Skessuhorn - 16.10.2002, Side 11
SSagSSlíHÖBK
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTOBER 2002
11
Hvemig er að
vinna í
Bókabúð
Andrésar?
Guðbjörg Guðbjartsdóttir:
Það er alveg frábten
Guðrún Birgitta
Alfreðsdóttir:
Vil hvergi annarsstaðar vera
Valgerður Sólveig
Sigurðardóttir:
Engu öðru líkt
Sólrún Guðleifsdóttdr:
Geðveikt fjör
Jón Amar Sverrisson:
Getur ekki verið annað en
skemmtilegt í kringum allar
þessar konur
!
I
f
'1
ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR -
Úrvalsdeildin í körfuknattleik
Munaði mjóu
Snæfell - Tindastóll: 84-86
Snæfellingar náðu ekki að
merja sigur þegar þeir fengu
Tindastól í heimsókn í sínum
fyrsta leik í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í þrjú ár. Jafnraeði
var með liðunum allan leikinn þótt
Stólarnir væru á undan að skora í
seinni hlutanum en aldrei munaði
þó nema nokkrum stigum enda
gat munurinn ekki verið mikið
minni í restina, lokatölur urðu 84 -
86 en staðan í leikhléi var 36 - 48.
Snæfellingar léku
án nýju stjörnunnar,
Hlyns Bæringssonar,
sem tók út leikbann,
en börðust engu að
síður vel, studdir af
fullu húsi áhorfenda
sem greinilega voru
orðnir óþreyjufullir að
fá liðið sitt aftur upp
á meðal þeirra bestu.
Clifton Bust kom sterkur inn í
íslensku úrvalsdeildina á ný og
átti stórleik. Hann lék allan tím-
ann, skoraði 28 stig, hirti tíu frá-
köst og átti 15 stoðsendingar.
Þeir Helgi, Jón og Lýður áttu
einnig mjög góðan leik og í heild
sýndi liðið að það á fullt erindi í úr-
valsdeildina þótt vissulega hefði
verið skemmtilegra að byrja bar-
áttuna með sigri.
Tölurnar
Nr Nafn Min HF STO STIG
4 Baldur Þorleifsson 13 1 1 0
5 Andrés M. Heiðarsson 22 1 0 6
7 Jón Ó. Jónsson 37 11 2 19
8 Helgi T. Guðmundsson 31 1 6 14
10 Sigurbjörn 1. Þórðarson 21 1 0 8
11 Clifton Bush 40 10 15 28
12 Lýður Vignisson 27 2 1 7
13 Daði H. Sigurþórsson 9 0 0 2
Kjörísbikarinn
Sagan endurtekur sig
Snæfell - Tindastóll: 71-82
Snæfellingar náðu ekki að
hefna ófaranna frá í 1. umferð
úrvalsdeildarinnar þegar þeir
fengu Tindastól í heimsókn,
öðru sinni á fjórum dögum síð-
astliðinn sunnudag, í þetta sinn í
Kjörísbikamum. Hlynur Bærings
missti af fyrri leiknum eins og
fram kemur í umfjöllun um þann
leik en í þetta sinn var hann
mættur til leiks en það dugði þó
ekki til því Stólarnir
höfðu undirtökin all-
an leikinn. Gestalið-
ið leiddi 22 -16 eftir
fyrsta leikhluta og í
leikhléi var staðan
22 - 32. Sá munur
hélst að mestu til
leiksloka og eftir
þriðja leikhluta var
staðan 53-67.
Lokatölur urðu síðan 71 - 82.
Clifton Bush, hinn geysisterki
bandaríski leikmaður Hólmara
átti ekkert sérstakan dag á
sunnudaginn og skoraði aðeins
sextán stig en hirti hinsvegar ell-
efu fráköst. Lýður átti feikna-
góðan leik og skoraði grimmt og
einnig Helgi. Þá kom Hlynur
sterkur inn og var drjúgur undir
körfunni.
Tölurnar
Nr Nafn Mín HF STO STIG
5 Andrés M Heiðarsson 21 7 1 3
7 Jón Ó Jónsson 25 1 0 13
8 Helgi R Guðmundsson 24 3 1 4
9 Hlynur E Bæringsson 32 9 1 12
10 Sigurbjörn i Þórðars 15 2 0 2
11 Clifton Bush 36 11 2 16
12 Lýður Vignisson 37 1 1 21
13 Daði H Sigurþórsson 10 1 1 0
Góð ferð Badminton-
félags Akraness
á M.fl mót í TBR
Meistaraflokksmót TBR í bad-
minton var haldið í TBR-húsum 5.-
6. október. Keppt var í riðlum í öll-
um flokkum meistaraflokks a og b
leikmanna. Badmintonfélag Akra-
ness sendi 8 keppendur á mótið
og uppskáru þau 4 gullverðlaun
og 4 silfurverðlaun.
