Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2002, Side 25

Skessuhorn - 18.12.2002, Side 25
^aiissunu^ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 25 síðustu misserum. Afkoman hefur ekki leyft mönnum neitt útstáelsi og alvörubændur í dag undirbúa sín tækjakaup af tölu- vert meiri nákvæmni en áður var. Þetta fræga sjónarmið Bjarts í Sumarhúsum að sjálf- stæði sé betra en kjöt hefur verið nokkuð lífseigt. Menn hafa lagt töluvert á sig til að geta ráðið sér sjálfir og vera ekki undir aðra seldir. Þarna erum við á eilítið öðrum báti en kollegarnir í nágrannalönd- unum. Það samkeppnisum- hverfi sem við búum við í dag knýr okkur hinsvegar til að endurskoða íjárfestingar í vél- um og notkun þeirra. Véla- vinna í Iandbúnaði á eftir að fara í verktakafyrirkomulag að stóruin hluta. Það er sýnilegur áhugi á því og það á eftir að mótast hratt núna því það eru að verða til verktakar á þessu sviði og bændur sem kunna að nota þá. Þarna þarf að verða gagnkvæm aðlögun en ég er sannfærður um að þarna er töluverða peninga að sækja en menn verða að gera sér grein fyrir að það kostar vilja og aga. Menn verða með öðrum orð- um að skipta á sjálfstæðisvilja sínu og þeirri tekjuvon sem er í samrekstar - eða verktöku- formi.“ Sjálfstætt fólk Bjarni segir að þrátt fyrir meinta sérvisku bænda hafi sam- starf við þá verið afar gott og að einnig hafi verið góð samvinna á milli stofnanna sem tengjast landbúnaði á Hvanneyrarstað. “Síðan ég kom hingað hefur verið mjög náin samvinna á milli Bændaskólans og Bútækni- deildar Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins. Við höfum því ekki alltaf vitað einu sinni hjá hverjum við erum að vinna í það og það skiptið. Við höfum því tengt saman, eins og hægt er, líf- fræðispekúlasjónirnar og véla- baukið og ég á þessu sambýli á- kaflega mikið að þakka í mínu starfi. Samstarfið við bændurnar hefúr líka verið gott og ég hef ekkert yfir þeim að kvarta. Þeir hafa gefið okkur tækifæri til að hafa áhrif á sig og við höfum líka lagt okkur eftir því sem þeir eru að hugsa. Við höfum haft mikil samskipti við bændurna í gegn- um endurmenntunarstarfið og einnig hringja þeir mikið til að fá upplýsingar. Við höfum fund- ið fyrir miklum áhuga og það kallar á ábyrgð af okkar hálfu að vinna í takt við það sem bænd- urnir vilja. Samskiptin við bændurna eru einnig skemmti- leg fyrir utan það faglega því það er yndislegt að njóta þess að kynnast mönnum sem ekki eru fastmótaðir í form nútímans. Hér í héraði og víðar hef ég kynnst mönnum sem gætu hafa stokkið út úr því dásamlega bók- menntaverki, Sjálfstætt fólk eftir meistara, Halldór Laxness, mönnum sem hafa eigin sýn á lífið og tilveruna og láta ekki hé- góma samtímans slá sig út af laginu. Það er mér býsna mikils virði,“ segir Bjarni. Búskapurinn flóknari Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri hefur vaxið og dafn- að undanfarin ár þrátt fyrir margumtalaðar þrengingar í landbúnaði. Það kann að hljóma öfugsnúið en Bjarni seg- ir að það eigi sér eðlilegar skýr- ingar. „Skýringin er að hluta til sú að búskapurinn er að verða æ flóknari eins og annað í þessu þjóðfélagi. Menn hoppa ekki Iengur fullskapaðir inn í hlut- verk bóndans eftir unglingsára- reynsluna. Við njótum þeirrar þróunar og menntunin sem slík er eftirsóknarverð og síðan er það framtíðarverkefni að reyna að breyta henni í tekjur. Það er eftirspurn eftir þekkingu og við höfum reynt að laga námið að sýnilegum þörfum. Þess vegna held ég að Hvanneyri eigi eftir að vaxa og dafna enn frekar. Hingað hafa verið að koma stofnanir og störf tengd land- búnaði og ég held að það sé ljóst að ýmiss konar rannsóknir tengdar greininni eigi eftir að vaxa hér fremur en hitt. Það má kannski segja að það sé líka öf- ugþróun þegar hugað er að samdrætti í landbúnaði, ekki síst í þessu héraði. Hinsvegar er þetta partur af þróun þessara horfir hann í sínum frítíma hvað mest til baka og á það hvernig bændur fortíðarinnar unnu þessi sömu verk og bændur nútímans gera með að- stoð nýjustu tækni og vísinda. Bjarni á nefnilega heiðurinn af því ásamt fleirum að hafa kom- ið upp