Skessuhorn - 05.07.2001, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 5. JULI 2001
■SSlSSUiiöJiEi
Laugin full
Aðsóknarmet var slegið í sund-
lauginni í Borgarnesí síðastliðinn
laugardag en um 1800 manns
stungu sér til sunds þann daginn.
Þetta er mesta aðsókn að lauginni
á einum degi frá því hún var opn-
uð 1997 og var aðsóknin um tíma
það mikil að loka þurfti íyrir að-
gengi vegna fólksfjölda. GE
Umferðaróhapp
við Langasand
BiÍlinn
vóg salt
Skömmu íyrir miðnætti síðast-
liðinn fimmtudag barst lögregl-
unni á Akranesi tilkynning um bif-
reið sem lent hafði í grjótinu við
Faxabraut ofan við Langasand.
Okumaðurinn var ung stúlka sem
hafði misst stjórn á bílnum á Faxa-
braut, rétt neðan við Jaðarsbraut
með fyrrgreindum afleiðingum.
Lögregla fór samstundis á staðinn
ásamt sjúkraliði og var ökumanni
og tveimur farþegum bjargað úr
bílnum sem var mikið skemmdur.
Enginn slasaðist alvarlega en allar
voru stúlkurnar fluttar á sjúkrahús
með minniháttar áverka á höfði og
hálsi. Að sögn lögreglu voru þær
allar í öryggisbeltum. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu bendir
allt til þess að þarna hafi of hraður
akstur orðið til þess að stúlkan
missti stjórn á bílnum, en há-
markshraði á þessum slóðum er 50
km/klst. Ekki mátti miklu muna að
verr færi þar sem bíllinn vóg salt á
brún grjóthnullungs og mátti litlu
muna að hann færi fram af. Eftir
að stúlkunum hafði verið bjargað
úr bílnum komu ÞÞÞ menn á stað-
inn og fjarlægðu bílinn úr grjótinu
með krana.
SÓK
Hætt við
hitaveitu frá
Eiðhúsum
I landi Eiðhúsa, nálægt veitinga-
húsinu Vegamótum á sunnanverðu
Snæfellsnesi, hafa verið gerðar
nokkrar athuganir á því hvort nýt-
anlegt heitt vatn sé þar að finna
eins og fram hefur komið í Skessu-
horni. Tilraunaboranir hafa sýnt
að þar sé líklega mikinn hita að
finna, en eins og er hefur ekki
fundist heitara vatn en um 100
gráður af 7 sekúndulítra streymi.
Að sögn Höllu Guðmundsdóttur í
Dalsmynni, oddvita Eyja- og
Miklaholtshrepps, er magnið ekki
nægilegt né hitinn til að það borgi
sig að leggja um sveitina. Þar að
auki er vatnið sem þar hefur fund-
ist ekki sjálfrennandi. Heita vatnið
í Eiðhúsum er því eins og er aðeins
nýtt af Sigurði Hreinssyni og
Bryndísi Guðmundsdóttur á Mið-
hrauni við fiskverkun þeirra.
smh
Nýtt safiiahús að Görðum
Frá opnun nýja safnahússins
Nýtt safnahús að Görðum á
Akranesi hefur verið formlega tekið
í notkun. Húsið er 630 fermetrar
en hið eldra er um 500 fermetrar
og því er um að ræða ríflega tvö-
földun á sýningarrými safnsins.
Nýja húsið mun hýsa þrjár fastar
sýningar, þ.e. Steinaríki Islands, í-
þróttasýningu íslands og sýningu
Landmælinga Islands. Þá er einnig
í húsinu veitingastofa sem tekur um
60 manns í sæti þar sem boðið er
upp á m.a. kaffi og heimabakað
meðlæti.
