Skessuhorn


Skessuhorn - 10.01.2002, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 10.01.2002, Blaðsíða 5
•>*£3sunu»~ FIMMTUDAGUR 10. JANUAR 2002 5 Hinn astrófýsíski alheimskraftur K o m i ð i sæl og gleði- legt ár. Það er góður og gamall siður að strengja áramótaheit og þar læt ég ekki mitt eftir liggja. Nú um ára- mótin hét ég því að draga úr fordómum. Þar er úr firnamörgu að velja en eftir vandlega íhugun varð stjörnuspeki fyrir valinu. Eg tek skýrt fram að fordómafækkunin á aðeins við um stjörnuspeki. Eftir sem áður kýs ég að halda tryggð við aðra fordóma mína s.s. gagnvart umhverfisvernd, Manséster Júnæted, hvalfriðun, eingyðistrú, yfirvöldum, stríðsrekstri, Samfylk- ingunni, dönskukennslu, dauðarefs- ingum, Mikka Mús, Háskólanum, myndbandstækjum, leiklist og minnihlutahópum hverskonar. Hingað til hef ég verið sannfærð- ur um að fjarlægar stjörnur geti ekkert haff að segja um það hvernig við erum. Þótt sól, tungl eða plánet- ur séu í línu við fjarlægar reiki- stjörnur (eða öllu heldur í línu við stöðu þeirra eins og hún var fyrir 2000 árum) þá gat ég ekki skilið að það hefði einhver áhrif á okkur. T.d. er þyngdarkraftur Plútós ekki meiri en svo að hann gæti lyft dauðri flugu. Og ljósið sem við sjá- um ffá fastastjörnunum er búið að vera svo lengi á leið til jarðar að þessvegna gæti verið slokknað á Stóri-birni og sprungið á Karlsvagningum fyrir mörg hund- ruð árum án þess að við yrðum þess En nú hef ég ákveðið að gera mér grein fyrir því að hér er um um aðra krafta og merkilegri en ómerkilegt þyngdarafl að ræða. Enda virkar þyngdaraflið alltaf en hinn astró- fysíski alheimskraftur stjarnanna lætur eingöngu til sín taka við fæð- ingu manna. Hugsið ykkur bara að krafturinn frá fastastjörnunum ferðast um þús- undir Ijósára á örskotsstundu, stdllir sig af miðað við afstöðu sólarinnar og reikistjarnanna gagnvart sjónlínu frá jörð til upprunastjarna kraftsins - og leiðréttir sig sjálf miðað við stöðuna eins og hún var fyrir 2000 árum þegar kerfið var fundið upp. Síðan ryðst þessi kraftur í gegnum gufuhvolf jarðar, þar sem loftsteinar og annað efnislegt drasl brennur upp á leið sinni til jarðar, og heldur áffam í gegnum hnausþykka stein- steypuveggi húsanna sem við dvelj- umst í - en ekki í gegnum húðina á mallakút mæðra okkar. Sú skinn- pjatla er eina efhið - eða orkan - í gervöllum alheimi sem getur stöðv- að áhrifamátt alheimskraftsins. Enda virkar hann ekki á okkur fyrr en við fæðingu. Þá hlöðumst við líka gögnum frá stjörnunum, líkt og þegar forrit er sótt í tölvu. Þess vegna miðast stjörnuspár alltaf við fæðingu, en ekki t.d. getnað. Þeir sem ekki skilja þetta - þeir eru fífl. sem stjörnuspekingur og er þegar tekinn til við að gera einstaklings- bundnar stjörnuspár. Þeir sem hafa áhuga geta sent mér beiðni um það í tölvupósti á netfangið bjarki@alfholl.is. Látið VISA núm- er ykkar fylgja með. Eins og sönn- um stjörnuspekingi sæmir get ég sjálfur séð hver greiðslugeta ykkar hlýtur að vera og mun því skuldfæra viðeigandi upphæð, sem hvern og einn munar ekkert svo mikið um, á greiðslukortið. Loks ætla ég að færa ykkur spá um hrotufar ársins 2002, alveg ókeypis: Hrúturinn hefur alltaf hrotið hátt og mikið. Það ágerist á árinu og mun hlutfall hrúta því verða óvenju hátt í hópi fráskilinna. Friður ríkir yfir hrotum nautsins á árinu. Fallegar hrotur, snyrtileg- ar. Ekki vekja hrjótandi naut. Tvíburinn hrýtur linnulaust þangað til makinn pikkar í hann. Þá steinhættir hann - en bara þangað til makinn snýr sér aftur á hina hlið- ina. Krabbinn hvílist ekki nema hann fái hrotið vel. Ekki segja krabba ffá því að hann hrjóti, veik sjálfsmynd hans þolir það ekki. Ljónið er konungur hrotanna! Ljónið öskrar! Og það er stolt af því. Þeir sem búa með ljóni ættu að taka hroturnar upp og spila fyrir það. Það gleður ljónið. um Ljónsins. Vogin hefur ánægju af því að rannsaka þessi gögn og bera saman við eigin svefhvenjur. Meyjan hrýtur hátt en fallega, allt að því listrænum Venusartónum. Næmur stíllinn mun slípast enn frekar til á árinu. Sporðdrekinn ber ábyrgð á and- vökunóttum margra með nístandi fölskum hrotum. Sjálfum þykir sporðdrekanum hrotur sínar fagrar. Bogmaðurinn hrýtur enn hærra í ár en í fyrra. Þegar andvaka makinn ýtir við honum er hann alltaf jafn hissa. Fannst þér þetta ekki flott hjá mér? Steingeitin hrýtur taktvisst og á- reiðanlega. Það er hægt að stdlla klukkur efrir hrotum hennar. Þetta breytist ekkert á árinu - ffemur en Steingeitin sjálf. Vatnsberinn situr enn inni. Þeg- ar samfangar hans gerast brotlegir við agareglur er þeim gert að deila klefa með honum heila nótt. Hrot- anna vegna brjóta þeir yfirleitt ekki af sér aftur. Við fiskarnir lítum á þetta í víðara satnhengi. Einusinni hraut ég svo hátt í útilegu að ferðafélagar mínir báru mig 200 metra ffá tjaldinu og þegar ég vaknaði skildi ég ekkert í því hvar ég var. Skv. stjörnunum gæti þetta hæglega endurtekið sig. £ fi £ Ég hef ákveðið að hasla mér völl Gefið Voginni upptökuna afhrot- 8 milljónavinningar á Vesturlandi ári9 20DI Mi9inn kostar aiíeins 8D0 krónur á mánuDi Fá9u þér mi3a hjá næsta umbDÍsmanni Um IBD milljanamæringar dregnir út á árinu HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings : i i ' U (iJiií't: \nt L *3t 1 i i: i j. ) Í'6-t > . j j j 11 1)ir i j :u,; 1; • im'újrf j

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.