Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2002, Síða 6

Skessuhorn - 18.12.2002, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 Jtttssutlu,.. Hillir undir lok kjörtímabils mikilla umbrota á sviði samgöngumála Ekki skrýtið þótt slettist á þá sem standa fyrir miklum breytingum segir Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, fyrsti þingmaður Vesturlands og einn umdeildasti stjórnmálamaður landsins Þrátt fyrir einstaka veður- blíðu nánast allt þetta ár hefur víða gustað þótt það sé ekki mælt í vindstigum eða metrum á sekúndu. Það á ekki síst við um pólitíkina og þar eru þeir fáir sem hafa orðið að þola jafn mikinn næðing og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og fyrsti þingmaður Vestur- lands. Hann hefur komið að mörgum erfiðum og umdeild- um málum sem samgönguráð- herra og má þar nefna sem dæmi símasöluna, útboð Her- jólfs, rannsókn Skerjafjarðar- slyssins ofl. Síðasta orrahríðin og ein sú snarpasta var prófkjör Sjálfstæðismanna í Norðvest- urkjördæmi þar sem Sturla stóð uppi sem sigurvegari en öll athygli hefur hinsvegar beinst að framkvæmd próf- kjörsins og meintum belli- brögðum sem hann vísar á bug. Sturla hefur þó fram til þessa náð að klæða af sér pólitískan næðing og blæs á sögusagnir um að hann sé að flýja í skjól eins og kom í ljós þegar blaða- maður Skessuhorns náði hon- um á eintal síðastliðinn þriðju- dag og fékk hann til að rýna í pólitísk veðurkort og líta yfir farinn veg í árslok. Átökin fyrirséð Að loknu prófkjöri halda því margir fram að það hefði mátt sjá fyrir að það leiddi af sér ill- vígar deilur. Sturla segir að menn hafi kannski ekki séð fyr- ir sér að eftirmálin yrðu með þeim hætti sem orðið er. „Það lá fyrir strax í upphafi að það yrðu mikil átök vegna kjördæmabreytingarinnar og það kallaði á val á milli forystu- manna úr gömlu kjör- dæmunum. Það átti því ekki að koma á óvart að það yrði svipt- ingasamt. Reynslan úr próf- kjörum er sú að mjög er litið til heimamanna á hverju svæði, en ég bjóst samt við að menn myndu reyna að líta framhjá þrengstu hreppapólitíkinni og reyna að koma saman sterkum og breiðum lista undir traustri forystu. Eg held reyndar að það hafi út af fyrir sig tekist. Dreifing atkvæða skapaði vissulega óróleika en niður- staðan er samt sem áður öflugur listi með góða menn í öllum sætum. Það lá alltaf fyrir að tveir af þingmönnunum fimm gætu lent í 4. og 5. sæti, í það minnsta gátu ekki allir náð einu af fyrstu þremur. Menn máttu líka búast við að hending myndi ráða, þar sem þarna tók- ust á menn með mikla reynslu. Menn mega samt ekki gleyma því að það er einfaldlega ekki hægt að koma fyrir fulltrúum allra byggðarkjarna í sama sæt- ið. Eg lít því á að ég sé sé ekki síður að vinna fyrir Akurnes- inga, Skagfirðinga, Húvetn- inga og Vestfirðinga en Snæ- fellinga, Dalamenn og Borg- firðinga. Ibúar hins nýja Norð- vesturkjördæmis verða að hætta sem fyrst að hugsa frá þröngu byggðarlegu sjónar- horni og ég er sannfærður um að þetta mun jafna sig á tiltölu- lega stuttum tíma.“ Ómaklegar árásir Sturla hefur lítið tjáð sig op- inberlega um eftirmál próf- kjörsins af hálfu Vilhjálms Eg- ilssonar og kveðst ekki hafa trú á því að halda áfram prófkjörs- slagnum eftir að búið sé að telja. „Eg hlýt að harma við- brögð Vilhjálms sem skaða fyrst og fremst flokkinn og ég tel mjög ómaklega að mér veg- ið í því tilliti. Eg legg hinsveg- ar áherslu á að skapa frið innan kjördæmisins. Málið er núna í höndum Kjördæmisráðs og ég minni á að framkvæmd próf- kjörsins var í höndum trúnað- armanna flokksins. Hún á ekki að vera í höndum frambjóð- enda. Eg treysti stjórn kjör- dæmisráðs mjög vel til að ljúka þessu verkefni og síðan er það okkar frambjóðendanna að vinna út frá þeirri niðurstöðu.