Skessuhorn - 08.11.2001, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 8. NOVEMBER 2001
^Penninn
r
Borgames
Hverju á svona greining að skila? Hverjum á
hún að skila árangri? Hvað kostaði gerð
greiningarinnar?
Það má vel vera að niðurstöðurnar nýtist á
einhvern hátt til að bæta það sem betur má
fara. Það er svo sannarlega von mín að niður-
stöður greiningarinnar nýtist okkur það vel að
þær bæti upp þau neikvæðu áhrif sem mér
heyrist skýrslan hafa haft á almenning.
Ég geri kröfu á vandaðri vinnubrögð.
Helga Halldórsdóttir.
Ibúi í Borgarnesi og
bæjarfulltrúi í Borgarbyggð.
---T--------------------------------
I sókn og vöm
I október sl. gaf Byggðastofnun út „Byggð-
arlög í sókn og vörn“, SVOT greiningu
(styrkleiki, veikleiki, ógnanir, tækifæri) um
nokkra landshlutakjarna. Byggðastofnun er
með því að sinna hlutverki sínu og tilgangur
greiningarinnar er eins og segir í skýrslunni
„að finna staðbundin sóknarfæri varðandi at-
vinnu og búsetu á landsbyggðinni".
Nú er það svo að sveitarfélög eru ekki hafin
yfir gagnrýni og það sama má telja að eigi við
um Byggðastofnun, gagnrýni má nota til að sjá
galla og lagfæra þá. Það eru nokkur atriði sem
mér sem bæjarfulltrúa, í einum þessara lands-
hlutakjarna, þótti ekki viðeigandi varðandi út-
gáfu þessarar greiningar og gagnrýni því á-
kveðna þætti er snúa að henni.
1. Greiningin er sett á heimasíðu Byggða-
stofnunar til kynningar og umfjöllunar hjá
þeim sveitarfélögum sem hlut áttu að máli.
Sveitarfélögum var gefinn kostur á að koma
með athugasemdir og leiðréttingar varðandi
greininguna.
2. Um leið og greining eða skýrsla sem þessi
er komin á netið er hún jafnframt orðin opin-
ber, áður en leiðréttingar og athugasemdir
skiluðu sér. Fjölmiðlar létu slíkt efni ekki
framhjá sér fara, enda ekki ástæða til.
3. Umfjöllun um greininguna var nokkuð
mikil í íjölmiðlum og lesið uppúr skýrslunni á
Rás 2 og umfjöllun birtist einnig í DV að því
mér vitanlega.
4. Sveitarfélög eru markvisst að reyna að
skapa sér jákvæða ímynd og jákvæða umfjöll-
un. Skattfé íbúanna er notað í auglýsingar og
markaðsstarf til jákvæðrar kynningar. Um-
fjöllunin sem þessi greining fékk í fjölmiðlum
gerir lítið úr slíku starfi.
Nokkuð af þeim upplýsingum sem Byggða-
stofnun studdist við voru úreltar, notaðar voru
skýrslur sem gefnar höfðu verið út fyrir
nokkrum árum. Þó að jákvæðar athugasemdir
hafi verið margar er það svo að meira er gert
með þær neikvæðu athugasemdir sem birtast,
þær þykja meira fréttaefni. Ég veit að nokkur
sveitarfélög skiluðu Byggðastofnun mörgum
þéttskrifuðum síðum af athugasemdum.
^Penninn
✓
Astæða þess að Samstarfsvett-
vangur Vesturlands varð til
Nýjung í samstarfi
sveitarfélaga á
landsbyggðiimi
Samtök sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi
hafa haft ákveðnu svæðisbundnu hlutverki að
gegna hvað varðar hagsmunagæslu. Þau hafa
komið af stað ýmsum verkefnum og hefur oft
verið stofnað um þau verkefni félög sem lúta
sérstakri stjórn.
Umræður á vegum landshlutasamtakanna um
málefni síns landshluta hefur mótast nær ein-
göngu af sjónarmiðum okkar sveitarstjómar-
manna í gegnum tíðina og þótt við komum úr
ýmsum þjóðfélagshópum er tilhneigingin sú,
einkum eftir að við eram búnir að að sitja í
sveitarstjómum um árabil að við viljum nokkuð
festast í þeim verkefnum sem á sveitarfélögun-
um liggja þyngst hverju sinni, og sjóndeildar-
hringur okkar verður ekki eins víður og ef um
blandaðri hóp væri að ræða. Svo er það hin
pólitíska hlið sem gerir málin stundum við-
kvæm og getur því verið nauðsynlegt að fá ut-
anaðkomandi aðila til að ræða mál af hreinskilni
og fá inn ný og fersk sjónarmið.
Þess vegna var SV stoftiaður
Því var það niðurstaða sveitarfélaganna á
Vesturlandi að stofna Samstarfsvettvang Vest-
urlands.
Tilgangur
Samstarfsvettvangur Vesturlands er sameig-
inlegur vettvangur til að fjalla um málefni Vest-
-4
urlands á sem breiðusmm grunni og vinna að
eflingu byggðarlagsins á sem flestum sviðum.
Markmið SV
Að vera opinn umræðuvettvangur til að fjalla
um málefni Vesturlands á sem breiðustum
grunni og vinna að eflingu byggðarlagsins, at-
vinnulífs, menningar, þekkingar og menntunar
á svæðinu.
Að meta vaxtarfæri í nýjum greinum á svæð-
inu og koma með tillögur til sveitarfélaga og
annarra í umhverfinu hvernig megi nýta þau.
