Fréttablaðið - 05.09.2019, Síða 4
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
STJÓRNMÁL Nýr dómsmálaráð-
herra verður kynntur í síðasta lagi
á ríkisráðsfundi á morgun klukkan
f jögur. Þingf lokki Sjálfstæðis-
f lokksins verður tilkynnt hver
verður skipaður ráðherra stuttu
áður. Þau nöfn sem helst hafa verið
nefnd eru þingf lokksformaður-
inn Birgir Ármannsson, formaður
utanríkismálanefndar, Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir og þingmaðurinn
Brynjar Níelsson. Öll löglærð.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir,
varaformaður flokksins, hefur tíma-
bundið setið í stóli dómsmálaráð-
herra síðan Sigríður Andersen
steig til hliðar vegna dóms
Mannréttindadómstóls Evr-
ópu um að skipan dómara
við Landsrétt bryti gegn
ákvæðum Mannréttinda-
sáttmálans. Ákvörðun um
hvort taka skuli Landsréttarmálið
fyrir í efri deild Mannréttinda-
dómstóls Evrópu verður tekin í
Strassborg á mánudag og
kynnt á þriðjudag.
Ef Áslaug verður
s k i p u ð r á ð h e r r a
dómsmála þarf hún
að segja sig úr forystu
f lokksins þar sem
hún gegnir starfi rit-
ara, en kveðið er á um það í reglum
flokksins. Flokksráðsfundur hefur
verið boðaður um miðjan mánuð
þar sem hægt væri að kjósa um
nýjan ritara. – ósk
Nýr ráðherra skipaður á morgun og ritarastaðan gæti losnað
Ef Áslaug Arna verður
skipuð ráðherra dómsmála
þarf hún að segja sig úr
forystu flokksins.
Birgir
Ármannsson.
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir.
Brynjar
Níelsson.
GOÐSÖGNIN NÝR JEEP® WRANGLER
jeep.is
JEEP® WRANGLER RUBICON
Rock-Track® fjórhjóladrif, Select-Trac® millikassi, Tru-Lock® 100%
driflæsingar að framan og aftan, aftengjanleg jafnvægisstöng að
framan, Heavy Duty fram- og afturhásing, 17” álfelgur, 32” BF
Goodrich Mudtrack hjólbarðar, bakkmyndavél með bílastæðaaðstoð,
bakkskynjarar, aðgerðarstýri, hraðastillir, sjálfvirk miðstöð með
loftkælingu, rafdrifnar rúður, rafdrifnir og upphitaðir hliðarspeglar
og fjarstýrðar samlæsingar.
WRANGLER RUBICON BENSÍN 273 HÖ. 8 GÍRA SJÁLFSKIPTUR VERÐ FRÁ: 10.890.000 KR.
WRANLGER RUBICON DÍSEL 200 HÖ. 8 GÍRA SJÁLFSKIPTUR VERÐ FRÁ: 10.890.000 KR.
Au
ka
bú
na
ðu
r á
m
yn
d
35
” d
ek
k
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
SVEITARSTJÓRNIR „Þetta er auð-
vitað í fyrsta skipti sem lögð er fram
svona metnaðarfull stefnumörkun í
málefnum sveitarfélaga. Þótt tillög-
ur ráðherrans lúti að fleiri atriðum
en sameiningu sveitarfélaga hefur
tillagan um lágmarksíbúafjölda
fengið langmesta athygli og skapað
mestar umræður,“ segir Aldís Haf-
steinsdóttir, formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
Sérstakt aukalandsþing sam-
bandsins verður haldið á morgun
en þar verður fjallað um stefnu-
mótandi áætlun stjórnvalda í
málefnum sveitarfélaga. Drög að
þingsályktunartillögu um stefnuna
voru kynnt um miðjan ágúst. Þar
er meðal annars að finna tillögur
um að frá og með sveitarstjórnar-
kosningum 2022 verði lágmarks-
íbúafjöldi í sveitarfélagi 250 og eitt
þúsund frá kosningunum 2026.
Er meðal annars gert ráð fyrir allt
að 15 milljarða króna stuðningi úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna
sameininga. Nú hafa drög að reglum
um úthlutun styrkja vegna sam-
eininga verið gerð. Hvert sveitar-
félag getur séð nákvæmlega hvernig
framlög til þeirra gætu orðið miðað
við tillögurnar.
„Það er auðvitað mjög mikil-
vægt að sveitarstjórnarfólk vítt og
breitt um landið geti haft þetta til
hliðsjónar þegar möguleikar á sam-
einingum eru skoðaðir. Ég man ekki
eftir að hafa áður séð svona ítarlegar
útfærslur og jafn mikla fjármuni
sem ríkisvaldið er tilbúið að setja í
sameiningarverkefni,“ segir Aldís.
