Skessuhorn - 18.12.2002, Page 18
18
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002
^KtSSUnuU:
Haldið í hefðimar á leikskólanum
Systir Lovísa ásamt ungum leikurum á leikskólanum í Stykkishólmi. A innfelldu
myndinni má sjá Maríu hafa sig til. Mynd: GE
Þótt St. Fransiskussystur í
Stykkishólmi sjái ekki lengur
um rekstur leikskólans eins og
þær gerðu um áratugaskeið þá
eimir enn eftir af þeirra hefð-
um. Meðal þess er helgileikur
sem settur er upp á aðventunni
á hverju ári, og það sem meira
er að enn eru notaðir sömu
búningarnir og fyrir tæplega
íjörtíu árum. Þessir búningar
eru því búnir að þjóna tveimur
kynslóðum af helgileikurum í
Hólminum. Það var systir
Lovísa sem hannaði þá og
saumaði. Meðal annars er kjóll
Maríu, upphaflega fermingar-
kjóllinn sem Lovísa klæddist
við fermingu sína í Belgíu þeg-
ar hún var tólf ára gömul. Þeg-
ar blaðamann Skessuhorns bar
að garði voru börnin að máta
búningana og það var ekki laust
við að spenningurinn væri meir
yfir því að fara í þessa glæsilegu
búninga heldur en yfir leiknum
sjálfum.
GE
Jólarokk á Skaganum
Allt ætlaði um koll að keyra þegar vinsælasta hljómsveit landsins, um þessar mundir, Irafá, steig á sviðið.
Irafár, Land og synir og I kvöldið. Hljómsveitirnar léku eiginhandaráritanir að tónleik-
svörtum fötum héldu stórtón- nokkur lög af nýútkomnum unum loknum.
leika fyrir fullu húsi í Bíóhöll- diskum sxnum auk þess sem HH
inni á Akranesi á sunnudags- þær gáfu aðdáendum sínum
Fullt út úr dyrum
í Bíóhöllinni
Jóhanna Guðún heillaði viðstadda með fallegum s'óng
Markaðsráð Akraness bauð
til heljarinnar barna- og fjöl-
skylduskemmtunar í Bíóhöll-
inni sl. laugardag. Fjölmörg at-
riði kættu tæplega 400 manns
sem troðfylltu höllina. Jóhanna
Guðrún söng nokkur lög,
Skagaleikflokkurinn sýndi at-
riði úr Dýrunum í Hálsaskógi
og nemendur beggja grunn-
skólanna stigu á stokk, svo fátt
eitt sé nefht af glæsilegri dag-
skrá. Jólasveinarnir mættu að
sjálfsögðu á staðinn og þá vakti
söngatriði Spóahópsins af Vall-
arseli mikla lukku.