Skessuhorn


Skessuhorn - 18.09.2002, Side 4

Skessuhorn - 18.09.2002, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 WWW.SK KS SUHORN.IS Borgarnesi: Borgarbraut 23 Simi: 431 5040 Fax: 431 5041 Akranesi: Kirkjubraul 3 Sími: 431 4222 SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Úlgefandi: Tíðindamenn ehf 431 5040 Ritstjóri og óbm: Gisli Einarsson 892 4098 Blaðomenn: Sigurður M. Horðorson 865 9589 Auglýsingor: Hjörtur J. Hjortorson 864 3228 Próforkalestur: Anno 5. Einorsdóttir Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir Prentun: Prentsmiðjo Morgunbloðsins skessuhorn@skessuhorn.is ritstjori@skessuhorn.is smh@skessuhorn.is hjortur@skessuhorn.is anna@skessuhorn.is gudrun@skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilofrestur oualýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímamega. Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu. Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr. 431 5040 Hrepparígur „Betri er hrepparígur en hálsrígur,” segir gamalt máltæki. Það er hinsvegar þannig með hrepparíg eins og margt annað gamalt og gott að í seinni tíð hefur verið tilhneiging til að kasta á hann rýrð og gera lítið úr þessari fomu dyggð. Þrátt fyrir að margir viðurkenni það seint þá er það deginum ljósara að varla er hægt að finna skilvirkara og betra stjórntæki en gamla góða hrepparíginn. Samkeppni felst nefnilega ekki eingöngu í verðstríði, undirboðum og bolabrögðum á viðskiptasviðinu. Samkeppni á við miklu víðar ef hún er heiðarleg og á réttum forsendum. Helsti kostur samkeppninnar er sá að hún ýtir undir metnað og hvetur menn til að standa sig eins vel og þeim er unnt, hvort sem það er á sviði viðskipta, í íþróttum eða hverju sem á annað borð er ætlast til að gert sé af einhverju viti. Slíkt á ekki síður við hvað varðar sveitarfélög. Þar kemur hrepparígurinn til sögunnar. Það á að sjálfsögðu að vera metnaður hjá íbúum í hverju sveitarfélagi að standa sig betur á öllum sviðum en þessir andsk... í næstu sveit. Menn eiga að metast sem best þeir geta um hver sveitin eigi besta fótboltaliðið, fegurstu konurnar, bestu bændurna, mestu aflaklærnar, skemmtilegasta bæjarstjórann, gáfuðustu nemendurna, flottustu fyllibyttuna og hvaðeina annað sem andinn ber þeim í brjóst að rífast um. Til að krydda þetta örlítáð meira má síðan hreyta ónotum hver í annan á íþróttakappleikjum og slást á böllum ef skortur er á afþreyingu. Samt sem áður þurfa menn að gæta þess að vera réttu megin við strikið til að þeir getd farið að fordæmi þeirra Valhellinga hér áður fyrr og risið ósárir upp úr valnum eftir hverja rimmu. Það sem þó er mikilvægast er að menn hafi það hugfast að þrátt fyrir að hrepparígur eigi fullan rétt á sér þá ber að beita honum rétt og aðeins þar sem það á við því þótt íbúar einstakra sveitarfélaga berjist og bítist á heilbrigðan hátt þar sem það á við þá eiga þeir á mörgum sviðum sameiginleg hagsmunamál sem eru hafin yfir allan hrepparíg. Að undanfömu hefur verið nokkur umræða um tollgæslumál á Grundartanga í Skessuhorni og víðar. Sú tunræða hefur að hluta til snúist um hvaðan og með hvaða hættd þeirri þjónustu skuli sinnt. Það er að sjálfsögðu sameiginlegt hagsmunamál Skagamanna, Borgfirðinga, Borgnesinga og í raun allra landsmanna að þeim málum sé sinnt sem best til að hindra að Grundartangasvæðið verði að viðurkenndri innflutningshöfn fyrir eiturlyf og annað sem við getum gjarnan verið án. Það er það sem skiptir máli í þessu