Skessuhorn - 18.12.2002, Side 10
10
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002
jAtjaum/i..
Ný alhliða björgunarmiðstöð
risin í Hólminum
Stykkishólmur.
I Stykkishólmi er risið nýtt og
glæsilegt hús sem mun hýsa
starfsemi björgunarsveitarinnar
Berserkja og slökkviliðs Stykkis-
hólms í framtíðinni. Húsið er
við hlið bakarísins, á þeim stað
þar sem gamla lögreglustöðin
stóð.
Það er björgunarsveitin Ber -
serkir sem byggir húsið en
Stykkishólmsbær kemur að mál-
um og fær aðstöðu fyrir slökkvi-
liðið í húsinu. „Þetta er fyrst og
fremst alhliða björgunarmiðstöð
og það á vel við að hafa björgun-
arsveitina og slökkviliðið undir
sama þaki enda er það svo á
þessum minni stöðum að það
eru oft sömu mennirnir að stór-
um hluta sem sinna þessum
störfum. Því má sega að þarna
náist ákveðin samlegðaráhrif,“
segir Einar Strand for-
maður björgunarsveit-
arinnar Berserkja.
„Þetta er kannski
eklá mikil stækkun í
fermetrum ef lagður er
saman gólfflötur
gamla björgunarsveit-
arhússins og gömlu
slökkvistöðvarinnar.
Þetta er hinsvegar
mun hentugra hús-
næði og gjörbreytir
aðstöðunni fyrir báða
aðila. Slökkvistöðin
var illa farin, gólfið
sigið og þar ffam eftir
götunum og okkar húsnæði var
óhentugt.“
Reiknað er með að nýja björg-
unarmiðstöðin verði formlega
tekin í notkun fljótlega eftir ára-
mót. Björgunarsveitin er reynd-
ar þegar flutt inn, enda var hún á
hrakhólum, að sögn Einars, þar
sem sveitin var búin að selja ofan
af sér.
GE
Olver fær hæsta styrldnn
Á síðasta fundi Bæjarráðs
Akraness var ákveðið að leggja
til við úthlutun styrkja að sumar-
búðirnar Olver fengju hæsta
styrkinn að þessu sinni, 1 milljón
króna í tilefni af fjörtíu ára starfi
KFUM og K og rennur féð til
endurbóta á orlofshúsinu.
Þá er gert ráð fyrir að AA
samtökin á Akranesi fái 120
þúsund krónur, Þroskahjálp á
Vesturlandi 240 þúsund, Stíga-
mót 50 þúsund, Kvennaathvarf
50 þúsund, Norræna félagið 60
þúsund, Skagaleikflokkurinn
330 þúsund, Kvennakórinn
Ymur 70 þúsund, Skógræktar-
félag Akraness 130 þúsund,
Fjöliðjan 430 þúsund og Mark-
SumarhúSimar í Ölverifá hœsta styrkinn hjá Akranesbœ aí þessu sinni.
aðsráð Akraness 500 þúsund. námsmannastyrkir 380 þús-
Þá er miðað við að listamanna- undum.
styrkir nemi 890 þúsundum og GE
Mæðrastyrksnefiid
stoftiuð á Akranesi
Nú skömmu fýrir jól var
stofnuð mæðrastyrksnefnd á
Akranesi en það voru nokkrar
konur sem tóku sig saman og
stofnuðu þessa nenfd í þeim til-
gangi að styðja við bakið á þeim
sem af einhverjum ástæðum
búa við þröngan fjárhag. Starf
nefndarinnar er sýnilegast nú
fyrir jólahátíðina þegar nefnd-
arkonur gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að sem flestir
geti haldið gleðileg jól.
Starf nefndarinnar felst með-
al annars í að safna fé og ýmis-
konar jólavarningi sem síðan er
úthlutað til þeirra sem á þurfa
að halda. Þar eru matargjafir
fyrirferðamiklar og ýmislegt
fleira.
Helga Gunnarsdóttir, ein
Helga Gunnarsdóttir formaóur
mœðrastyrksnefiidar á Akranesi.
aðaldriffjöðurin í stofnun
nenfdarinnar og formaður
hennar segir að starfið hafi far-
ið vel af stað. Þessari viðleitni
hafi verið afar vel tekið og fjöl-
margir einstaklingar og fýrir-
tæki Iagt hönd á plóginn.
GE
Allt húsrými nýtt
á Hvanneyri
A mánudaginn var, þann 16.
desember, var stærsti prófadag-
ur þessarar annar við Landbún-
aðarháskólann á Hvanneyri.
Alls þreyttu um 95 nemendur
próf á sama tíma og þurfti
mikla útsjónarsemi til að koma
öllum þessum fjölda fýrir, enda
var nánast allt það stofupláss
nýtt sem til var. Hér var um að
ræða próf á þremur
námsbrautum á háskólastigi,
þe. umhverfis-, skipulags-,
landnýtingar og búvísinda-
braut. Auk þessa tóku nemend-
ur bændadeildar skólans próf á
sama tíma. Nemendur við
LBH verða um 150 talsins eftir
áramótin og hefur ekki verið
áður svo fjölmennt við skólann.
Kœru íbúar Borgarbyggðar
Þökkum ómetanlegan stuðning á árinu sem er að líða
Óskum ykkur farsœldar á komandi ári
___________________________J
Bœjarfulltrúar Sjálfstœðismanna í Borgarbyggð
Helga, Bjarki, Ásbjörn og Magnús