Skessuhorn - 18.09.2002, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
jáisuunuk.:
y * tmSÍmSS
Svar óskast
Grein Þorvaldar Jónssonar
oddvita framsóknarmanna í Borg-
arbyggð í síðasta Skessuhorni um
kærumál vegna síðustu sveitar-
stjórnarkosninga í Borgarbyggð
vakti upp nokkrar spurningar, sem
nauðsynlegt er að leita svara við
hjá forystumönnum í Framsókn-
arfélagi Mýrasýslu.
1) Hvort eiga íbúar í Borgar-
byggð að trúa Þorvaldi og fé-
lögum í Framsóknarfélagi
Mýrasýslu eða Jóni Sveins-
syni lögmanni framsóknarfé-
lagsins og félagsmálaráð-
herra? Þessi spurning er bor-
in upp því Þorvaldur og fleiri
framsóknarmenn í Mýrasýslu
halda því fram að þeir hafi
ekki krafist þess að kosið yrði
að nýju. Hins vegar segir
orðrétt í greinargerð Jóns
Sveinssonar hrl. fyrir Hér-
aðsdómi Vesturlands: „Allt
að einu bendir stefndi (Fram-
sóknarfélag Mýrasýslu) á að í
kröfugerð hans fýrir ráðu-
neytinu fólst vissulega krafa
um nýjar kosningar ....“ „ I
úrskurði félagsmálaráðheri;a
segir einnig að Framsóknar-
félag Mýrasýslu hafi krafist
þess að kosið yrði að nýju.
2) Vissi ekki oddviti framsókn-
armanna né aðrir félagar í
Framsóknarfélagi Mýrasýslu
af þessari kröfu lögmanns fé-
lagsins?
3) Fór lögmaður Framsóknarfé-
lags Mýrasýslu út fyrir um-
boð sitt?
4) Er það rangt hjá félagsmála-
ráðherra að Framsóknarfélag
Mýrasýslu hafi krafist þess að
kosið yrði að nýju?
5) Kemur það framsóknar-
mönnum á óvart að menn
byggi á því að Framsóknarfé-
lag Mýrasýslu hafi ekki krafist
nýrra kosninga þegar það
hefur ítrekað komið fram op-
inberlega hjá forystumönnum
þeirra að það hafi þeir ekki
gert. A ekki að trúa orðum
framsóknarmanna í Borgar-
byggð?
6) Af hverju gerðu umboðs-
menn framsóknarmanna við
talningu atkvæða ekki at-
hugasemdir við að hlutkesti
var varpað ef þið ætluðuð
ekki að una niðurstöðunni?
7) Ef framsóknarmenn gera ekki
kröfú um nýjar kosningar í
Borgarbyggð er skorað á for-
ystumenn Framsóknarfélags
Mýrasýslu að lýsa því yfir að
dómsmáli því sem nú fer senn
að Ijúka fýrir héraðsdómi
verði ekki áfrýjað til Hæsta-
réttar. Eru framsóknarmenn
Ásbjöm Sigurgeirsson
tilbúnir að gefa íbúum Borg-
arbyggðar slíka yfirlýsingu?
Ef ekki þá vitum við að fram-
sóknarmenn í Borgarbyggð
tala tveimur tungum hið
minnsta
Asbjamarstöðum
18. september 2002.
Asbjöm Sigurgeirsson
Að gefnu tilefni - Otyggis- og
tollamál á Grundartangasvœðinu
Að undanförnu hafa birst í
Skessuhomi viðtöl og greinar um
tolla- og löggæslumál á Grandar-
tangasvæðinu. Sitt hefur hverjum
sýnst en um eitt era menn sam-
mála og það er að verulegra úrbóta
er þörf. Ljóst er að Lögreglunni í
Borgarnesi hefur ekki verið gert
kleift að sinna því svæði eins og
vera ber og Lögreglan á Akranesi
er bundin af ævagömlum mörkum
lögsagnaramdæma sem ekki eiga
lengur við. Eins og allir vita er um-
dæmi Lögreglunnar í Borgamesi
gríðarlega stórt en Akranesum-
dæmið litlu stærra en ffímerki á
landakorti. Umdæmin hafa haft
einhverja samvinnu um svæðið
sunnan Skarðsheiðar en betur má
ef duga skal.
