Skessuhorn - 25.05.2001, Síða 8
FIMMTUDAGUR 25. MAI 2001
Dans í stað
tónmenntar
Þau Karen Gréta ogjóbann marseruóu að hætti Svta á danssýningunni í
Brekkubœjarskóla.
Krakkar í Brekkubæjarskóla hafa
undanfarin misseri lagt stund á
dans tvisvar í viku en danskennslan
kemur í stað tónmenntakennslu.
Síðastliðinn mánudag sýndu
krakkarnir svo árangur erfiðisins á
danssýningu sem fram fór í skólan-
um. Dansarnir voru jafn misjafnir
og þeir voru margir, allt frá breik-
dansi til rúmbu, en nemendur
stóðu sig allir með ágætum. Kenn-
ari þeirra er Jóhanna Arnadóttir.
SOK
Elstu krakkamir gerðu sér lítið jyrir og
breikuðu fyrir gesti sýningarinnar.
Krakkamir í öðrum bekk dönsuðu samkvœmisdans.
Efnalaug
Þvottahús
• Hreinsum og þvoum allan
almennan fatnað
• 10% afsláttur af sængurn,
koddum og yfirdýnum í apríl
• Leigjum út veisludúka
• Gerum tilboð í stærri verk
| Borgarbraut 55
1 Borgarnesi
I 4371930
Hluti þeirra tánlistamanna seni spiluðu á tónleikunum í FVA.
Styrktartónleíkar í FVA
Síðastliðinn föstudag vora haldn- en ágóði af þeim rennur til Félags Adapt frá Akranesi og Betrefi og
ir styrktartónleikar í Fjölbrauta- krabbameinssjúkra barna. Sex Klink frá höfuðborgarsvæðinu.
skóla Vesturlands á Akranesi sem hljómsveitir komu fram á tónleik- Tónleikarnir heppnuðust ágætlega
báru heitið Akfest. Þetta er í annað unum; Berrassaðir frá Grandar- en mætingin hefði mátt vera betri.
skipti sem tónleikarnir era haldnir firði, Close Down, Hemra og I SÓK
Fyrstu
skólaslitin í
Tjamarlundi
Grunnskólanum að Tjarnar-
lundi í Saurbæ var slitið í fýrsta
sinn í síðustu viku. Skólinn var
stofnaður síðastliðið haust og þar
stunduðu 22 nemendur nám í vet-
ur í öllum bekkjardeildum. Guðjón
Torfi Sigurðsson skólastjóri segir
skólastarfið hafa gengið einstaklega
vel þennan fýrsta vetur þrátt fýrir
stuttan undirbúningstíma í haust.
Hann segir að haldið verði áffam í
haust og nú þegar sé búið að bæta
við starfsfólki en ráðinn hefur ver-
ið sérkennari til skólans. GE
Helgi og Sigurður Hjörtur útskrifuðust tír 10. bekk.
Krakkamir í 7.-HE sem unnuferð til Sörvágs í Færeyjum. í samkeppni á vegum FITUR.
Unnu ferð til Færeyja
Ekki alls fýrir löngu gerðu ísland
og Færeyjar með sér samstarfs-
samning á sviði ferðamála sem fékk
nafnið FITUR. I desember hleypti
stjórn FITUR af stað stóru verk-
efni, ritgerðarsamkeppni á milli 11
og 12 ára barna milli vinabæja á Is-
landi og í Færeyjum. Tillagan var
unnin af Guðbjarti Hannessyni,
skólastjóra Grundaskóla á Akranesi
og Peter Kruse, skólastjóra í
Sörvági en Gunnar Sigurðsson átti
frumkvæðið að henni.
Nú er samkeppninni lokið og
það var annar sjöundu bekkjanna í
Brekkubæjarskóla sem hreppti
verðlaunin á Akranesi. Þau era ekki
af lakara taginu; ferð til Færeyja
fýrir alla nemendur bekkjarins á-
samt kennara og einum fullorðn-
um. Hrönn Eggertsdóttir er kenn-
ari í bekknum sem vann og verð-
launaverkefnið gerðu þeir Sigurð-
ur Kári Asbjörnsson, Viðar Engil-
bertsson og Örnólfur Stefán Þor-
leifsson. Þeir gerðu veggspjald sem
var kynning á Færeyjum, en verk-
efnin áttu einmitt að vera kynning
á nágrannalandinu. Islensku börn-
in unnu með Færeyjar og börnin í
Færeyjum gerðu kynningu á Is-
landi. Keppnin í ár fór fram í
þremur bæjum á landinu en á næsta
ári taka aðrir bæir þátt í verkefn-
inu.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
krakkarnir í 7.-HE fara í ferðina til
vinabæjar Akraness, Sörvágs, en ef
svo færi að þau héldu utan í haust
myndi koma bekkur frá Sörvági að
heimsækja þau þarnæsta vor.