Skessuhorn - 08.11.2001, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 8. NOVEMBER 2001
*4£saimu.~'
Fegurðardísir í
vindlingapökkum og fleira
forvitnilegt
Pakkamyndir og myndaseríur að fomu og nýju
Black cat voru líka vinsœlar á þessum
árum, ekki síst jýrir myndimar sem
fylgdu. Deemi voru þess adfólk keypti stga-
rettur eingimgu til að safna myndunum.
Með Commander vindlingapökkunum
fylgdu 50 númeraðar myndir af kaup-
skipum og togurum landsmanna árið
1930. Tvær 50 mynda raðir af íslensku
landslagifylgdu einnig þessum pökkum.
COPES ClGARETTES
I sígarettupökkum frá Cope Brothers ir
co var myndaröð um flaggstafrófið. Nú-
tímamönnum bregður í krún að sjá sí-
garettur bendlaðar við skátastarf með
þessum hætti.
%
_______1 JEAN ARTHUR 1______
Frœgar kvikmyndastjörnur urðufljótt
með vinsœlustu seríunum og trúlega sú
gerð mynda sem eldri kynslóðin man best
eftir.
í gegnum tíðina hafa framleið-
endur og kaupmenn reynt að
auka sölu vara sinna með ýmsum
hætti og meðal annars hefur verið
höfðað til söfnunaráráttu mann-
eskjunnar í þeim tilgangi. Margir
hafa fengið eða fá einhvern tíma á
æfinni snert af þessari undarlegu
ástríðu - að safna einhverju - en
söfhunarástríðan er klárlega snar
þáttur í mannsálinni og vekur því
ekki mikla undrun að framleið-
endur skuli vilji nýta sér hana í
hagnaðarskyni. A fyrstu áratugum
síðustu aldar var töluvert um að
kaupmenn og aðrir söluaðilar á
Islandi laumuðu smámyndum í
kortaformi með vöru sinni.
Seinna meir þróaðist útgáfa slíkra
mynda í ýmsar áttir en hefur jafn-
an verið tengd markaðsöflunum
með einhverjum hætti.
Pakkamyndir og
Pokémon
I tilefhi af Norrænum skjala-
degi sem haldinn verður 10 nóv-
ember nk. verður opnuð sýning á
gömlum pakkamyndum í anddyri
Bæjar- og héraðsbókasafnsins á
Akranesi. A sýningunni verður
jafnframt sýnishorn af því nýjasta
í söfnun mynda af þessari gerð,
Pokémonmyndir sem nemendur í
3.GA í Brekkubæjarskóla á Akra-
nesi leggja til sýningarinnar. Nor-
ræni skjaladagurinn verður hald-
inn hátíðlegur um öll Norður-
lönd þennan dag og taka flest
þjóð- og héraðsskjalasöfn Norð-
urlanda þátt. Þemað að þessu
sinni er ástin í sínum víðasta
skilningi og því óhætt að gera
söfnunarástríðunni dálítil skil.
Teofani
- fegurðarsamkeppnin
Alþingishátíðarárið 1930 var
efht til fegurðarsamkeppni með
útgáfu 50 mynda af íslenskum
stúlkum. Smámyndir þessar
fylgdu vindlingapökkum frá Teof-
ani. Fékk sú stúlka fyrstu verð-
laun sem flestir greiddu atkvæði
með, en senda skyldi inn mynd af
þeirri sem fegurst þótti. Dómari
keppninnar var Charles B.
Cochrane, einn kunnasti leikhús-
stjóri Breta. Hildur Grímsdóttir
lenti í fyrsta sæti, Sigurbjörg Lár-
usdóttir í öðru og Alfa Hraundal í
því þriðja. Umboðsaðili Teofani á
Islandi var Þórður Sveinsson &
Co, kortaútgefandi, en ýmsir aðr-
ir komu við sögu þessarar fegurð-
arsamkeppni. Islensku fegurðar-
dísakortin voru síðan gefin út af
Teofani & Co á Bretlandi árið
1936.
„Og reykir
Commander . .
