Skessuhorn - 18.09.2002, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
SSESSUHÖBH
Bárður Eyþórsson
Karlalið Snæfells í
körfuknattleik, úr Stykkishólmi,
vann sér á síðustu leiktíð sæti í
úrvalsdeild undir styrkri stjórn
Bárðar Eyþórssonar. Koma
Snæfellingar með sterkt lið til
leiks í Epsondeildinni sem hefst
þann 10. október nk. en þeir
unnu sterkt æfingamót í
Hólminum um síðustu helgi. Þeir
hafa fengið þrjá nýja leikmenn í
leikmannahópinn auk nýs
Bandaríkjamanns sem kunnur er
í Hólminum af fyrirtaks körfuknattleikshæfileikum, en hafa einungis
misst einn leikmann. Bárður þjálfari sýnir annað sjónarhorn á sér í
skráargatinu þessa vikuna.
Najn: Bárður Eyþórsson.
Fæðingadagur og ár: 1 Ojanúar 1968.
Starfi Sjómaður.
Fjölskylduhagir: Giftur Oldu Pálsdóttur og eigum við 3 böm; Pál 8 ára,
Kristþóru Auði 7 ára og Bárð Jens 5 ára (og eitt á leiðinni).
Hvemig bíl áttu: KIA 7 manna.
Uppáhalds matur: Svínahamborgarhryggur.
Uppáhalds drykkur: Pepsi.
Uppábalds sjónvarpsefni: Iþróttir.
Uppáhalds sjónvarpsmaður: Enginn sérstakur.
Uppáhalds leikari innlendur: Helga Braga.
Uppáhalds leikari erlendur: Gene Hackman, Densel Washington.
Besta btómyndin: Góðar spennumyndir.
Uppáhalds íþróttamaður: Allt United-liðið.
Uppáhalds íþróttafélag-.Snœfell.
Uppáhalds stjómmálamaður: Hann Sturla okkar Böðvarsson.
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Smári “Tarfitr” Jósepsson.
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Eros Ramazzoti.
Uppáhalds rithöfundur: Enginn sérstakur.
Ertu blynntur eða andvtgur ríkisstjóminni: Hlynntur.
Hvað meturðu mest tfari annarra: Heiðarleika.
Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra: Oheiðarleiki.
Hverþinn helsti kostur: Metnaður, hreinskilni og myndarlegt skap.
Hver erþinn helsti ókostur: Skapið stundum of myndarlegt.
Ætlar þú að spila með í vetur: NEI!
Besti leikmaðurinn í úrvalsdeildinni: Sjáum til eftir veturinn.
Mikilvægasti leikmaðurinn t Snæfelli: Sá sem leggur sig bestfram á æftngitm
og leikjum fyrir félagið og samherjana.
Hvert er stejhan sett í úrvalsdeildinni: Ekki gefið upp.
Eitthvað að lokum: Afram Snæfell!
Italir heimsækja FVA
Átta ítalskir nemendur, ffá I.T.I.S.
Giorgi framhaldsskólanum í
Mílanó, dvelja nú í heimsókn hjá
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi (FVA), ásamt kennara sín-
um. Með heimsókn Italanna endur-
gjalda þeir heimsókn rafeinda-
virkjanemanna úr FVA sem fóru til
Mílanó í júní síðastliðnum. Italimir
komu til landsins þann 7. septem-
ber sl. og verða til 28. september
nk. og munu búa hjá íslenskum
fjölskyldum á þeim tíma, tveir í
Borgarnesi en hinir á Akranesi.
Italirnir sóttu kennslustundir í
FVA fyrstu vikuna, eru þessa vikuna
í starfskynningu og síðustu vikuna
verða þeir aftur í skólanum. Fyrir-
tækin sem taka við þeim í
starfskynningu eru Skaginn hf.,
Norðurál, Nepal - hugbúnaður,
Vélsmiðja Olafs Guðjónssonar og
Bifreiðaverkstæðið Brautin.
ítalamir hafa verið duglegir að
ferðast um fsland og Vesturland frá
því að þau komu. Á fimmtudaginn
var fóm krakkamir í Landmanna-
laugar, með þremur jeppakörlum úr
kennaraliði FVA, gistu þar í skála og
dóluðu um hálendið fram á fösm-
dagskvöld. Þá fóm þau öll í Þverár-
rétt í Borgarfirði á mánudaginn sl.
og upplifðu alvöra íslenska réttar-
stemmningu, auk þess sem þau hafa
farið að Húsafelli, á Langjökul og
vitanlega kynnt sér næturlíf íslend-
inga. í síðusm vikunni verður hinn
hefðbundni Gullni hringur (Geysir,
Gullfoss og Þingvellir) farinn.
Nýtt hlið að skógræktínni
við Klapparholt
Hjónin Guðmundur Guðjónsson og Rafnhildur Amadóttir framan við hliðið góða sem
vígt varfyrir sk'ómmu að skógræktinni við Klapparholt þar sem þau hafa gróðursett yftr
30 þúsund plöntur.
