Skessuhorn


Skessuhorn - 04.12.2002, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 04.12.2002, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 ^atssunui^ ✓ Atök um þriðja sætið á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi Gísli sigraði Karl V. naumlega Mjótt var á munum þegar kos- ið var á milli alþingismannanna Gísla S Einarssonar á Akranesi og Karls V Matthíassonar í Grundarfirði um hvor þeirra 'skyldi skipa þriðja sætið á lista Samfylkingarinnar fyrir komandi alþingiskosningar. Kosningin fór fram á fundi stjórnar kjördæmis- ráðs Samfylkingarinnar í Norð- vesturkjördæmi á Hólmavík síð- astliðinn laugardag. Sem kunnugt er var samþykkt á kjördæmisfundi sem haldinn var á Hólmavík í október að stillt skildi upp á listann en stór hluti fundarmanna vildi að haldið yrði svokaliað flokksval. Uppsdlling- arnefnd lagði fram tíllögu sem gerði ráð fyrir að Gísli skipaði Borgfirsk „Britney Spears“ Katrín Sigurðardóttir, tíu ára söngkona frá Hvanneyri, geíur út sinn íyrsta sólódisk „ Ups, núfór ég ofhratt“ syngur Katrín Sigurðardóttir meðal annars á nýja diskinum. Mynd: GE Það eru sjálfsagt ekki margir íslenskir tónlistarmenn sem eiga fimm geisladiska að baki þegar þeir eru aðeins tíu ára. Slíkum ferli getur hún Katrín Sigurðardóttir, tíu ára stúlka á Hvanneyri hins vegar slegið um sig með því hún var fyrir skemmstu að gefa út sinn fimmta geisladisk. Diskurinn ber nafnið Kata og er fyrsti sólódiskur söngkonunnar ungu en áður hefur hún sungið inn á Sönglög leikskólanna 2 og 3, Litlu vísnaplötuna og Ekkert mál. Katrín sagði í samtali við Skessuhorn að hún hefði fyrst sungið opinberlega þegar hún var fimm ára. Aðspurð um til- urð nýja disksins sagði hún að afi hennar, Axel Einarsson, ætti hljóðver og það hefði lengi ver- ið draumur þeirra að gefa út sólódisk. Lögin á nýja diskinum henn- ar Kötu eru mörg kunnugleg en þetta eru allt erlend popplög en með nýjum íslenskum text- um eftir Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson. Meðal laga á diskinum má nefna Tómatsósulagið (Ketchup- song) íslenska útgáfu af Sweet sixteen og tvö lög sem Britney Spears hefur gert vinsæl. Annað þeirra heitir á diskinum Ups nú fór ég of hratt (Ups I did it aga- in). Katrín segir að mikil vinna hafi farið í upptökur á diskinum en hún hafi verið skemmtileg. „Eg þurfti að fá svolítið mikið frí úr skólanum en það var allt í lagi. Þetta var mikið meiri vinna en á hinum diskinum því nú var ég bara ein,“ segir Katrín. Þess má að lokum geta að hin borgfirska Britney Spears, ef svo má að orði komast, ætlar að kynna diskinn sinn í Kaupfélagi Borgfirðinga í Hyrnutorgi næstkomandi föstudag kl. 17. Með henni verða tveir ungir dansarar sem einnig koma frá Hvanneyri. GE þriðja sætið en á fundinum á laugardag kom frain breytingar- tillaga þess efnis að Karl yrði í því þriðja og voru það fulltrúar Sam- fylkingarfélaganna á Vestfjörðum sem lögðu fram þá tillögu. Um- ræður um breytingartillöguna tóku á þriðja tíma en svo fór að tillagan var felld með aðeins fimm atkvæða mun eða 46 at- kvæðum gegn 41 en fimm sátu hjá. Tillaga uppstillingar var síð- an samþykkt óbreytt og er listinn þannig skipaður: 1. Jóhann Ársælsson alþingis- maður, Akranesi 2. Anna Kristín Gunanrsdóttir framkvæmdastjóri, Sauðárkróki 3. Gísli S Einarsson alþingismað- ur, Akranesi 4. Sigríður Ragnarsdóttir skóla- stjóri, ísafirði 5. Eiríkur Jónsson lögfræðingur, Akranesi 6. Sigurður Pétursson sagnfræð- ingur, ísafirði 7. Dóra Líndal Hjartardóttir tón- listarkennari, Borgarfirði 8. Jón Marz Eiríksson nemi, Skagafirði 9. Davíð Sveinsson trésmiður, Stykkishólmi 10. Guðjón Vilhjálmsson fiskverk- andi, Drangsnesi 11. Guðrún Konný Pálmadóttir húsmóðir, Búðardal 12. Sigurður E. Thoroddsen sjó- maður, Vesturbyggð 13. Tinna Magnúsdóttir háskóla- nemi, Sveinstaðahreppi 14. Ástríður Andrésdóttir fulltrúi, Akranesi 15. Karl Jóhann Jóhannsson sjó- maður, Grundarfirði ló.Margrét Fanney Sigurðardótt- ir húsmóðir, Vesturbyggð 17.0ddur Sigurðarson rafeinda- virki, Húnaþingi vestra 18.Karvel Pálmason fyrrverandi alþingismaður, Bolungarvík lö.Jóna Valgerður Rristjánsdóttir fyrrv. alþingismaður, Reyk- hólahreppi. 