Sérstaða
Sérstaða SV felst einkum í því að vettvangur
þessi er öllum opinn og leggjum við mikla á-
herslu á að fá sem fjölbreyttust sjónarmið inn í
þá umræðu sem við stöndum fýrir hverju sinni.
Fysta verkeftii SV
Föstudaginn 9. nóvember verður haldið
fyrsta málþing innan SV Var það niðurstaða
stjómar SSV og starfsmanna að í fyrstu skyld-
um við taka fyrir menntamálin. Við sjáum það
alls staðar í kringum okkur að sóknarfæri á
flestum sviðum tengjast menntun og því er það
mikilvægt fyrir okkur sveitarstjórnarmenn að
gera okkur skýra grein fýrir því. Við þurfum að
vinna að því með öllum ráðum að hækka
menntunarstig fólksins á landsbyggðinni. Við
erum svo heppin hér á Vesturlandi að hafa Fjöl-
brautaskóla á Akranesi sem rekur starfsstöðvar
vestur á Snæfellsnesi. Vð höfum tvo háskóla
uppi í Borgarfirði, Vðskiptaháskólann á Bifröst
og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og er
það afar ánægjulegt að sjá hvað allar þessar
menntastofnanir hafa eflst undanfarið og fram-
boð menntunar sem þær bjóða aukist.
Vð hugsum þetta málþing þannig að nem-
endur, skólastjórnendur og aðrir fái þarna tæki-
færi á því að kynna sig og koma því á framfæri
til okkar
s v e i t a r -
stjórnar-
f ó 1 k s i n s
hvað við
getum gert
betur. Auk
skólastjórn-
endanna og
nokkurra
n e m e n d a
verða haldin
erindi varð-
andi þekk-
ingarsetur á
landsbyggð-
inni og hvernig þau geta eflt menntunarstdg á
landsbyggðinni og einnig fáum við erindi um
samfélagsáhrif í dreifðum byggðum. I lok mál-
þings verða vonandi líflegar panel umræður þar
sem sveitarstjórnarmenn, aðilar ffá mennta-
stofnunum og aðilar ffá hinu opinbera verða
þátttakendur auk þess vonast ég til að gestir
okkar sem sitja í salnum verði virkir í umræð-
um.
Hvemig verður unnið úr
málþinginu?
Starfsmenn Atvinnuráðgjafar Vesturlands
hafa aðstoðað okkur við undirbúning málþings-
ins og munu þau sem þar starfa sjá um að vinna
úr þeim skilaboðum sem við fáum og koma
þeim áfram til þeirra sem málið varða en þau
munu meta í samráði við hagsmunaaðila hvern-
ig best verður að vinna úr niðurstöðum. Mikil-
vægt er að vinna vel úr þeim skilaboðum sem
við fáum frá málþingsgestum okkar og þau
verða m.a. til að bæta búsetuskilyrði fólksins
sem býr í landshlutanum.
Hrefha Bryndts Jónsdóttir
Starfsmaður SSV
f-Beygarðshornið
í heimi
rómantík-
urinnar
Karlmenn verða að kunna að
segja og gera viðeigandi hluti
á viðeigandi stöðum ef allt á
upp að ganga í tilhugalífinu.
Geri þeir eitthvað sem kon-
unni líkar, safna þeir stigum.
Geri þeir hins vegar eitthvað
sem henni mislíkar, þá fækkar
stigunum jafnt og þétt. Engin
stig eru í boði fyrir að gera
eitthvað sem hún býst við -
því miður, þannig eru bara
leikreglurnar.
Félagsláegar
aðstædur:
Þið eruð saman í teiti og þú
stendur við hlið hennar allan
tímann = 0
Þú stendur við hlið hennar í
dálítinn tíma, en ferð svo að
tala við fullan félaga = -2
Félaginn heitir Tiffany = -4
Tiffany er dansari = -6
Tiffany er með sílíkon = -8
Þegar þú blandar geði, þá
heldurðu í höndina á kærust-
unni og horfir ástúðlega á
hana = 1
Þegar þú blandar geði, þá
kynnirðu hana sem „gamlan
kunningja“ og klappar henni á
rassinn = -5
Þegar hún bendir á fönguleg-
an kvenmann og spyr hvort
þér finnist hún falleg, þá svar-
ar þú: ,Já, en ekki jafn falleg
og þú!“ = 1
Þegar hún bendir á konu og
spyr hvort þér finnist hún fal-
leg þá segir þú: ,Já, en hafðu
engar áhyggjur, hún er ömur-
leg í rúminu!“ = -6
Konan er systir hennar = -90
Stóra spurningin:
Hún spyr: „Er ég feit?“ = -5
Þú hikar við að svara = -10
Þú þykist ekki heyra = -12
Þú svarar: „Hvar?“ = -25
Þú svarar: „Miðað við
hvað?“ =-30
Þú svarar: „En ég vil hafa þig
svoleiðis!" = -35
Þú svarar: „Ekki miðað við
hvað þú ert gömul!“ = -40
Kvöld með strákunum:
Þú ferð út með vini = -5
Vinurinn er einhleypur = -7
Hann ekur um á Trans
Am = -10
Með einkanúmeri
(GR8 N BED) = -15
Þið fáið ykkur nokkra
bjóra = -5
Og komið klukkutíma of seint
heim = -10
Þú kemur heim klukkan 03:00
= -20
Það er áfengislykt af þér og
friykur af ódýrum
vindlum = -30
Þú ert ekki í buxum = -40
Er þetta húðflúr?!! = -200