sambandi. Því mega menn ekki gleyma sér í hrepparíg í þessu samhengi og færa þannig vopnin upp í hendurnar á þeim sem þeir eiga að kljást við í sameiningu sem er í þessu tilfelli ríkisvaldið. Eins og fram hefur komið er hægt að fá útrás fyrir hrepparíginn á ýmsum öðrum sviðum. Gísli Einarsson, sérfræðingur Lögreglurannsókn á meintu brotí á vmveitingalöggjöf Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa óskað eftir lögreglurann- sókn á því hvort ung- lingum undir lögaldri hafi verið veitt áfengi á veitingastaðnum Cafe Mörk. Meintur atburður átti sér stað á mánudagskvöldið í síðustu viku, sama kvöld og leikmenn 2.flokks IA fögnuðu Islandsmeistaratitli sínum. Grun- ur leikur einmitt á að nokkrir leik- menn liðsins undir lögaldri hafi verið á staðnum. Jón Pálmi Páls- son, bæjarritari, hefur umsjón með útgáfu vínveitingaleyfa á Akranesi og bárust honum upp- lýsingar sem leiddu til þess að óskað var eftir rannsókninni en ít- rekuð brot af þessu tagi geta leitt til sviptingar vínveitingaleyfis. Á ekki við rök að styðjast Jóhann Pálmason, einn eiganda Cafe Mörk, segir að staðurinn hafi ekki brotdð nein lög. „Lög- gjöfin segir að fólk yngra en 18 ára megi ekki vera á staðnum eftir kl. 20 á kvöldin nema í fylgd for- ráðamanns og það var tilfellið í þetta skiptið. Þær ásakanair um að einhverjir undir 20 ára hafi verið afgreiddir um áfengi hér eiga ekki við rök að styðjast enda spyrjum við alla um skilríki við barinn. Ef við stunduðum þau viðskipti sem við erum sakaðir um værum við í raun að skaða okkur sjálfa og það gerum við ekki.“ Ennfremur sagði Jóhann að hann harmaði það ónæði sem íbúar hverfisins hefðu orðið fyrir umrætt kvöld. Strák- arnir í 2.flokki hafi verið til fyrir- myndar og sjálfum sér til sóma inni á staðnum þetta kvöld hvað svo sem í kjölfarið hafi fylgt eftir að þeir fóru þaðan. HJH Dráttarbrautin leigð út Stykkishólmsbær hefur boðið út leigu á dráttarbraut bæjarins og voru bjóðendur tveir; Skipasmíða- stöðin Skipavík og Daníelsslippur í Reykjavík. Að sögn Ola Jóns Gunnarssonar bæjarstjóra verður á næstu dögum rætt við bjóðendur og gengið ffá samningum í fram- haldi af því. Fyrirhugaðar eru umfangsmiklar endurbætur á dráttarbrautinni sem samkvæmt áædun koma til með að kosta um 90 milljónir. Ekki hefur verið ákveðið hvenær þær fram- kvæmdir verða boðnar út en á- kvörðtm verður tekin í if amhaldi af samningum um leigu á brautinni. GE Skólasókn ungmenna á Islandi Vesturland neðar- lega á blaði Hagstofa íslands hefur tekið saman tölur um skólasókn íslenskra ungmenna á aldrinum 16-29 ára eins og hún var á miðju haustmiss- eri 2001. Af samantektinni að dæma eru vestlensk ungmenni ekki meðal þeirra námsfususm ef borið er saman við aðra landshluta. Hlut- fall ungmenna á fyrrgreindum aldri sem stundar framhaldsskólanám er undir landsmeðaltali í flestum ald- urshópum og aðeins Suðurnesja- menn eru með lægra meðaltal en Vesdendingar. I eftdrfarandi töflu má sjá hversu hátt hlutfall ungmenna í hverjum landshluta sækir skóla. Sjálfsagt má finna margar skýr- ingar á því að lægra hlutfall vest- lenskra ungmenna sækir í ffam- haldsskólanám en jafhaldrar þeirra í flestum öðrum landshlutum. Hugs- anlega skipta fjarlægðir máli í því sambandi, sérstaklega hjá Snæfell- ingum og Dalamönnum sem eiga lengst að sækja í næsta framhalds- skóla en þá kenningu er erfitt að sanna nema að hafa samanburð milli einstakra sveitarfélaga. Ein líkleg- asta skýringin er þó sú að atvinnuá- stand á Vesturlandi hefur verið með því besta sem gerist á landinu und- anfarin ár og því líklegt að gott að- gengi að atvinnu fái marga til að fresta námi um sinn a.m.k. Alls Rvk. Höf.b Suður- Sv. nes Utan Rvk Vesturl. Vestf. Norðurl. Norður. Austurl. vestra eystra Suðurl. 