Skessuhorn - 25.05.2001, Blaðsíða 15
„itsjunu..
FIMMTUDAGUR 25. MAI 2001
15
- ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - IÞROTTIR - IÞROTTIR - IÞROTTIR - IÞROTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR -
íþróttamót Skugga
Úrslit á Opnu íþrótta-
móti Hestamannafé-
lagsins Skugga
19. maí 2001.
Síðastliðinn laugardag hélt
Hestamannafélagið Skuggi í
Borgarnesi opið hestaíþróttamót
á svæði félagsins. Úrslit urðu eft-
irfarandi:
Fjórgangur barna:
Stig úr forkeppni
1. Anna Heiða Baldursdóttir
Faxa 25,2 stig.
2. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
Skugga 32,2 stig.
3. Flosi Ólafsson
Faxa 27,4 stig.
Fjórgangur unglinga:
1. Elva Björk Margeirsdóttir
Mána 46,6 stig.
2. Sóley Birna Baldursdóttir
Faxa 37,8 stig.
3. Elísabet Fjeldsted
Faxa 33,7 stig.
4. Guðrún Ósk Ámundadóttir
Skugga 35,7 stig.
5. Viggó Sigurðsson
Sörla 31,5 stig.
Fjórgangur fullorðinna:
1. Haukur Bjarnason
Faxa 43,3 stig.
2. Sóley Margeirsdóttir
Mána 42,8 stig.
3. Helgi Gissurarson
Faxa 40,5 stig.
4. Baldur Björnsson
Faxa 39,0 stig.
5. Ólafur Þorgeirsson
Skugga 35,5 stig.
Fimmgangur fullorðinna:
1. Jakob Sigurðsson
Dreyra 54,0 stig.
2. Ámundi Sigurðsson
Skugga 51,0 stig.
3. Bjarki Jónasson
Skugga 43,5 stig.
4. Oddur Björn Jóhannsson
Faxa 46,2 stig.
5. Baldur Björnsson
Faxa 43,8 stig.
Tölt barna:
1. Anna Heiða Baldursdóttir
Faxa 46,4 stig.
2. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
Skugga 46,4 stig.
3. Flosi Ólafsson
Faxa 45,2 stig.
4. Heiðar Árni Baldursson
Faxa 28,0 stig.
Tölt unglinga:
1. Elva Björk Margeirsdóttir
Mána 65,2 stig.
2. Sóley Birna Baldursdóttir
Faxa 65,6 stig.
3. Elísabet Fjeldsted
Faxa 60,,8 stig.
4. Viggó Sigurðsson
Sörla 49,2 stig
5. Guðrún Ósk Ámundadóttir
Skugga 47,6 stig.
Tölt fullorðinna:
1. Gunnar Tryggvason
Snæfellingi 78,0 stig.
2. Hallgrímur Jóhannesson
Mána 69,2 stig
3. Sóley Margeirsdóttir
Mána 68,4 stig.
4. Haukur Bjarnason
Faxa 66,4 stig.
5. Helgi Gissurarson
Faxa 66,4 stig.
Tölt 2 (Slaktaumatölt)
1. Ámundi Sigurðsson
Skugga 32,9 stig.
2. Ásberg Jónsson
Skugga 23,1 stig.
3. Bjarki Jónasson
Skugga 27,8 stig.
Gæðingaskeið:
Anna Heiða Baldursdóttir sigraði í fjórgangi og tölti í barnaflokki.
Mynd: GE
1. Jakob Sigurðsson
Dreyra 89,1 stig
2. Ámundi Sigurðsson
Skugga 72,6 stig.
3. Bjarki Jónasson
Skugga 69,8 stig.
4. Jóhannes Jóhannesson
Faxa 63,8 stig.
5. Ásberg Jónsson
Skugga 61,7 stig.
150 m. skeið:
1. Ámundi Sigurðsson
Skugga 85,2 stig.
2. Jóhannes Jóhannesson
Faxa 74,4 stig.
3. Bjarki Jónasson
Skugga 70,8 stig.
íslensk tvíkeppni:*
Barna:
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
Skugga.
Unglinga:
Elva Björk Margeirsdóttir
Mána.
Fullorðinna:
Sóley Margeirsdóttir.
