Skessuhorn


Skessuhorn - 18.09.2002, Page 3

Skessuhorn - 18.09.2002, Page 3
■ ■.H-Mlh.- MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 3 Snorrastofa fær Hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs Borgamess Síðastliðinn laugardag voru hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs- ins í Borgarnesi veitt í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu í Borgarnesi. Verðlaunin komu í hlut Snorrastofu í Reykholti fyrir braut- riðjendastarf í þágu menningar héraðsins. Það var stofnunin sjálf sem hlaut verðlaunin sem voru í formi peningagjafar að upphæð kr. 150.000,- en um leið var vakin at- hygli á þætti tveggja einstaklinga í að koma Snorrastofu á fót. Það eru þeir Bjami Guðráðsson í Nesi og sr. Geir Waage sóknarprestur í Reykholti. Hvamingarsjóður Rótarýklúbbs Borgarness var stofnaður árið 2000 og er markmið hans að verðlauna hverskonar merkilegt ffamtak sem er til ffamfara fyrir menningu og atvinnulíf héraðsins hvort sem í hlut eiga einstaklingar, félög, fyrir- tæki eða stofnanir. Akveðið var að veita fyrsm viðurkenninguna úr sjóðnum á fimmtíu ára afmæli fé- lagsins sem er fagnað um þessar mundir. Afmælisins er einnig minnst með sögusýningu í safna- húsinu þar sem saga klúbbsins er rakin og ýmis mál sem klúbbfélag- ar hafa komið að í gegnum tíðina. GE Bergur Þorgeirsson forstöðumaður Snorrastofu tekur við verðlaunum úr Hvatningarsjóði Rótarýklúbbs Borgamess úr hendi Finns Torfa Hjörleifssonar forseta klúbbsins. Mynd: GE Önugheit, útúrsnúningar og óþarfa viðkvæmni eiga eklú við Umræðan um löggæslu snýst um skipulagningu en ekki persónur, segir Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akranesi „Það er mikill misskilningur hjá sýslumanninum í Borgamesi að bæj- arstjórinn á Akranesi standi í áróð- ursstríði gegn embætti hans og að slíkt „stríð“ sé byggt á órökstuddum dylgjum. Reyndar er údlokað að ræða málefni tollgæslu á Grundar- tanga og löggæslu í héraðinu á grundvelli önugheita, útúrsnúninga og óþarfa viðkvæmni, „ segir Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akranesi. I viðtali við Skessuhom í síðustu viku sagði Stefán Skarphéðinsson sýslu- maður í Borgamesi að málflutning- ur bæjarstjóra um tollgæsluna á Grundartanga byggðist á órök- studdum dylgjum. Vísaði sýslumað- ur þar til ummæla Gísla í Skessu- homi ffá því í vikunni áður þar sem hann sagði meðal annars að efla þyrffi stórlega tollgæslu á Grundar- tanga. Gísli segir að þau mál sem hafa verið rædd snúist m.a. um tvö mjög stór atriði sem varða íbúana á svæð- inu og þá sem um svæðið fara. „I fyrsta lagi er öllum ljóst að tollgæsla á Grundartanga er langt undir mörkum sem unnt er að sætta sig við. Um þetta hafa m.a. bæjarstjómir Borgar- byggðar og Akraness á- lyktað, enda er samstarf bæjarstjórnanna mjög gott og sameiginlegur á- hugi á að styrkja héraðið, treysta þjónustu og horfa til framtíðar. Að auki má nefna að í Skessuhorni þann 11. september s.l. tekur oddviti Innri Akra- neshrepps imdir skoðun bæjarstjómanna. Þetta er því ekki bara raus í rugluðum bæjarstjóra. Málið snýst einfaldlega um að með stóraukinni skipaumferð þá er al- menn tollæsla á svæðinu ofviða einum manni. Það sjá allir.Það er grundvallaratriði að tryggja eins og kostur er að Grandartangahöfn verði ekki notuð sem smyglleið og það verður ekki gert nema með auknu eftirliti. Um það eru þeir sammála sem til mála þekkja. I öðra lagi hefur það vakið athygli ansi margra og stundum verið haff í flimtingum að þjónusta lögreglu við vegfarendur í héraðinu er rígbundin við umdæmamörk en ekki er nýttur sá mannafli sem er á svæðinu í heild þó svo að launagreiðandinn sé sá sami. M.a. hefur þetta verið til um- fjöllunar fagmanna í stafshópi sem fjallar tun endurskoðun á viðbragðs- áætlun fyrir Hvalfjarðargöng og telja þeir að úrbóta sé þörf. Osveigjanleg svæðamörk lögreglunnar skila lakari þjónustu en efhi standa til og minna öryggi en hægt væri að tryggja,“ seg- ir Gísli. Gísfi segir að breytingar séu óum- flýjanlegar hafi menn áhuga á að veita betri þjónustu og auka öryggi almennings á svæðinu. Hann segir að vafalaust komi ýmsar leiðir til greina en það sé dómsmálaráðu- neytisins að finna út hvaða leiðir séu skynsamlegastar. ,JVIeð þessari tunræðu er verið að hreyfa málum í því skyni að styrkja þjónustustigið í héraðinu, en hvorki verið að stríða gegn einstökum emb- ættum eða varpa rýrð á góða menn sem sinna löggæslumálum eftir bestu getu. Málið snýst um skipu- lagningu en ekki persónur. Þeir sem ábyrgð bera á skipulaginu og stýra málum verða að átta sig á þeim breytingum sem orðið hafa og bregðast við þeim málefnalega. Það era litlar líkur til þess að fólk sætti sig við vitlaust skipulag og lakari þjónustu en efni standa til þó svo að umræða um breytingar pirri ein- hvem. Það er engin ástæða til að efna til héraðsrígs um málefni sem varðar öryggi og bætta þjónustu - verkefnið er að finna lausn á því sem betur þarf að fara,“ segir Gísli að lokum. GE Borgarfjarbarsveit Til sölu Túngata 14 d Hvanneyri Borgarfjarðarsveit óskar eftir tilboðum í einbýlishús og bílskúr að Túncjötu 14 ú Hvanneyri. Husið er 120 I fermetrar og bflskúrinn 40 fermetrar. Núnari I upplýsingar fdst á skrifstofu Borgarfjarðarsveitar, | sími 435-1140, pósthólf 60, 320 Reykholt og þangað c skulu tilboð send fýrir 1. október nk. Oddviti Borgarfjarðarsveitar Munið nýtt símanúmer 570-9800 FÓÐURBLAHDAN HF. FORYSTA i FÓÐURBLÖNDUN Heiur |)ij skafiast í slysi? Slys eru alvarlegir atburðir sem geta gerbreytt aðstæðum í lífi okkar allra. Erfiðleikar í kjölfar slyss geta verið líkamlegir, sálrænir, félagslegir og síðast en ekki síst fjárhagslegir. Við hjá Fulltingi léttum þér leiðina að því sjálfsagða marki að þú fáir greiddar þær bætur sem þú átt rétt á. Þjónusta okkar felst í að: 1. Útskýra hver rétturþinn er 2. Leita réttarþíns fyrirþig 3. Gæta hagsmuna þinna í hvívetna. Þér er velkomið að hafa samband við okkur. Síminn er 533 2050. FULLTINGI lögfræðiþjónusta uppgjör skaðabóta og slysabóta Suðurlandsbraut 18 • 108 Reykjavík • Sími 533 2050 • Bréfsími 533 2060 •fulltingi@fulltingi.is • www.fulltingi.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.