16 ára. ...89. ....90. 92 ... ...80 86. 89... 86.. 90.... ....89.. 87 17 ára. ...80 . ....80. 84... ...69 72 . 78... 85.. 82.... ....83.. 79 18 ára. ...70. ....73 . 74... ...58 70. 68... 75.. 65.... ....65.. 67 19 ára. ...64. ....66, 70... ...49 60. 59.. 60.. 62.... ....58.. 61 20 ára. ...48. ....51 . 52 ... ...34 44. 37... 51.. 42.... ....49.. 47 21 ára. ...44. ....48. 45... ....28 35. 35... 47.. 43.... ....51.. 37 22 ára. ...41 . ....47, 40... ,...27 34. 36.. 38.. 40.... ....28.. 34 23 ára. ...36. ....41. 36... ...18 26. 19.. 39.. 38.... ....29.. 33 24 ára. ...30. ....34. 29... ,...18 21 17.. 22.. 34.... ....27.. 22 25 ára. ...23 . ....27. 23... ....14 14 5.. 12.. 25.... ....20.. 18 22 16 8 17 11.. 10.. 24.... ....12.. 12 27 ára. ...15. ....19, 13 ... 7 12 7.. 12.. 18.... 28 ára. ...12 . ....15. 11 ... 5 10 6.. 5.. 13.... 29 ára. ...10. ....11. 8... 7 11 4.. 5.. 12.... 6.. 7 Snæfellsjökull hopaði um 7 metra Mesta undanhald frá 1970 Snæfellsjökull hefur hopað um 7 metra á einu ári en það er mesta hop frá 1970. Þetta eru niðurstöður úr hinum árlegu mælingum á hopi/framskriði Snæfellsjökuls sem fram- kvæmdar voru þann 7. septem- ber sl. Það eru hjónin Hall- steinn Haraldsson og Jenný Guðjónsdóttir sem hafa um áratugaskeið staðið að mæling- um á jöklinum fyrir Orkustofn- un en áður hafði faðir Hall- steins, Haraldur Jónsson í Gröf á sunnanverðu Snæfellsnesi, umsjón með mælingunum. Hallsteinn segir að mæling- arnar á hopi jökulsins og fram- skriði séu miðaðar við svokall- aðan Hyrningsjökul, sunnan og vestan við gíginn, og úr þeim megi lesa þetta 7 metra hop nú. „Það er erfiðara að meta þynn- ingu jökulsins en eftir mikla reynslu í því að meta stærð jök- ulsins get ég sagt það með vissu að hann hefur greinilega þynnst mikið á einu ári. Með- al þess sem við notum til við- miðunar er að skoða ruðning- inn upp á jökulsporðinn og hann er orðinn mun meira áberandi en áður hefur verið sem þýðir svo að hann hefur þynnst mikið,“ segir Hall- steinn. Á árunum frá 1930 til 1970 hopaði jökullinn um 1 km en skreið ffarn næstu 25 árin um 200 metra. Hallsteinn segir að ef spár um áframhaldandi hækkun á hitastigi á jörðinni gangi eftir megi gera ráð fyrir að Snæfellsjökull muni halda á- fram að hopa hratt. Hann segir þó að það sem ráði mestu um hop og þynningu jökulsins sé hvort snjói að einhverju marki í jökulinn en lítið hafi farið fyrir því síðustu misserin. smb Heilsdags- skólií Grundar- firði Undanfamar vikur hefur ver- ið unnið að undirbúningi heils- dagsskóla í Grandarfirði að því er fram kemur á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar. „í því felst að nemendum 1. til 3. bekkjar grunnskóla stendur til boða vistun í svonefndu „skóla- seli“ frá því að skóla lýkur og fram eftdr degi. Þannig er kom- ið til móts við þarfir fjölskyldna þessara barna,“ segir á heima- síðunni. Þá hefur einnig verið í skoðun að geta boðið grann- skólanemum heitar máltíðir í skólanum. Þar sem eldhúsað- staða er ekki fyrir hendi í skól- anum sjálfum, var leitað til veit- ingastaðanna í bænum um að útbúa matarbakka til nemenda. Ekki liggur fyrir hver niður- staðan úr því verður.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.