Fréttablaðið - 05.09.2019, Page 8

Fréttablaðið - 05.09.2019, Page 8
Frá 2018 hefur hlutur erlendra fjárfesta aukist úr 3 prósentum í 30 prósent. Askja BL Brimborg Hekla Toyota* 2017 2018 2017 2018 2017 2018 2017 2018 2017 2018 Tekjur 15.772 15.142 26.460 26.857 20.744 21.348 16.348 16.978 32.214 26.701 Hagnaður 368 12 1.378 487 260 -368 140 -25 1.409 581 Eigið fé 1.223 1.235 4.284 3.771 2.267 2.068 1.665 1.570 2.309 2.490 Eignir 6.809 6.272 8.918 9.459 11.469 11.708 6.264 5.260 8.827 8.668 Arðsemi eiginfjár 1% 12% -17% -2% 24% Eiginfjárhlutfall 18% 20% 48% 40% 20% 18% 27% 30% 26% 29% Heimild: Ársreikningar *Ársreikningar TK Bíla og Toyota á Íslandi eru lagðir saman. Annað félagið flytur bílana inn og hitt selur og þjónustar þá í Kauptúni. ✿ Afkoma bílaumboða Fjárhæðir eru í milljónum króna ÓDT Ráðgjöf, félag í eigu Ólafs D. Torfasonar, stofnanda Íslandshót- ela, var með 14 milljarða í eigið fé í árslok 2018. Eignir félagsins námu 14.158 milljónum og eiginfjárhlut- fallið 99 prósentum. ÓDT Ráðgjöf hagnaðist um 1.304 milljónir á síð- asta ári samanborið við 323 millj- ónir 2017. Langstærsta eign félagsins er ein stærsta hótelkeðja landsins, Íslandshótel, sem rekur sautján hótel um allt land, þar af sex í Reykjavík. Keðjan hagnaðist um 1.430 milljónir á síðasta ári. – þfh 14 milljarða króna eigið fé Volkswagen Caddy. Vertu klár fyrir veturinn. Hausttilboð. Framhjóladrifinn, 1.2 TSI: 2.690.000 kr. Fjórhjóladrifinn, 2.0 TDI: 3.790.000 kr. Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi undanfarin ár. Áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum, fjórhjóladrifinn og í fjölda útfærslna. Vanguard, stærsta fyrirtækið í stýr- ingu verðbréfasjóða í Bandaríkjun- um, var á meðal þátttakenda í útboði Marel sem lauk í júní en sjóður í stýr- ingu félagsins – Van guard Interna- tional Explorer Fund – á tæplega 1,2 milljónir hluta í fyrirtækinu sem er metið á um 700 milljónir miðað við núverandi hlutabréfaverð. Þetta má sjá í nýju árshlutauppgjöri en í lok júní átti sjóður félagsins sem nemur 0,15 prósenta hlut í Marel. Þá hefur sjóður í stýringu Col- umbia Threadneedle – European Smaller Companies Fund – bæst við hluthafahóp Marel, að því er fram kemur í bréfi til sjóðfélaga í júlí. Ekki er að finna upplýsingar um hversu stór hlutur sjóðsins er. – hae Vanguard með 700 milljóna hlut í Marel Ólafur D. Torfason. Afkoma fimm stóru bílaumboðanna var nokkuð ólík í fyrra. Rekstur BL og Toyota gekk vel en harðara var í ári hjá Brimborg, Heklu og Öskju, eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Umtalsverður samdráttur er á milli áranna 2017 og 2018 enda var met slegið í bílasölu árið 2017. Jón Trausti Ólafsson, formaður Bílgreinasambandsins og fram- kvæmdastjóri Öskju, segir að bíla- sala á fyrri hluta árs 2018 hafi gengið afar vel. Aftur á móti hafi skarpur samdráttur orðið á seinni helmingi ársins. Hann megi rekja til þess að fólk hélt að sér höndum því verka- lýðsforystan krafðist umtalsverðra launahækkana en kjarasamningar voru lausir. Það skapaðist því mikil óvissa um framvindu mála í efna- hagslífinu og sömuleiðis hafi ríkti óvissa um