Skeið tvíkeppni:**
Fullorðinna:
Ámundi Sigurðsson
Skugga.
Stigahæsti knapi:
Barna:
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
Skugga.
Unglinga:
Elva Björk Margeirsdóttir
Mána.
Fullorðinna:
Ámundi Sigurðsson
Skugga.
* í íslenskri tvíkeppni eru lögð
saman stig knapa úr tölti og fjór-
gangi.
** í skeiðtvíkeppni eru lögð
saman stig úr skeiði og fimm-
gangi.
Lokakvöld hjá Bridge-
félagi Akraness
Síðasta spilakvöld vetrarins hjá
Bridgefélagi Akraness var í liðinni
viku. 18 pör mættu til leiks á
Breiðinni þar sem spilaður var tví-
menningur. Sigurvegarar kvölds-
ins urður Leó Jóhannesson og
Magnús Magnússon. Önnur verð-
laun hlutu Ingi Steinar Gunn-
laugsson og Ólafur Grétar Ólafs-
son og Hreinn Björnsson og Sig-
urður Tómasson hrepptu þriðja
sætið. Samkvæmt venju voru af-
hent verðlaun fyrir afrek vetrarins
sem sigurvegarar hinna ýmsu
móta veittu viðtöku.
Á vordögum varð Sigurður
Halldórsson, elsti spilarinn í fé-
laginu, áttræður og minntust
spilafélagar hans afmælisins á
lokakvöldinu með því að færa
honum bikar að gjöf. K.K.
Öldungurinn Sigurður Halldórs-
son lætur sig aldrei vanta á spila-
kvöld hjá Bridgefélagi Akraness.
Mynd: K.K.
Slök byrjun í 2. deild
Selfoss - Skallaarímur: 0-2
Skallagrímsmenn byrjuðu illa í
2. deildinni þegar þeir sóttu Sel-
fyssinga heim síðastliðinn föstu-
dag. Heimamenn voru heldur
sprækari og uppskáru sigur sem
verður að teljast nokkuð sann-
gjarn. Skallagrímsmenn áttu að
vísu góða spretti og liðið lofar
nokuð góðu þótt ýmislegt þurfi
að laga. Varnarleikurinn var t.d.
ekki nógu vel skipulagður og
leikmenn virtust almennt frekar
áhugalausir og ekki nógu grimm-
ir í boltanum. Bestur í liði Skalla-
gríms var Guðlaugur Axelsson
sem barðist eins og Ijón allan
tímann. Næsti leikur Skallagríms
er í kvöld gegn Aftureldingu á
Borgarnesvelli.
GE
Körfuknattleikur
Fimmtán Vestlendingar í
úrtökuhópa fyrir landsliö
í síðustu viku var valinn 60
manna úrtökuhópur í landsliðið í
körfuknattleik fyrir drengi fædda á
árinu 1987 en þeir munu koma
saman um næstu helgi til æfinga.
Að þessu sinni eiga Vestlendingar
níu drengi í hópnum. Fjórir þeirra
koma frá ÍA, fjórir frá Snæfelli og
einn frá umf. Reykdælum. Þetta
eru þeir Birkir Guðjónsson, Bjarki
Gunnarsson, Vésteinn Sveinsson
og Hallgrímur Stefánsson frá Akra-
nesi, Kjartan J. Karvelsson, Guð-
mundur Ó. Gunnarsson, Sveinn
Björnsson og Daníel Ali Kazmi frá
Snæfelli og Kristján Guðmunds-
son, umf. Reykdælum.
Hallgrímur var einnig valinn til
æfinga með drengjalandsliði ís-
lands, en þar leika strákar sem
fæddir eru árið 1986 og síðar.
Hann er þó ekki eini Vestlending-
urinn sem komst í þann hóp. Það
gerðu einnig þeir Óttar Ágústsson
og Magnús Guðmundsson ÍA, Pa-
vel Ermolinskij Skallagrími og Arn-
ar Guðjónsson, Skúli Þórarinsson
og Unnar Bergþórsson, umf.
