Skessuhorn - 04.09.2002, Page 11
^Kiauunu^:
MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002
11
ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR ~ ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR -
IA-Fram 1-1
Dómarinn og veðrið í
aðalhlutverki í slagveðursleik
Hálfdán Gíslason
Aðstæður til knattspymuiðkun-
ar sl. laugardag á Akranesi þegar
Framarar komu í heimsókn voru í
einu orði sagt hræðilegar. Úr-
hellisrigning og hávaðarok urðu
þess valdandi að þeir furðulega
mörgu áhorfendur sem mættu á
völlinn þrátt fyrir
veðrið, urðu ekki
vitni að mjög
áferðafallegri knatt-
spyrnu.
Skagamenn hófu
leik á móti vindin-
um, sem stóð nán-
ast beint á annað
markið, og náðu
strax öllum völdum
á vellinum. Leik-
mönnum ÍA gekk
betur en gestunum
að hemja boltann í
rokinu og í fyrri hálfleik mátti sjá
ágæta samleikskafla hjá íslands-
meisturunum. Það voru þó Fram-
arar sem áttu fyrsta hættulega
færið þegar boltinn small í stöng
Skagamanna.
Á 28. mínútu kom fyrsta mark-
ið. Hálfdán Gíslason skoraði með
þrumuskoti úr miðjum vítateign-
um eftir að hafa komist framhjá
tveimur varnarmönnum Fram af
miklu harðfylgi. Staðan í leikhléi
1-0.
Það héldu eflaust flestir að eft-
irleikurinn yrði auðveldur fyrir
heimamenn með sterkan vindinn í
bakið í seinni hálfleik, en svo var
nú aldeilis ekki raunin. í stað þess
að halda áfram þar sem frá var
horfið í fyrri hálfleik hófu Skaga-
menn nú að reyna stungusend-
ingar inn fyrir vörn Framara.
Þessar sendingar reyndust flestar
hættulausar og skiluðu engu.
Sterkur vindurinn sá reyndar til
þess að Framarar komust vart
fram yfir miðju í síðari hálfleik.
Eftir tíu mínútna leik í síðari
hálfleik gerðist umdeilt atvik.
Hálfdán Gíslason komst einn inn
fyrir vörn gestanna með varnar-
mann á hælunum. Þegar að Hálf-
dán var kominn inn í teiginn var
honum kippt niður og víti réttilega
dæmt. Hinsvegar, eftir að hafa
ráðfært sig við að-
stoðardómarann,
færði Ólafur Ragn-
arsson, dómari
leiksins, brotið út
fyrir teig og vítið
þar með orðið að
aukaspyrnu. Þrátt
fyrir þetta hefði
Framarinn engu að
síður átt að fá
rauða spjaldið þar
sem Hálfdán var
kominn einn í
gegn en hann
slapp með það gula.
Á 63. mínútu kórónaði dómari
leiksins slaka frammistöðu sina
með því að gefa Frömurum víti og
reka Gunnlaug Jónsson útaf. Eft-
ir sjaldséð mistök hjá Gunnlaugi
komst sóknarmaður Fram í
dauðafæri inn í teig Skagamanna,
áður en honum tókst að spyrna
boltanum í netið renndi Gunn-
laugur sér fyrir hann og hirti bolt-
ann af tám hans á glæsilegan
hátt. Öllum að óvörum taldi dóm-
arinn að Gunnlaugur hefði gerst
brotlegur, dæmdi því víti og rak
Gunnlaug útaf.
Ágúst Gylfason skoraði af ör-
yggi úr spyrnunni og jafnaði þar
með metin.
Þrátt fyrir að vera einum fleiri
voru Framarar aldrei líklegir til að
bæta við marki hvað þá mörkum.
Reyndar tókst Skagamönnum
ekki heldur að setja neinn þunga í
sóknarleik sinn eftir þetta enda
erfitt einum manni færri. Lokatöl-
ur því 1-1.
Þrátt fyrir að vera einum færri í
tæpan hálftíma mega leikmenn ÍA
vera ósáttir með að ná ekki í öll
stigin í þessum leik. Skagamenn
voru með leikinn í sínum höndum
lengstum þrátt fyrir erfiðar að-
stæður og með aðeins betri leik í
síðari hálfleik hefði takmarkið ef-
laust náðst. Eftir leikinn eru
Skagamenn með 20 stig í fimmta
sæti, tveimur stigum á eftir KA
sem er í því fjórða.
