Fréttablaðið - 05.09.2019, Qupperneq 6
UTANRÍKISMÁL Varaforseti Banda-
ríkjanna, Mike Pence, þakkaði
Íslendingum sérstaklega fyrir að
hafa ekki þegið aðstoð Kínverja í
hinu svokallaða belta- og brautar-
verkefni sem þeir standa fyrir, á
blaðamannafundi eftir heimsókn
sína í Höfða í gær. Ljóst er að erindi
heimsóknar hans má ekki síst rekja
til aukins áhuga Rússa og Kínverja
á svæðinu eins og varaforsetinn
minntist sjálfur á. Katrín Jakobs-
dóttir lét þess getið á blaðamanna-
fundi með Pence í gærkvöldi að
þátttöku Íslands í umræddu verk-
efni hefði ekki beinlínis verið hafn-
að heldur hefði ekki verið opnað á
samskipti við Kínverja um það. Þá
sagði Katrín Íslendinga hafa meiri
áhyggjur af loftslagsbreytingum á
norðurslóðum en Rússum.
Gríðarlegur viðbúnaður sérsveit-
ar lögreglunnar var í Reykjavík og
nágrenni í gær á vegum viðbragðs-
aðila og fundu margir fyrir töfum á
umferð á meðan á sjö klukkustunda
langri heimsókn varaforsetans stóð.
Komu Pence, og þá sérstaklega
íhaldssömum viðhorfum hans, var
víða mótmælt í borginni í gær.
Í nágrenni fundarstaðarins
Höfða reið Advania á vaðið og dró
regnboga fána að húni við höfuð-
stöðvar sínar. Önnur fyrirtæki
og stofnanir fylgdu fordæminu
og þegar fundarhöld hófust hafði
skjaldborg regnbogafána verið
mynduð um Höfða.
Tveir voru handteknir vegna
fánabrennu í nágrenni Höfða en
mótmæli fóru að öðru leyti frið-
samlega fram.
Á fundi sínum með varaforset-
anum lýsti Guðni Th. Jóhannes-
son, forseti Íslands, vonum sínum
til þess að varaforsetinn fengi að
kynnast Íslendingum og þeim
gildum sem hér eru í hávegum höfð,
eins og frelsi og fjölbreytileika.
Pence lýsti áhyggjum Bandaríkja-
manna af áhrifum bæði Kínverja og
Rússa á norðurheimskautinu.
„Það er ekki spurning að Kína
er að verða öflugra á norðurheim-
skautinu, bæði efnahagslega og í
hernaðarlegu tilliti,“ sagði Pence
og sagði það sama gilda um Rússa.
„Núna er tíminn til að styrkja
bandalag okkar og okkar samstarf
í öryggismálum.“
Þá varaði Pence Íslendinga sér-
staklega við kínverska tækniris-
anum Huawei. Bandarísk stjórn-
völd hafa meðal annars sjálf
meinað bandarískum fyrirtækjum
og stofnunum að eiga í viðskiptum
við tæknirisann. Fyrirtækið kemur
meðal annars að uppbyggingu á 5G
neti hérlendis og hefur forstjóri
fyrirtækisins áður hafnað ásökun-
um um njósnir í samtali við Frétta-
blaðið.
„Ég hvatti Íslendinga einnig til
að taka tillit til vandamálanna sem
því fylgja þegar sérhver frjáls þjóð
notar tæki frá Huawei. Huawei er
kínverskt fyrirtæki sem samkvæmt
kínverskum lögum neyðist til að
afhenda öll gögn sem það sækir til
kínverskra yfirvalda og kommún-
istaf lokksins,“ sagði Pence. Hann
sagðist hafa hvatt utanríkisráð-
herra Ísland til að taka afstöðu með
Bandaríkjunum og hafna umræddri
tækni.
Inntur eftir því hvort það hefðu
verið mistök að loka herstöðinni í
Keflavík árið 2006 svaraði Pence því
ekki beint. Hann sagðist hins vegar
myndu spjalla við starfsfólk á her-
stöðinni og greina Donald Trump
Bandaríkjaforseta frá gangi mála.
Þá sagðist hann ætla að ræða her-
stöðina frekar við forsætisráðherra.
Sjálf hafði Katrín Jakobsdóttir ekki
síður áhuga á að ræða hinsegin- og
jafnréttismál á fundi þeirra.
odduraevar@frettabladid.is
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
KEBE
Hvíldarstólar
Tegundir: Rest og Fox
Opið virka dag
a
11-18
laugardaga
11-15
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
1 Bjargaði mannslífi um borð í flugvél Icelandair Hlynur
Davíð Löve og hjúkrunarfræðingur
um borð í flugvél frá Spáni höfðu
skjót handtök þegar maður
veiktist.