“ Ekki vegamálastjóri Fljótlega eftir að úrslit lágu fyrir úr hinu margumtalaða prófkjöri komst sú saga á kreik að Sturla myndi gefa eftir fyrsta sæti listans og taka stöðu vegamálastjóra en Vdhjálmur fengi efsta sætið sem hann hef- ur fullyrt að hafi verið stolið af sér. Sturla vísar þessari sögu- sögn algjörlega á bug og segir ekkert styðja hana utan það að menntun hans og reynsla myndi án efa nýtast ágætlega í umræddu embætti. „Það kom mér skemmtilega á óvart þeg- ar þessi saga var sett af stað. Það hefur hinsvegar aldrei komið til greina af minni hálfu að hlaupa frá því verki sem ég hef boðið mig fram í og svíkja þannig mitt fólk. Það væri Sturla Bödvarsson opnaöi kosningaskrifstofu í Borgamesi í október sl. vegná prjófkjörs Sjálfstceðismanna fyrir Alþingiskosningar sem vcrða vorið 200 heldur ómerkilegt að láta kjósa sig til forystu fyrir flokkinn í kjördæminu og skríða síðan í skjól embættismennskunnar. Eg skil ekki hver hefur koniið þessari sögu af stað en ég hef grun um að það hafi haft nei- kvæðan tilgang. Það sem mestu skiptir er þó að þessi saga á ekki við nein rök að styðjast." Eins og fram hefur komið hafði Sturla sigur í umræddu prófkjöri. Það hlýtur hinsvegar að vera svolítið svekkjandi að vinna sigur eftir harða og erf- iða baráttu en að fá síðan ekki að njóta sigurstundarinnar þar sem öll athygli beinist að því hvort einhver kunni að hafa haft rangt við. „Það er að sjálf- sögðu leiðinlegt en ég trúi því að þótt sundrung ríki um skeið þá verðum við því öflugri þeg- ar við komumst á fullan skrið. Andstæðingarnir ættu því að spara sér að hlakka yfir okkar óförum. Það er að mínu mati langt þangað til að Samfylking- in nær að berja saman sitt lið og Framsókn ekki síður. Okkar prókjör hefur verið mikið áber- andi en ég veit að baráttan hef- ur ekki síður verið hörð hjá hinum. Hún hefur hinsvegar verið meira á bakvið tjöldin. Of fljótt að velja stól Eg hef fundið fyrir miklum stuðningi alls staðar að úr kjör- dæminu og ég er bæði ánægður og þakklátur fyrir það. Það er að sjálfsögðu erfitt þegar deilur verða á milli samherja en ég veit að þessi hópur sem vinnur fyrir flokkinn í kjördæminu hefur bæði styrk og þroska til að takast á við þetta verkefni. Það hefur sýnt sig í skoðana- könnunum að flokkurinn hefur mikið fylgi og það þarf heldur ekki að líta lengra en aftur til sveitarstjórnarkosninganna í vor. Þar kom flokkurinn feikna vel út í kjördæminu. Sérstak- lega þó á Vesturlandi en einnig í Skagafirði og víða á Vest- fjörðum. Sérstaklega má nefna Borgarbyggð þar sem er búið að kjósa tvisvar á þessu ári og það er ekki slæm útkoma að þar skuli flokkurinn kominn með upp undir 40 % fast fylgi. Það hefði einhverntíma þótt saga til næsta bæjar. Það er bara spurning um það hvenær við komumst á fulla ferð í öllu kjördæminu, eftir að Kjör- dæmisráð hefur samþykkt framboðslistann,“ segir Sturla. Þrátt fyrir að enn sé tæplega hálft ár til kosninga er undirbún- ingur vel á veg kominn hjá flest- um stjórnmálaflokkanna og framboðslistar að líta dagsins ljós, einn af öðrum. Sturla kveðst samt ekki búast við að kosninga- baráttan verði neitt lengri en oftast áður. Hann reiknar með að baráttan verði hörð. Hann segir að fleiri mál en oft áður kunni að verða á oddinum í hinu nýja kjördæmi og að sú vinna sem ffamundan sé kalli á öfluga einstaklinga með reynslu, góða fótfestu í kjördæminu og skýra pólitíska sýn. Aðspurður um hvort hann sé tilbúinn að halda áfram að gegna ráðherraembætti á næsta kjörtímabili, standi það til boða, segir Sturla að það sé æskilegt að kjósa fyrst áður en farið sé að velja stóla. „Þetta kjörtímabil hefur verið tími mikils árangurs og mikilla á- taka hvað mig varðar. Þegar ég tók við embættinu einsetti ég mér að vinna skipulega að framgangi margra mikilvægra mála. Eg byrjaði á því að end- urskipuleggja allt starfið í ráðuneytinu og það var að sjálfsögðu ekki átakalaust að hrista upp í stofnunum ríkisins og gustaði harkalega um þá vinnu. Allir sanngjarnir menn sjá líka hversu feiknarlegur ár- angur hefur náðst í vegamál- um, hafnarmálum, flugmálum, öryggismálum í lofti og á legi, fjarskiptamálum og ferðamál- um. Ráðuneyti samgöngumála er að mínu mati það sem hvað mest hefur haft umleikis á yfir- standandi kjörtímabili og því er ekki skrítið þó gusti hressi- lega annað slagið, sér í lagi þegar staðið er fyrir miklum breytingum og tekið á erfiðum málum í stað þess að slá af og hrekjast undan vindi þegar á móti hefur blásið. Ég er því mjög sáttur þótt það hafi geng- ið á ýmsu. Ekki síst er ég á- nægður með þann árangur sem nást hefur fyrir landsbyggðina og þá ekki síst Norðvestur- land.“

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.