Hlynur farinn til Snæfells
Hlynur Bæringsson körfuknatt-
leiksmaður úr Borgarnesi hefur
skipt yfir í Snæfell og leikur með
þeim í Úrvaldsdeildinni í vetur.
Hlynur hefur leikið með Skalla-
grími allan sinn feril og auk þess
með öllum aldursflokkum lands-
liðs íslands. Eftir að Skallagrímur
féll úr úrvalsdeildinni síðastliðið
vor hefur Hlynur verið orðaður við
ýmis lið en hann er einn efnileg-
asti leikmaður Borgnesinga í
gegnum tíðina. Snæfellingar fóru
í hina áttina á síðasta vori og end-
urheimtu sæti sitt í úrvalsdeild og
hafa auk Hlyns fengið liðstyrk
Sveitakeppnin í Golfi
Leynismenn í
fjórða sæti
Rok og rigning
voru í aðalhlut-
verki í sveita-
keppni Golfsam-
bands íslands
sem fram fór um
síðustu helgi.
Fyrsta deildin var
leikin í Vest-
mannaeyjum og
þar voru Leynis-
menn frá Akranesi
með sterka sveit
sem skipuð var
m.a. tveimur fyrr-
verandi íslands-
meisturum, þeim
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur keppti með
Leynismönnum í sveitakeppninni um síðustu helgi.
Þórði Emilssyni og Birgi Leif Haf-
þórssyni. Auk þeirra skipuðu
sveitina þeir Kristvin Bjarnason,
Þórbergur Guðjónsson, Willy Blu-
menstein og Stefán Orri Ólafsson.
Vegna veðurs varð að fella nið-
ur fimmtu og síðustu umferðina
og samkvæmt reglugerð keppn-
innar var liðum raðað eftir stiga-
fjölda í riðlakeppni. Það var Golf-
klúbbur Reykjavíkur sem sigraði í
sveitakeppninni en Golfklúbbur-
inn Leynir varð í fjórða sæti.
Golfklúbbur Borgarness náði
ekki jafn góðum árangri í 1. deild-
arkeppninni sem fram fór á
Hólmsvelli í Leiru. Þar var einnig
aftakaveður og varð því að aflýsa
síðustu umferðinni. Borgnesingar
höfnuðu í neðsta sæti og féllu í 3.
deild. Þar er m.a. fyrir Golfklúbb-
urinn Jökull í Ólafsvík sem tók
þátt í 3. deildarkeppninni um síð-
ustu helgi á Neskaupstað og
höfnuðu Jökulsmenn í fjórða
sæti.
með þeim Lýð Vignissyni frá
Haukum og Jóni Ólafi Jónssyni
frá Stjörnunni. GE
Molar
Gunnlaugur Jónsson missir af
næsta leik Skagamanna í Síma-
deildinni eftir að hafa fengið rauða
spjaldið gegn Fram. Grétar Rafn
Steinsson missir einnig af leiknum
þar sem að hann fékk sitt fjórða
gula spjald í sama leik.
3. flokkur karla hjá ÍA tapaði
spennuþrungnum úrslitaleik í bik-
arkeppninni um síðustu helgi gegn
Fram. Eftirað staðan hafði verið 1-
1 eftir venjulegan leiktíma skoruðu
bæði eitt mark hvort í framlenging-
unni og því þurfti að grípa til víta-
spyrnukeppni. Þar reyndust Fram-
arar sterkari og skoruðu úr öllum
fimm spyrnum sínum en Skaga-
menn aðeins úr fjórum. Mörk
Skagamanna í leiknum skoruðu
þeir Hafþór Ægir Vilhjálmsson og
Vilhjálmur Pétursson.
Strákarnir í 3. flokki eru enn með
í baráttunni um íslandsmeistaratit-
ilinn en á morgun (fimmtudag)
mæta þeir liði HK í undanúrslitum.
Strákarnir tryggðu sér sæti í und-
anúrslitum með því að sigra sinn
riðil.
Ólafur Þórðarson, þjálfari u-21
árs landsliðs íslands, valdi á dög-
unum 16 leikmenn fyrir æfingaleik
gegn Ungverjum á Egilsstöðum á
laugardaginn. Þrír leikmenn ÍA eru
í hópnum, þeir Grétar Rafn Steins-
son, Hjálmur Dór Hjálmsson og
Ellert Jón Björnsson. Hjálmur og
Ellert eru nýliðar en Grétar hefur
leikið sex leiki.
