Skessuhorn - 04.12.2002, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002
úKiissunu^
Kosningarétturinn, okkar atkvæðisréttur ,/jEamm,
Þessi „sjálfsögðu mannrétt-
indi“ eru hvorki sjálfsögð né
sjálfgefin, en það er gæfa okkar
Islendinga að njóta þessa réttar,
óháð og án þvingana. Kosninga-
rétti fylgja einnig skyldur. Því
ber okkur að forðast alla léttúð í
meðferð hans, hvað þá að mis-
beita honum. Kosningar eru al-
vörumál þó að nokkur munur sé
á hvort velja skuli milli júróví-
sjónmelódía eða fulltrúa sem
eiga að sjá fyrir okkar málum um
tiltekinn tíma. Nú stendur fyrir
dyrum hjá íbúum Borgarbyggð-
ar að ganga að nýju til kosninga
til sveitarstjórnar. Nokkuð hef-
ur borið á því, jafnvel án tölulegs
rökstuðnings, að miklaður sé
kostnaður sem er við endur-
kosningarnar. Þessi kostnaður
mun þó minni en sem nemur
andvirði eins vindlingapakka á
hvern kjósanda, m.a.s. fyrir
hækkun. En þetta er bara auka-
atriði í málinu. Kosningar eru
ekki til málamynda. Þeim ber að
skila kjósendum niðurstöðu sem
er hafin yfir vafa; ekki bara ein-
hverri niðurstöðu. Þó er sem að
sumir telji það fullnægjandi. Þá
hefur nokkuð verið úr því gert
að sú óvissa sem ríkt hefur um
lögmæti sveitarstjórnarkosning-
anna í Borgarbyggð í vor hafi
verið hamlandi í störfum bæjar-
stjómarinnar. Má vera að svo
hafi verið í einhverju en í megin
atriðum ekki. Bæjarstjórnin hef-
ur haft fúllt umboð til þess að
ffamfylgja gildandi fjárhagsáæd-
trn og sjá til þess að halda sveit-
arfélaginu gangandi. Svigrúm
þar fyrir utan er hvort eð er sára-
lítið. Þetta „ástand“ hefur verið
skrifað á reikning ffamsóknar-
manna í byggðarlaginu, þeir
jafnvel verið kallaðir lýðræðis-
löggur. Það er nú allt gott með
það en segir meira um nafn-
gjafann en nafhberann. En þeg-
ar jafnt stendur er eðlilegt að
tekizt sé á um þau atriði í fram-
kvæmd kosninga sem eru vafa
undirorpin.
Framsóknarmenn í Borgar-
byggð höfðu til þess ærna á-
stæðu eftir kosningarnar í vor að
freista þess að fá breytt úrskurði
yfirkjörstjórnar og dæmt gilt at-
kvæði sem augljóslega var greitt
B-listanum. Talsvert á annað
hundrað atkvæða, greidd öllum
listum, vom með ýmsum frávik-
um um merkingar en vom tekin
gild og það með réttu. Það sama
hefði átt að gilda um þetta eina
atkvæði. Ekkert stjórnmálafélag
eða aðili að ffamboði í þess hátt-
ar stöðu, sem upp kom í Borgar-
byggð, lætur slíkt yfir sig ganga
án þess að leita tiltækra leiða til
þess að rétta hlut sinn. Fram-
sóknarmenn höfðu sett sér það
markmið að ná inn fjórum
mönnum og það hefði ekki verið
trúverðugt að sætta sig við hlut-
kesti við þessar aðstæður. Þetta
er ekki sjónarspil, þetta er bar-
átta urn að hafa áhrif, pólitízk
barátta. Og enn er það okkar
takmark að ná a.m.k. fjómm
mönnum inn.
Látið er að því liggja að það sé
framsóknarmönnum að kenna
að nú „þurfi“ að kjósa aftur.
Miklu veldur sá sem upphafinu
veldur og vissulega vora það þeir
sem hófu málareksturinn. En
upphaf þessa vandræðagangs er
að finna í framkvæmd utankjör-
fundaratkvæðagreiðslunnar í
Borgarnesi. Þar var vikið frá
formsatriðum og leiðbeining til
kjósenda virðist hafa verið ónóg.
