Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2002, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 18.12.2002, Blaðsíða 17
^ntaaunu... MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 17 Jólaverslun góð á Akranesi Irafár árita geisladiska í versluninni Hljómsýn á Akranesi. Að sögn kaupmanna á Akra- nesi hefur jólaverslunin í bæn- um verið mjög góð það sem af er. „Þeir sem ég hef rætt við nefna allt að þriðjungi meiri sölu fyrri hluta desember í sam- anburði við sömu daga í fyrra", segir Magnús Magnússon mark- aðsfulltrúi hjá Akraneskaupstað. Hann segir sóknarhug ríkja á meðal kaupmanna og komi það m.a. fram í samstarfi vegna ýmissa uppákoma í bænum og í öðru samstarfi sem kaupmenn hafa á vettvangi Markaðsráðs Akraness. „Það er ánægjulegt að merkja aukna umferð í verslun- um staðarins. Kaupmenn hafa verið að leggja hart að sér til að undirbúa jólavertíðina sem best. Þeir fengu t.d. Gísla Blöndal markaðsráðgjafa fyrir skömmu þar sem hann fór yfir jimis hag- nýt atriði á námskeiði með þeim sem hann nefndi „Seljum meira“. Eg er ekki í vafa um að þetta námskeið gerði mikið gagn, enda þátttaka góð á því. Markaðsráðið hefur meðal ann- ars staðið fyrir bingói og jóla- gluggaleik þar sem jólasveinar og kaupmenn taka höndum saman um að gleðja unga sem aldna alla daga fram til jóla. Hér leggja menn áherslu á afþrey- ingu og létt andrúmsloft sam- hliða því að benda á að á Skag- anum sé hægt að fá allt fyrir jól- in á einum stað“, segir Magnús að lokum. Náttsöngur í Borgamcsldrkju Kammerkór Vesturlands flytur íjölbreytta dagskrá í Borgarneskirkju sunnudags- kvöldið 22. desember og hefst hún kl. 21.30. A eíhisskránni verða rneðal annars kantöntur, einsöngslög og jólasálmar. Með kórnum koma fram þrír hljóðfæraleikarar, fiðluleikar- arnir Lilja Hjaltadóttir og Elfa Kristinsdóttir og Kristinn Orn Kristinsson píanóleikari. Einsöngvarar eru úr röðum kórfélaga. Kammerkór Vesturlands var stofnaður sumarið 1999 og hef- ur þegar komið fram við marg- vísleg tækifæri. Kórnum er ætl- að að gefa söngfólki á Vestur- landi tækifæri til að takast á við metnaðarfull verkefni. Stjórnandi Kammerkórs Vesturlands er Dagrún Hjartar- dóttir. § simirm.is Öskum Vestlendin^um landsmönnum öllum ^leðile^ra jóla fansæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að liða. Starfsfólk Þjónustumiðstöðvar Símans Akranesi. Verslun Símans Akranesi, Stillholti 16-18, sími 430 3000 Næsta tölublað Skessuhoms kemur út 8. janúar 2003 Síðasti frestur til að skila auglýsingum í það blað er á hádegi þriðjudagsins 7. janúar Staifsfólk

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.