Skessuhorn

Eksemplar

Skessuhorn - 25.05.2001, Side 14

Skessuhorn - 25.05.2001, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 25. MAI 2001 aatEsáUm/*TJ Karlareib Hin árlega karlareið Hesta- mannafélagsins í Grundarfirði var haldin um helgina. Um 40 karlar voru mættir og var riðið frá hest- húsahverfinu og hringinn í kring- um Stöð og til baka. Eins og nafn- ið gefur til kynna á hópreið þessari eru eingöngu karlmenn þátttak- endur. Að sögn Ragnars Alfreðs- sonar hestamanns þótti mönnum vel takast til í ár og allir skemmtu sér konunglega. SIR Þessir hressu ungu strákar sáu sér ekki annaðfiert en aðfara með hjólin sín á bíla- þvottaplan ogþvo þau vandlega efitir að hafia verið í torfierukeppni. Eins og sjá má á þessum myndum var ekki vanþörfiá því. Nemendasamband í FVA Fyrrverandi nemendur í Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akranesi ráðgera nú að stofna nemendasam- band. Félagið mun beita sér fyrir því að fyrrum nemendur hittist og haldi sambandi við skólann og mun til dæmis kalla saman þá sem út- skrifuðust fyrir 10 og 20 árum svo þeir geti gert sér dagamun og hald- ið upp á útskriftaraffnælið. Stofnfundur félagsins verður haldinn í húsakynnum skólans að Vogabraut 5 eftir viku, fimmtudag- inn 31. maí klukkan 20:00. Allir sem stundað hafa nám við Fjöl- brautaskóla Vesturlands eru hvattir til að mæta á fundinn og ganga í þetta nýja félag. SOK Kristinn Sigmundsson á Vesturlandi Kristinn Sigmundsson óperu- söngvari er um þessar mundir á söngferðalagi um Vesturland. Fyrstu tónleikarnir voru í Reyk- holti f gær, uppstigningardag. Næst syngur hann á Akranesi á sunnudag kl. 17:00 og síðan í O- lafsvík þriðjudaginn 29. maí kl. 20.30 (Fréttatilkynning) Þau Flosi Ólafisson, Bima Hauksdóttir og Lilja Margeirsdóttir brostu sínu blíðasta þegar þau fiylgdust með afkomendum sínum leika listir sínar á hestaíþróttamóti Skugga í Borgamesi um síðustu helgi. Mynd:GE ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - Vonbrigði í Vesturbænum KR-ÍA: 2-1 Sjálfsagt hafa þeir verið fleiri sem bjuggust við auðveldum sigri KR-inga þegar Skagamenn sóttu þá heim í Frostaskjólið síðastliðið mánudagskvöld í annarri umferð Símadeildarinnar. Það var þó ekki raunin því þótt KR-ingar hafi mar- ið sigur í leiknum var hann allt annað en auðveldur og markatal- an í leikslok segir alls ekki allt um gang leiksins. Skagamenn voru mun frískari allan fyrri hálfleikinn og áttu fjöl- mörg góð færi. Meðal annars átti Hjörtur Hjartarson skot í slá. Skagamenn komust yfir á 41. mín- útu með glæsilegu marki Grétars Rafns Steinssonar sem þrumaði boltanum ( netið af 25 metra færi. Þess ber að vísu að geta að þeir léku undan strekkingsvindi sem setti mark sitt á leikinn en með réttu hefðu þeir átt að vera tveim- ur til þremur mörkum yfir í hálfleik. í síðari hálfleik komust KR-ingar meira inn í leikinn með dyggri að- stoð frá vindinum en Skagamenn vörðust vel og áttu hættulegar sóknarlotur inn á milli. Jöfnunar- markið kom á 61. mínúutu og þar var Einar Þór Daníelsson að verki. Það var síðan Frakkinn, Moussa Dagnogo sem skoraði sigurmarkið eftir mistök í vörn Skagamanna þegartíu mínúturvoru til leiksloka. Grétar Rafn Steinsson var án efa besti maður leiksins og barðist eins og Ijón allan tímann. Hann er útsjónarsamur og skynsamur