Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2002, Síða 16

Skessuhorn - 18.12.2002, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 ^atssutlu... Sturlaugur Haraldsson tekur við framkvæmdastjórastöðu í Englandi -Rótgróið útgerðarfyrirtæki með svipaða sögu og Haraldur Böðvarsson hf. Skagamaðurinn Sturlaugur Haraldsson var nýlega ráðinn framkvæmdastjóri hjá útgerðar- félaginu Boyd Line Ltd. í Bret- landi, í ensku borginni Hull sem er íslenskum sjófarendum í gegnum tíðina að góðu kunn. Boyd Line hefur yfrr að ráða 40% af þeim þorskkvóta í Barentshafi sem Evrópusam- bandið úthlutar Bretum. Félag- ið gerir út tvo frystitogara sem stunda sínar veiðar að langstærstum hluta í Barentshafi og landa þeir oftast í Tromsö í Noregi. Aflinn er síðan seldur víðsvegar um Bretland og sér Sturlaugur um að stýra þeirri sölu. Svipað og HB Sturlaugur segir það ekki hafa verið erfiða ákvörðun að taka við starfinu þegar eftir því var leitast. „Eg ákvað fljódega að láta slag standa og taka þetta að mér. Ég lít fyrst og fremst á þetta sem tækifæri tíl að takast á við nýja hluti á nýjum stað. Fiskiðnaðurinn og markaður fyrir sjávarafurðir á þessu svæði í. Bretlandi er mjög líflegur og mikið um að vera. Það er því mjög skemmtilegt fýrir þá sem hafa gaman af þessum bransa eins og ég að fá að hrærast í þessu umhverfi. Boyd Line var stofnað árið 1936 og hefur verið fjölskyldufyrirtæki æ síðan eða allt þar til sjávarútvegssvið Eim- skipafélagsins keypti það fýrir skömmu. Þar til ég tók við í byrjun desember höfðu aðeins þrír gegnt framkvæmdastjóra- stöðunni, allir hétu þeir Thom- as Boyd. Fyrirtækið gerði áður út marga togara, all 22 þegar mest var. Skipin veiddu við strendur Islands og Noregs en eins og hjá mörgum öðrum sjáv- arútvegsfýrirtækjum á Bret- landseyjum fór að halla undan fæti hjá þeim þegar Islendingar og Norðmenn færðu sína fisk- veiðilögsögu út í 200 mílurnar. I dag er velta fýrirtækisins um einn milljarður og allt í allt starfa hjá því á sjó og landi um 70 manns.“ Einn í vetur Fyrst um sinn mun Sturlaug- ur halda einn til Hull en fjöl- skyldan flytur út til hans í vor. Sturlaugur telur ekki að aðskiln- aðurinn verði stórt vandamál þar sem hann verði mikið á ferðinni á milli íslands og Eng- lands. Stöðugar ferðir Sturlaugs á milli staðanna tveggja helgast m.a. af þeirri ástæðu að hann mun áfram starfa sem sölustjóri ffystitogara HB en því starfi hefur hann sinnt undanfarin ár. Hefði verið gaman að vinna með 2. ílokkinn Eins og flestum er kunnugt hefur Sturlaugur verið einn styrkasti hlekkur mtl. IA í knatt- spyrnu undanfarin 10 ár eða svo og á hann að baki ríflega 300 leiki með félaginu og eina átta stóra titla. Undanfarin ár í bolt- anum hafa þó reynst Sturlaugi þrautaganga þar sem krónísk bakmeiðsli hafa séð til þess að hann hefur misst úr stóran hluta síðustu tveggja tímabila. En eru knattspyrnskórnir þá endanlega komnir á hilluna margfrægu vegna nýja starfsins? „Eg hafði tekið þá ákvörðun fýrir nokkru að mínum knattspyrnuferli væri lokið enda skrokkurinn orðinn illa ryðgaður þrátt íýrir ungan aldur. Erfitt var einnig að skilja við 2. flokkinn, þar sem ég hafði nýlega ráðið mig til starfa. Eg tel mikinn efhivið þar á ferð sem eflaust hefði orðið skemmtilegt að vinna með. Sem knattspyrnu- áhugamaður á ég þó eflaust eft- ir að njóta mín vel í Englandi enda stutt á marga stórvelli það- an sem ég mun búa. I næsta ná- grenni eru Leeds og Newcastle og síðan eru aðeins tveir tímar á Old Trafford. Ég reikna með að kíkja reglulega þangað enda mitt lið á ferðinni þar.“ Kvótakerfi á boltann Ekki er laust við að blaða- manni Skessuhorns sárni það ögn að Sturlaugur hefur ekki minnst einu orði á hið ástsæla knattspyrnulið, Halifax Town, stolt Jórvíkurskíris, þó ekki sé nema um 60 mínútna keyrsla þangað frá Hull. Sturlaugur sannfærir þó viðmælanda sinn um að heimsókn á The Shay (heimavöll Halifax) sé ekki langt undan. „Einn af sam- starfsmönnum mínum úti í Hull er mikill Halifax aðdáandi og á hann eflaust eftir að taka mig með á einhvern leik í vetur. Það verður örugglega gaman enda hefur Halifax skapað sér sérstakan sess í hugum lesenda Skessuhorns. Ég mun eflaust einnig fýlgjast vel með fram- gangi Hull City FC. Annars verður maður að nýta tímann vel til ferðalaga á fótboltaleiki á meðan konan er heima á Is- landi. Það verður eflaust ein- hver kvótasetning á þær ferðir þegar hún kemur út.“, sagði Sturlaugur kíminn á svip. HJH

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.