Skessuhorn - 04.09.2002, Qupperneq 1
Skaginn hf. kynnir byltingarkennda nýjung í landvinnslu
Landvinnslan hagkvæm á nýjan leik
Á Islensku sjávarútvegssýningunni
sem hófst í Smáranum í Kópavogi í
morgun kynnir Skaginn hf. á Akra-
nesi það sem fyrirtækið kallar bylt-
ingarkennda nýjung í landvinnslu.
Sigurður Guðni Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri Skagans segir þessa
nýju aðferð koma til með að gjör-
breyta skilyrðum landvinnslu og
gera hana hagkvæma á nýjan leik.
„Landvinnsla hefur átt undir högg
að sækja á undanfömum árum því
þegar fiskur er kominn á land er
komið í hann los þó um gott hráefni
sé að ræða að öðra leyti. Þessi aðferð
sem við höfum þróað gerir það að
verkum að hráefhið heldur gæðum
sínum í gegnum vinnsluna þó kom-
ið sé los í holdið. Hér er um að ræða
svokallaða roðfrystingu og jafhframt
hefur verið í þróun að taka beingarð
úr flökum," segir Sigurður Guðni.
Hann segir fyrstu niðurstöður mæl-
inga á mismtm á verðmætum afurða
með hefðbundnum vinnsluaðferð-
um annars vegar og með nýrri að-
ferð Skagans hins vegar sýna að unnt
sé að auka verðmæti afurðanna um
sem nemur 28 kr á hvert kíló af
slægðum fiski. „Þessar niðurstöður
byggja á gögnum frá Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðins og ég held að
það þurfi því engum blöðum um það
að fletta að heiti þessa verkefnis:
„Bætt arðsemi í landvinnslu“ sé því
réttnefni."
Hagnaður eykst um 15%
Skaginn af hefur á undanförnum
mánuðum unnið að verkefninu
„Bætt arðsemi í Landvinnslu" með
stuðningi ffá Haraldi Böðvarssyni hf
og í samstarfi við Rannsóknarstofn-
un fiskiðnaðarins. „Markmið fyrir-
tækisins er að þróa vinnsluaðferð
sem eykur hagnað af landvinnslu um
allt að 15 % frá því sem nú er, sem
að stærstum hluta kemur fram í
auknu ffamleiðsluverðmæti. Þetta
bætir stöðu landvinnslunnar í harðri
samkeppni við sjóvinnslu. Mismun-
ur í vinnslu á viðkvæmu hráefni og
loslausu hverfur með þessari nýju
tækni. Tæknin byggir á því að eftir
flökun er flakið útlínusnyrt og síðan
„roðffyst". Roðffysting byggir á því
að ffysta roð fisksins og þunna skel
af holdinu. Hröð frysting í skamman
tíma tryggir að einungis örsmáir
ískristallar myndast í holdinu sem
valda ekki skemmdum á fiskinum.
Eftir ffystinguna fer flakið í roðdrátt
og þar sem flakið er stíft fer það
gegnum roðdrátt án þess að skemm-
ast. Viðkvæm flök fara jafnt í gegn-
um roðdrátt og loslaus flök. Eftir
roðdrátt er beingarður fjarlægður
frá roðhlið flaksins með nýrri að-
ferð. Við að taka beingarðinn frá
roðhliðinni er ekki skorið í gegnum
hold fisksins og flakið nýtist betur í
verðmestu afurðimar. Eftir að bein-
garður hefur verið fjarlægður er
flakið snyrt,“ segir Sigurður Guðni.
Störfum fækkar lítið
Sigurður Guðni segir að með því
að breyta vinnsluaðferðinni batni af-
urðaskipting og nýting meðffam því
að gæði aukist. Hann segir rann-
sóknum ekki lokið því eftir sé að
mæla nákvæmlega raunveraleg áhrif
vinnsluaðferðarinnar á hvern þátt í
ferlinu. Það liggur hinsvegar fyrir
að heildamýting afurða eykst, af-
urðaskipting bamar, eldra hráefni
nýtist til vinnslu í ferskar afurðir, af-
köstin aukast og gæðin aukast.
Megin niðurstaðan er sú að unnt er
að vinna nánast öll flök í heilflaka-
vinnslu, nýting batnar og mun
hærra hlutfall af hverju flaki fer í
verðmestu afurðimar. Ástand flaks-
ins breytist ekki í vinnslurásinni.
Mesta verðmætaaukningin er þó í
viðkvæmum afurðum svo sem ýsu
og uppþýddum þorski. Þetta er
mjög viðamikið verkefiii sem mun
umbylta landvinnslunni á næstu
arum og auka samkeppnishæfni
hennar. Utflumingsverðmæti fisk-
afla íslendinga mun aukast en samt
sem áður er ekki umtalsverð breyt-
ing á mannafla sem þarf til vinnsl-
unnar. Breytingin liggur í því að
auka verðmæti afurðanna." segir
Sigurður Guðni.