Fyrir skemmstu var vígt nýtt og
glæsilegt hlið að skógræktinni við
Klapparholt á Akranesi en það vom
Haraldur Böðvarsson hf., Þorgeir
Jósefsson, Skaginn, Vélsmiðjan,
Sandblástur Sigurjóns og Akranes-
kaupstaður sem fjármögnuðu smíði
og uppsemingu þess. Að lokinni
vígslu hélt Landsbankinn svo hóf
fyrir viðstadda f elsta steinsteypta
húsi íslands, Garðahúsi.
Skógræktin við Klapparholt
stendur aftan við skógræktina
Garðalund en hjónin Guðmundur
Guðjónsson og Rafhhildur Árna-
dóttir hafa unnið að því hörðum
höndum að gróðursetja þar tré frá
árinu 1988 þegar þau gerðu samn-
ing þess efhis við Akraneskaupstað.
Þau hafa nú gróðursett um 33 þús-
und plönmr á um 8 hekmmm lands
og var hliðið gefið þeim hjónum
sem viðurkenning fyrir það mikla
starf sem þau hafa unnið.
Guðmundur sagði í samtali við
Skessuhom að þau hjón ætluðu sér
að halda áffam gróðursemingu við
Klapparholt. „Eg vona að við get-
um haldið því áfram að minnsta
kosti eitthvað. Það fer þó eftir
ýmsu, fyrst og fremst heilsunni.“
Aðspurður um hvenær almenning-
ur fengi að nýta sér hina glæsilegu
skógrækt til útdvistar sagði Guð-
mundur að ótímabært væri að segja
til um það. „Við ætlum að lofa
þessu að stækka dálítið meira áður
en kemur að því.“
SÓK
Gimilegurfiskréttur
Það er Ingibjörg Barðadóttir
sem er matgæðingur Skessuhoms
þessa vikuna.
Ingibjörg, sem er skrifstofu-
stjóri hjá Olís á Akranesi, segir
þennan rétt vinsælan á sínu
heimili. Reyndar hyggst hún bæta
jafhvel enn fleiri hollusmrétmm á
matseðil fjölskydunnar þar sem
að hennar heittelskaði sé orðinn
gildur um miðjuna.
Gimilegur fiskréttur
2.bollar hrísgrjón
1 stórtýsuflak (2 lítil)
250 gferskir sveppir
1/2 dós ananasbitar
gott búnt af spergilkáli
Gauda-ostur (24%feitur)
2 1/2 dl.matreiðslurjómi
4-5 matsk. majónes
ca 1 tsk. Austurlenskt karrí
provencale-krydd ejtir smekk
Aðferð:
Hrísgrjónin em soðin og látin í
smurt eldfast mót. Ysan er roð-
flett beinhreinsuð og skorin í bita.
Bitunum er velt upp úr hveiti,
þeir kryddaðir með provencale,
léttsteiktir á pönnu og lagðir ofan
á hrísgrjónin. Sveppirnir em
smjörsteiktir og helmingur þeirra
setmr yfir fiskinn í mótinu
spergilkálið snöggsoðið í létt-
söltuvatni og sett yfir fiskinn.
Majónesið er hrært saman við
ananassafann og rúmlega helm-
inginn af rjómanum og þannig
búin til sósa. Hún er krydduð
með karríi og helmingnum síðan
hellt yfir fiskinn, spergilkálið og
sveppina í mótinu. Mótið er síð-
an þakið með osti og bakað í
u.þ.b. 20 mín við 170 gráðu hita,
eða þar til osturinn er orðinn
brúnn. Hinum helmingnum af
sveppunum er hellt út í afganginn
af sósunni (ásamt smjörinu á
pönnunni) og ananasbitunum
bætt út í ásamt afganginum af
rjómanum. Sósan er síðan himð í
pottd, hún gerð hæfilega þykk og
sett á borðið.
Meðlæti:
Ferskt salat og frönsk smá-
brauð.
Verði ykkur að góðu!
Snúða-skokk í Garðaseli
Síðastliðinn miðvikudag
gekkst leikskólinn Garðasel
fyrir óvenjulegum íþrótta-
viðburði sem var svokallað
snúða-skokk. Þennan dag
gengu eða skokkuðu böm og
starfsfólk ákveðnar vega-
lengdir sem tóku mið af aldri
barnanna.
I lokin fengu allir gómsæt-
an snúð að launum. Þessi
uppákoma féll í góðan jarð-
veg og ekki síst verðlaunin í
lokin.
GE Það var enginn snúður á bömunum í Garðaseli í snúðaskokkinu á miðvikudag. Mynd: Garðasel
Rauðakrossdeildin í Borgamesi var með kynningu á starfsemi sinni á Hymuplaninu fyrir skömmu. Þarfengu gestir og gangandi
tækifæri til að skoða hin ýmsu tæki og tól sem Rauði krossinn hefur til björgunarstarfa. Mynd.