hlíðarfæti í
Hvalfjarðarstrandahreppi varð í
öðru sæti og Maren Rut Karlsdótt-
ir, 18 ára frá Akranesi í því þriðja.
Hafdís sópaði að sér titlunum þetta
kvöld því auk þess að vera valin feg-
urðardrottning Vesturlands fékk
hún titilinn Orublustúlka Vestur-
lands og netstúlka Skjávarps.
Belinda Engilbertsdóttir varð
einnig sigursæl og vann þrjá titla;
vinsælasta stúlkan, ljósmyndafyrir-
sæta Vesturlands og sportstúlka
Vesturlands en sem fyrr vom það
stúlkurnar sjálfar sem kusu þá vin-
sælustu í hópnum. Þær Hafdís, Rut,
Maren og Belinda munu allar verða
þátttakendur í keppninni urn titil-
inn Ungfrú Island sem fram fer á
Hótel íslandi innan skamms. Eins
og flestum Vestlendingum ætti að
vera kunnugt hafa þær stúlkur sem
hafa verið kjörnar fegurðardrottn-
ing Vesturlands undanfarin tvö ár
einnig hlotið titilinn Ungfrú Is-
land, þær Katrín Rós og Elín
.Vlálmtríður. Það verður því spenn-
andi að fylgjast með því hvort Haf-
dísi tekst að verja titilinn góða í ár.
SÓK