50 skipamyndir fylgdu Comm-
ander-vindlingapökkunum sem
var algeng sígarettutegund hér á
landi fýrir stríð. A myndunum
voru kaupskip og togarar lands-
manna árið 1930. Einnig fylgdu
þessari sömu vindlingategund
tvær 50 mynda raðir af íslensku
landslagi. Ekki var nein launung á
því að þetta væri gert með það
fyrir augum að örva söluna þvi að
sá sem safnaði öllum 50 myndun-
um og framvísaði þeim í tóbaks-
búðinni í Austurstræti 2, verslun-
inni Heklu, Laugavegi 6 eða til
Tóbaksverslunar Islands gat
fengið eina þeirra stækkaða.
Síðar eða 1936 var tekið fýrir
myndir sem þessar í vindlinga-
pökkum þar eð unglingar voru
sólgnir í að kaupa vindlingapakk-
ana vegna myndanna. Landlæknir
mun hafa staðið að baki þeirri
ákvörðun.
Ymsar aðrar smámyndir fylgdu
pakkavörum á þessum tíma og var
efnið úr ýmsum áttum. Af ís-
lensku efni má nefna myndir af í-
þróttafólki og þá helst myndir af
knattspyrnumönnum sem fylgdu
Blöndals-kaffipökkum. Myndir úr
Islendingasögum, myndir af vit-
um á Islandi, myndir af íslenskum
leikurum sem og erlendum, þjóð-
fánum ýmissa landa, þjóðbúning-
um og ýmsu fleiru leyndist í
pökkunum.
Myndum úr seríu þar sem sagt
er frá ýmsum uppfinningum var
stungið með kaffibætispökkum O.
Johnson & Ludvigs Kaaber. Sería
frá Olympíuleikunum í Berlín
1936 fylgdi einnig vörum frá
sama fyrirtæki.
Að bragðbæta seríósið
Síðar á öldinni komu ffam ýms-
ar gerðir mynda. Biblíusögu-
myndum var útbýtt meðal sunnu-
dagaskólabarna um miðja öldina
og síðar. Leikaramyndir, fótbolta-
kappar, fyrr en varði voru komnar
ABBA myndir, Súperman og
NBA körfuboltahetjur! í lok ald-
arinnar eru myndirnar sem börn
safna upprunnar úr japanskri
teiknimynd um Pókemon og í
morgunkornið setja framleiðend-
ur nú í stað mynda plastfígúru úr
einhverri kvikmyndinni - til að
bragðbæta seríósið - í von um að
auka söluna.
K.K
Heimildir: Ragnheiður Bragadóttir,
Guðmundur Sœmundsson og Magni R.
Magnússon.
„K. R.“
Bjorg-viu Sehram
f mfðfram vörður).
Myndir af íslensku íþróttafólki ogþar á
meðal fótboltaköppum fylgdu Blöndahls -
kaffipökkum. „Biðjið um Blöndahls kajfi“
var stimplað aftan á myndimar.
\
í TEOFANI - samkeppninni eru
50 myndir af íslenzkum stúlkum.
AHir eiga að greiða atkvæði um
hver þeirra á að fá verðiaun. Send-
ið okkur mynd af þeirri stúlku,
sem þér viljið greiða atkvæði. —
Hver mynd er 1 atkvæði. Senda
má svo margar sem hver vill.
Árangurinn verður birtur
26. júni 1930.
Teofani
Reykjavíx
Teófani - stúlkumarfrá árinu 1930. Myndimar voru í Teofani - vindlingapókkunum
ogfólk greiddi atkvæði með því að senda inn myndimar. Hildur Grímsdóttir varð hlut-
skörpust og hlaut 500 krónur í verðlaun.
Stykkishólmur. Mynd nr. 28 úr seinni landslagsseriunni semfylgdi Commanderpökk-
unum.
Mynd úr seríu um ýmsar uppgötvanir var stungið með kaffibœtispökkum O. Johnson ir
Ludvigs Kaaber.
Flugvélar og önntir farartæki voru vinsælt efni í myndasertumar sem settar voru í
pakkav'örumar.