Skessuhorn - 04.12.2002, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002
^&uaunui.
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Simi: 431 5040
Fax: 431 5041
Akranesi: Kirkjubraut 3 Simi: 431 4222
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi:
Ritstjóri og ábm:
Blaðamaður:
Auglýsingar:
Prófarkalestur:
Umbrot:
Prentun:
Tiðindamenn ehf 431
Gisli Einarsson 892
Hjörtur J. Hjartarson 864
Hjörtur J. Hjartarson 864
Inga Dóra Halldórsdóttir
Guðrún Björk Friðriksdóttir
Prentmet ehf.
5040 skessuhorn@skessuhorn.is
4098 ritstjori@skessuhorn.is
3228 hjortur@skessuhorn.is
3228 hjortur@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinpa er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og I lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
431 5040
Af bergi
brotinn
Eldd var laust við að löghlíðnir og
grandvarir borgarar hrykkju í kút þegar
þeir heyrðu í fjölmiðlum sagt frá æsileg-
um eltingaleik lögreglu við harðsvíraða
bandíta vestur á Mýrum. Minntu þessir
fantar með sínu háttalagi mjög á kóna þá
sem kempur á við Sóðalega Harald (Dir-
ty Harry) og fleiri slíkir kappar hafa þurff
að kljást við á hvíta tjaldinu í gegnum tíðina því þeir stungu sér út úr
bifreiðum á ógnarhraða í tílraun tíl að sleppa úr greipum laganna
varða. Slíkum bellibrögðum eigum við ekki að venjast af íslensltum
glæpamönnum og því var ekki von að mönnum brigði við. Sem bet-
ur fer kom það í ljós í næstu frétt að mennirnir væru að öllum líkind-
um ekld íslenskir. I næstu frétt þar á effir var það staðfest að brota-
mennimir væra af erlendu bergi bromir og loks Iá það ljóst fyrir að
glæponamir væra pólskir, hvorki meira né minna!
Það era engin takmörk fyrir því hvað ég er þakldátur fyrir þjóð-
emisgreiningar íslenskra fjölmiðla á glæpamönnum. Þær era nauð-
synlegar því nú þarf ég fyrst og fremst að gjalda varhug við þeim sem
bera þess merki að vera af erlendu bergi brotnir og þá sérstaldega
þeim sem eru af pólsku bergi brotnir í stað þess að vera hræddur við
alla sem ég sé.
Mér þykir hins vegar vart nóg að gert því ég hef það fyrir satt að
einstalta sinnum séu hér á landi framdir glæpir þar sem sökudólgam-
ir era algjörlega óbrotnir af erlendu bergi en samt minnist ég þess
ekld að hafa heyrt um það fjallað að einstakár glæpir séu framdir af ís-
Ienskum glæpamönnum. Kannski má í þessu tilfelli beita þeirri ein-
földu álylctun að þeir glæpamenn sem ekld era tílgreindir sem erlend
bergbrot séu af íslensku bergi brotnir. Það er hins vegar eldd nógu
nákvæmt fyrir minn smekk. Sé brotíst inn í sumarbústað í Borgarfirði
vil ég vita hvort innbrotsþjófurinn sé af borgfirsku bergi brotínn,
reykvísku bergi brotinn eða jafnvel esldirsku. Gjarnan vil ég líka vita
nánar um ættír hans og hvert þær megi helst rekja. Yrði ég sjálfur
sekur fundinn um einhverja óknyttí t.d. þá ætti að fjalla um það á
þann veg að þarna hafi verið á ferðinni maður af borgfirsku bergi
brotínn, ættaður úr Hvalfirði í föðurætt en Norðfirði í móðurætt. Til
nánari útskýringar mætti einnig rekja ættir konu minnar í nolckra Iiði.
Þetta eru upplýsingar sem verða að teljast bráðnauðsynlegar hvort
sem fjallað er um hraðakstur, hrottaskap eða verðbréfasvindl.
Hér áður fyrr skipti þetta kannski minna máli því þá gám menn
noklcuð áttað sig á upprana bófanna eftir eðli glæpsins. Væri um að
ræða snærisþjófnað var t.d. auðvelt að rekja málið á Skagann, sauða-
þjófnaður átti að líkindum upprana sinn í Húnavatnssýslum, og
prettír í hrossaviðskiptum gátu elcki vísað annað en í Skagafjörðinn.
Sömuleiðis var skeifuþjófnaður fyrst og fremst stundaður af Olsur-
um. Allir þessir þjóðlegu glæpir eru hinsvegar dottnir úr tískn að
mestu og í dag era tegundir glæpa heldur eldd eins staðbundnar og
áður. Því er nauðsynlegt að öllum fréttaskýringum fylgi nálcvæm lýs-
ing á því af hvaða bergi brotamaðurinn er brotinn. Tíðar nafnbirt-
ingar þegar fjallað er um hina og þessa glæpi eru hinsvegar góðra
gjalda verðar. Þó væri enn betra ef einnig fylgdi kennitala og jafnvel
vísun í viðkomandi gagnagrann þar sem hægt er að fá nánari upplýs-
ingar um ættír og uppruna.
Gísli Einarsson af lunddœlksu bergi brotinn.
