Skessuhorn - 04.12.2002, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002
jtttðautiui-
Tillaga um tuttugu
yfirvinnutíma felld
Á síðasta fundi bæjarstjórnar
Snæfellsbæjar lögðu bæjarfulltrú-
ar J listans, sem eru í minnihluta í
bæjarstjórn, fram tillögu þess efn-
is að öllum starfsmönnum Snæ-
fellsbæjar sem búa í eigin húsnæði
verði greiddir tuttugu tímar í ó-
unna yfirvinnu ofan á mánaðar-
kaup sitt. Flutningsmaður tillög-
unnar var Gunnar Orn Gunnars-
son. I greinargerð með tillögunni
segir m.a.“ Við J listafólk erum
fólk réttlætis, sanngirni og jöfhuð-
ar og leggjum því fram þessa til-
lögu. Það hefur komið í ljós að
tveir af níu skólastjórum Snæfells-
bæjar njóta áður nefndra kjara,
þrátt fyrir að stjórnendur bæjarins
hafi skrifað undir svohljóðandi
samþykkt:
„Sveitarfélagið skuldbindur sig
til að hlíta samþykktum Launa-
nefndar sveitarfélaga og þeim
kjarasamningum sem nefridin ger-
ir fyrir hönd þess í öllum atriðum
og eru breytingar, viðbætur og
frávik, s.s. kerfisbundnar yfirborg-
anir sem byggja á launategundum
kjarasamnings á gildistíma hans,
óheimilar án samþykkis launa-
nefndar.“
Síðar í greinargerðinni segir:
„Við teljum að ef menn ætli ekki á
annað borð að fara eftir sam-
þykkt Launanefndar í einu og öllu
þá sé það auðvitað sanngirniskrafa
að allir starfsmenn bæjarins njóti
þessara órökstuddu yfirborgana."
Tillagan var felld með fjórum
atkvæðum gegn þremur atkvæð-
um minnihlutans. I bókun frá full-
trúm D - listans kemur fram að
umrædd breyting myndi kosta
Snæfellsbæ 57 milljónir á ári sem
kæmi í veg fyrir allar framkvæmd-
ir á vegum sveitarfélagsins. I bók-
uninni segir einnig: „Fulltrúar D-
listans telja þessa tillögu óábyrga
frá fólki sem er kjörið til að gæta
hagsmuna bæjarfélagsins þar sem
fyrirsjáanlegt er að kostnaðurinn
við framkvæmd tillögu J-listans
myndi keyra rekstur sveitarfélags-
ins í þrot.“
GE
Oveður
Mikið hvassviðri geysaði á
Vesturlandi aðfaranótt þriðju-
dags. Undir Hafnarfjalli fór vind-
hraðinn mest í 55 metra á sek-
úndu og segja má að ófært hafi
verið á þeim slóðum fram eftir
morgni. Ekki er þó vitað um
neinar skemmdir af völdum veð-
urs.
GE
Eltingaleikur á Mýrum
Maður slasaðist alvarlega eftír
að hafa stokkið út úr bíl á flótta
undan lögreglu skammt frá Hítará
á sunnudag. Þrír menn sem voru
með honum í för voru handtekn-
ir á sama stað grunaðir um inn-
brot í verslunina Vegamót.
Eigandi verslunarinnar kom að
mönnunum í versluninni um átta-
leytið á sunnudag en þá var versl-
unin lokuð og átti að öllu eðlilegu
að vera mannlaus. Mennirnir
flúðu af hólmi og óku í suðurátt.
Lögreglunni í Stykkishólmi var
strax gert aðvart og óskaði hún
eftir aðstoð frá Borgarneslög-
reglu. Þegar lögreglan stöðvaði
bílinn var ekki nema einn maður í
honum en tveir menn voru í
skurði þar nálægt og sá fjórði í
öðrum skurði skamint ffá. Fjórði
maðurinn var illa slasaður, hrygg-
brotinn og fingurbrotinn. Oskað
hefur verið gæsluvarðhalds yfir
mönnunum þremur sem sluppu
óslasaðir á meðan rannsókn máls-
ins stendur yfir. Umtalsvert þýfi
fannst í bifreið mannanna en ekki
er vitað hvaðan það kemur.
GE
Sements-
verksmiðjan
til sölu
Fjárlaganefhd hefur lagt til
að heiinild fyrir sölu ríkisins á
hlut hennar í Sements-
verksmiðjunni verði lögð fram
fyrir fjárlagafrumvarp næsta
árs. Samkvæmt heimildum
Skessuhorns hefur nú þegar
einn aðili sýnt verksmiðjunni
áhuga með kaup í huga.