leik- maður og hefur greinilega mikinn metnað til að bera. Þeir Sturlaug- ur Haraldsson, Hjörtur, Kári Steinn og Ólafur Þórðar áttu einnig góð- an leik. í heildina lék liðið vel en helst var hægt að setja út á varn- arleikinn sem virtist ekki nógu vel skipulagður. Þrátt fyrir að eitt stig sé frekar rýr uppskera eftir tvær umferðir ætti Skagaliðið ekki að þurfa að örvænta miðað við hvernig það hefur verið að leika. Úrslitin skrif- ast frekar á frammistöðu heilla- dísanna heldur en leikmanna sem hafa sýnt góða takta og gífurlega baráttu. Það er allt annað að sjá til liðsins það sem af er mótinu en allt tímabilið í fyrra GE Hafnfirðingar stela stigi IA-FH: 2-2 Það er óhætt að segja að FH- ingar hafi stolið stigum á Skagan- um þegar liðin mættust í fyrstu umferð Símadeildarinnar í síð- ustu viku. Gestirnir jöfnuðu leik- inn á 94. mínútu eða um það bil sem Skagamenn voru að byrja að fagna sætum sigri. Það voru FHingar sem skoruðu fyrsta markið á 32. mínútu en þar var að verki Jón Þ. Stefánsson. Þremur mínútum síðar fiskaði Hjörtur Hjartarson vítaspyrnu sem hann tók sjálfur og skoraði af öryggi. Staðan í leikhléi var 1-1. Framan af höfðu FH-ingar haft frumkvæðið og voru meira með boltann en eftir jöfnunarmarkið tóku Skagamenn við sér og náðu yfirhöndinni á vellinum. Skagarrrenn byrjuðu síðari hálf- leikinn af miklum krafti og pressuðu stíft að marki FH og áttu ágætis færi. Það var hins- vegar ekki fyrr en á 81. mínútu sem þriðja markið leit dagsins Ijós. Þar var Hjörtur aftur á ferð- inni og skoraði með glæsilegum skalla eftir góða fyrirgjöf Unnars Valgeirssonar. Skömmu síðar var Hjörtur nálægt því að skora sitt þriðja mark í leiknum þegar hann komst einn innfyrir vörnina en skot hans geigaði. Flestir héldu að nú væru heimamenn með pálmann í höndunum en eins og máltækið segir: "Leiknum er ekki lokið fyrr en leiknum er lokið," og þegar komið var fjórar mínútur yfir venjulegan leiktíma jafnaði Jó- hann Möller sem var nýkominn inni á sem varnarmaður. Sannar- lega vonbrigði fyrir stuðnings- menn Skagaliðsins sem fjöl- menntu á völlinn og studdu vel við bakið á sínum mönnum. Hins- vegar þurfa hinir gulu engu að kvíða fyrir sumarið ef þeir leika á- fram eins og þeir gerðu í þessum leik. Skagamenn voru mun meira með boltann í leiknum og ógnuðu ítrekað marki gestanna og höfðu undirtökin stóran hluta leiksins. FH-ingar áttu hinsvegar sína spretti sem dugðu þeim til að hirða eitt stig úr þessari viður- eign. Trúlega má skrifa það á reikning reynsluleysis að Skaga- menn náðu ekki að halda fengn- um hlut en þarna mæddi mikið á ungum og lítt reyndum leikmönn- um. Þeim verður þó ekki álasað fyrir sína frammistöðu og liðið var í heild mun frfskara og skemmti- Hjörtur braut ísinn svo um munaöi. legra en í flestum leikjum síðasta sumars. Bestu menn Skaga- manna voru þeir Grétar Rafn Steinsson sem barðist vel allan tímann og Hjörtur Hjartarson sem var grimmur í framlínunni og upp- skar eftir því. Haraldur Hinriksson var ferskur í fyrri hálfleik en náði sér ekki almennilega á sírik í þeim síðari. Ellert Björnsson sýndi góða takta í sínum fyrsta deildarleik og var ótrúlega yfir- vegaður og útsjónarsamur af ekki reyndari leikmanni. Þá kom Unn- ar Valgeirsson sterkur inn í síðari hálfleik.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.