Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2002, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 18.12.2002, Blaðsíða 7
§KESSÖH©SW ______MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002________________________________7 Ekki lengur „skæraráðuneyti“ Fram til þessa hafa margir litið á Samgönguráðuneytið sem tiltölulega þægilegt ráðu- neyti, þar sem ráðherrann eigi helst á hættu að fá sigg á hend- urnar við að klippa á borða við opnun vegaspotta og jarð- ganga. A þessu kjörtímabili hefur reyndin verið önnur þar sem mörg umdeild mál hafa komið inn á borð ráðuneytis- ins. Það liggur því beint við að spyrja hvort þarna sé um að ræða einstaka óheppni eða hvort ráðherrann hafði kannski viljandi lagt sig eftir því að taka á málum sem lá fyrir að gætu orðið umdeild. „Það er náttúrulega ljóst að ég hef ver- ið að fást við að umbreyta stór- um málaflokkum og móta nýja stefnu. Ferðaþjónustan er orð- in næststærsti atvinnuvegur þjóðarinnar á eftir sjávarútveg- inum. Það hefði einhvern tím- ann þurft að segja það að minnsta kosti tvisvar að það yrði raunin. Ferðaþjónustan hefúr verið að eflast til muna þótt víða sé enn verk að vinna. Eg hef í minni ráðherratíð, meðal annars, náð samningum við samtök ferðaþjónustufólks og aðila í öðrum atvinnuvegum vegna mikils átaks í markaðs- setningu Islands í Ameríku og Evrópu. Það er að byrja að skila sér núna með góðum ár- angri. Það hefur mikið verið tekið á í menningartengdri og heilsutengdri ferðaþjónustu, sú vinna endurskipulögð og sett skýr markmið. Þá liggur fyrir mikil og merkileg skýrsla sem ber heitið Auðlindin Island, þar sem ferðaþjónustu í land- inu er skipt í áhrifa- og vaxtar- svæði. Svona mætti lengi telja enda hefur ferðaþjónustan ver- ið umfangsmikil í ráðuneytinu á kjörtímabilinu, sem aldrei fyrr. Meira fjármagn hefur ver- ið lagt, af hálfu ráðuneytisins, til markaðsaðgerða á kjörtíma- bilinu en nokkru sinni áður. Það er nú að skila sér. Það fór heldur ekki mikið fyrir fjar- skiptunum í þessu ráðuneyti hér áður fyrr, en þar hefur orð- ið umbylting. A þessu kjör- tímabili hefur frelsi á fjar- skiptamarkaðnum verið að mótast og myndast hefur sam- keppni, enda hefur írý löggjöf breytt öllu því umhverfi. Varð- andi samgöngumálin í heild sinni þá lagði ég fram sam- þætta samgönguáætlun þar sem tekið er á vegamálum, flugmálum, siglingum og fjar- skiptamálum sem einni heild. Við leggjum á djúpið í lok kjör- tímabilsins með Samgönguá- ætlun fyrir árin 2003 til 2014 og það verður spennandi að sjá hvernig til tekst. Eg er einnig mjög sáttur við árangurinn í vegamálum en þar hef ég náð fram meira fjármagni en nokk- ur annar samgönguráðherra. Bara hér í kjördæminu má nefna sem dæmi Borgarfjarðar- braut, tengingu milli Reyk- holtsdals og Hálsasveitar, Bröttubrekku, Vatnaleiðina, Búlandshöfðann, Utnesið, Þverárfjall, veg um Djúpið og Klettsháls breikkun einbreiðra brúa og sitthvað fleira mætti tína til. í nýrri samgönguáætl- un er síðan gert ráð fyrir bundnu slitlagi í Húsafell og brú yfir Kolgrafarfjörðinn verður boðin út í vetur. Þá hef- ur tekist að koma Fróðárheið- inni í stórverkefnasjóð og veg- ur um Þverárfjall er orðinn meðal stórverkefna. Þá er fyr- irhugað að endurbæta vegi í Stafholtstungunum, miklar framkvæmdir í Norðurárdal í Skagafirði og að endurbyggja veginn eftir allri Barðaströnd- inni, í Djúpi og á Ströndum, auk þess sem við munum halda áfram að breikka brýr. Þarna erum við eingöngu að tala um þetta kjördæmi en á heildina litið er þessi samgönguáætlun, áætlun um byltingu í sam- göngumálum. Sama gildir um hafnaframkvæmdir.