Sýning Steinaríkisins er tilbúin í
sinni endanlegu mynd en þar er að
finna flestar ef ekki allar steinateg-
undir sem viðurkennt er að fundist
hafa á Islandi. Þar er einnig sérstök
sýning um gerð Hvalfjarðargang-
anna. Sýning Landmælinga Islands
og íþróttasýningin verða opnaðar
fullbúnar næsta vor
en gestir safnsins
geta fengið for-
smekkinn á forsýn-
ingu Landmælinga
þar sem gestum er
gefið færi á að gægj-
ast í upplýsta kassa
með mismunandi
sýnishornum af til-
vonandi safnsýn-
ingu. Tilgangur sýn-
ingarinnar verður að
fræða alla sem áhuga
hafa á íslenskri nátt-
úru og sögu land-
mælinga á Islandi. Þá hefur einnig
verið komið fyrir í glerskápum
nokkrum munum sem prýða munu
veglegt íþróttasafn sem spanna mun
allar íþróttagreinar sem stundaðar
hafa verið á Islandi.
Jón Allansson forstöðumaður
byggðasafnsins á Görðum segir að
hið nýja sýningarhús sé kærkomin
viðbót við það sem fyrir er og skapi
safhinu að Görðum enn meiri sér-
stöðu. GE
VegLirinn færður frá Bifröst
Framkvæmdir eru hafnar við til-
færslu á þjóðvegi 1 í Norðurárdal á
um eins km kafla þar sem hann
liggur fram hjá lóð Viðskiptahá-
skólans á Bifröst. Vegurinn um
Norðurárdal þykir með verstu köfl-
um á hringveginum þar sem hann
er mjög hlykkjóttur og víða mjór.
Því hafa margir velt fyrir sér hvers-
vegna ekki hafi verið tekinn fyrir
stærri kafli til lagfæringar. Að sögn
Magnúsar Vals Jóhannssonar um-
dæmisstjóra Vegagerðarinnar á
Vesturlandi var vegurinn um Norð-
urárdal ekki inni á vegaáætlun fyrr
en 2004 en þá á að byrja á kaflanum
frá veitingaskálanum Baulunni að
hrauninu neðan við Bifröst. Hann
segir að það sé ennþá stefnan og
vonandi verði haldið áfram upp að
Hraunsnefi í beinu framhaldi. A-
stæðan fyrir því að umræddum
vegakafla við Bifröst var flýtt var sú
að byggðin var farin að teygja sig
full nærri veginum en samkvæmt
aðalskipulagi átti vegurinn að víkja.
GE
Hitaveita í Kolviðameslandi
í Kolviðarneslandi, rétt vestur af
Laugagerðisskóla í Eyja- og Mikla-
holtshreppi, er í undirbúningi
stofnun hitaveitu fyrir nokkra bæi
þar í sveitinni. Félagsskapurinn
heitir Kolviðarnes sf. og sam-
anstendur af bæjunum Hausthúsi,
Hömluholti, Rauðkollsstöðum,
Hrútsholti, Söðulsholti, Dals-
mynni og Kolviðarnesi.
A meðan tilraunaboranir stóðu
yfir á Eiðhúsum voru Kolviðarnes-
menn í biðstöðu, en þegar í ljós
kom að ekki yrði ráðist í meirihátt-
ar hitaveituframkvæmdir þar á-
kváðu þeir að halda áfram fram-
kvæmdum í landi Kolviðarness og
hafa ákveðið að vígja formlega hita-
veitu þann 14. september. Hafa
Kolviðarnesmenn fullvissu um að
þarna sé 70 gráðu heitt vatn og ætla
sér að leggja hitaveituleiðslur á of-
angreinda sjö bæi. Dæla mun að
einhverju leyti hjálpa til við að
koma vatninu út á kerfið, en hita-
vatnsþörf bæjanna er um 4-5 sek-
úndulítrar. Tekist hefur þó að keyra
dælur í borholunni í Kolviðarnesi
með helmingi meira rennsli.