20. Skúli Alexandersson fyrrv. al- þingismaður, Hellissandi. Karl V Matthíasson gaf ekki kost á sér í sæti neðar á listanum en í þriðja sæti. GE Jóhann Arsælsson Gisli S. Einarsson til þess. Alla áherslu þarf að setja á að efla atvinnulíf á svæð- inu. Við þurfum að tileinka okk- ur ný viðhorf á breyttum tím- um, það hyllir undir ný tækifæri á sviði upplýsingasamfélagsins í Borgarfjarðarhéraði öllu. Leggjum áherslu á að vinna með nágrannasveitarfélögum að forystuhlutverki byggðarlagsins í menntun, rannsóknum og fræðimennsku. Nýtum okkur forskot það sem skapast hefur með vexti og viðgangi háskóla- stofnana í héraði, nýtum það til eflingar atvinnulífs og fjöl- breyttari búsetuskilyrða. Leit- um ekki langt yfir skammt. Ágætu íbúar Borgarbyggðar, ég hvet ykkur til að taka þátt í kosningunum n.k. laugardag. Það er undir ykkur komið hverjir veljast til að stjórna sveitarfélaginu næstu árin. XB á kjördag. Kolfinna Jóhannesdóttir skipar 4. sæti B-lista framsóknarmanna. Hugleiðingar fyrir kjördag Þann 7. desember n.k. ganga kjósendur í Borgarbyggð til sveitarstjórnarkosninga, þar ræðst hverjir setjast í næstu sveit- arstjórn. Framsóknarmenn fengu góðan stuðning við sinn málstað í vor og vonast til að hann verði ekki minni nú. Mál- efnaskrá okkar er skýr og við erum tilbúin til þess að vinna okkar sveitarfélagi vel. Vð bjóð- um fram reynslu og þekkingu í þágu þess að styrkja stoðir sam- félagsins. Viðstöðuleysi viðurkennt -rekstur niður um 10% Meirihluti Borgarbyggðarlista og Sjálfstæðisflokks lætur mikið yfir því að nú síðustu mánuði hafi fjármál sveitarfélagsins ver- ið tekin föstum tökum og viður- kenna því eigið viðstöðuleysi á síðasta kjörtímabili. Stofnanir sveitarfélagsins standa í dag frammi fyrir stórfelldum niður- skurði, gangi það eftir að færa hlutfall rekstrar af skatttekjum úr 95% í 85% á einu bretti og trúlega þýðir það í raun meiri lækkun með tilliti til breyttra aðferða við reiknisskil sveitarfé- laga. Hvaða vinnuaðferðir eru það að þenja allan rekstur út og byggja upp væntingar um aukna þjónustu síðustu misserin fyrir kosningar og síðan svo gott sem daginn eftir á að snúa öllu til baka. Það er óviðunandi fyrir stofnanir sveitarfélagsins að búa við rekstrarskilyrði sem þessi. Á þetta ásamt fleiru hefur Fram- sóknarflokkurinn ítrekað bent á. Ekki skal gert lítið úr því að vilja draga úr rekstrarkostnaði málaflokka en það verður að horfa til lengri tíma þegar menn taka ákvarðanir um framkvæmd- ir sem fylgja þarf eftir með aukn- um rekstrarkostnaði og forðast fljótfærnislega ákvarðanatöku. Ekki lán til nýframkvæmda Meirihluti D og L-lista boða nú að ekki eigi að taka lán til ný- framkvæmda næsta ár. Á yfir- standandi ári er þegar búið að samþykkja lántöku nokkra tugi milljóna fram úr því sem fjár- hagsáætlun ársins 2002 gerði ráð fyrir. Ekki er annað að sjá en sú upptalning sem fram kem- ur hjá sjálfstæðismönnum í Skessuhorni í síðustu viku um viðræður og aftur viðræður, þátttöku í uppbyggingu á hinu og þessu hljóti að kosta eitthvað eða hvað. Yfirlýsingar til eins árs í senn eru marklausar á með- an ekki liggur annað fyrir. Á síð- asta kjörtímabili var ítrekað lögð á það áhersla af hálfu fram- sóknarmanna að menn héldu fram fjárhagsáætlun sem stjórn- tæki við rekstur sveitarfélagsins og horfðu lengra fram á veg. Að tölulegar upplýsingar úr fjár- hagsáætlunum og reikningum sveitarfélagsins væru gerðar að- gengilegar íbúunum þannig að auka myndi vitund þeirra og skilning á ákvarðanatöku stjórnenda. Áherslan á atvinnulífið Framsóknarmenn munu ekki skorast undan því að leggja sitt af mörkum til að laga stöðu sveitarfélagsins fái þeir umboð

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.