hvort rekstri WOW air yrði haldið áfram. Egill Jóhannsson, forstjóri Brim- borgar, segir að samdrátturinn hafi hafist í febrúar 2018, hann hafi aukist um sumarið og svo kom dýfa í september. Á þeim tíma hafi gengi krónu sömuleiðis veikst sem dragi almennt úr bílasölu. Í 18 mánuði af síðustu 19 hafi bílasala dregist saman. Brimborg tapaði 368 milljónum króna árið 2018 og gekk reksturinn verst af bílaumboðunum fimm sem umfjöllunin nær til. Egill segir að árið hafi verið strembið. Hann rekur tapið til erfiðleika í bílasölu, mikilla fjárfestinga við opnun nýrra höfuð- stöðva Veltis í Hádegismóum, sem er atvinnutækjasvið fyrirtækisins, og kostnaðar við flutningana, fækkun- ar í f lota bílaleigu fyrirtækisins og ríkulegra fjárfestinga í tölvukerfum og sjálfvirknivæðingu. Hann segir að reksturinn í ár gangi betur. Tekjur atvinnutækja- sviðsins hafi vaxið mikið eftir að flutt var í hentugra húsnæði og við- snúningur sé hjá bílaleigunni. Velta bílaleigunnar sé hin sama og í fyrra þrátt fyrir að bílum í f lotanum hafi fækkað um 30 prósent og starfs- mönnum fækkað. Engu að síður sé þjónustustigið jafn gott og áður sem þakka megi sjálfvirknivæðingu. Jón Trausti segist vera ánægður með að Askja hafi verið rekin með 12 milljóna króna hagnaði árið 2018 í ljósi markaðsaðstæðna. „Rekstur- inn í ár er sömuleiðis krefjandi. Það er áframhaldandi samdráttur í bílasölu á þessu ári. Reikna má með að hann muni nema 35 til 40 prósentum. Ég er hins vegar nokkuð bjartsýnn á árin 2020 til 2022. Það er mikil þörf á endurnýjun bíla og það verður kominn betri taktur í efnahagslífið þegar ýmissi óvissu varðandi ferðaþjónustuna hefur létt.“ Hann segir að bílasala hafi gengið afar vel á árunum 2015-2017. Bíla- umboðin hafi á þeim árum hagað rekstrinum með þeim hætti að safn- ast hafi upp sterkt eigið fé. Fyrir- tækin standi því traustum fótum og geti því mætt þeirri ágjöf sem fylgir minni bílasölu. „Það hafa alltaf verið miklar sveiflur í bílasölu, þær eru hluti af okkar veruleika.“ Jón Trausti vekur athygli á að Askja hafi aldrei greitt arð heldur fjárfest fyrir hagnaðinn í innviðum til að geta þjónustað viðskiptavini betur. Fyrirtækið hafi til dæmis nýlega byggt tvö fullbúin bílaverk- stæði á Krókhálsi sem og nýjan sýn- ingarsal fyrir KIA sem var opnaður í janúar. Bílaumboðin í stakk búin til að takast á við niðursveiflu Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, segir að í 18 mánuði af síðustu 19 hafi bílasala dregist saman. Jón Trausti Ólafsson, formaður Bílgreinasambandsins og framkvæmdastjóri Öskju, segir að bílasala á fyrri hluta árs 2018 hafi gengið afar vel. Aftur á móti hafi skarpur samdráttur orðið á seinni helmingi ársins. Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, er bjartsýnn á sölu bíla árin 2020-2022. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR MARKAÐURINN 5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 5 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B 6 -1 F A 4 2 3 B 6 -1 E 6 8 2 3 B 6 -1 D 2 C 2 3 B 6 -1 B F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 4 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.