Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2002, Side 14

Skessuhorn - 18.12.2002, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 ú>a£99ltiu>. Skelvinnsla á Breiðafirði hefiir dregist saman um meira en helming á fjórum árum Rannsóknum ekki sinnt sem skildi þrátt fyrir að þær standi til boða ókeypis segir Sigurðnr Agústsson framkvæmdastjóri skelvinnslufyrirtækisins Sigurðar Ágústssonar ehf í Stykkishólmi Sigurður Agústsson Skelfiskveiðar og vinnsla hafa í gegnum tíðina verið einn af burðarásum í atvinnulífi Stykkishólms. Margir óttast að nú hrikti í þeim stoðum vegna síminnkandi skelveiðikvóta. Fyrir um fjórum árum var skel- veiðikvótinn í Breiðafirði 8500 tonn en var færður niður í 6500 tonn. I ár var kvótinn síð- an minnkaður í fjögur þúsund tonn. Nú styttist í vertíðarlok á skelinni en þrátt fyrir lítinn kvóta er hluti hans óveiddur. Eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni standa sveit- arstjórnir einstakra sveitarfé- laga í stappi við ríkisvaldið vegna rekstrar Dvalarheimila. I blaðinu hefur verið fjallað um ítrekaða beiðni Skaga- Skýringin er sú að mun færri skip eru á skelveiðum í ár en undanfarin ár og kvótinn flust á færri hendur. Hér áður fyrr var kvótinn hjá vinnslustöðv- unum og færðist síðan yfir á skipin en undanfarin misseri hefur þróunin verið á þann veg að vinnslurnar eru að eignast kvótann á ný. „Þessi niðurskurður kemur sér skelfilega illa fyrir bæjarfé- lagið í heild. Hér eru margir sem hafa beina eða óbeina at- vinnu af skelveiðum og þar af leiðandi hlýtur að fara hrollur um fólk þegar það sér í hendi sér að veiðarnar hafa verið skornar verulega niður og ó- fyrirséð hvenær við förum aft- ur í 8.500 tonnin,“ segir Sig- urður Agústsson, fram- kvæmdastjóri Sigurðar Ágústs- sonar ehf. í Stykkishólmi en fyrir tækið vinnur um helming- inn af þeirri skel sem veidd er í Breiðafirði. Hinn helmingur- inn er unninn hjá Þórsnesi í Stykkishólmi og Fiskiðjunni Skagfirðingi í Grundarfirði. „Menn óttast jafnvel að veið- ar og vinnsla leggist alveg nið- manna um leiðrétt daggjöld vegna Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi og í Stykkis- hólmi eiga menn við sama vandamál að stríða. „Maður sér það vel í fjárhagsáætlunar- gerðinni hjá okkur hér að ur. Við vitum t.d. ekki hvað ráðuneytið kemur til með að gera á næsta fiskveiðiári. Mér finnst tónninn í Haffó á þá leið að hér verði skorið frekar nið- ur, jafnvel alveg niður við trog. Þá er fyrirséð að um einhverja fólksfækkun verður að ræða hjá okkur. Við vitum að stofninn hefur orðið fyrir skakkaföllum og elstu skeljarnar verið að drep- ast. Við viljum reyna að snúa þeirri þróun við eins fljótt og hægt er og okkur dettur ekki í hug að leggjast á móti vilja Hafró í þessu en hinsvegar þurfa að koma til miklu meiri rannsóknir á skelinni. Þeim hefur ekki verið sinnt sem skildi og menn eru ekki á eitt sáttir um hvað veldur dauða skeljarinnar, hvort það er breytt hitastig í sjónum eða eitthvað annað. Þess má líka geta að veiðin er meira og minna í takt við ráðleggingar Hafró. Rannsóknir forgangsatriði Sigurður segir það vera eitt svigrúm sveitarfélaganna er að þrengjast meðal annars vegna þess að menn eru að taka á sig það sem ríkinu ber. Hér í Hólminum höldum við rekstri Dvalarheimilisins gangandi án þess að fá nægjanlegar tekjur á af helstu forgangsatriðunum í verndun Breiðafjarðar að rann- saka skilyrði skeljarinnar. „Bæj- arfélag eins og Stykkishólmur á mikið undir því að skel og vinnsla geti orðið með þeim hætti sem var fyrir