smh
Minkurinn
vandamál
Minkurinn er vaxandi vanda-
mál í Dölunum að sögn Trausta
Bjarnasonar bónda á A og
hreppsnefndarmanns í Dala-
byggð en hann gerði minkaveiðar
að umtalsefni á síðasta hrepps-
nefndarfundi. Trausti segir að
brýn þörf sé á að halda minknum
í skefjum enda sé hann stórtækur í
laxveiðinni. Hann segir að vanda-
málið sé hinsvegar að fá menn til
að veiða mink en menn setji fyrir
sig að kaupið sé lágt. GE
Slys á
Amarstapa
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð að Amarstapa snemma á
sunnudagsmorgun til að sækja
þangað slasaðan mann sem hrapað
hafði úr hömrurn og lent í sjón-
um. Maðurinn hafði revnt að
bjarga barni sem komið var í sjálf-
heldu. Hann var hætt kominn og
hætti á tímabili að anda en er nú á
batavegi. Baminu var bjargað af
fólki á staðnum. GE
Snæfellsnes
vinsæll kostur
ferðamanna
I nýlegri úttekt tímarits
Frjálsrar verslunar yfir 20 vinsæl-
ustu kostina í íslenskri ferðaþjón-
ustu kemur í ljós að í 1. og 2. sæti
eru sigling um Jökulsárlón á
Breiðamerkursandi og snjósleða-
ferð á Snæfellsjökul. Eyjasigling
með Sæferðum ehf. í Stykkis-
hólmi var í 6. sæti á topp 20 lista
þeirra. Var úttektin gerð með til-
liti til ferða sem hentuðu allri
fjölskyldunni. smh
Fjölmennt en
rólegt Húsafelli
Mikill fjöldi fólks var í Húsafelli
um síðustu helgi en samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni í
Borgarnesi er talið að þar hafi ver-
ið um fimm þúsund manns.
Mörgum er eflaust í fersku minni
að sömu helgi í fýrra var hálfgert
ófremdar ástand í Húsafelli, um
slagsmál og líkamsmeiðingar og í-
kveikja svo eitthvað sé neíht. Að
sögn lögreglu voru gestir í Húsa-
felli að þessu sinni aðallega ijöl-
skyldufólk og gekk allt vandræða-
laust fyrir sig. GE
Plastfilmumáfið
Héraðsdómur Vesturlands
sýknaði í síðustu viku mann á
Akranesi í máli sem höfðað var
gegn honum fyrir að hafa ekið bif-
reið sinni með fremri hliðarrúður
þaktar plastfilmu. Var hann kærð-
ur fyrir brot á umferðarlögum á
þeirri forsendu að óheimilt sé að
hafa hverskyns aukahluti innan á
eða innan við framrúðu og
ffemstu hliðarrúðu sem takmark-
að geta útsýn. Dómari skoðaði
bifreiðina áður en málið var tekið
til aðalmeðferðar og komst að
þeírri niðurstöðu að fyrrnefnd
plastfilma hindraði ekki útsýn bíl-
stjóra. I niðurstöðum dómsins
segir m.a.: „Ekki liggur fyrir mat
eða fagleg skoðun á því hvort
filmumar sem ákærði setd eða lét
setja innan á fremstu hliðarrúður
bifreiðar sinnar takmarka útsýn
eða geta gert það. Athugun dóm-
ara benti að hans dómi ekki til að
svo væri. Ohjákvæmilegt er að á-
kæruvaldið beri hallann af því að
mat eða fagleg skoðun hefur ekki
farið fram.“
Dómari benti hinsvegar á að í 5.
tl. liðar 09.10 í 9. gr. reglugerðar
nr. 411/1993 væri svohljóðandi á-
kvæði: „Óheimilt er að þekja
framrúðu og fremstu hliðarrúður
að hluta til eða alveg með litarefh-
um eða með litaðri plasthimnu.“
Þar sem ekki var ákært fyrir brot á
þessu ákvæði var maðurinn talinn
sýkn saka. QE