HJH
Vel heppnað Dalaþing
Dalaþing hið fyrra var haldið á
Laugum í Sælingsdal, laugardag-
inn 30. nóvember.
Þórður Þórðarson latinn
Þórður Þórðarson, bifreiða-
stjóri og fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri ÞÞÞ á Akranesi lést
síðastliðið föstudagskvöld.
Skessuhorn fékk Gísla Gísla-
son bæjarstjóra á Akranesi til að
minnast í fáum orðum þessa
merka Skagamanns.
Þórður Þórðarson
26.11.1930- 2. 12. 2002
Svo haga örlögin því að fyrir-
varalaust er burt kallaður úr sam-
félagi okkar góður drengur og
einn af þekktustu sonum Akra-
ness. Bráðkvaddur, langt um ald-
ur fram, er Þórður Þórðarson,
bifreiðastjóri og einn af gullaldar-
drengjum knattspyrnunnar á
Akranesi. Sjónarsviptir er af
þeim merkilega manni, sem af
dugnaði og elju vann hvert það
verk sem hann tók sér fyrir hend-
ur. Þórði verður ekki í fáum orð-
um lýst, en verðugt viðfangsefni
hefði hann orðið söguriturum ís-
lendingasagna hefðu þeir átt þess
kost að lýsa persónu Þórðar og
atgervi. Eflaust hefðu þeir notað
orð eins og myndarlegur maður,
heljarmenni, ósérhlífinn, dökkur
á hrún og brá, fylginn sér og
beinskeyttur. Er þá ótalið margt
sem einkenndi þennan góða
dreng. Þórður flíkaði ekki til-
finningum sínum og fannst ef til
vill einhverjum að hann væri
hrjúfur viðkynningar. Vissulega
var það svo að löngum tíma eyddi
hann ekki í óþarfa orð heldur
kom iðulega beint að efninu og lá
ekki á skoðunum sínum. Annarri
hlið fékk ég þó einnig að kynnast
á Þórði, sem sýndi svo ekki varð
um villst, að undir hvatlegu fasi
var mildur maður, góðhjartaður
og einstaklega hjálpfús þeim sem
til hans leituðu. Mörg erindi mín
leysti hann án málalenginga og á-
vallt var hann fús til verka ef ein-
hverjum þurftí að liðsinna. Ef
málefhið var honum ekki að skapi
þá var svarið skýrt og ekki þurftí
að ræða það frekar. Eitt atvik
stendur alltaf ljóslifandi í minni
mínu varðandi Þórð. Eg sat fyrir
aftan hann þegar ÍA lék við
Feyenoord á Laugardalsvellinum.
Okkar mönnum gekk vel, en eins
og venjulega þá sýndi Þórður lítil
svipbrigði á meðan aðrir létu í sér
heyra. Loks gerðist það að Olaf-
ur sonur Þórðar skoraði eftir-
minnilegt mark, sem reyndist sig-
urmark leiksins. Þá sleppti Þórð-
ur fram af sér beislinu augnarblik
og fagnaði ógurlega, en settist
niður jafn snögglega og hann
hafði sprottið á fætur, leit í kring-
um sig og vonaði eflaust að eng-
inn hefði séð til hans. Jafn minn-
isstætt og mark Olafs er þá mun
þessi mynd fylgja með í huga
mínum til sanninda um það að
hið ytra fas sagði lítdð tíl um hvað
bærðist innra með Þórði Þórðar-
syni.
Þórður var einn af mestu í-
þróttamönnum Akraness. Hann
og félagar hans í gullaldarliði
Akraness, sem urðu fyrst íslands-
meistarar árið 1951, gerðu garð-
inn frægan og lögðu grunninn að
þeirri knattspyrnuvelgengni sem
við erum þekkt fyrir. Með Skaga-
mönnum varð Þórður 6 sinnum
íslandsmeistari og fimm sinnum
markakóngur Islandsmótsins og
hefur aðeins Ríkharður Jónsson
gert betur, en hann varð marka-
kóngur 7 sinnum. Voru þeir báð-
ir gerðir að heiðursfélögum
Emattspyrnufélags IA fyrir fram-
lag sitt til knattspyrnunnar á
Akranesi. í 18 landsleikjum skor-
aði Þórður 9 mörk og þætti það
dálaglegt afrek í dag.
Það er með söknuði og djúpri
virðingu sem Þórður Þórðarson
er kvaddur hinstu kveðju. Bless-
un fylgi minningu hans og sam-
úðarkveðjur sendi ég eftirlifandi
eiginkonu hans, Ester Teitsdótt-
ur, börnum þeirra og fjölskyldu.