2 Tveir handteknir eftir að kveikt var í bandaríska fán-
anum Mótmælendum var heitt
í hamsi vegna komu Mike Pence,
varaforseta Bandaríkjanna.
3 Tveir á slysadeild eftir árekst-ur lögreglubíls og fólksbíls á
Miklubraut Vitni segja bílana hafa
verið illa farna eftir áreksturinn.
4 Rikka hætt hjá Árvakri Fjöl-miðlakonan Friðrika Hjördís
Geirsdóttir sér ekki lengur um
ferðavef mbl.is.
5 „Ég hef aldrei áður hitt borgar-stjóra á hjóli“ Yfirmaður ör-
yggismála Mike Pence varaforseta
efaðist um að Dagur væri alvöru
borgarstjóri.
Dorian stefnir að Suður-Karólínu.
NORDICPHOTOS/GETTY
BANDARÍKIN Fellibylurinn Dorian
er að auka hraðann á leið sinni að
austurströnd Bandaríkjanna. Dori-
an er á norðurleið og gert er ráð fyrir
að hann skelli á strönd Suður- og
Norður-Karólínu á morgun. Hann
olli mikilli eyðileggingu á Bahama-
eyjum þar sem minnst fimm létu
lífið. Matvælaáætlun Sameinuðu
þjóðanna telur að minnst 61 þúsund
þurfi á matvælaaðstoð að halda.
Þúsundum hefur verið gert að
yfirgefa heimili sín í Flórída og
Georgíu. Yfirvöld í Suður-Karólínu
búa sig undir verstu flóð í 30 ár. – ab
Dorian stefnir á
Suður-Karólínu
Pence fundaði með forseta Íslands og utanríkisráðherra í Höfða í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Varar við Rússum og Kínverjum
Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, voru samskipti Íslands við Kínverja ofarlega í huga á blaða-
mannafundum í heimsókn sinni hér á landi. Íslendingum var aftur á móti fjölbreytileiki efst í huga.
Ég hvatti Íslendinga
einnig til að taka
tillit til vandamálanna sem
fylgja því þegar sérhver
frjáls þjóð notar tæki frá
Huawei.
Mike Pence, varaforseti Banda-
ríkjanna.
Fyrirtæki og stofnanir í nágrenninu slógu fjölbreytileikaskjaldborg um
Höfða meðan á heimsókn Pence stóð þar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
BRETLAND Boris Johnson forsætis-
ráðherra kallaði í gær eftir að þingið
yrði leyst upp og kosningar yrðu
haldnar þann 15. október, aðeins
tveimur vikum f yrir áætlaða
útgöngu Bretlands úr Evrópusam-
bandinu. Náði tillagan ekki þeim
tveimur þriðju hlutum þingheims
sem þurfti til. 298 kusu með en 56
voru á móti. Um helmingur þing-
manna kaus ekki.
Hiti var í þingmönnum og harð-
orð lygabrigsl gengu manna á milli.
Þingforseti þurfti margoft að stilla
til friðar og hvetja þá til að hafa
hemil á orðanotkun sinni. Vakti
ræða Kenn eth Clarke, fyrrverandi
fjármálaráðherra, athygli en hann
var sérstaklega harðorður í garð
Johnsons.
Clarke var einn þeirra 21 þing-
manna sem Johnson rak, ef svo má
segja, úr Íhaldsflokknum á þriðju-
dagskvöld. Hann situr nú sem
óháður þingmaður eins og Nich-
olas Soames, barnabarn Winstons
Churchill, og hinir sem voru reknir
úr f lokknum.
Fyrr um daginn var kosið um
frumvarp Jeremys Corbyn þess
efnis að þvinga forsætisráðherra til
að sækja um frekari útgöngufrest.
Var sú tillaga samþykkt með 329
atkvæðum gegn 300.
Þá var einnig samþykkt að reyna
að koma síðasta samningi Theresu
May, fyrrverandi forsætisráðherra,
á borðið í Brussel. - khg
Kosningatillaga Boris felld í þinginu
Johnson var tvisvar sigraður í gær. NORDICPHOTOS/AFP.
5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
5
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
6
-2
4
9
4
2
3
B
6
-2
3
5
8
2
3
B
6
-2
2
1
C
2
3
B
6
-2
0
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K