Skessuhorn - 18.12.2002, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002
Hreindýrasteik
að hætti meistarans
Eigendur Fortuna, Ragnar Gunnarsson (t.v.) og Egill Ragnarsstm
Egill Ragnarsson, kokkur og
eigandi veisluþjónustannar
Fortuna á Akranesi, er gestgjafi
Matargatsins þessa vikuna. í anda
jólanna ber Egill hátíðarsteik á
borð lesenda Skessuhorns að
þessu sinni.
Hreindýrasteik
Hreindýrasteik (t.d. innanlæris-
vöðvi) ca. 300 gr. pr. Mann.
Vöðvinn tekinn og kryddaður
með salti og pipar. Einnig má
nota jurtakryddblöndu. Smjör
eða olía sett á pönnu og vöðvinn
brúnaður í 2-3 mínútur á hvorri
hlið. Sett síðan inn í á 180° heitan
ofn í 20-25 mín eftir stærð.
A pönnuna skal sett meira smjör
(það eru nú jól!) og ca. 70-80 gr. á
mann af sveppum, þeir
snöggsteiktir, dass af koníaki (má
vera rauðvín) + rjómi og
rifsberjasulta eftir smekk.
Gott að bera fram með
brúnuðum kartöflum, smjör-
steiktum gulrætum og jökla- eða
Waldorfsalati.
Einnig er gott að hafa perur með
rifsberjasultu og rifnum osti með.
Þægilegast er að taka niðursoðnar
perur, raða þeim í eldfast mót,
setja sultuna í holuna á perunni
og rifinn ost yfir. Hita í 5-6
mínútur.
Verði ykkur að góðu og gleðilegjól'.
GARÐVELAR ehf.
Nú fer að koma tími á
trjáklippingar.
Erum að taka við pöntunum
þessa dagana.
ITökum einnig að okkur
hellulagnir, hleðslur, þökulagnir,
gróðursetningar og lóðahönnun.
Pantanir í símum:
564 4265 og 895 0570
Fax: 564 4267
gardvelar @ simnet.is
Fjárfestið í fagmennsku!
Aukin umsvif í vínffamleiðslu í Borgamesi
William Grant kaupir Pölstar
Vínframleiðslan í Borgamesi með Pölstarinn í broddi jylkingar.
Eitt stærsta áfengissölufyrir-
tæki heimsins, William Grant
& Sons í Skotlandi hefur keypt
vörumerkið Pölstar vodka af
The Reformed Spirits
Company Ltd í Englandi og
Catco.
Pölstar vodkinn er fram-
leiddur í verksmiðju Olgerðar
Egils Skallagrímssonar í Borg-
arnesi en það er Víngerðin í
Borgarnesi sem annast fram-
leiðsluna í verktöku líkt og
hvað varðar aðra brennda
drykki sem framleiddir eru í
verksmiðjunni.
Kristmar Olafsson fram-
kvæmdastjóri Víngerðarinnar
segir að Pölstar hafi náð 50%
markaðshlutdeild á brenndum
vínum hér á landi en vonir séu
bundnar við að umsvifin eigi
eftir að aukast stórlega hjá nýj-
um eigenduin. „Það er ekki
ljóst hvað það þíýðir nákvæm-
lega fyrir verksmiðjuna hér, en
William Grant & Sons hafa
gert tíu ára samning við okkur
um áframhaldandi framleiðslu
Pölstar og það liggur fyrir að
störfum mun fjölga eitthvað en
hversu mikið er ekki hægt að
segja til um strax. William Gr-
ant & Sons er gríðarlega öflugt
fyrirtæki á þessu sviði en á-
stæðan fyrir kaupum þeirra á
Pölstar er sú að þá vantaði
góðan vodka í framleiðslulínu
sína og því er það víst að þeir
munu leggja mikla áherslu á
markaðssetningu hans.“
Islenskur uppruni Pölstar
hefur átt mikinn þátt í vel-
gengni vörunnar í Bretlandi og
tengja breskir kaupendur
Pölstar vodka við hreinleika og
náttúrufegpirð. Pölstar er nú
seldur á Islandi, auk Bretlands
og um borð í flugvélum
Icelandair. Markaðssókn í
Bretlandi hófst ári 1999 og nú
þegar hefur sá árangur náðst
að á þessu ári hafa selst yfir 300
þúsund flöskur í London, en
Pölstar er til sölu á um 500
börum þar. Arsalan hefur
numið um helmingi af sölu
Stolychnaya og um 12% af
sölu Absolutvodka í London
svo tekinn sé samanburður við
helstu keppinautana.
GE
Jöfnunarsjóður
Oli Jón Gunnarsson gagnrýnir að hinir fyrstu séu
síðastir hjá jöfnunarsjóði sveitarfélaga
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
er með er nokkuð umdeildur og
án efa með nauðsynlegri stoð-
tækjum við íslensk sveitarfélög,
ekki síst á landsbyggðinni. Oli
Jón Gunnarsson er einn þeirra
sem hefur gagnrýnt úthlutunar-
reglur sjóðsins og telur þær
gallaðar að ákveðnu leyti.
Bendir hann á að „jöfnunin“ sé
það mikil að eftir standi „ójöfn-
uður“ í hina áttina þannig að
þeir síðustu séu allt í einu orðn-
ir fyrstir og öfugt. Hann bendir
á það sem dæmi að ef bornar
eru saman skattekjur stærri
sveitarfélagannaá Vesturlandi
fyrir árið 2001 pr. íbúa eins og
þær birtast í Arbók sveitarfélaga
þá eru Stykkishólmsbær, Akra-
nes og Snæfellsbær þar í efsta
sæti. Þegar búið er að taka tillit
til framlags úr jöfnunarsjóði eru
þessi sveitarfélög komin í
neðstu sætin á listanum en þau
tekjuhæstu eru Borgarfjarðar-
sveit, Dalabyggð og Grundar-
fjörður en þau eru hinsvegar
með lægstu skatttekjurnar.
„Þeir sem eru að standa sig
njóta þess ekki miðað við þetta
verklag. Eg er að sjálfsögðu
stoltur af góðum árangri fyrir
okkar hönd hér í Hólminum en
mér finnst skrítið að maður sitji
eftir fyrir það að standa sig vel,“
segir Oli Jón. Hann segir að
skýringin á meintum ójöfnuði
sé fyrst og fremst sú að það sé
jafnað með sömu aðferðunum í
tveimur hlutum, annars vegar
jöfnun vegna Grunnskólanna
og hinsvegar almenn tekjujöfn-
un. „Það er greinilegt að nefnd-
in sem fékk það hlutverk að
endurskoða úthlutunarreglurn-
ar fyrir fáum misserum síðan
hefur ekki staðið sig sem skildi.
Olijón Gunnarsson
Jöfnunarsjóðurinn er vissulega
gríðarlega flókdð fyrirbæri en
þetta er eitthvað sem er óeðli-
legt að mínu mati. Eg tek það
hinsvegar ffam að ég tel jöfnun-
arsjóðinn gríðarlega þýðingar-
mikinn fyrir sveitarfélögin og
mín gagnrýni snýr ekki að til-
vist sjóðsins, síður en svo,“ seg-
ir OIi Jón.
GE