Úrslit Skagamanna uröu sem hér
segir.
Einliðaleikur karia A fl.
Hólmsteinn Valdimarsson, ÍA -
Brynjar Gíslason, TBR - 12/15 - 15/8
- 15/11
Einliðaleikur kvenna A. fl.
Snjólaug Jóhannsdóttir, TBR -
Karítas Ósk Ólafsdóttir, ÍA -9/11 -
11/8 - 11/0
Einliðaleikur kvenna B. fl.
Birgitta Rán Ásgeirsdóttir, ÍA - Birna
Sigurgeirsdóttir, ÍA -11/5- 11/0
Tvíliðaleikur kvenna A. fl.
Karítas Ósk Ólafsdóttir, ÍA og Hanna
Guöbjartsdóttir, ÍA - Snjóiaug
Jóhannsdóttir, TBR og Hrefna
Matthíasdóttir, TBR - 11/9- 11/6
Tvíliðaleikur kvenna B. fl.
Birgitta Ásgeirsdóttir, ÍA og Birna
Sigurgeirsdóttir, ÍA - Kristín Fossdal,
ÍA og Þorgerður Jóhannsdóttir,
Keflav. - 12/13 - 11/6 - 11/6
Hólmsteinn Valdimarsson hefur veriö
að standa sig einkar vei á mótum og
landsliðsæfingum.
Tvenndarleikur A. fl.
Hrund Guðmundsdóttir, TBR og
Georg Hansen, TBR - Hólmsteinn
Valdimarsson, ÍA og Karítas
Óskarsdóttir, ÍA -11/6- 6/11 - 11/5
Mörg mót eru framundan hjá
félaginu og eru t.d. 30 keppendur
að fara til Akureyrar um næstu
helgi.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik
Óheppnir í upphafi móts
ÍR - Skallagrímur: 86-81
Skallagrímsmenn komu inn í úr-
valsdeildarkeppnina af miklum
krafti og munaði litlu að þeir næðu
að koma verulega á óvart og
leggja ÍR-inga í fyrsta leiknum síð-
astliðinn föstudag. iR-ingar byrj-
uðu betur og leiddu framan af en
Borgnesingar létu mótlætið ekki
buga sig og héngu í
þeim allan tímann og
undir lok leiksins
náðu þeir að snúa
taflinu sér í vil og voru
yfir eftir þriðja leik-
hluta 66 - 63. Borg-
nesingar lentu hins-
vegar í villuvandræð-
um í restina og segja
má að það hafi verið
það sem olli því að
þeir misstu sigurinn út úr höndun-
um á sér á síðustu mínútu. Skall-
arnir geta hinsvegar borið höfuðið
hátt því þeir léku á köflum mjög
vel og sýndu að þeir áttu fullt er-
indi í úrvalsdeildina þótt segja
megi að þeir hafi komist þangað
þvottahúsmegin.
Tölurnar
Nr Nafn Mín HF STO STIG
4 Finnur Jónsson 20 3 1 6
5 Hafþórl. Gunnarsson 26 2 1 11
6 Ari Gunnarsson 7 0 1 0
7 Pálmi Þ. Sævarsson 23 2 1 6
8 Egill Ö. Egilsson 17 1 0 11
9 Erlendur Þ. Ottesen 13 0 2 4 :!
10 Pétur M. Sigurðsson 26 0 4 14
14 Isaac Hawkins 40 18 0 19
15 Sigmar P. Egilsson 28 0 1 10
Kjörísbikarinn
Kötturinn og músin
Skallagrímur - Grindavík: 66-97
Það var Ijóst frá fyrstu mínútu í
Borgarnesi á sunnudag að Grind-
víkingar voru of stór biti fyrir Borg-
nesinga. Grindvíkingar byrjuðu af
krafti og skoruðu tólf fyrstu stigin
og var það forsmekkurinn af því
sem á eftir komu. Eftir fyrsta leik-
hluta var munurinn þó ekki nema
níu stig en síðan fór bilið að aukast
og í hálfleik var staðan 38 - 57. Eft-
ir annan leikhluta höfðu Grindvík-
ingar algjörlega siglt fram úr
heimamönnum og leiddu 78 - 42
en Skallagrímsmenn áttu sæmi-
legan lokasprett og lokatölur urðu
66 - 97.