viðamiklu búvélasafni á Hvanneyri, því eina sinnar teg- undar hér á landi. „ Hér hafði verið vísir að verkfærasafni frá 1940 og hafði Guðmundur Jónsson skólastjóri haldið yfir því hlífiskildi. Vegna þeirrar starfsemi sem hér hefur verið fór ekki hjá því að hingað kæmu ijölmörg ný tæki sem áttu eftir að verða vinsæl um allt land. Þegar ég kom hér aft- ur árið 1971 fór ég að gefa því gaum og þegar leið á þann ára- tug gengum við í það nokkrir saman að blása til sóknar til að gera þetta að alvörusafni. Það tímans sé helst að leita á þessu safni. Vegna vélvæðingar í landbúnaði var nefnilega hægt að nýta mannshöndina við Síldveiðar við strendur lands- ins eða við kontórrekstur í Reykjavík í stað þess að hún væri stöðugt bundin við skít- mokstur eða heyskap. Þetta er ekki síst ástæðan fyrir því að við viljum efla safnið sem kost- ur er. Við erum með eina safn- ið með þessa breiðu áherslu og höfum fengið viðurkenningu frá Þjóðminjasafninu á því að vera sérsafn á sviði landbúnað- artækni. Síðan eru fjölmargir sem eru að safna búvélum og þá dráttarvélum sérstaldega og er það fagnaðarefni. Við tökum okkar hlutverk líka rnjög alvar- lega og teljum okkur vera að halda til haga mikilvægum parti af sögu þjóðarinnar og þjóðmenningarinnar. Þetta er Þúfnabaninn ermikið tæki og vegurum 6,6 tonn. A árunum 1926-8 mun verðgildi hans hafa verið sex til átta jarðir. Bjami Guðmundssm er hér ásamt ungum safigesti. j> V* J* J* • #. , »., #' ”■ ‘».'f '* ' f * j V t: í í j. , f„ • - Wfý ■ f \ i.. . . }.é , K.j _; i ; j i 4*’^ Vt. *. frumgreina. Þegar maður fer að gá hver þjónustuþörfin er hjá þeirn sem eftir eru þá kemur í ljós að hún minnkar ekki þótt sjálfvirknin aukist. Við getum tekið svokallaða mjaltaþjóna sem fækka handtökunum á bú- unum en hinsvegar þarf lið á bak við þá til að viðhalda þeim osfrv. Þessi þjónustuvefur land- búnaðarins er að mestu ósýni- legur, en ef hann er dreginn fram í dagsljósið sést að sam- drátturinn er kannski ekki eins mikill og í fyrstu virðist. Það er samt vissulega rétt að hefð- bundinn landbúnaður hefur dregist nokkuð saman í hérað- inu en það er þá hlutverk okkar hér á Hvanneyri, með öðrum, að mynda brjóstvörn og nýta þær einstöku aðstæður sem hér eru til staðar. Búvélasafnið Þótt aðalstarf Bjarna feldist í að kenna verðandi bændum að horfa fram á veginn og nýta sér þau tækifæri sem þar felast þá hafa margir komið að þessari vinnu og stór hópur sem stend- ur á bak við safnið í dag. Það eru eiginlega þrír þættir sem hafa gert þetta safn að því það sem það er. I fyrsta lagi vernd- arstarf Guðmundar Jónssonar, í öðrulagi aðstoð bútækni- deildarinnar með Grétar Ein- arsson í broddi fylkingar og síðast en ekki síst Jörvakallarn- ir sem við nefnum svo eða Haukur Júlíusson og hans menn hjá verktakafyrirtækinu Jörva hf. Þá hafa yfirvöld skól- ans litið á þetta starf með miklu umburðarlyndi og lagt til bæði peninga og pláss. Safnið telur í dag um 30 forntraktora og alls eru stærri gripir á annað hundrað, en síð- an er hér urmull af smærri gripum. Það sem við erum fyrst og fremst að reyna að gera er að segja sögu tækninn- ar í landbúnaði og hvernig landbúnaðurinn mætti kröfum samtímans um vinnusparnað. Við segjum stundum að skýr- inganna á leyndardómum sam- með öðrum orðum ekki bara túristasjóv. Við þurfum hins- vegar að geta sýnt þetta fólkinu sem á þetta, þ.e.a.s. þjóðinni og draumur minn er sá að við get- um komist yfir þokkalega sýn- ingaraðstöðu. Þá er ekki síður þörf þá að komast yfir góða gejtmslu. Það er gríðarleg þörf á að kippa undan og koma í varðveislu gripum til síðari nota. Það standa yfir miklar breitingar núna. Búseta er víða að detta niður og annars staðar er verið að taka til og henda. Núna fer tíminn því mikið í að leyta að hlutum sem vantar og taka afstöðu til þess sem okkur stendur til boða útfrá varð- veislugildi. Þar höfum við not- ið mikillar velvildar eldri nem- enda skólans sem hafa verið duglegir að benda okkur á gripi sem hér eiga heima.“ Heimildirnar meira virði Aðspurður um hvort mikið sé glatað af dýrgripum úr bún-

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.