Reykdælum. Það verður spenn-
andi að fylgjast með þessum ungu
og efnilegu strákum í framtíðinni
og af þessu má dærría að efnivið-
inn skortir ekki á Vesturlandi, í það
minnsta ekki í körfuknattleik. SÓK
Svana þriðja best
Nú hefur Glímusamband ís-
lands gefið út styrkleikalista að af-
loknu keppnistímabilinu 2000-
2001. Til grundvallar listanum er
sætishlutfall og vinningshlutfall
glímumanna reiknað út. í karla-
flokki er engan Vestlending að
finna en Svana Jóhannsdóttir úr
Glímufélagi Dalamanna (GFD) sit-
ur í þriðja sæti á listanum yfir bestu
glímukonur landsins eftir þeim
Hildigunni Káradóttur og Soffíu
Björnsdóttur úr HSÞ. Sannarlega
glæsilegur árangur hjá glímukon-
unni ungu úr Dölunum. SÓK
Kolbrun
vann allar
sínar greinar
Alþjóðamót Ægis fór fram f
Laugardalslaug um helgina en
mótið er lokaundirbúningur
landsliðsins fyrir Smáþjóðaleik-
ana sem fara fram í byrjun júní
í San Marínó. Þau Kolbrún Ýr
Kristjánsdóttir og Guðgeir Guð-
mundsson frá Akranesi eru
meðal þeirra 15 sundmanna
sem keppa á mótinu fyrir ís-
lands hönd. Þau fóru því á Al-
þjóðamótið auk þeirra Birnu
Björnsdóttur, Hafdísar Rögnu
Rúnarsdóttur, Hildar Magnús-
dóttur og Karítasar Jónsdóttur
sem allar eru í Sundfélagi Akra-
ness.
Kolbrún Ýr stóð sig mjög vel
á mótinu og vann allar þær
fimm greinar sem hún keppti í
auk þess sem hún átti stiga-
hæsta sund mótsins en
Guðgeir var langt frá sínu
besta. Guðgeir og Kolbrún hafa
nú minnkað æfingaálagið og
æfa nú aðeins annan hvern
dag í 50 metra lauginni í Laug-
ardalnum. Þau halda til San
Marínó á laugardag en leikarnir
hefjast á mánudag og standa í
fjóra daga. Kolbrún kemur til
með að keppa í 50, 100 og 800
metra skriðsundi, 100 og 200
metra baksundi og 100 metra
flugsundi. Guðgeir mun keppa í
100 og 200 metra flugsundi.
SÓK
Firmakeppni
í síðasta blaði var sagt frá
úrslitum í Firmakeppni Hesta-
mannafélagsins Skugga. Þar
vantaði upplýsingar um úrslit í
kvennaflokki. Úrslit urðu eftir-
farandi: 1. Aðalheiður Pálsdótt-
ir, 2. Pálína Guðmundsdóttir, 3.
Malin Elísabet Ram. Þá vill
stjórn Skugga koma á framfæri
þakklæti til allra þeirra fyrir-
tækja sem studdu félagið
vegna keppninnar. GE
MOLAR
Hið árlega Donnamót í sundi
fór fram á síðasta sunnudag í
sundlauginni í Borgarnesi. Á
mótinu etja sunddeildir Skalla-
gríms og ÍA kappi. Sunddeild
ÍA sigraði að þessu sinni með
töluverðum yfirburðum. ÍA
hlaut 333 stig en Skaiiagrímur
48. Rigning og rok gerði kepp-
endum erfitt fyrir og fór svo á
endanum að síðustu greinarn-
ar voru færðar í litiu innilaug-
ina.
Grétar Rafn Steinsson skor-
aði sitt fyrsta mark í efstu deild
í leiknum gegn Kfí á mánu-
dagskvöidið. Þetta var iíka
fyrsta markið sem ÍA skorar á
Kfí vellinum síðan 1996 eða
þegar Sigurður Jónsson skor-
aði seinna mark Skagamanna
í 2-3 ósigri. Ósigur Skaga-
manna á mánudaginn var sjö-
undi tapleikurinn í röð á Kfí-
vellinum.
Hjörtur J. Hjartarson var bú-
inn að skora í öllum þeim átta
leikjum sem hann hafði tekið
þátt í í vetur og vor, alls 13
mörk, áður en að Kfí leiknum
kom. Hjörtur er þó enn einn af
þremur markahæstu leik-
mönnum Símadeildarinnar
með tvö mörk. HJH