Nýtt skólahús vígt
á Bifröst
Frá vígslu nýja skólabússins í Hriflu, hátíiíarsal nýja skólahússins. Mynd: GE
Síðastliðinn fimmtudag var
vígt nýtt glæsilegt skólahús Við-
skiptaháskólans á Bifröst og nýir
nemendagarðar formlega teknir í
notkun ásamt kaffihúsi. Á sjötta
hundrað gestir mættu á athöfn í
skólanum að því tilefni. Meðal
þeirra voru rektorar allra ís-
lenskra háskóla og samgönguráð-
herra. GE
Frakkar í heimsókn
Fyrir skömmu
heimsótti bæjarstjór-
inn í Paimpol, hr.
Jacques Saleun,
Grundarfjörð ásamt
þeim Yann og Dom-
inique, sem eru í for-
svari fyrir siglinga-
klúbbinn Skippers
d’Islande. Islandsför-
in var liður í undir- Frá heimsókn
búningi siglinga- GrundarfirSi.
keppni (seglskútur)
sem fram fer í júní 2003, en siglt
verður; Paimpol-Reykjavík-Akur-
eyri-Paimpol.
Siglingakeppnin er mjög stór í
sniðum og krefst mikils undirbún-
ings. Hún hefur fengið mikla um-
fjöllun í frönskum fjölmiðlum og
er stór viðburður í Frakklandi.
I tengslum við keppnina kemur
fjöldi fólks til íslands, aðallega
Frakkar.
Frakkanna í Gnmnskólnnn í
Mynd: Sædís
Heimsóknin tókst vel. Gestirn-
ir sögðust afar ánægðir með það
sem fyrir augu bar, en m.a. var far-
ið í heimsókn í grunnskóla og tón-
listarskóla, skoðuð aðstaða í
Smiðjunni og gengið um á
Grundarkampi undir leiðsögn
Inga Hans. Heimsókninni lauk á
sýningunni Koníak og kartöflur,
þar sem ffanska sagan ræður ríkj-
um. GE/grundarfiordur.is
Frá Lionsklúbbi Borgamess
Starfsemi Lionsklúbbs Borgar-
ness hefúr verið með hefðbundnu
sniði það sem af er þessu starfsári.
T.d. var þjónustudagur Lions 8.
október helgaður eldri íbúum
héraðsins með skemmtikvöldi á
Flótel Borgarnesi. Þó er einn þátt-
ur sem felldur hefur verið niður,
hin árlega perusala klúbbsins og er
íbúum héraðsins þakkaður stuðn-
ingur á undanförnum áram með
kaupum á peram. Þá er þess að
geta að hið vinsæla leikfangahapp-
drætti klúbbsins er að fara af stað
og verður dregið á Þorláksmessu
venju samkvæmt. (Fréttatilkynning)
Handverkfiólk í Borgarfirði hefur opnað sinn árlega jólahandverksmarkað í
gamla VIS húsinu við Borgarbraut í Borgamesi. Mynd: GE
Uthlutun úr
minningar-
sjoði
Uthlutað hefur verið úr
minningasjóði Bjöms Rúnars-
sonar Þverfelli Lundarreykja-
dal, sem var fæddur 30. nóv-
ember 1975 og lést 11. júní
1995. Tilgangur sjóðsins er að
styrkja bráðveik og langveik
börn og ungmenni. Uthlutað
er úr sjóðnum á fæðingardegi
Björns ár hvert og allar tekjur
sjóðsins fara óskiptar til styrk-
þega hverju sinni. Sjóðurinn
var stofnaður 1998 og hafa alls
14 einstaklingar fengið úthlut-
að úr honum til þessa.
Tekjur sjóðsins er sala
minningakorta, áheit og ffjáls
framlög einstaldinga, fyrir-
tækja og félagasamtaka. Minn-
ingakortin fást hjá Sparisjóði
Mýrasýslu Borgarnesi, Spari-
sjóði Bolungarvíkur, íslands-
póstí í Borgarnesi og Islands-
pósti Reykholtí Borgarfirði.
Sjóðurinn er í vörslu Spari-
sjóðs Mýrasýslu Borgarnesi,
reikningur númer 640453,
höfuðbók 18 kennitala
141251-3259.
Þann 30. nóvenber síðastlið-
inn var úthlutað úr minninga-
sjóðnum alls 120.000 kr. til eft-
irtaldra einstaklinga:
Jón Hjalti Sigurðsson
Skollagróf
Hrunamannahrepp
Sigmar Sigþórsson
Högnastíg 15a
845 Flúðir
Elísa Sól Pétursdóttir
Huldugil 44
600 Akureyri
Það er einlæg von okkar að
allir sem þjást af langvinnum
sjúkdómum nái bata sem allra
fyrst. Við viljum þakka þeim
fjölmörgu sem sýnt hafa sjóðn-
urn velvild og hlýhug á síðustu
árum með kaupum á minn-
ingakortum, áheitum og gjöf-
um.
Aðstandendur Minningarsjóðs
Bj'óms Rúnarssonar.
Skátastarf í
Borgamesi
Nú stendur yfir sýning á
skátastarfi í Borgamesi í and-
dyri Safnahúss Borgarfjarðar.
I desember 1962 komu eldri
kvenskátar í Borgarnesi saman
og stofnuðu Svannasveitina
Fjólur. I tiJefni af 40 ára af-
mælinu em sýndir munir og
myndir ffá skátastarfi í Borgar-
nesi síðastliðin 60 ár.
Safnahús Borgarfjarðar er
staðsett að Bjarnarbraut 4-6 í
Borgarnesi, og er sýningin
opin á opnunartíma þess, ffá
13-18 alla virka daga og til kl.
20 á þriðjudags- og fimmtu-
dagskvöldum. Sýningin stend-
ur tíl 30. janúar, 2003.
(Fréttatilkynning)