Bikarmót Vesturlands í hestaíþróttum haldið í fyrsta sinn
Skuggi stigahæsta félagið
Vinningshafa í tölti unglinga.
Bikarmót Vesturlands í hesta-
íþróttum var haldið í Borgarnesi
sunnudaginn 25. ágúst s.l. Var hér
um frumraun hestamannafélaga á
Vesturlandi að ræða og voru
keppendur frá fjórum félögum, frá
Skugga, Snæfellingi, Glaði og
einn frá Faxa. Standa vonir til
þess að mót sem þetta sé komið
til að vera. Keppt var í flokki 16
ára og yngri og í opnum flokki. í
stigakeppni mótsins varð lið
Skugga stigahæst. Fyrirtækið
Njarðtak hf. gaf öll verðlaun, m.a.
glæsilegan farandbikar sem
keppa skal um á ári hverju. Úrslit
urðu sem hér segir (einkunnir eru
úr úrslitakeppni).
16 ára og yngri
Fjórgangur.
1. Guðrún Ósk Ámundadóttir Skugga
á Rúbín f. Miklagarði..........5,82
2. Guðmundur Skúlason Snæfellingi á
Snorra.........................5,67
3. Sandra Jóhannsdóttir Skugga á
Geysif. Njarðvík...............5,52
4. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir Skugga
á Háfeta f. Borgarnesi........5,11
5. Ástríður Ólafsdóttir Glað á Surti f.
Magnússkógum..................4,93
Tölt
1. Sigurborg Sigurðardóttir Faxa á
Rökkva f. Oddstöðum...........6,69
2. Sandra Jóhannsdóttir Skugga á
Geysif. Njarðvík..............5,62
3. Guðrún Ósk Ámundadóttir Skugga
á Rúbín f. Miklagarði.........5,58
4. Guðmundur Skúlason Snæfellingi á
Snorra........................5,56
5. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir Skugga
á Háfeta f. Borgarnesi........5,17
Opinn flokkur
Fjórgangur
1. Skjöldur Orri Skjaldarson Glað á
Snerri f. Bæ..................6,35
2. Lárus Ástmar Hannesson Snæfell-
ingi á Veru f. Stakkhamri....5,95
3. Hlynur Þór Hjaltason Glað
á ísak........................5,61
4. Ámundi Sigurðsson Skugga
á Létti.......................5,53
5. Sigrún Bjarnadóttir Snæfellingi á
Þráðif. Stakkhamri............5,16
Fimmgangur
1. Bjarki Jónasson Skugga á Goða f.
Borgarnesi....................6,11
2. Lárus Ástmar Hannesson Snæfell-
ingi á Fjöður f. Stakkhamri..5,84
3. Ámundi Sigurðsson Skugga á Vísi
f. Miklagarði.................5,65
4. Laufey Bjarnadóttir Snæfellingi á
Þyt f. Stakkhamri............5,58
5. Ólafur Þorgeirsson Skugga á
Sindra f. Borgarnesi.........5,04
Tölt
1. Sæmundur Halldórsson Skugga á
Mána f. Tjörvastöðum.........6,31
2. Finnur Kristjánsson Glað á Ál f.
Hamraendum...................6,31
3. Skjöldur Orri Skjaldarson Glað á
Snerri f. Bæ.................6,30
4. Lárus Ástmar Hannesson Snæfell-
ingi á Veru f. Stakkhamri....6,23
5. Hlynur Þór Hjaltason Glað
á ísak........................6,06
Gæöingaskeiö
1. Lárus Ástmar Hannesson Snæfell-
ingi á Fjöður f. Stakkhamri...98,7 stig
2. Marteinn Valdimarsson Skugga á
Kjark f. Hnúki................93,7 stig
3. Ámundi Sigurðsson Skugga á Vísi
f. Miklagarði................60,10 stig
4. Bjarki Jónasson Skugga á Goða f.
Borgarnesi..............57,10 stig
5. Laufey Bjarnadóttir Snæfellingi á
Þyt f. Stakkhamri............24,50 stig
Lokahóf knattspymudeildar Skallagríms verður haldið
á veitingahúsinu Búðarkletti laugardaginn 7. september
Súpa
og
sætalam'
GíshfönarSS°
ibið
jfflífcpantanír í síma 69 51791 fijcír Rl.22.00 á fimmtuDag