Hún segir sambandið þó leggja
mikla áherslu á að hér muni verða
um viðbótarfjármuni inn í Jöfnun-
arsjóð að ræða. Samkvæmt drögum
að reglum um stuðning til að greiða
fyrir sameiningu fá öll sveitarfélög
100 milljón króna styrk til að stuðla
að endurskipulagningu þjónustu og
stjórnsýslu.
Framlög til skuldajöfnuðar, sem
eru reiknuð út frá skuldahlutfalli,
geta að hámarki orðið 400 millj-
ónir. Þá verður sérstakt byggða-
framlag veitt þeim sveitarfélögum
þar sem íbúafjölgun hefur verið
undir árlegu meðaltali á landsvísu
sem getur mest orðið 200 milljónir.
Aldís segir að eðlilega séu skiptar
skoðanir meðal sveitarstjórnar-
fólks þegar kemur að tillögum um
lágmarksíbúafjölda.
„Það eru alls konar sjónarmið
uppi. Þetta snýst um tilfinningar,
fjárhagslega hagsmuni, aðstöðu og
landfræðilegar staðreyndir. Þarna
erum við auðvitað að tala um mjög
stórt og viðamikið mál og mikla
stefnubreytingu,“ segir Aldís.
Hún segist eiga von á góðum og
hreinskiptnum umræðum á þing-
inu á morgun. „Ég vona svo sannar-
lega að sveitarstjórnarfólk beri
gæfu til að hugsa til framtíðar. Með
hvaða hætti við getum brugðist við
þeirri þróun sem er óumflýjanleg
og þeim áskorunum sem framtíðin
felur í sér.“
Þá þurfi að horfa til þátta eins og
fjórðu iðnbyltingarinnar og þeirra
tækninýjunga sem séu að verða
að veruleika. Þeirri þróun fylgi
alls konar möguleikar fyrir lands-
byggðina sem sterk og öflug sveitar-
félög verði að geta nýtt sér eigi þau
að dafna til framtíðar.
„Ég held að það sé erfitt að færa
rök fyrir því að til langrar framtíðar
séu sveitarfélög, sem hafa jafnvel
innan við 100 íbúa, fær um að sinna
þeim verkefnum sem þeim ber til að
hægt sé að veita íbúum þessa lands
tiltölulega sambærilega þjónustu,
sama hvar er.“
sighvatur@frettabladid.is
Sameiningarmál verða mjög
fyrirferðarmikil á aukaþingi
Á morgun fer fram sérstakt aukalandsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem fjallað verður um
stefnumörkun stjórnvalda í málefnum sveitarfélaga. Formaður sambandsins á von á hreinskiptnum og
góðum umræðum en segist skilja að skiptar skoðanir séu meðal sveitarstjórnarfólks um sameiningar.
Næsta sameining gæti orðið milli fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi.
Djúpivogur er eitt þeirra en kosið verður í lok október. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ég man ekki eftir að
hafa áður séð svona
ítarlegar útfærslur og jafn
mikla fjármuni sem ríkis-
valdið er tilbúið að setja í
sameiningar-
verkefni.
Aldís Hafsteins-
dóttir, formaður
Sambands
íslenskra sveitar-
félaga
STJÓRNSÝSLA Bílamiðstöð ríkislög-
reglustjóra verður lögð niður um
áramót. Þetta kom fram í kvöld-
fréttum RÚV í gær. Hefur dóms-
málaráðuneytið óskað eftir því að
Ríkisendurskoðun geri heildarút-
tekt á Embætti ríkislögreglustjóra
en mikill ólestur í rekstri Bílamið-
stöðvarinnar er sagður gefa ástæðu
til slíkrar úttektar.
Fréttablaðið greindi fyrst frá því
í vor að mikillar óánægju gætti hjá
lögregluumdæmum landsins með
rekstur Bílamiðstöðvarinnar sem
hefur verið starfrækt hjá Ríkislög-
reglustjóra frá aldamótum. Mark-
mið reksturs hennar var aukin
hagkvæmni með sameiginlegum
rekstri bílaflota allra lögregluum-
dæma landsins. Það markmið mun
hafa snúist upp í andhverfu sína og
leiguverðið sem embættin greiða
fyrir bílana hefur hækkað svo úr
hófi að ekkert samræmi sé lengur
á milli raun- og rekstrarkostnaðar
og fjárhæðanna sem renni til Bíla-
miðstöðvarinnar frá lögregluemb-
ættunum. – aá
Stjórnsýslan hjá
Haraldi skoðuð
Haraldur Johannessen er ríkislög-
reglustjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
5
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
6
-1
0
D
4
2
3
B
6
-0
F
9
8
2
3
B
6
-0
E
5
C
2
3
B
6
-0
D
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K