Undirritaður ritaði Dómsmála-
ráðherra í október 2001 að eigin
frumkvæði bréf í kjölfar áskorunar
frá bæjarráðum Akraness og Borg-
arbyggðar. I því bréfi lýsti ég hug-
myndum um hvemig hægt væri
með samstilltu átaki sveitarfélaga,
ríkisins, fyrirtækja og stofhana á
svæðinu að fela Oryggismiðstöð
Vesturlands alla öryggisgæslu á
svæðinu. Að Oryggismiðsstöðin
væri tollvörðum innan handar við
tollskoðun, starfaði þess á milli sem
almennur öryggis- og eftirlitsaðili á
svæðinu og starfaði jafhframt í um-
boði Tollgæslunar og Lögreglu
þegar á þyrfti að halda og hefði
náið samstarf við yfirvöld að öðra
leyti. Jafnframt var því lýst í bréfinu
hve náið samstarf er á milli Örygg-
ismiðstöðvar Vesturlands og
stjórnstöðvar Oryggismiðstöðvar
Islands. Utbúnaði öryggisvarða var
lýst sem og þjálfún, fjarskiptum og
sérútbúnum bifreiðum.
I kjölfar þessa bréfs óskaði ég
eftir fundi með dómsmálaráðherra.
A þeim fundi kom fram að hug-
myndir hefðu komið upp um að
breyta lögsagnaramdæmum en
enn bíðum við efdr niðurstöðu.
Jafnframt kom fram að dómsmála-
ráðuneytinu væri ekki kunnugt um
smygl í Grundartangahöfn svo
neinu næmi. A umræddum fundi
var undirrituðum bent á að það
væri sveitarstjórna, fyrirtækja og
stofnana á svæðinu að hafa frum-
kvæði að auknu öryggi á svæðinu.
Það má öllum ljóst vera að nær-
vera og eftirlit öryggisvarða hefur
gríðarlega fælandi áhrif ásamt öfl-
ugu samstarfi við lögreglu og hefúr
það sannarlega komið í ljós á Akra-
nesi. Að mínu mati er þessi leið
mjög fýsileg fýrir alla aðila. Bæði
Arinbjöm Kúld
verður kostnaður minni þar sem
margir aðilar kosta hana, störfúm
fjölgar, smygl hvers konar leggst af
og öryggi almennt á þessu svæði
verður margfalt meira en nú er.
Sólarhringsviðvera öryggivarða er
það sem koma skal á jafn stóra og
umsvifamiklu svæði sem Grundar-
tangasvæðið er.
Arinbjöm Kúld, framkvæmda-
stjóri og öryggisvörður.
1
WSl
Binni var að tala við vin sinn
um komandi sumarleyfi:
„Veistu, ég ætla ekki að hlusta
á þig núna þegar ég tek fríið
mitt.“
„Fyrir þremur áram sagð-
irðu mér að fara á Hawaí. Eg
fór og kellingin varð ólétt.
Fyrir tveimur áram bentirðu
mér á að fara til Bahamas og
kellingin varð ólétt aftur. Svo í
fýrra, þá sagðirðu mér að það
væri meiriháttar á Tahítí og
andskotinn hafi það, kellingin
varð ólétt enn eina ferðina."
„Og hvað ætlarðu þá að gera
núna?“ spyr vinur Binna.
„í ár,“ segir Binni, „þá tek ég
kellinguna með mér.“
Maður nolckur fer inn á al-
menningssalerni og stillir sér
upp við pissuskál milli tveggja
eldri manna. Hann gægist til
vinstri og sér að úr þeim gamla
standa tvær bunur:
„Hvað er nú þetta?“ spyr
hann forvitinn.
„Slys í hernum,“ svarar sá
gamli. „Fékk kúlu í typpið.
Þeir náðu að bjarga því, en það
er með tveimur pissugötum.“
Þegar maðurinn lítur til
vinstri þá sér hann að úr hin-
um gamla standa þrjár bunur:
„Hvað kom fyrir þig?“ spyr
maðurinn aftur forvitinn
„Slys í hernum. í Þýska-
landi. Kúla í typpið, skildi eft-
ir þrjú pissugöt.“
Þessir gömlu fyrrverandi
hermenn taka nú eftir því að
frá manninum standa tólf bun-
ur:
„Lentir þú í slysi líka?“
spyrja þeir.
„Neibbs, rennilásinn er bara
fastur.“
Búðareigandinn var að
koma úr mat og tekur eftir því
að einn sölumaðurinn er með
höndina í fatla. Aður en hann
náði að spyrja sölumanninn
hvað hefði gerst, kemur
sölumaðurinn sigri hrósandi
og segir:
„Gettu hvað? Heldurðu að
ég hafi ekki náð að selja þarna
hræðilega ljótu jakkafötin sem
við eram búnir að sitja uppi
með í marga mánuði!!“
„Ertu að meina þessi hræði-
legu, bleiku og bláröndóttu?"
„Nákvæmlega þau!“
„Frábært,“ segir búðareig-
andinn, „ég hélt að við mynd-
um aldrei losna við þau. En
hvað kom fyrir hendina á
þér?“
„O, rétt eftir að ég seldi
gaurnum þau, beit blindra-
hundurinn hans mig...“