GE
Bílstjórínn bjargaði málunum
Lék fyrsta knattspyrnuleikinn tæplega fimmtugur
Þótt árangur Skallagríms í 2.
deildinni í knattspyrnu hafi ekki
verið sérlega glæsilegur í sumar þá
verður þessa leiktímabils minnst
ýmissa annarra hluta vegna. Síðast-
liðinn laugardag
lék Skallagrímur
sinn næstsíðasta
leik í deildinni í
bili því liðið er sem
kunnugt er fallið í
3. deild. Leikurinn
var gegn Völsungi
og fór fram á
Húsavík. Þrír ný-
liðar tóku þátt í
leiknum sem þætti
kannski ekki í frá-
sögur færandi
nema fyrir þær sak-
ir að tveir þeirra
eru nýorðnir
fimmtán ára gamlir
og sá þriðji verður
fimmtugur í febrúar næstkomandi.
Heimtur leikmanna vora venju
ffemur slæmar að þessu sinni og
þegar til kom þá vora þeir ekki
nema tíu. Stóðu menn þá frammi
fyrir því að leikurinn yrði ekki
flautaður á og átti félagið því yfir
höfði sér sektir. Kom þá til kasta
bílstjóra og liðstjóra liðsins, Val-
geirs Ingólfssonar, að bjarga mál-
unum og reima á sig takkaskóna í
fyrsta sinn og
lék hann allan
leikinn í
fremstu víg-
línu. „Eg hef
ekki spilað fót-
bolta síðan í
barnaskóla og
aldrei leikið
deildarleik,
ekki einu sinni
í yngri flokk-
unum. Það má
segja að þetta
sé upphafið á
ferlinum,“ seg-
ir Valgeir.
Hann segir að
hinsvegar fari
ekki miklar sögur af árangrinum en
kveðst hafa reynt að þvælast fyrir
mótherjunum eins og sér hafi verið
unnt.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Skessuhorn hefur aflað sér er
það ekki einsdæmi að lið hafi teflt
ffam leikmönnum á fimmtugasta
aldursári eða jafnvel enn eldri. Það
er hinsvegar afar sjaldgæft að þeir
hafi leikið heilan leik og öragglega
einsdæmi að menn hafi byrjað
knattspyrnuferilinn á þessum aldri.
Urslit leiksins á Húsavík urðu
þau að heimamenn sigraðu öragg-
lega, 7-1. Eina mark Skallagríms
skoraði nýliðinn Guðmundur
Lúther Hallgrímsson, sem átti
góðan leik, en hann varð fimmtán
ára nú í sumar. Þriðji nýliðinn í
leiknum var síðan Jón Orn Vil-
hjálmsson sem einnig varð fimmt-
án ára á þessu ári og stóð hann sig
einnig með prýði.
GE
„Réttarhöld“
framundan
Á bls. 7 í blaðinu í dag er að
finna lista yfir réttardaga í öllum
helstu fjárréttum á Vesmrlandi.
Valgeir Ingólfsson, aldursforseti Skalla-
grims.
Stúdentspróf á
tveimur árum
Átján ára stúlka af
Akranesi, Oddný
Björgvinsdóttir,
lauk stúdentsprófi
ffá FVA, nú í haust,
aðeins tveimur áram
eftir að hún hóf nám
við skólann. Oddný
lauk námi til stúd-
entspróf að mestu í
vor og átti aðeins tvo
áfanga eftir sem hún
lauk í sumar.
Að sögn Harðar
Helgasonar skólameistara hefur
enginn útskrifast með stúdentspróf
frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á
styttri tíma enda segir hann það
ekki mögulegt.
Oddný Björgvinsdóttir.
Oddný braut-
skráðist af tónlist-
arbraut og tók
hluta af einingun-
um sem hún þurfti
í gegnum sitt tón-
listarnám. Hún
ætlar að halda
áfram á tónlistar-
brautinni því hún
hefur nú þegar
hafið nám við tón-
listarháskólann í
Osló og, er að því
best er vitað, yngsti nemandinn við
skólann. Hún þreytti inntökupróf
við tónlistarháskólann síðastliðið
vor og fékk inngöngu í fyrstu til-
raun. GE
Deilt um smalaskyldu
Eigendur tveggja jarða í Þverár-
hlíð í Borgarbyggð hafa neitað að
greiða sveitarfélaginu fyrir smöl-
un á jörðum sínum þrátt fyrir
lagaákvæði um smalaskyldu. Þá
hafa þeir gert sveitarfélaginu
reikning fyrir hagagöngu vegna á-
gangs búfjár á umræddum jörðum
og hyggjast leita réttar síns fyrir
dómsstólum. Sjá bls 5.
virka
-I
laugardaga
sunnudaga