Skessuhorn - 25.05.2001, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 25. MAI 2001
Miasunu^. 1
Osldljanlegur
fréttaflutningur
Á forsíðu Skessuhorns þann 17.
maí síðastliðinn gat að lesa grein
með titlinum „Rekinn fyrir fjar-
veru vegna björgunarstarfa".
I þessari grein staðfestir Hannes
Sigurðsson formaður Björgunar-
félags Akraness þá „frétt“ að
manni hafi verið sagt upp störfum
eítir að hann tók þátt í leit að
týndum manni á vegum Björgun-
arfélagsins fyrir um tveim vikum
síðan. Þessu er hér með vísað al-
gerlega á bug. Maðurinn var aldrei
rekinn úr starfi, heldur sagði hann
upp að eigin ósk. Mér er bæði ljúft
og skylt að upplýsa að hann starf-
aði hjá fyrirtæki okkar hér á Akra-
nesi. Við rekum fámennt og sér-
hæft fyrirtæki sem sinnir flestum
verkefha sinna í verktöku með
ströngum tímafrestum. Þegar
maðurinn var ráðinn fyrr í ár var
honum gerð grein fyrir að við sæj-
um okkur því miður ekki fært að
ráða fólk sem af einhverjum á-
stæðum þyrfti að vera óvænt frá
störfum, vegna þess að nær ó-
mögulegt væri að fmna mann í
manns stað í okkar sérhæfðu verk.
Hann féllst á þessa skilmála. Síðan
þegar það gerðist að hann hvarf í
leit án þess að tilkynna það og
kom til baka degi síðar, þá óskaði
ég eftir fundi með honum til að
ræða málin. Á þeim fundi tilkynnti
hann óvænt uppsögn sína af per-
sónulegum ástæðum. Eg harmaði
að missa þennan starfskraft sem
reynst hafði mjög vel. Það stóð alls
ekki til að segja honum upp vegna
þessa. Við skildum sáttir eftir
þetta.
Frétt Skessuhorns er óskiljanleg
í ljósi þessa staðreynda. Hér á
Akranesi og víðar, er slíkur til-
hæfulaus „frétta“flutningur til
skaða fyrir okkar fyrirtæki. Flýgur
fiskisagan, og allir sem þess leita
vita um hvaða fyrirtæki er rætt í
þessu máli. Við höfum ekkert að
fela og teljum ómaklega að okkur
vegið. Ekki síst þar sem fyrirtækið
hefur stutt Björgunarfélag Akra-
ness bæði fjárhagslega og með
ýmsum greiðum á undanförnum
árum. í ljósi alls þessa er það því
leitt að þurfa að verða fyrir ómak-
legum árásum af þessu tagi frá
formanni Björgunarfélagsins.
Hvorki ritstjóri Skessuhorns
sem skrifaður er fyrir greininni,
eða formaður Björgunarfélagsins
höfðu samband við okkur vegna
þessa máls áður en greinin birtist í
blaðinu. Okkur þykir undarlegt að
hvorugur þeirra skuli hafa séð á-
stæðu til að kanna málið betur
áður en það varð að „frétt“ í
Skessuhorni og síðar þennan sama
dag í Ríkisútvarpinu.
Virðingarfyllst og með fyrir-
fram þökk
Akranesi, 17. maí 2001
Sigmjón Runólfsson, forstjóri
Sandblásturs Sigurjóns ehf,
Akranesi
Athugasemd frá stjóm
Björgunarfélags Akraness
Stjórn Björgunarfélags Akra-
ness vill að fram komi að ffétt í
síðasta blaði þar sem formaður fé-
lagsins staðfestir við blaðamann
að félagi í BA hafi tjáð honum að
sér hafi verið vikið úr vinnu vegna
björgunarstarfa hafi verið vegna
framburðar umrædds manns.
Viðkomandi aðili hefur gegnt
trúnaðarstörfum fyrir félagið og
reynst trúverðugur í allri þeirri
vinnu og aðgerðum sem hann hef-
ur verið þátttakandi í í nafhi fé-
lagsins. Umræddur maður hefur
ekki viljað draga frásögn sína til
baka og harmar BA það að slík
deila skuli rísa strax að loknum
björgunaraðgerðum félagsins.
Stjórn BA hefur ekki í hyggju að
tjá sig opinberlega frekar um þetta
mál en vonast til að viðkomandi
aðilar nái fullum sáttum sem fyrst.
Stjórn Björgunarfélags Akra-
ness hefur í gegnum tíðina átt
mjög gott og farsælt samstarf við
viðkomandi vinnuveitanda og
vonar að svo verði áfram þó að
þennan skugga hafi borið á.
Stjórn BA
Bijreiðin var óökufær eftir veltuna
Bílvelta
Bílvelta varð við bæinn Gröf í mönnum en bifreiðin er illa farin
Eyja og Miklaholtshreppi síðastlið- eftir byltuna.
inn sunnudag. Engin slys urðu á GE
Nýstárleg tilraun við Landbúnaðarháskólann
Upphitaðir minkahvolpar
Reynt að mæta sveiflum í veðurfari
Undanfarnar vikur hefur staðið
yfir tilraun í Landbúnaðarháskól-
anum á Hvanneyri sem miðast að
því að auka vaxtarhraða minka-
hvolpa á fyrsta æviskeiði þeirra.
Tilraunin sem styrkt er af Fram-
leiðnisjóði landbúnaðarins miðar
að því að kanna hvort hægt sé að ná
betri árangri í minkaeldi með því að
hita upp hreiðurkassa minkanna
eftir got.