“ Síminn ekki á útsölu Aðspurður um hvort eitt- hvað standi uppúr öðru fremur þegar litið er til baka segir Sturla að það sé ekki síst árang- ur í vegamálum og útbreiðsla fjarskiptanna auk ferðamál- anna. „Eitt er það sem ég er af- skaplega stoltur af en það er miklar breytingar til hins betra í öryggis- málum, annars vegar varðandi siglingar og hins vegar varðandi flug- umferð. Eg hef fengið Alþingi til að samþykkja langtímaáætlun í örygg- ismálum sjómanna og rannsóknir sjóslysa hafa verið endurskipulagðar. Það sama er með flugör- yggismálin. Þar hefur verið mannað upp á nýtt og ný löggjöf litið dags- ins ljós. Þessi mál hafa algjörlega tekið stakka- skiptum og ég er þakk- látur fyrir að hafa stuðn- ing Alþingis til þess. Sömuleiðis gæti ég nefnt almenningssamgöngurn- ar. Eftir að ég bauð út innanlandsflug og ferju- siglingar hefur sú þjón- usta batnað stórlega og þess má geta að innan- landsflug er farið að skila hagnaði. Þá er ég ekki síst stoltur af því að þjónusta við landsbyggðina í þeim málaflokkum sem mér tilheyra hefur eflst og batnað. Síðast en ekki síst þá er búið að færa 95 störf sem heyra undir ráðuneytið út á land á þessu kjörtímabili en ég held að það fari minna fyrir slíku hjá öðr- um ráðuneytum. Það verður samt sem áður að viðurkennast að það hefur ekki allt gengið eftir eins og ég hafði vonast til enda vart hægt að ætlast til þess. Símasalan tókst t.d. ekki. Hlutabréfa- markaðirnir hrundu í kjölfar 11. september og við vildum ekki selja á því verði sem bauðst. Síminn er einfaldlega ekki til sölu á útsöluverði. Þetta gekk því ekki eftir og það verður bara að hafa það en ég held að þessi tilraun eigi ekki að fæla menn frá því að reyna aftur þegar betur árar. Verð- gildi fyrirtækisins kemur til með að aukast á ný. Það er líka ljóst að almenningur gerir kröfur til þeirrar þjónustu sem Síminn veitir, auk þess sem það er komin samkeppni á þennan markað og ég tel að ríkið eigi ekki að vera í slíkum rekstri.“ Óvinsælastur Þrátt fyrir að Sturla sé sjálfur ánægður með árangurinn á yfirstandandi kjörtímabili þá virðast ekki allir sömu skoð- unnar. Sturla hefur að undan- förnu vermt botnsætið í könn- unum á vinsældum ráðherra ríkisstjórnarinnar. „Það fer ekki hjá því, með þá forystu- menn sem standa í miklum breytingum og eru að taka á málum, að á þá vill stundum slettast. Eg sef hinsvegar róleg- ur og er sannfærður um það sjálfur að ég hef verið á réttri braut og breytt eftir bestu vitund. Þetta er hinsvegar eins og gengur að það verður ein- hver að vera vinsælastur og einhver annar óvinsælastur. Ég horfi hinsvegar frekar á úrslit í kosningum en vinsældakosn- ingar Dagblaðsins sem eru í sjálfu sér sérstakt rannsóknar- efni. Eg tel mig líka geta verið nokkuð bjartsýnan, ef ég horfi til baka, því ég hef unnið sigur í öllum kosningum sem ég hef tekið þátt í, hvort sem er til sveitarstjórnar eða Alþingis og nú síðast í prófkjörinu. Þegar kemur í kjörklefann þá held ég að menn meti verkin meira en skemmtanagildið. Eg er stjórn- málamaður með skýra framtíð- arsýn en ekki skemmtikraftur,“ segir oddviti Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi og einn umdeildasti stjórnmálamaður landsins í dag. HARMONIKUBALL Dúndrandi áramótadansleikur 1 ÁSGARÐL Glæsibæ vid Álfheima í Reykjavík laugardagskvöldið 28. desember nk. frá kl. 22:00. rélagar í Harmc ásamt Hildi um Qc rá kl. 22:00. agi Reykjavíkur 5dóttur sjá Qömlu- og nýju dansarnir. Dansleikur fyrir alla. Miðaverð kr. 1.200,- Skrifstofa til leigu Frá áramótum er til leigu, rúmlega 7 fm skrifstofuherbergi að Bjarnarbraut 8, Borgarnesi. Góð nettenging og aðgangur að kaffi og fundaraðstöðu. Upplýsingar í síma 430 2200. nepal hugbúnaður Uppbob Þribjudaginn 7. janúar 2003 kl. 14.00, aö Kópareykjum í Borgarfjaröarsveit, verður boðið upp eitt óskilahross, hafi þess ekki verið vitjað af eiganda sínum. Um er ræða ómarkaða brúna meri, ca. 2-3 vetra. Borgarnesi 7 6. desember 2002 Sýslumaburinn í Borgarnesi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.