Gísli Gíslason,
bœjarstjóri á Akranesi.
Það var íbúaþing sem stýrihóp-
ur urn stefnumótunn fyrir Dala-
byggð, hélt til að heyra hljóðið í í-
búunuin, um hina ýmsu mála-
flokka.
Þingið hófst með setningará-
varpi oddvita Dalabyggðar, Guð-
rúnar Jónu Gunnarsdóttur. Þá tók
til máls Sigurður Þorsteinsson, en
hann er verkefnisstjóri yfir stefhu-
mótunarvinnunni og fór hann í
stuttu máli yfir fyrirkomulag
þingsins. Til að auðvelda barna-
fólki þátttöku í þinginu, sáu nem-
endur úr tíunda bekk Grunnskóla
Búðardals, um barnagæslu í í-
þróttahúsinu, ásamt starfsmönn-
um frá Leikskólanum Vinabæ
Allmiklar umræður urðu um
fjarskiptamál og útsendingar sjón-
varps og útvarps og var eftirfar-
andi ályktun samþykkt samhljóða:
„Dalaþing, ibúðaþing Dala-
byggðar hvetur samgönguráðherra
Sturlu Böðvarsson til að beita sérjyr-
ir því að jjarskiptasamband í Dala-
byggð verði stórbætt. Til að mynda er
ekkert GSM samband jrá Dalsminni
í Norðurárdal, yjir Bróttubrekku og
langleiðina til Búðardals, sama má
segja um NMT sendingar, en þeitn er
allvíða ábótavant og brýnt að bætt
verði úr hið snarasta. Þá er sítenging
(ADSL) ekki til staðar í Dalabyggð.
Utsendingar útvarps og sjónvarps
nást misvel í byggðarlaginu og víða
mjög illa. Þá er einnig átt við út-
varpsútsendingar sem bílútvörp eiga
að ná, en all mikill skortur er á að það
ástand sé þolanlegt.
Viljum við tbúar í Dalabyggð
hvetja ráðherra til að beita sér í því
að þetta ástand verði kannað og bætt
úr hið snarasta. Urbætur á þessu
sviði falli undir altækar aðgerðir í
byggðarmálum. “
Verður þessi ályktun send sam-
gönguráðherra nú þegar.
Alls mættu tæplega 80 manns á
þingið, eða ríflega 10 % íbúa
Dalabyggðar. Eru þingboðendur
mjög ánægðir með hvernig til
tókst bæði hvað varðar mætíngu
og skemmtilegar tillögur, hug-
myndir og umræður. Dalaþing er
eitt af fyrstu íbúaþingum sem
haldið er í sveitarfélagi utan höf-
uðborgarsvæðisins.
GE/ÞE
Stórmeistarafj öldi
í Ólafsvík
Taflfélag Snæfellsbæjar efnir til
skákhátíðar í Olafsvík laugardag-
inn 7. desember. Tilefni hátíðar-
innar er 100 ára affnæli félags-
heimilis Ólafsvíkur og 40 ára af-
mæli skákfélagsins. Jafnframt
verður minning Ottós Arnasonar
heiðruð, en hann var stofnandi fé-
lagsins. Mótið er öllum opið en
meðal þátttakenda verða stór-
meistararnir Friðrik Ólafsson, Jó-
hann Hjartarson og Hannes Hlíf-
ar Stefánsson.
Teflt verður í félagsheimilinu
Klifi og eru mjög vegleg verðlaun
í boði. Fyrstu verðlaun eru 100
þúsund krónur, önnur verðlaun
40 þús. og þriðju verðlaun 10 þús.
Taflfélag Ólafsvíkur, sem nú
heitir Taflfélag Snæfellsbæjar, var
stofnað árið 1962 af Ottó Ama-
syni, sem var mikill skákáhuga-
maður og eldhugi á mörgum svið-
um. Hann var formaður verka-
lýðsfélagsins á staðnum og hús-
vörður í félagsheimilinu í áramgi.
Skáklífið var mjög blómlegt en úr
starfseminni dró eftir fráfall Ottós
árið 1979.
Nýju lífi var blásið í skákfélagið
fyrir fimm árum og hefur síðan
verið teflt á hverju sunnudags-
kvöldi, og hefur virkum félags-
mönnum fjölgað jafnt og þétt.
Skákáhugamenn eru beðnir að
skrá sig til leiks, í síðasta lagi
fimmmdaginn 5.12, hjá Tryggva
Óttarssyni í síma 436 1646, 893
4746 eða með því að senda net-
póst í tryggvi@fmis.is.