„Markmiðið er að hafa jafnara
hitastig og draga úr þeim miklu
Eiiiar Einarssan landsráðunautur í loó-
dýrarækt.
hitasveiflum sem hér eru í venju-
legu árferði,“ segir Einar Einarsson
landsráðunautur í loðdýrarækt.
,VIeð því að hita upp hreiðurkass-
ana gerum við okkur von um að
hvolpamir vaxi hraðar fyrstu vik-
urnar. Ef við fáum gott start drög-
um við úr afföllum og því hraðar
sem þeir vaxa fyrstu vikurnar því
hraustari verða þeir og stærri að
hausti. I Danmörku sem við miðum
okkur mikið við eru heitari dagar á
vorin en hér getum við átt von á
frostnóttum fram í
maí.“
Minkahvolpar eru
ekki nema 7 - 10
grömm að þyngd
þegar þeir fæðast og
blindir og heyrnar-
lausir. Þeir eiga því
allt sitt undir móður-
inni og því umhverfi
sem hún býr við. Því
segir Einar að það
geti haft mikið að
segja ef hægt er að
nýta heita vatnið til
að draga úr hitasveifl-
um.
Elísabet Axelsdóttir viktar minnkahvolpa í loðdýrahúsinu á
Hvanneyri. Myndir: GE
Einfalt og
ódýrt
Búnaðurinn sem
notaður er við tilraunina er einfald-
ur og ódýr. Notuð er hitalögn sam-
bærileg við þær sem notaðar eru í
snjóbræðslukerfi. Leiðslan er leidd
undir netkörfu í hreiðurkassanum
og hitar hún upp tréhlemm á botn-
inum.
Tilraunin hófst um miðjan apríl
þegar læðurnar voru fluttar í hreið-
urkassana. Hvolparnir eru síðan
viktaðir sólarhringsgamlir og
reglulega eftir það fram á haust.
Sömu aðferðir eru hafðar við sam-
anburðarhóp sem býr við venjuleg-
ar aðstæður. Aðspurður um útkom-
una segir Einar að of snemmt sé að
segja til um það. „Við vitum að læð-
unum líður vel því þær eru mjög
makindalegar og flýja ekki úr
hreiðrunum. Við bíðum síðan eftir
að sjá hvort það er sýnilegur munur
á vaxtarhraða heitra og kaldra hópa.
Það ætti að liggja fyrir einhver vís-
bending við fráfærur og síðan end-
anleg niðurstaða í haust. Það þarf
hinsvegar að keyra þessa tilraun í
einhver ár til að fá marktæka niður-
stöðu. Veðrið hefur verið með ein-
dæmum gott í vetur og það skekkir
tilraunina þar sem útslagið er
minna en við vildum fá. Við þekkj-
um hinsvegar að munur á vexti
hvolpanna getur verið mikill eftir
veðurfari og því bindum við vonir
við þessa tilraun. Eg sé líka fram á
ef niðurstaðan verður jákvæð muni
menn nýta sér þessa tækni,“ segir
Einar GE
Ok á dráttarvél
Lést í
Akrafjalli
Síðastliðinn laugardagsmorg-
un var Björgunarfélag Akraness
kallað út auk þyrlu Landhelgis-
gæslunnar til þess að leita manns
sem hafði farið einn til eggja-
tínslu í Akrafjalli daginn áður.
Maðurinn hafði ekki komið
heim til sín um nóttina og var
lögreglu því. gert viðvart. Lík
mannsins fannst í suðurhlíðum
Akrafjalls undir Háahnúk um
tíuleytið á laugardag og talið er
að hann hafi hrapað til bana.
Maðurinn hét Steinar Viggós-
son og var búsettur í Hafnar-
firði, han.n var 50 ára gamall og
lætur eftir sig eiginkonu og
fjögur börn.
SÓK
Merking-
ar bættar
Sviðsstjóra fyrirtækjasviðs
Akraneskaupstaðar hefur nú
verið falið að láta setja upp
skilti við gatnamót þjóðvegar
og vegar norðan Akrafjalls og
merkja leiðina að Höfðaseli og
Æðarodda en þær hefur alfarið
vantað til þessa. Markaðsfull-
trúi Akraness, Rakel Oskars-
dóttir, fékk það hlutverk að
skoða þann þátt sem snýr að
merkingum á götukorti bæjar-
ins.
SÓK
Síðastliðinn sunnudag varð á-
rekstur skamint frá Staðará í Stað-
arsveit þar sem sendiferðabifreið
ók á dráttarvél. Ökumaður dráttar-
vélarinnar varð ekki var við sendi-
ferðabifreiðina sem reyndi framúr-
Öryggisvörður í Borgarnesi kom
að innbrotsþjófum sem brotist
höfðu inn í GH verkstæðið í Brák-
arey síðastliðinn mánudagsmorg-
un. Starfsmaður öryggisþjónust-
unnar í Borgarnesi var við
venjubundið eftirlit um fimm leyt-
ið um morguninn þegar hann varð
var við grunsamlegar mannaferðir
akstur og beygði í veg fyrir hana
með áðurgreindum afleiðingum.
Ekki urðu slys á mönnum í árekstr-
inum en sendiferðabifreiðin er
mikið skemind.
við verkstæðið. Mennirnir, sem
voru þrír saman, flúðu af vettvangi
en öryggisvörðurinn gerði lögregl-
unni viðvart og var þeim veitt eft-
irför. Lögreglan í Reykjavík sat
síðan fyrir þjófunum við Hval-
fjarðargöngin og flutti þá í fanga-
geymslu í Reykjavík.
GE
GE
Innbrot í Borgamesi