I raun var brotið á þeim kjósend-
um sem í hlut áttu og atkvæði
þeirra eyðilögð. Þeim reglum
sem settar hafa verið um at-
kvæðagreiðslu utan kjörfundar
er ætlað að tryggja öryggi í frarn-
kvæmdinni ogvið meðferð utan-
kjörfundaratkvæða ffá kjörstjóra
til kjörnefndar; að yfir allan vafa
sé hafið hver sé kjósandinn en án
þess að vitnizt um hans val. Því
er ekki hægt að gefa neinn afslátt
frá fyrirmæltum reglum. Mistök
í meðferð eins þessara atkvæða
hjá kjörnefhd nægðu til þess að
ógilda kosningarnar. Það kom
því aldrei til úrskurðar urn aðal-
kæruefni Framsóknarfélags
Mýrasýslu. Hins er svo einnig
vert minnast að það vom sjálf-
stæðismenn með Oðinn Sig-
þórsson í forsvari sem fóm með
málið dómstólaleiðina. Og þar
vom ekki efnisleg rök í fyrir-
rúmi; nei það vom lagakrókar. I
fyrsta lagi var Framsóknarfélagi
Mýrasýslu stefnt vegna úrskurð-
ar Félagsmálaráðuneytisins, í
öðm lagi var véfengd staða fé-
lagsins sem málsaðila á fyrri stig-
um og í þriðja lagi var ráðuneyt-
ið sakað um að hafa farið út fyr-
ir valdmörk sín. Satt bezt að
segja afar ómálefnalegur máls-
staður. Enda fór sem fór.
Að Iokum er rétt að brýna fólk
til þess að nota atkvæðisrétt sinn.
Oft mun það svo að kjörsókn
reynist slakari við endurteknar
kosningar. E.t.v. skortir
stemmninguna sem myndast
Ján G. Guðbjömsson.
kringum kosningar á landsvísu.
En kosningar era alvörumál
hvenær sem til þeirra er gengið.
Atkvæði okkar em alltaf jafn
mikilvæg. Við greiðum atkvæði í
okkar þágu, til stuðnings þeim
málstað sem við aðhyllumst og
því fólki sem gefur kost á sér til
þess að fylgja honum eftir. Að
greiða ekki atkvæði þjónar hags-
munum andstæðinganna.
Alinnumst þess. Setjum því X
við B á laugardaginn kemur.
Jón G. Guóbjörnsson,
Lindarhvoli.
SflAKURSHUS
Hús er byggt úr timbri og saumum
Heimili úr ást og draumum
www.akur.is
Trésmiðjan Akur - Smiðjuvöllum 9
Akranesi - S. 430-6600
SKILTAGERÐ- HÚSAMÁLUN
Bjarni Steinarsson
málarameistari
Borgarnesi
Skiltagerðin Borgarnesi ehf.
Sími 437 1439 Fax 437 1590
ÞRÁINS I GISl ASONAR SF
Vesturgötu 14 • Akranesi
Simi: 430 3660 • Farsimi: 893 6975
Bréfsimi: 430 3666
,AALL
Gestur L. Fjeldsted
Leigubflsstjóri, Borgarnesi
Sími 869 9611
Föst verðtilboð í lengri og/eða reglulegar ferðir
FYRIRTÆKI - HEIMILI
SUMARHÚS
Þetta fyrirtæki er vaktað !
Háþrýstiþvottur
NÆTURSÍMI 690 3900,690 3901,690 3902
¥ Einangrunargler
Öryggisgler
¥ Speglar
Fljót og góð þjónusta
Sendum á staðinn
GLER : ÖLLIN
jr-M OBk
Ægisbraut 30 • Akranesi • Sími 431 2028 • Fax 431 3828
Blóm Búsáhöld
Gjafavara Leikföng
Tek ab mér þrif á útihúsum, stéttum
og geri hús klár fyrir máiun
ÆGIR ÁGÚSTSSON - 692 2802
T amnm^Qstö ð
verður rekin að Sigmundarstöðum í vetur
Byrjum í janúar
Reynir Aðalsteinsson og Pálmi Ríkharðsson
435 1383
llerbcilife dreifandi
Hafðu samband ef þig vantar vörur
22 ára reynsla og árangur
Ráðgjöfog eftirfylgni
Rannveig sími 581 2416 & 891 9920
Getum við a
i
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
ðstoðað þig?
Borgarbraut 55
310 Borgarnes
Símar: 437 2360 / 893 2361
Fax: 437 2361
Netfang: olgeirheIgi@islandia.is
U m
HAUKS ^ i! 1
L Sími 437 1125 BHHIHHHI
Viltu léttost hrott
og örugglcgo?
WWW.DIET.IS
Hringdu núno í símo
699 1060 - Margrét