um fjórum árum síðan. Við höfum margoft boðið Hafró að leggja til skip og mannskap, stofn- unninni að kostnaðarlausu í þeim tilgangi að auka við rann- sóknirnar. Þetta hefur alltaf staðið þeim til boða og verið margítrekað. Það hefur hins- vegar ekki verið þegið en samt bera þeir því við að það sem hái þeim sé fjárskortur. Það skýtur skökku við þegar við erum til- búnir að borga obbann af við- bótarkostnaðinum. Við höfum meðal annars óskað eftir því að botnlagið yrði myndað og áhrif veiðarfæra metin. Þeir hjá Hafró hafa sjálfir talið það nauðsynlegt og lofað að koma því í kring en ekkert hefur orð- ið úr því. Það kemur hinsvegar vel til greina að hagsmunaaðil- ar í Stykkishólmi taki það upp á sína arma og hlutist sjálfir til um þessa rannsókn. „ móti,“ segir Óli Jón Gunnars- son bæjarstjóri Stykkishólms. „Daggjöldin duga ekki fyrir rekstrinum því taxtinn er of lágur. Samkvæmt úttekt sem Samband íslenskra sveitarfé- laga gerði eru daggjöld á al- mennt vistrými um 30% of lág og einnig eru gjöld vegna hjúkrunarrýmis óþarflega naumt skömmtuð. Við erum í ár að greiða um sjö milljónir með rekstrinum sem við not- um þá ekki í annað á meðan en að sjálfsögðu ætti ríkið að bera þennan kostnað. Það er mjög slæmt að vera með þessi samskipti í þeim farvegi að annar aðilinn sjái um rekstur- inn en hinn skammti tekjurn- ar. Það þarf að breytast. Ut- tekt sambandsins hefur verið send Heilbrigðisráðuneytinu og málið er statt þar. Þessum útreikningum hefur ekki verið mótmælt og vonandi sjá menn að ríkinu ber að leiðrétta þetta,“ segir Óli Jón. GE Ekki lagstir í kör Sigurður segir að þrátt fyrir niðurskurð séu menn í Hólmin- um hvergi nærri lagstir í kör. „Við viljum ekki vera að mála skrattann á vegginn. Hjá okkur eru menn í vinnslu á rækju og kavíar og þótt það sé á brattann að sækja í rækjunni ædum við að reyna að halda áffam og þreyja þorrann. Ég er líka bjartsýnn varðandi skelina þrátt fyrir allt. Við sjáum þess merki að nýliðun í Breiðafirðinum er góð. Það er bara spurning um að vera þolin- móður og bíða þess að skelin komist í veiðanlega stærð. Ef hún fær frið fyrir náttúrunni og veiðarfærum mun þess ekki langt að bíða að við förum að veiða skel af alvöru á ný. GE Alyktun um vci'ð- hækkanir Eftirfarandi ályktun var samþykkt samhljóða á síðasta fundi trúnaðarráðs Verka- lýðsfélags Akraness: „Trún- aðarráð Verkalýðsfélags Akraness mótmælir harðlega þeim hækkunum á verðlagi sem nýlega hafa verið á- kveðnar eða eru í burðarliðn- um. Verkalýðshreyfingin hef- ur í síðustu kjarasamningum axlað sinn hluta ábyrgðarinn- ar á því að halda aftur af verðbólgu. Hreyfingin sýndi jafhffamt hvers hún er megn- ug í átakinu við að halda verðlagshækkunum innan við rauðu strikin síðasdiðið vor. Þær hækkanir sem nú hafa verið kynntar eru algjört stíl- brot í þessu samhengi. Þær sýna að ffumkvæði okkar er einskis metið og að ríkis- stjórnin, ýmis fyrirtæki og sveitatfélög æda ekki að axla sinn hluta ábyrgðarinnar. Flestum er í fersku minni að það þurftí að knýja ríkis- stjórnina tíl þátttöku í átak- inu um að halda verðlagi inn- an við rauðu strikin. Það er greinilegt að hún nýtír sér fyrsta tækifæri til að hækka verðlag og leggja nýjar álög- ur á almenning í landinu. Þessar aðgerðir hljóta að gefa tóninn í undirbúningi næstu kjarasamninga.“ Stykkishólmsbær greiðir sjö milljónir í ár með rekstri Dvalarheimilisins Daggjöldin eru þrjátíu prósentum of lág segir Oli Jón Gunnarsson bæjarstjóri Stykkishólms Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.