Munurinn á liðun-
um fólst ekki hvað
síst í fráköstunum en
Borgnesingar náðu
aðeins 27 fráköstum
en gestirnir 39. Þá
voru heimamenn ekki
sérlega fastheldnir á
boltann og töpuðu
boltanum alls 23 sinn-
um, oft býsna klaufa-
lega.
Nýi útlendingurinn í
liði Skallagríms, Isaac Hawkins,
sást varla í leiknum og skoraði ekki
nema 13 stig og tók 8 fráköst sem
er léleg nýting á þetta stórum og
sterkum leikmanni. Það sást þó
greinilega að mun meira býr í leik-
manninum en hann sýndi þarna
og það sama má segja um liðið í
heild. Greinilega skortir strákana
sjálfstraust en ef þeir losna við
minnimáttarkenndina gagnvart
s„stóru“ liðunum og sýna hvað í
þeim býr gætu þeir verið til alls lík-
legir. Bestir í liði Skallagríms voru
þeir Egill og Hafþór en hvorugur
var þó að sína sína bestu hlið.
Tölurnar
Nr Nafn Mín HF STO STIG
4 Finnur Jónsson 19 4 3 4
5 Hafþór 1. Gunnarsson 21 1 7
6 Ari Gunnarsson 22 2 6
7 Pálmi Þ. Sævarsson 19 0 1 3
8 Egill Ö. Egilsson 22 0 0 13
9 Erlendur Þ. Ottesen 8 0 0
10 Pétur M. Sigurðsson 20 1 1 10
11 Óðinn Guðmundsson 4 1 0 0
14 Isaac Hawkins 33 8 2 13
15 Sigmar P. Egilsson 32 4 3 10
Æskusund 2002
Hið árlega Æskusund, sem er
sundkeppni milli UMSB, HSH,
USVH og UMSS í aldursflokkunum
14 ára og yngri fór fram á
Sauðárkróki 5. október sl.
Mót með þessu heiti hefur farið
fram síðan 1984. í fyrstu var
keppnin milli austur - og vestur
Húnvetninga, USAH og USVH og
Borgfirðinga. Fljótlega hætti USAH
þáttttöku og Snæfellingar komu í
staðinn og síðar bættust
Skagfirðingar í hópinn.
UMSB hefur oftast unnið þetta
mót á stigum en að þessu sinni
vantaði nokkuð upp á að liðið væri
fullmannað.
í flokki 13-14 ára vann Júlíana
Þóra Hálfdánardóttir allar greinarn-
ar fjórar sem hún tók þátt í. Náði
hún lágmarki fyrir AMÍ (Aldurs-
flokkameistaramót íslands) í 100 m
bringusundi og 200 m fjórsundi.
Edda Bergsveinsdóttir vann eina
grein, varð önnur í annarri og þriðja
í tveimur. Hún var mjög nálægt lág-
marki fyrir AMl í fjórsundinu. Þá
vann boðsveitin 4x50 m fjórsund
eftir glæsilegan endasprett Sigur-
rósar Guðríðardóttur.
Sveinn Flóki Guðmundsson vann
bringusundið og náði lágmarki fyrir
AMÍ. Hann varð og annar í tveimur
greinum. Guðmundur S. Jónsson
vann eina grein og varð í öðru sæti.
111-12 ára flokki voru sveinarnir
á fyrra ári en Jóhann Örn Jón-
björnsson og Einar Örn Guðnason
náðu báðir tvívegis á pall.
Hallbjörg Erla Fjeldsted var þriðja
í þremur greinum.
I aldursflokknum 10 ára og yngri
vann Flosi Ólafsson skriðsundið og
Helgi Axel Davíðsson bringusundið
og hnokkasveitin hafði mikla
yfirburði en gerði því miður ógilt. í
hnátuflokki hlaut Birna Kristín Ás-
björnsdóttir þriðja sætið í bringu-
sundinu.
Snæfellingar eru greinilega að
vinna gott unglingastarf í Ólafsvík
og Stykkishólmi. Gunnhildur Gunn-
arsdóttir vann bringusundið í 11-12
ára flokki og Berglind Gunnarsdótt-
ir í fl. 10 ára og yngri og Hilmar Sig-
urjónsson vann baksundið í flokki
13-14 ára.
UMSS vann stigakeppnina,
hlaut 430 stig, UMSS 306, HSH
204 en USVH sem var með mjög
fámennt lið hlaut aðeins 18 stig.
Næsta Æskusund fer fram í
Stykkishólmi í sept.-okt. 2003.
*
4
4
*
*